RSS Amplifier

Þorparinn · Feb 2, 2026

Raunveruleg vandamál hins almenna íslendings

0
Sign in to vote or save

Bragi Páll Sigurðarson · Þorparinn

Á hverju ári tilnefna hin ýmsu samtök og stofnanir víða um heim orð ársins. Það er áhugavert að fletta þessum listum upp og skoða því þeir endurspegla tíðarandann ágætlega. Til dæmis valdi Oxford orðabókin orðið podcast sem orð ársins 2005. Það var nýlegt fyrirbæri, orðið samblanda af iPod (sem fyrir unglingana var gríðarlega vinsælt tæki til þess að hlusta á ólöglega niðurhalna tónlist) og cast sem er stytting á broadcast eða útsending.

American Dialect Society valdi árið 1992 orðið Not! með upphrópunarmerki og öllu saman, sem var notað sem ending á setningu til þess að snúa merkingu hennar við. Til dæmis: Ég kann vel við móður þína, Not! Og er þar átt við að líklegast kann viðkomandi alls ekki nógu vel við móður viðmælenda síns.

1995 var það world wide web sem var vinsælt í nokkur ár en virðist að mestu horfið úr almennri notkun. Árið 2009 valdi Oxford orðið Unfriend en þá höfðu samfélagsmiðlar verið til í nógu mörg ár að fólk var farið að losa sig við óæskilega og óvelkomna vini og því þurfti að búa til orð fyrir þann gjörning. Jæja, nú er þessi inngangur að verða búinn að þjóna tilgangi sínum og orðinn of langur þannig ég ætla að gera tilraun til þess að koma mér að efni bloggsins.

Árið 2016 valdi Oxford orðin post-truth. Handan sannleikans. Hvað gerðist árið 2016 sem ýtti undir þetta val? Bretland hlustaði á raðljúgandi flippkisa og kaus sig út úr Evrópusambandinu, þvert á eigin hagsmuni, með fjölmörgum neikvæðum afleiðingum fyrir bæði landið og Evrópusambandið. Enginn græddi. Nema einn, komum að því síðar. 2016 var svo kosinn nýr forseti til valda í Bandaríkjunum. Maður sem lætur sannleikann aldrei skemma vonda sögu.

Ég held við getum öll sammælst um að eitthvað gerðist þarna. Tannkremið hefur verið kreist úr túbunni og verður ekki auðveldlega sett í hana aftur. Aðrir hafa farið betur en ég í nákvæmlega hvað gerðist, en mig langar að gera heiðarlega tilraun til þess að setja þetta upp á mannamáli. Eða, eins og ég skil framvinduna:

Donald Trumps giftist Ivönu Zelníčková frá Tékkóslóvakíu. KGB, leyniþjónusta Sovíetríkjanna, byrjar að fylgjast með Trump. Gögn benda til þess KGB hafi þegar áttað sig á því að narsissísk hegðun hans og hversu auðvelt var að stjórna honum með gullhömrum gerðu það að verkum að auðvelt ætti að vera að nýta hann í þágu KGB. Fyrst og síðast til að vinna gegn hagsmunum vesturlanda, jafnvel án hans vitneskju.

Eftir fund með sendiherra Sovíetríkjanna, Yuri Dubinin, er Trump boðið til Moskvu til þess að ræða mögulegar hótelframkvæmdir. Fjöldi fyrrum KGB starfsmanna hafa lýst því yfir að þarna hefjist vinna KGB í því að nota Trump sem strengjabrúðu. Einn þeirra, Alnur Mussayev, heldur því fram að þá og þarna hafi Trump fallist á að starfa fyrir KGB og honum hafi verið úthlutað leyninafninu Krasnov.

Innan við tveimur mánuðum eftir komuna aftur til Bandaríkjanna kaupir Trump heilsíðu auglýsingar í tímaritunum The New York Times, The Washington Post og The Boston Globe. Þar gagnrýnir hann harðlega utanríkisstefnu Bandaríkjanna og þá sérstaklega hvernig Bandaríkin eyddu peningum í að verja löndin í kringum Sovíetríkin.

Ári seinna, hélt hann ræðu fyrir útskriftarnema í Lehigh háskóla. Þar heldur hann áfram að tala niður ógnina af rússum og segir að bandamenn Bandaríkjanna séu að hafa þau að fíflum.

„Forget about our enemies — Russia, we don’t deal with them that much … Our friends are making billions of dollars and stripping us of our dignity.“

Trump er ítrekað á barmi gjaldþrots. Bandarískir bankar vilja ekki lána honum, þar sem þeim finnst ólíklegt að honum takist að bjarga sér. Þá fara Rússar, fyrst og síðast olígarkar með mikil tengsl við valdhafa, að dæla peningum inn í fyrirtæki Trumps. Þeir kaupa af honum eignir á yfirverði sem ekki hefur tekist að selja og gerast umsvifamiklir eigendur í fyrirtækjum hans.

Erfitt er að staðfesta nákvæmlega umfangið, en Reuters fréttastofan gerði stóra úttekt árið 2017 og setur þar fókus á Flórída, þar sem erfiðara er að fela eignarhald í gegnum fyrirtækjafléttur. Án þess að fara of djúpt í smáatriðin, þá virðist Trump eiga töluvert mikið af sínu undir rússum.

Árið 2014 viðurkenndi Eric Trump, sonur Donalds: „Við reiðum okkur ekki á bandaríska banka… allt það fjármagn sem við þurfum kemur frá Rússlandi. [...] Við erum alltaf að fara þangað.“ Þremur árum seinna, eftir að faðir hans hafði verið kjörin forseti, neitaði hann því að hafa nokkurn tíman sagt þetta.

Trump ferðast til Rússlands til þess að „athuga frekari möguleika á hótelframkvæmdum.“ Á þeim 40 árum sem Trump hefur verið að fara til Rússlands hefur aldrei orðið neitt úr neinum hótelframkvæmdum.

Alexandrr Dugin, hægri-fasískur heimspekingur sem oft er kallaður heili Putíns skrifar bókina Основы геополитики: геополитическое будущее России [ísl. Grunnatriði landfræðilegrar stjórnmála: Landfræðileg framtíð Rússlands. Í henni útlistar Dugin meðal annars hvernig Rússland geti aftur orðið heimsveldi, þar á meðal með því að grafa undan lýðræði á vesturlöndum með upplýsingaóreiðu. Að dæla svo miklu kjaftæði inn í almenna umræðu að fólk viti ekki lengur hvað snýr upp og niður. Verður mikilvægt seinna.

Putin er kosinn forseti Rússlands.

Paul Manafort, lögfræðingur og mikill prakkari, kaupir íbúð í Trump Tower fyrir 3.6 milljónir dollara. Greiðir með reiðuféi. Á sama tíma er Manafort að vinna við að koma strengjabrúðu Pútíns, Viktor Yanukovych, til valda í Úkraínu.

Yanukovych hafði setið í fangelsi fyrir þjófnaði og líkamsárasir, talaði nánast enga úkraínsku vegna þess að hann ólst upp í rússneskumælandi hluta Úkraínu. Manafort lét það samt ekki stoppa sig, enda hafði hann töluverða reynslu í að koma óvinsælum einræðisherrum til valda í löndum eins og Kongó, á Filipseyjum og víðar.

En Paul mistókst í þetta skiptið. Einhverjir muna kannski eftir manninum sem vann. Hann heitir einnig Viktor en með allt öðruvísi eftirnafn: Viktor Yushchenko. Hann er kannski helst frægur fyrir að hafa lifað af tilraunir Rússa til að eitra fyrir honum með dioxin. Afleiðingar eitrunarinnar voru þær að áður slétt og áferðafallegt andlit hans leit út eins og yfirborð tunglsins.

Trump sendir Putin bréf þar sem hann meðal annars segir: „Eins og þú hefur líklega heyrt þá er ég mikill aðdáandi þinn!“

Trump er enn á barmi gjaldþrots. Þá mætir Dmitry Rybolovlev, rússneskur olígarki, og kaupir hús a Trump fyrir 95 milljónir dollara. 30 milljón dollurum meira en húsið var metið á. Rúmlega helmingi meira en Trump hafði sjálfur borgaði fyrir húsið fjórum árum áður. Dmitry bjó aldrei í húsinu, lét rífa það og seldi landið í smærri hlutum árin á eftir. Á þessum tíma var þetta hæsta verð sem greitt hafði verið fyrir íbúðarhús í sögu Bandaríkjanna.

Seinna á árinu, á fasteignaráðstefnu, segir Donald Trump, Jr:

„Rússar eru mjög fyrirferðamiklir í þversniði af eignum okkar. Eins og til dæmis í Dúbaí og vissulega með verkefni okkar í SoHo og allstaðar í New York. Við sjáum mikla peninga streyma inn frá Rússlandi.“

Paul Manafort tekst að koma fyrrum glæpamanninum og rússababúskunni Viktor Yanukovych til valda í Úkraínu. 2015 er hann svo sviptur titlinum í skömm.

Enn einn rússneskur olígarki, Aras Agalarov, greiðir Trump 20 milljónir dollara fyrir að halda Ungfrú Alheimur keppnina í Moskvu. Áður en Trump flaug til Rússlands setti hann eftirfarandi skilboð inn á Twitter:

„Haldið þið að Putin muni koma á Ungfrú Alheimur keppnina í Nóvember í Moskvu - ef hann kemur, haldið þið að hann verði nýi besti vinur minn?“

X avatar for @realDonaldTrump

Donald J. Trump@realDonaldTrump

Do you think Putin will be going to The Miss Universe Pageant in November in Moscow - if so, will he become my new best friend?

3:17 AM · Jun 19, 2013

4.54K Replies · 50K Reposts · 42.5K Likes

Óstaðfestar fregnir halda því fram að í þessari ferð hafi rússneska leyniþjónustan eignast myndbönd sem sýna Trump fremja frekur ósæmilegan gjörning á hótelherbergi í Moskvu. Trump hefur sjálfur haldið því fram að hann hafi ekki gist í Moskvu, aðeins lent í Rússlandi, farið á viðburðinn og svo flogið til baka, en sýnt hefur verið fram á að það er lygi.

Málið var allt rannsakað í bak og fyrir í fyrri forsetatíð Trumps. Þá sagði James Comey, fyrrum yfirmaður FBI, í samtali við ABC fréttastofuna:

„Ég hélt aldrei að þessi orð myndu koma út um mínar varir, en ég veit ekki hvort núverandi forseti Bandaríkjanna var með vændiskonum að pissa á hvor aðra í Moskvu árið 2013. [...] Það er möguleiki, en ég veit það ekki.“

Fyrir áhugasama mæli ég með að kynna sér hina svokölluðu „honeypot/honey-trapping“ aðferð sem fjölmargar leyniþjónustur beita. Þá eru einstaklingar dregnir á tála, blekktir inn í rómantísk eða kynferðisleg sambönd til þess að ná úr þeim upplýsingum, eða fá þá til þess að starfa fyrir hina hliðina.

Því hefur jafnvel verið haldið fram að níðings-iðnaðurinn sem Jeffrey Epstein stóð fyrir hafi í raun verið stór hunangspottur fyrir Mossad, leyniþjónustu Ísraels. Enda eru fjölmargar vísbendingar sem tengja hann við Mossad og jafnvel að hann hafi einnig starfað fyrir Rússa á sama vettvangi. Að útvega valdamiklum mönnum fórnarlömb til þess að níðast á, skjalfesta það og nota svo þær upplýsingar til þess að stjórna þeim.

Tveimur árum eftir að hafa hugsanlega verið inni á hótelherbergi að horfa á vændiskonur pissa á hvor aðra tilkynnir Donald Trump loks um framboð sitt til forseta. Rússneska fyrirtækið Агентство интернет-исследований [ísl. Internet rannsóknar stofnunin] hefur fjöldaframleiðslu á bottum sem tala fallega um Trump og illa um andstæðinga hans. Hér hefst fyrir alvöru það sem kallað hefur verið á ensku „The Russian Firehose of Falsehood.“ Lygabrunaslanga Rússa. Munið eftir Dugin, einum helsta ráðgjafa Putins, 1997! Bókin hans! Þetta er allt að smella hérna!

Eftir ákall frá Trump hakkar rússneska leyniþjónustan sig inn í fjöldann allan af gagnagrunnum og tölvupóstum sem tengjast demókrataflokki Bandaríkjanna. Þeir leka þessum upplýsingum svo í gegnum falska samfélagsmiðla aðganga þar sem þeir þykjast vera sjálfstætt starfandi hakkarar. 2018 ákærði dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna 12 rússneska leyniþjónustumenn fyrir að gera tilraun til þess að hafa áhrif á kosningar með þessum aðgerðum. Maður spyr sig, hvers vegna í ósköpunum ættu Rússar að leggja á sig alla þessa vinnu til þess eins að Hillary tapi og Trump vinni?

Sama ár, 2016, mætir enginn annar en Paul Manafort í kosningateymi Trumps. Hann er stuttu seinna gerður að kosningastjóra Trumps. Hann starfar þar sem sjálfboðaliði, algjörlega launalaust.

Ég ætla ekki að fara of mikið út í Mueller skýrsluna, en í stuttu máli var lögfræðingurinn Robert Mueller, fyrrum yfirmaður FBI, ráðinn til þess að rannsaka aðkomu rússa að kosningunum 2016. Í þeirri skýrslu kemur fram að Manafort hafi meðal annars lekið upplýsingum frá kosningateyminu sem hann var að stýra, beint til Moskvu. Semsagt: Kosningastjóri Trump dældi upplýsingum beint til Putins.

Manafort, 33 aðrir Bandaríkjamenn sem margir hverjir höfðu starfað í kosningateymi Trumps og 3 Rússar voru svo ákærðir og dæmir fyrir föðurlandssvik, lygar og fjöldann allan af brotum.

Um 18. júlí 2016 byrjar svo flokksþing repúblikanaflokksins. Og hvert er EINA baráttumál teymisins í kringum Trump fyrir þingið? Að fjarlægja úr stefnu flokksins kröfu um vopn fyrir Úkraínu til þess að verjast innrásum. Þarna, tveimur árum eftir að Rússar ræna Krímskaga og tæpum 6 árum áður en Rússland ræðst af fullu afli inn í Úkraínu.

Seinna í mánuðinum, 27. júlí, ákallar Trump einmitt rússa að vinsamlegast, ef þeir séu að hlusta, að endilega reyna að hafa áhrif á kosningarnar með því að hakka sig inn í tölvupósta Hillary Clinton. Seinna þennan sama dag náðu rússneskir hakkarar svo að brjótast inn í pósthólfið hennar og varð sá gagnaleki eitt af stærstu ljónunum í vegi Clintons í kosningabaráttunni.

Í gegnum alla kosningabaráttuna er Trump svo sífellt að bergmála utanríkisstefnu sem virðist koma beint frá Kreml: Talar niður Nató og Úkraínu, neitar því að Rússar hafi ráðist inn í Krímskaga. Mike Morell, fyrrum yfirmaður CIA, segist fullviss, þetta sama ár að Trump virðist vera farinn að starfa fyrir leyniþjónustu Rússa sem „ómeðvitaður fulltrúi.“

Trump var svo kjörinn forseti. Restina þekkjum við flest.

Niðurstaðan í mínum huga er fjölþætt. Meðal annars að Trump virðist algjörlega vera undir hælnum á rússum. Ekkert sem hann hefur gert frá því hann hóf feril sinn sem forseti kemur rússum illa. Þvert á móti hafa aðgerðir hans gegn fyrrum samstarfsþjóðum Bandaríkjanna, innan Evrópu og víðar, orðið til þess að net þeirra þjóða sem áður kölluðu sig vesturveldin, er að trosna.

En niðurstaða hegðunar rússa er líka sú að heilbrigð og opin skoðanaskipti á netinu, og þar af leiðandi í raunheimum, eru ekki lengur möguleg. Falsfréttir hófust ekki árið 2016, en þær fengu svo sannarlega vænlega sterasprautu. Allt eftir uppskrift frá heilanum úr Pútín, sjálfum Aleksandr Dugin. (Sjá 1997 hér að ofan.)

Allir helstu talpunktar frá rússum hafa nú meira að segja troðið sér inn í jafnvel íslensk stjórnmál. Réttindi hinsegin fólks. Gleðigangan var orðin nýi sautjándi júní en nú eru þingmenn hér á landi sem draga tilverurétt fólks í efa. Efasemdir um gagnsemi bóluefna eru nú svo útbreiddar að stórhættulegir smitsjúkdómar sem nánast hafði tekist að útrýma, eru nú farnir að gera vart við sig aftur. Kynþáttahatur. Það púkalegasta sem til var hér á árum áður er nú orðið að almennt viðurkenndri skoðun og hegðun. Ég lít svo á að þetta sé allt rússum að þakka.

Talið er að Rússar setji um 300 milljónir bandaríkjadala á ári í það eitt að stjórna og búa til narratívur á internetinu. Sannleikurinn á ekki séns í þannig fjármagn. Opin umræða á ekki séns. Það er ekki til lengur eitthvað sem heitir „opið markaðstorg hugmynda“ þegar verið er að skjóta okkur í andlitið með lygum, daglega.

Stjórnmála-landslagið er að fletjast út. Það eru allir til í að vera smá ömurlegir ef það fælir ekki frá kjósendur. Kristrún segir að hún gæti alveg náð saman við Miðflokkinn í útlendingamálum. Hún þorir ekki að taka upp sömu orðræðu, en vill samt ekki útiloka mögulega kjósendur sem gætu verið sammála þeim. Ekki fordæma. Bara aðlagast.

Engin afstaða. Engin átök. Enginn sannleikur. Bara tilfinningar. Þannig lítur post-truth heimurinn út. Það eru ekki til lygar, bara allskonar sannleikur. Vandinn er fjölþættur. Stórtækar lygar munu alltaf hafa stórtækar afleiðingar. Alvörunni fórnarlömb. Af holdi og blóði. Stjórnmálamönnum er skítsama um þig. Þeir vilja bara atkvæðið þitt og eru til í að segja hvað sem er til að fá það. Hvort sem þeir heita Trump eða Kristrún eða Snorri eða Farage. Samfélagslegar framfarir eru í öðru sæti. Völd í því fyrsta.

Þegar fólk fer í meðferð gegn fíknisjúkdómum er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að fyrri hegðun og hugsanamynstur voru það sem keyrði allt í þrot. Aðeins þannig er hægt að hefja einhverja uppbyggingu. Nú horfum við upp á vestræna samvinnu eins og við höfum þekkt hana, með góðu og slæmu, stefna í strand. Væri þá ekki hyggilegt að horfa á aðrar lausnir? Sjá hvort eitthvað annað en eitruð blanda kapítalisma og fulltrúalýðræðis gæti skilað betri árangri?

Jæja, svo ég tengi þetta nú aftur við upphafið: Það verður fróðlegt að fylgjast með orði ársins næstu árin. Hvernig þróun samfélags okkar verður soðin niður í einfalt orð eða frasa. Kannski eitthvað um raunveruleg vandamál hins almenna íslendings? Það fólk sem ég þekki og tala við er helst að hugsa um algjörlega óviðráðanlegan húsnæðismarkað, vexti og hátt matvælaverð. Ég þekki engann sem er að lenda í daglegu streði vegna útlendinga eða transfólks eða kynlausra klósetta. Ekki láta rússa og páfagaukana þeirra ljúga að þér. Vandamálin sem við stöndum frammi fyrir eru ekki þau sem vongóðir valdhafar segja. Þau eru misskiptingin og rót hennar.

Og vonandi nær orð ársins 2026 að ramma inn einhverja jákvæða þróun. Ég er bjartsýnismaður. Hóflega þó.

Read the original on bragipall.substack.com

Comments

Nothing yet. Say the first thing.

    Sign in to join the conversation.