RSS Amplifier

Blog

Menntaskólinn á Tröllaskaga

Missing description

mtr.isSource feed ↗10 posts

Live Last read · last published · next check

Latest posts

Fyrsti skóladagurinn á nýrri önn

Þá er skólastarfið hafið á ný eftir gott sumarfrí. Fyrsti nemendadagurinn var í gær og var ánægjulegt að sjá okkar unga og efnilega fólk flykkjast í skólann tilbúið að takast á við fyrstu verkefni annarinnar. Nýnemar, í hópi staðnema, eru fleiri en síðustu annir og mátti vel merkja blöndu af tilhlökkun og kvíða meðal þeirra sem eðlilegt er á fyrsta degi. Eldri nemendur gengu til sinna verka af…

Upphaf kennslu á haustönn

Kennsla á haustönn hefst miðvikudaginn 19. ágúst kl. 9:00. Stundatöflur nemenda verða aðgengilegar á Innu 14. ágúst. Þar geta nemendur einnig séð áfanga sína og námsgagnalista við hvern áfanga (ekki þarf að kaupa námsgögn í öllu áföngum). Nauðsynlegt er að allir staðnemar mæti með fartölvur. Fjarnemar fá upplýsingar sendar frá umsjónarkennara og kennurum áfanga upp úr helgi.

Þrjátíu og fjórir nemendur útskrifaðir

Þrítugasta og önnur brautskráning frá Menntaskólanum á Tröllaskaga fór fram við hátíðlega athöfn í dag. Þrjátíu og fjórir nemendur settu upp stúdentshúfurnar að þessu sinni og hafa nú 743 nemandur brautskráðst frá skólanum á þeim sextán árum sem hann hefur starfað. Útskriftarnemarnir að þessu sinni koma frá tólf stöðum á landinu og einn þeirra er búsettur erlendis, enda mikill meirihluti nemenda…

Fjölmenni á sýningaropnun

Vorsýning skólans opnaði laugardaginn 16. maí og verður opin á opnunartíma skólans fram að útskrift þann 23. maí. Á sýningunni má sjá fjölda glæsilegra verka sem nemendur hafa unnið á önninni í hinum ýmsu greinum. Aðsókn á opnunardegi hefur líklega aldrei verið betri og er hluti skýringarinnar sá að þann dag fóru einnig fram sveitarstjórnarkosningar og var Menntaskólinn á Tröllaskaga kjörstaðurinn…

Vorsýning á laugardaginn

Undirbúningur fyrir vorsýningu skólans er nú í fullum gangi. Til sýnis verður afrakstur nemenda af vinnu annarinnar í hinum ýmsu greinum undir einkunnarorðum skólans; frumkvæði - sköpun - áræði. Verkin streyma nú til okkar frá nemendum og stundum dugar ekkert minna en stórtækar vinnuvélar til að koma verkunum á sýningarstað eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Einnig verða rafrænar sýningar á vef…

Nýr og hærri Erasmus+ styrkur

Mikilvægur og sívaxandi hluti skólastarfsins er erlent samstarf þar sem nemendur og starfsfólk læra hvert af öðru þvert á landamæri. Sérstakt teymi, undir stjórn Idu Semey, kennara skólans, hefur haldið utan um þennan anga starfseminnar og orðið vel ágengt að sækja um styrki til slíkra verkefna. Koma þeir úr sjóðum Erasmus+ og Nordplus áætlananna. Nemendur og starfsfólk skólans tekur reglulega…

Ánægjuleg árshátíð

Í síðustu viku fór árshátíð nemendafélagsins Trölla fram og var þema kvöldsins Hollywood. Nemendur og kennarar komu saman á sal skólans, nutu góðra veitinga og skemmtu sér vel. Nemendaráð sá að venju um allan undirbúning, skipulag og framkvæmd, er heilmikill lærdómur og gagnleg reynsla að taka þátt í slíku. Boðið var upp á fjölbreyttar veitingar s.s. sushi, pizzur og kebab og síðan ís og…

Snýr til baka í nám eftir langan feril í tónlist

Einn af þeim áföngum sem er kenndur á þessari önn er fjölmiðlafræði. Á dögunum fengu nemendur það skemmtilega verkefni að skrifa grein sem tengdist skólanum og höfum við þegar birt eina þeirra. Fyrirsögn hennar var MTR gaf mér annað tækifæri. Hér kemur önnur áhugaverð grein af sama meiði, skrifuð af Gunnari Inga Guðmundssyni sem búsettur er í Keflavík. Það er aldrei of seint að snúa aftur í nám og…

Líflegur dagur bókarinnar

Dagur bókarinnar er 23. apríl og var það Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) sem átti frumkvæðið að því að gera þennan dag að alþjóðadegi bóka. Markmiðið er að hvetja fólk, og þá einkum ungt fólk, til að lesa meira og kynna sér verk þeirra fjölmörgu höfunda sem hafa auðgað líf mannkyns um aldir. Svo skemmtilega vill til að að Nóbelskáldið okkar, Halldór Laxness, fæddist 23. apríl. Sem…

Listalíf í Gautaborg

Dagana 15. - 20. mars dvöldu nokkrir nemendur af listnámsbraut í Gautaborg til að kynna sér söfn, myndlistarskóla, gallerí og vinnustofur listamanna þar í borg. Flogið var frá Akureyri til Manchester og þaðan til Kaupmannahafnar þar sem tekin var lest yfir til Svíþjóðar. Það var ekki að ástæðulausu að Gautaborg varð fyrir valinu því þar býr og starfar myndlistarkennari skólans Bergþór Morthens…