# Veðurstofa Íslands - Fréttir

Fréttatengt efni

Page: <https://rssamplifier.com/vedur-is>  
Feed: <https://rssamplifier.com/vedur-is.md>

---

## [Aukið rennsli og mikil gasmengun í Múlakvísl](http://www.vedur.is/um-vi/frettir/litil-hlaup-i-mulakvisl)

_2026-08-20_

Jökulhlaupið sem hófst í Múlakvísl þann 18. ágúst heldur áfram. Síðan í gær hefur rafleiðni og rennsli í ánni aukist og áfram mælist gasmengun á svæðinu.

## [Staðan á Reykjanesskaga](http://www.vedur.is/um-vi/frettir/stadan-a-reykjanesskaga)

_2026-08-18_

Kvikusöfnun og landri heldur áfram við Svartsengi. Meðalhraði kvikusöfnunar undanfarnar vikur hefur haldist stöðugur. Áframhaldandi hæg kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi áfram líklegast sviðsmyndin.

## [Mælingar sýna að landris í Öskju hefur stöðvast](http://www.vedur.is/um-vi/frettir/maelingar-syna-ad-landris-i-oskju-hefur-stodvast)

_2026-08-14_

Landrisið sem hófst í Öskju árið 2021 hefur stöðvast. Fyrstu vísbendingar eru jafnframt um landsig á svæðinu.

## [Sérstök spásíða vegna sólmyrkvans á gottvedur.is](http://www.vedur.is/um-vi/frettir/serstakt-spasvaedi-vegna-solmyrkvans-a-gottveduris)

_2026-08-07_

Veðurstofa Íslands hefur opnað sérstakt spásvæði og yfirlitssíðu vegna sólmyrkvans 12. ágúst. Þar má meðal annars skoða staðarspár fyrir almyrkvaslóðir, nýja þekju fyrir skýjahulu, spár fyrir aðra veðurþætti og nýjustu upplýsingar frá veðurvakt.

## [Tíðarfar í júlí 2026](http://www.vedur.is/um-vi/frettir/tidarfar-i-juli-2026)

_2026-08-01_

Veðurfar júlímánaðar var mjög ólíkt á milli landshluta. Suðvestlægar áttir voru ríkjandi langt fram eftir mánuðinum. Það var óvenjulega hlýtt og þurrt á austanverðu landinu og þar endaði mánuðurinn víða á meðal hlýjustu og þurrustu júlímánaða sem vitað er um. Á meðan var mjög úrkomusamt og talsvert kaldara á Suðvestur- og Vesturlandi. Í þeim landshlutum raðar mánuðurinn sér á meðal blautustu…

## [Veðurhorfur um verslunarmannahelgina](http://www.vedur.is/um-vi/frettir/vedurhorfur-um-verslunarmannahelgina)

_2026-07-30_

Útlit er fyrir nokkuð misskipt veður um verslunarmannahelgina. Bjartast og hlýjast á Suður- og Vesturlandi og á Vestfjörðum, þar sem útlit er fyrir bjartviðri og hita að 19 stigum mest alla helgina. Vætusamara og svalara norðan- og austanlands, en þar styttir að mestu upp á laugardag. Búast má við hvössum vindhviðum við fjöll suðaustan- og austantil, einkum austan Öræfa. Ferðafólk er hvatt til að…

## [Varasamar aðstæður við sporð Sólheimajökuls](http://www.vedur.is/um-vi/frettir/varasamar-adstaedur-vid-spord-solheimajokuls)

_2026-07-22_

Aðstæður við sporð Sólheimajökuls hafa breyst hratt undanfarnar vikur og aðkoma að jöklinum er orðin erfiðari og varasamari. Fólk er hvatt til að sýna sérstaka aðgát vegna óstöðugs jökulíss, jökullóna og hættu á grjóthruni.

## [Jarðvegsfok á Íslandi í alþjóðlegu samhengi](http://www.vedur.is/um-vi/frettir/jardvegsfok-a-islandi-i-althjodlegu-samhengi)

_2026-07-11_

Jarðvegsfok er verulegt umhverfis- og loftgæðavandamál á Íslandi og getur orðið á öllum árstímum. Alþjóðaveðurfræðistofnunin, WMO, vekur nú athygli á víðtækum áhrifum sand- og rykbylja, en slíkir atburðir höfðu mikil áhrif á heilsu, umhverfi, samgöngur og atvinnustarfsemi víða um heim árið 2025.

## [Tíðarfar í júní 2026](http://www.vedur.is/um-vi/frettir/tidarfar-i-juni-2026)

_2026-07-02_

Tíðarfar í júní var tiltölulega gott. Á landsvísu var meðalhiti mánaðarins 0,6 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Hlýjast var á vestanverðu landinu en kaldara austanlands þar sem hiti var undir meðallagi síðustu tíu ára. Júní var úrkomusamur á Norðaustur- og Austurlandi, en úrkoma var nær meðallagi eða undir því á vestanverðu landinu. Loftþrýstingur var óvenjulágur í mánuðinum.

## [Get started with Turso (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/46YJSv8u2DuY)

_2026-07-02 · **Sponsored**_

Create your Turso account to access the app.

## [Jöklar á Íslandi halda áfram að rýrna](http://www.vedur.is/um-vi/frettir/joklar-a-islandi-halda-afram-ad-ryrna)

_2026-06-29_

Flestir jökulsporðar hörfa 2024–2025 samkvæmt mælingum sjálfboðaliða jöklarannsóknafélagsins. Breytingin er einna mest á stærri skriðjöklum Vatnajökuls, Langjökuls og Mýrdalsjökuls. Gögnin benda jafnframt til þess að tímabili hægari rýrnunar, sem ríkti árin 2012–2020, sé lokið og jöklarnir tapi nú aftur massa jafn ört og á tímabilinu 1995–2011.

