RSS Amplifier

Þorparinn · Feb 13, 2026

Gubbað fyrir lýðræði

0
Sign in to vote or save

Bragi Páll Sigurðarson · Þorparinn

Meira lottó, minna fúsk!

“Anyone who is capable of getting themselves made President should on no account be allowed to do the job.”

― Douglas Adams, úr “The Hitchhiker’s Guide to the Galaxy”

Íslenskt alþingisfólk er líklegra til þess að vera sækós en almenningur. Þetta er ekki bara ég, einhver lúlli, að benda á það sem er augljóst. Fjölmargar rannsóknir taka undir með mér, sumar ganga jafnvel svo langt að halda því fram að fólk sem sækist í völd og stjórnunarstöður sé allt að tólf sinnum líklegra til þess að vera haldið siðblindu heldur en hinn almenni borgari.

Af hverju skiptir þetta máli? Jú, af því þetta þýðir að stærstu ákvarðanirnar í samfélagi okkar eru teknar af fólki sem skortir samkennd, er með stórmennskuhugmyndir um eigið ágæti, skortir eftirsjá eða sektarkennd og er svikult og stjórnsamt. Ég er ekki að segja ykkur neinar fréttir hérna, þetta er fólkið sem við horfum á, ár eftir ár, bjóða sig fram í allar mögulegar valdastöður heimsins, ljúga, svíkja, pretta, beygja lýðræði yfir í alræði og vera almennt frekar ömurlegt pakk. Er þetta í alvörunni fólkið sem ætti að stjórna samfélaginu okkar?

En svo er annað vandamál. Jafnvel fólk sem kærir sig ekki um völd getur orðið fyrir því að völdin, eða draumurinn um þau, valda persónuleikabreytingum. Eins og fanga-tilraunin í Stanford sýndi fram á þá getur þú valið fólk af handahófi og gefið þeim algjör völd yfir samborgurum sínum og þeir einstaklingar munu á endanum misnota völd sín.

Grey Stanford kallarnir, hlekkjaðir á fótum að láta ídjót stjórna sér… EINS OG VIÐ!

Þannig jafnvel Gunna frænka þín, sem lét til leiðast að fara á lista í sveitastjórnarkosningum, datt inn, stóð sig vel, fór svo á lista fyrir alþingiskosningar og slysaðist þar inn, helvítið hún Gunna mun svíkja þig ef það hjálpar hennar pólitíska ferli. Þegar völdin eru farin að hlýja nógu mikið, þegar launatékkinn og það að vera í hringiðu ákvarðana, frægðar og frama, þá er sú Gunna sem bauð þér alltaf í pönnukökur um helgar, kleip þig of fast í bollukinnarnar og prjónaði huggulega peysu á pabba þinn orðin blinduð af öllu öðru en eigin frama.

Svo er eitt sem gerist vegna samblöndunar lýðræði+kapítalismi. Peningar eru einfaldlega mun áhrifaríkara hreyfiafl en skoðanir og vansæld fólks. Í hversu marga áratugi hafa ekki íslenskir öryrkjar bent á hversu ömurleg lífsskilyrði þeirra eru? Fyrir hverjar einustu kosningar lofa meira og minna allir flokkar að breyta einhverju en ekkert breytist. Af hverju? Af því öryrkjar eru svo fokking blankir að það þarf enginn valdhafi að hlusta á þá. Kennarar eru á of lágum launum og fara í sífellt fleiri og ýktari kulnunir með hverju árinu, hanga eins og grýlukerti í endurhæfingu hjá Virk, blá í framan af skortöndun og apaleikjum í Primal í vonlausri tilraun til þess að lækna launatengda burnoutið með köldum böðum og jákvæðu sjálfstali. Heilbrigðiskerfið okkar er fyrir löngu hrunið, ekki vegna innflytjenda sem halda því uppi, heldur vegna þess að stefna stjórnvalda er að svelta það svo hægt sé að leyfa frumkvöðlum og hinum frjálsa markaði að græða á því. Það þrátt fyrir að öll gögn staðfesti að einkarekstur er mun dýrari fyrir ríkið en einfaldur ríkisrekstur. Þjónustan versnar. Lágtekjufólk fer síður til læknis.

Ef þú ert milljóner er einfaldlega líklegra að þú náir eyrum stjórnmálafólks. Þið farið í sömu veislurnar. Þið voruð saman í skóla. Þekkið sama fólkið.

Jafnvel fólk sem kosið er á þing með fallegar og háleitar hugsjónir og brennandi ástríðu fyrir því að gera samfélagið betra verður á endanum að rykföllnu húsgagni. Allir stjórnmálamenn sem ég leit upp til sem unglingur hafa valdið mér vonbrigðum. Mér sýnist meira að segja stjórnmálamenn sem ég er gríðarlega ósammála á endanum valda sínu stuðningsfólki vonbrigðum. Við fáum að kjósa á fjögurra ára fresti hverjir það eru sem fá að ráða öllu en það er engin trygging fyrir því að þetta fólk geri það sem það lofar að gera. Og svo er heldur engin trygging fyrir því að atkvæðin okkar skipti nokkru andskotans máli. Í síðustu kosningum til alþingis voru um 20.000 íslendingar sem kynntu sér málin, fóru í sparifötin og settu á sig rakspíra, komu sér á kjörstað og kusu til þess að eins að flokkurinn sem þau greiddu atkvæði náði ekki yfir þröskuldinn að koma manneskju á þing. Hvaða kjaftæði er þetta?

Annað nýlegt vandamál er svo er kosningaþátttaka innflytjenda. Hún er algjörlega í ræsinu og enginn virðist hafa áhuga á því að gera neitt í því, nema rasistarnir sem tala aktíft gegn því að þau fái yfir höfuð kosningarétt. Af hverju ætli það sé?

Allavega, til þess að gera langa sögu stutta þá held ég að lýðræðið sé fyrir löngu úr sér gengið og gallarnir svo stórtækir og samfléttaðir pælingunni að ógjörningur er að laga með úrbótum og plástrum. Fyrir hverjar einustu kosningar líður mér eins og það sé búið að bjóða mér í mjög huggulegt matarboð en það eina sem er í matinn er gubbusúpa. Mörg þúsund manns hafa skráð sig á framboðslista og því fengið að gubba í risavaxinn pott og svo er búið að sjóða gubbið. Alveg bullsjóða sko. Súpunni er skenkt á diskana okkar og við sitjum öll í kringum borðið, græn í framan, horfum á hvort annað með fnykinn í nefinu og potum í gubbið með skeiðinni og reynum að finna minnst melta bitann til þess að seðja hungrið. En ég bara vil ekki borða gubb!

Sick, so I made soup with a bag of root vegetables… Looks like vom. :  r/shittyfoodporn
Hvern langar ekki í svona á fjögurra ára fresti? Namm!

Við bara hljótum að geta fundið upp á einhverju betra. Alveg frá hruni hef ég talað fyrir sömu lausninni: Slembivali, einnig þekkt sem Lottóræði. Veljum fólk algjörlega af handahófi til þess að stjórna landinu. Helsta ástæðan? Fyrir utan allar þær sem ég taldi hér að ofan: Þetta bara getur ekki orðið verra en núverandi fyrirkomulag.

Í mínu draumaheimi er fyrirkomulagið þetta: Á fjögurra ára fresti eru 63 manneskjur valdar af handahófi til þess að sitja sem alþingisfólk í 4 ár. Allir með ríkisborgararétt á aldrinum 18 ára og upp úr eru með kjörgengi. Ég er of spenntur til þess að útskýra frekar, verð að fara beint í senuna.

Veriði velkomin! Lottódagurinn er runninn upp! Risastór tromla með nöfnum allra sem eru með kjörgengi er uppi á palli á Austurvelli. Forsetinn ýtir á takka sem snýr tromlunni. (Líklega væri mun þægilegra að láta tölvu velja af handahófi, en þetta er miklu flottara sjóv.) Fyrsta kúlan rúllar niður rampinn. Það er Gunna frænka!

Tromlunni er snúið 62x í viðbót og þá erum við komin með alþingisfólkið okkar. Húrra fyrir Tromlunni! Hugsið ykkur stemninguna! Sjáið fyrir ykkur hátíðina! Þetta yrði stærra en Júrósvísjón, allt boltafárið og Magni í Rockstar til samans! Alvörunni þverskurður af þjóðinni! Allskonar skrítnar skrúfur komnar saman í eitt basalthús í Reykjavík til þess að reka landið í fjögur ár.

Þessum 63 einstaklingum yrði svo smalað inn í Alþingishúsið. Allt kerfið til þess að taka við nýjum þingmönnum er þegar til staðar svo því þyrfti ekki að koma upp. Fólki yrði kennt á helstu verkferla og hugtök, og svo þurfið þið bara að finna út úr þessu. Viljið þið reyna að mynda ríkisstjórn? Ætlið þið að velja ráðherra úr eigin hópi eða fagráða? Ætlið þið að láta meirihlutann ráða eða bara sjá hvað gerist. Allt í boði! Við taka svo fjögur ár þar sem þessir lánlitlu einstaklingar reyna að reka landið með sem bestri niðurstöðu fyrir sem flesta. Að fjórum árum liðnum hafið þið afplánað ykkar þingsetu og getið aldrei verið dregin úr risavöxnu lottó-tromlunni á Austurvelli aftur. Til hamingju. Næsti Lottódagur er runninn upp.

Þau sem sitja á þingi munu hafa mun minni ástæðu til þess að ljúga og pretta því sama hvað þau gera þá er þeirra þingsetu lokið að fjórum árum liðnum. Þú getur ekki svindlað þér áfram í embætti. Getur ekki haldið krepptum krumlunum í völdin því þau munu ganga þér úr greipum. Ef þú vilt nota tækifærið, náða barnaníðinga, selja ættingjum ríkiseignir, peppa punginn á rasistum eða fara fram hjá tillögum fagráðs og skipa fyrrum aðstoðarkonu í geggjaða sendiherrastöðu þarftu svo að mæta samborgurum þínum í sundlauginni og úti í kjörbúð það sem eftir er og verja gjörðir þínar. Af hverju varstu spilltur? Hvers vegna laugstu? Þú ert ein af okkur! Ekki vera fáviti!

Helstu rökin sem ég hef heyrt gegn þessu fyrirkomulagi hafa verið að við gætum orðið óheppin með fólk. Eins og við höfum verið alveg brjálæðislega heppin með alþingisfólk síðustu áratugi? Hefur þetta verið bara ein samfelld sigurför? Traust á alþingi hrundi réttilega í hruninu og hefur ekki náð sér á strik síðan. Var enda ekki úr háum söðli að detta. Tveir af hverjum þremur landsmönnum hreinlega treystir ekki stofnuninni. Það er verið að neyða okkur til þess að taka þátt í kerfi sem mikill meirihluti okkar hefur akkúrat enga trú eða traust á. Ætti það ekki að segja okkur að löngu sé kominn tími til róttækra breytinga?

Þess vegna segi ég pú á lýðræði! Pú á augljóslega siðblint fólk sem þráir ekkert frekar en að ráða yfir okkur! Pú á löngu úrelta stjórnmálaflokka! Áfram slembival og að fá raunverulegt þversnið af landsmönnum til þess að stjórna landinu! Gefur skít í fólk með bindi og í buxnadrögtum og leyfum lottókúlunum að ráða framtíð okkar!

510+ Vomiting Businessman Stock Photos, Pictures & Royalty-Free Images -  iStock
Ekki gubba á mig, þarna siðblinda hræið þitt!

Read the original on bragipall.substack.com

Comments

Nothing yet. Say the first thing.

    Sign in to join the conversation.