RSS Amplifier

Þorparinn · Apr 20, 2026

Hugsum um börnin!

0
Sign in to vote or save

This page did not load. You can still read it on the original site — the toolbar below keeps your place in the directory.

Hunsum narsa!

Spilastokkurinn sem óttahyggjufólk landsins dregur öll sín tromp upp úr þessa dagana hefur verið notaður oft áður. Þekktasta dæmið er líklega flokkur þjóðernissinnaðra þýskra verkamanna, sem naut mikilla vinsælda á síðustu öld.

Stefið er þekkt. Það að umvefja sig fánanum þjappar fólki saman. Við erum hérna í þessu liði, muniði? Þessu með hvítum krossi inni í rauðum á bláum bakgrunni. Það eru við. Ekki hinir! Það að gera útlendinga að blórabögglum fyrir öllu mögulegu og ómögulegu er náttúrulega klassík. En þessi aðför að hinsegin fólki er það líka. Eitt það fyrsta sem nasistarnir gerðu var að veitast að samkynhneigðum og trans fólki. Brenna bókasöfnin þeirra. Loka hjúkrunarrýmum þeirra og skrifstofum. Fangelsa fólk. Flytja í útrýmingarbúðir. Drepa.

Fólk eins og þau sem tala hvað hæst um að vernda börnin í dag vilja einsleitt samfélag. Engin frávik. Það að fetta fingur út í fjölda kynja og regnbogafánann er bara byrjunin. Svona orðræðu hættir til þess að leita út í öfga og þeim öfgum fylgja alltaf svipting á borgaralegum réttindum, alltaf í nafni öryggis og reglu.

Mér finnst ég hins vegar skynja á Snorra að þessar skítabombur sem hann hendir fram séu ekki raunverulegar skoðanir hans. Hann sé á veiðum. Þuklandi á kjósendum, sjá hvar atkvæðin sé að finna. Hvar hægt sé að kynda undir ótta og öfgum. Prófa smá fordóma fyrir útlendingum. Svínvirkar. Smá skot á trans fólk. Úlalla. En hér held ég að Snorri hafi mislesið handbókina sem bestu vinir Trump réttu honum þegar Miðflokkurinn fundaði með Repúblikönum um hvernig best væri að breyta upplýsingaóreiðu og ringulreið samtímans í völd.

Ég held hann hafi hreinlega vanreiknað hversu heitt Íslendingar elska hommana sína. Hversu langt við erum komin í baráttu fyrir réttindum samkynhneigðra og hversu sjálfsögð okkur þykir að hinsegin fólk standi algjörlega jafnfætis öðrum.

Vaping theology: 9 “Won't someone please think of the ...
Greyið börnin og allir regnbogafánarnir sem rugla þau!

Að sjálfsögðu reynir hann að ramma þetta inn sem umhyggju fyrir börnum. Sígrænt stef. Að regnbogafánar séu að breyta börnum í kynvillinga og klæðskiptinga út um allt land. En það er einfaldlega ekki raunin. Hinsegin fólk er ekki vandamál. Það sem þau gera við líf sitt er ekki vandamál. Úrvinnsla barna sem upplifa sig öðruvísi er bara í fínum farvegi í höndum sérfræðinga og kemur hinum almenna kjósenda bara alls ekki við. Þetta er einkamál barnanna og fjölskyldu þeirra. Það þarf ekki að draga fram alla sem eru með aðgang að internetinu til þess að lúðra út skoðunum sínum á því hvort og hvernig eigi að takast á við fólk, þar með talið börn með allskonar kynvitund. Þetta bara kemur okkur ekki við. Er ekki vandamál. Tölum um eitthvað annað!

Umburðarlyndi gagnvart skoðunum og tjáningarfrelsi eru nefnilega takmörk sett. Heimspekingurinn Karl Popper á líklega frægustu vangavelturnar um þetta. Hann talaði um mótsögn umburðarlyndisins. Að ef við umberum allar skoðanir, líka þær sem vilja brjóta á, hefta eða minnka lífsgæði ákveðinna hópa, þá er umburðarlyndið gagnvart skoðunum búið að snúast upp í andhverfu sína og farið að bitna á saklausu fólki.

Ef við erum til í að ræða tilverurétt hinsegin fólks eins og hann sé kílómetragjald eða kvótakerfið þá smættum við allt hinsegin fólk. Gerum tilvist þeirra að einhverju debati, eins og það sé eitthvað að ræða. Hinsegin fólk er staðreynd. Tilvist þeirra er ekki vandamál. Fólk sem ýtir undir ótta og fyrirlitningu í narsissískum atkvæðaveiðum er hins vegar vandamál. Segjum þessu fólki kurteisislega (eða ekki) að snúa sér að einhverju uppbyggilegra. Ef við leyfum þessari orðræðu að fljóta hjá óáreittri og komum fram við þessar skoðanir eins og þær séu hversdagsleg pólitísk bitbein þá munu líf og öryggi hinsegin fólks og barna verða í raunverulegri hættu. Og þau eru sko mun mikilvægari en réttur galgopa að standa á torgum úti og spúa galli í allar átti.

Ertu hræddur við fána, elskan?

Read on bragipall.substack.com

Comments

Nothing yet. Say the first thing.

    Sign in to join the conversation.