Á næstu dögum verður ráðist í framkvæmdir við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar með það að markmiði að bæta umferðaröryggi, sýnileika og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Áætlað er að verkinu ljúki um mánaðamótin september-október.
Menningarnótt fer fram laugardaginn 22. ágúst 2026. Í samráði við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu verður hluti miðborgarinnar lokaður fyrir akandi umferð til að tryggja öryggi gesta. Almennt gilda götulokanir frá klukkan 07:00 laugardaginn 22. ágúst til miðnættis, en nokkrar lokanir hefjast
Sveinn Sveinsson, fyrrverandi svæðisstjóri Austursvæðis Vegagerðarinnar, hefur látið af störfum eftir rúmlega fjóra áratugi hjá stofnuninni. Á þeim tíma tók hann þátt í fjölmörgum framkvæmdum sem hafa bætt samgöngur á Austurlandi og víðar um norðanvert landið. Áhugi hans á brúm
Sería Sögufélags er ný ritröð um sögu Íslands þar sem vandaðar rannsóknir eru settar fram í lifandi frásögn. Fyrirmyndin er 100 Danmarkshistorier sem Danir hafa nýlokið við að gefa út. Hver bók í íslensku seríunni verður 100 blaðsíður að lengd
Áætlað er að hefja á ný viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði á Hringvegi (1) frá og með mánudeginum 17. ágúst, eins og til stóð þegar hlé var gert á þeirri vinnu vegna óhagstæðs veðurs í júní
Í samráði við lögregluna og vegna umferðaröryggis verður kveikt á götulýsingu á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu þar sem leyfður umferðarhraði er meiri en 60 km/klst. meðan almyrkvi á sólu gengur yfir á morgun, 12. ágúst. Þetta eru t.d. Ártúnsbrekka, Breiðholtsbraut, Hafnarfjarðarvegur,
Vegna almyrkvans þann 12. ágúst nk. má búast við mikilli umferð víða á vestanverðu landinu, sérstaklega á þeim stöðum þar sem myrkvinn stendur hvað lengst yfir. Til að tryggja öryggi vegfarenda og greiða fyrir umferð verður tímabundin umferðarstýring á nokkrum
Landsbyggðarstrætó mun líkt og undanfarin ár bjóða upp á akstur til og frá Landeyjahöfn vegna Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum. Leiðir 51 og 53 aka samkvæmt sérstakri Þjóðhátíðaráætlun. Nánari upplýsingar um ferðir og tímasetningar má finna á vef Strætó.
Framkvæmdir við Vestfjarðaveg eru í fullum gangi. Unnið er að brúargerð í Gufufirði og Djúpafirði auk framkvæmda við þriðja áfanga á Dynjandisheiði. Tafir og breytingar á hönnun hafa haft áhrif á framvinduna en nokkrir mikilvægir áfangar eru fram undan.
Viðgerð á öðrum rafmótor Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs lauk í dag. Skipið siglir til Vestmannaeyja síðdegis og hefjast reglulegar siglingar samkvæmt áætlun í fyrramálið, fimmtudaginn 23. júlí. Breiðafjarðarferjan Baldur sem hefur leyst Herjólf af siglir í nótt í Stykkishólm og ráðgert er