Einstefnuakstur verður frá kl. 8.00 og framundir hádegi á hlaupaleiðinni um Nesið (strætóleiðin) auk þess sem gera má ráð fyrir því að götur geti lokast alveg þegar að mesti fjöldinn fer framhjá.
Frístundaheimilið Skjólið óskar eftir starfsfólki, 18 ára og eldri. Um er að ræða hlustastarf með börnum að skóla loknum, tvo til fimm eftirmiðdaga í viku (frá kl. 13:00-16:30). Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst nk.
Hægt er að skila atkvæðum í pósthólf merktu Seltjarnarnesbæ að Austurströnd 5. Athugið að hurðin með pósthólfinu er merkt Fangelsismálastofnun, hún er næst til hægri við inngang bæjarskrifstofu.
Sævar segir okkur hvað er svona merkilegt við Sólmyrkvann á Seltjarnarnesi sem gengur yfir þann 12. ágúst. Fræðsluerindi á bókasafninu kl. 16:30 mánudaginn 10. ágúst nk.
Á bókasafninu má nálgast örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu sem Seltjarnarnesbær ætlar að gefa leik- og grunnskólabörnum með lögheimili á Seltjarnarnesi til að þau geti upplifað þann einstaka atburð sem almyrkvinn er.
Seltirningar eru í einstakri stöðu til að upplifa þennan sjaldgæfa náttúruviðburð hér heima á Nesinu því miðvikudaginn 12. ágúst nk. almyrkvi á sólu verður sýnilegur hér í allt að 1,08 mínútu. Sólmyrkvaferlið í heild stendur yfir í um tvær klukkustundir frá kl. 16:47 til 18:47.
Vegna malbiksviðgerðar við leikskólann þarf að loka hluta af Suðurströnd, fimmtudaginn 30. júlí frá kl. 07-13. Hjáleið verður framhjá sundlaug og heilsugæslu og um Kirkjubraut og Nesveg. Áætlanir Strætó gætu raskast og búast má við töfum af þessum orsökum. Fólk er beðið um að sýna þessu skilning.
Vegna framkvæmda við lóðarvegg fyrir nýja leikskólann á horni Nesvegar og Suðurstrandar er óhjákvæmilegt annað en að taka niður biðskýli sem stendur við Nesveg andspænis Eiðistorgi. Skýlið fer niður þann 5. ágúst og verður sett upp aftur um leið og veggurinn hefur risið. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin taki um það bil sex vikur og að strætisvagnar stoppi á sama stað og venjulega.
Vegna tenginga lagna við nýjan leikskóla verður Suðurströnd einstefna til vesturs frá Nesvegi dagana 20. - 24. júlí, mánudag til föstudags. Akrein Suðurstrandar til austurs verður lokuð þessa daga en stefnt er að hafa opið til vesturs allan framkvæmdatímann. Vegfarendum er bent á hjáleið upp hjá heilsugæslu og um Kirkjubraut. Áætlanir Strætó ættu ekki að raskast en búast má við einhverjum töfum af…