RSS Amplifier

Blog

Vikublaðið

Missing description

vikubladid.isSource feed ↗10 posts

Overdue Last read · last published · next check
Last read 6 hours ago, longer than this feed's 2 hours schedule.

Latest posts

Fullfermi í fyrsta túr sem skipstjóri

Togari Samherja, Harðbakur EA 3, landaði í gærkvöld fullfermi sem fer til vinnslu í landvinnslum félagsins á Akureyri og Dalvík. Skipstjóri var Lýður Valgeir Jóhannesson og var þetta hans fyrsta veiðiferð sem skipstjóri. Lýður útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 2010 og hefur flest árin eftir nám starfað hjá Samherja, þar af undanfarin fimm ár sem fyrsti stýrimaður á Harðbak.

Hvað þýðir Já fyrir bændur?

Í kosningunum 29. ágúst nk. munu landsmenn taka afstöðu til þess hvort hefja skuli aðildarferli að ESB. Eðlilegast væri að meta þá ákvörðun fyrst og fremst út frá þjóðhagslegum þáttum; hvort hag Íslands væri betur borgið innan ESB eða utan þess.

Góð aðsókn að framhaldsskólum á Akureyri

Aðsókn að framhaldsskólum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri og Verkmenntaskólanum á Akureyri er mjög góð. Nýtt skólaár hófst nú fyrr í vikunni.

Ný framtíðarsýn fyrir Hofsbót

Akureyrarbær hefur kynnt nýja tillögu að breytingu á deiliskipulagi við Hofsbót 1-3. Tillagan er liður í áframhaldandi þróun miðbæjarins og markar mikilvægt skref í þeirri framtíðarsýn að efla mannlíf, þjónustu og aðdráttarafl miðbæjarins. Frá þessu segir á vef Akureyrarbæjar.

Festi bætist við hóp öflugra bakhjarla Driftar EA

Festi hefur gerst bakhjarl Driftar EA og bæst í hóp öflugra fyrirtækja sem styðja við uppbyggingu nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á Norðurlandi. Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi og Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA, undirrituðu samstarfssamning þess efnis á dögunum.

Stebbi JAK með útgáfutónleika á Húsavík og Akureyri

Stebbi JAK gefur nú út sína aðra sólóplötu og blæs til glæsilegra útgáfutónleika í Samkomuhúsinu á Húsavík n.k. fimmtudagskvöld 20. ágúst og á Græna hattinum föstudagskvöldið 21 ágúst. Tónleikarnir hefjast í báðum tilfellum klukkan 21:00.

Nýr leikskóli tekur til starfa á Akureyri í næstu viku

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri heimsótti í morgun starfsfólk nýja leikskólans Hagasteins við Naustagötu. Þar eru nú allir í óða önn að undirbúa opnun skólans í næstu viku.

Eigendur ferðavagna við grunnskóla athugið

Nú er starf í grunnskólum að hefjast og þeim tilmælum er beint til eigenda ferðavagna að fjarlægja þá af bílastæðum við skólana.

Sýning Myndlistarfélagsins í Hofi

Nú stendur yfir glæsileg sýning í Hofi þar sem sextíu og einn félagi í Myndlistarfélaginu á Akureyri sýnir verk sín. Sýningin gefur innsýn í persónulegan og margslunginn myndheim þar sem tekist er á við flókinn veruleika með fjölbreyttum tjáningarformum myndlistarinnar.

Þjóðaratkvæðagreiðsla, laugardaginn 29. ágúst 2026

Kjörstaðir í Akureyrarbæ vegna þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 29. ágúst nk. eru í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hríseyjarskóla og í Félagsheimilinu Múla í Grímsey.