RSS Amplifier

Seltjarnarnesbær · Aug 19, 2026

Truflun á umferð - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2026

0
Sign in to vote or save

Seltjarnarnesbær · Seltjarnarnesbær

Einstefnuakstur verður frá kl. 8.00 og framundir hádegi á hlaupaleiðinni um Nesið (strætóleiðin) auk þess sem gera má ráð fyrir því að götur geti lokast alveg þegar að mesti fjöldinn fer framhjá.

Truflun á umferð - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2026

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður haldið laugardaginn 22. ágúst og eru bæjarbúar hvattir til þess að fara út á gangstétt og taka vel á móti hlaupurunum sem að vanda hlaupa í kringum Seltjarnarnesið. Endilega að hvetja þá áfram eins og enginn sé morgundagurinn og sýna stemninguna hér á Nesinu góða.

Þessi stóri viðburður hefur það í för mér sér að tafir verða á umferð en snemma á laugardagsmorgninum verður búið að loka fyrir umferð á þann hátt að einungis verður um einstefnuakstur að ræða frá kl. 8.00 - 12.00 (uþb). Akstursleiðin verður sú sama og strætó fer þ.e. Nesvegur - Suðurströnd - Lindarbraut - Norðurströnd og biðjum við íbúa að hafa það í huga. Ennfremur munu götur lokast alveg á þeim tíma þegar að lestir hlauparar fara í gegn.

Ökumenn eru hvattir til að sýna hlaupururnum fulla tillitsemi sem og að sýna fyrirhyggju þurfi einhver að komast leiðar sinnar á þeim tíma sem hlaupið stendur yfir.

Hér má lesa nánar um truflun á umferð á öllu höfuðborgarsvæðinu vegna Reykjavíkurmaraþonsins.

Read the original on seltjarnarnes.is

Comments

Nothing yet. Say the first thing.

    Sign in to join the conversation.