RSS Amplifier

Blog

Viðskiptaráð Íslands

vi.isSource feed ↗10 posts

Live Last read · last published · next check

Latest posts

Lífeyriskerfi í yfirstærð

Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs, fjallar um íslenska lífeyriskerfið sem er eitt hið öflugasta í heimi. Viðskiptaráð leggur til fjórar tillögur á lífeyriskerfinu: lækkun skylduiðgjalds úr 15,5% í 12%, að sjóðfélagar kjósi stjórnir, afnám gjaldeyrisþaks og aukið gagnsæi um kostnað.

Kolefnistollur óæskilegt viðbragð við gölluðu kerfi

Viðskiptaráð bendir á að CBAM leysi aðeins hluta þess samkeppnisvanda sem útfösun endurgjaldslausra ETS-heimilda skapar íslenskri álframleiðslu, jafni ekki stöðuna gagnvart mörkuðum utan Evrópu og veki upp álitaefni um hvort gjaldtakan falli innan EES-samningsins. Stjórnvöld eigi að kanna til hlítar svigrúm Íslands til að standa utan kerfanna.

Fjárfestingar ríkisins þurfa skýrari kostnaðar- og ábatagreiningu

Gera ætti skýra kröfu um kostnaðar- og ábatagreiningu stærri fjárfestingarverkefna ríkisins, að valkostagreining taki til ólíkra leiða að sama markmiði og að ný umgjörð auki ekki stjórnsýslu umfram það sem umfang og áhætta réttlæta. Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins um drög að frumvarpi til laga um fjárfestingar ríkisins.

Nýr sjóður leysir ekki vandann

Viðskiptaráð telur að nýr sjóður leysi ekki rót vandans á fjölmiðlamarkaði. RÚV er eini fjölmiðillinn á Norðurlöndum sem bæði þiggur opinber framlög og selur auglýsingar. Nær væri að leiðrétta þá skekkju en að fjölga smáum og óskilvirkum opinberum sjóðum.

Inngrip í verðákvarðanir geta dregið úr samkeppni

Viðskiptaráð telur að fákeppni jafngildi ekki skorti á samkeppni og að vangaveltur um þegjandi samhæfingu þarfnist traustari gagna. Bein inngrip í verðákvarðanir, svo sem reglur um tíðni verðbreytinga eða hámarksálagningu geti dregið úr samkeppni. Nær væri að draga úr aðgangshindrunum á markaðnum.

Sparigrís í yfirstærð: umsvif og umboðsvandi lífeyriskerfisins

Íslenska lífeyriskerfið er eitt hið öflugasta í heimi. Með fyrirhyggju hefur Íslendingum tekist að byggja upp nær fullfjármagnað sjóðsöfnunarkerfi. Umfangi kerfisins fylgja þó ákveðnar áskoranir. Skyldusparnaður er hvergi hærri en hér á landi og lífeyrissjóðirnir eiga stóran hlut í mörgum stærstu félögum landsins. Greining Viðskiptaráðs sýnir að umboðsvandi er til staðar, samþjöppun áhættu…

Ráðherra falið vald til að banna heilu vöruflokkana

Viðskiptaráð leggst gegn samþykkt frumvarps til laga um nikótín- og tóbaksvarnir í óbreyttri mynd. Ráðið telur drögin fela í sér óhóflega skerðingu atvinnufrelsis, víðtækt valdframsal til ráðherra, ómarkvisst bann við netsölu og hagsmunaárekstra hjá ÁTVR — og gagnrýnir að mat á áhrifum sé enn ófrágengið annað árið í röð.

Stuðningskerfi rannsókna og þróunar verði einfalt og fyrirsjáanlegt

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar áform um breytingar á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Ráðið styður meðal annars áform um lengri gildistíma staðfestingar rannsóknar- og þróunarverkefna og heimild Rannís til að samþykkja umsóknir að hluta. Aftur á móti varar ráðið við sílækkandi samþykktarhlutfalli umsókna og leggur áherslu á að stuðningskerfið byggi á skýrum reglum, fyrirsjáanlegri…

The Icelandic Economy 2026

Búast má við hóflegum hagvexti á næstu misserum þrátt fyrir þráláta verðbólgu og vaxandi atvinnuleysi. Fjölbreytni útflutnings heldur áfram að aukast og ferðaþjónustan stendur sterkum fótum þrátt fyrir ýmsar áskoranir. Þetta kemur fram í The Icelandic Economy, nýútgefinni skýrslu Viðskiptaráðs um þróun efnahagsmála á Íslandi.

Jöfn rekstrarskilyrði heilsugæslu forsenda betri þjónustu

Viðskiptaráð tók til umsagnar drög að reglugerð um heilsugæslu og tekur undir markmið hennar um að jafna stöðu opinberrar og einkarekinnar heilsugæslu. Ráðið leggur áherslu á að reglugerðin verði hluti af víðtækari umbótum á rekstrarumhverfi heilsugæslustöðva, meðal annars á fjármögnun, rannsóknarþjónustu og eftirliti, svo samkeppni geti stuðlað að betra aðgengi og auknum gæðum.