„Það á eftir að koma í ljós,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, aðspurður um hvort íslenskar áhafnir muni manna vélar dótturfélags sem fyrirtækið hyggst koma á fót undir erlendu flugrekstrarleyfi. Fyrr í dag var greint frá kaupum Icelandair á 49 prósenta hlut í FlyPlay Europe sem býr yfir maltnesku flugrekstrarleyfi sem Icelandair ásælist. Bogi segir skrefið styrkja starfsemi…
Eggert Aron Guðmundsson lék allan leikinn með Brann sem gerði 1-1 jafntefli við PAOK í forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld en leikurinn fór fram úti í Grikklandi.
Köngulóarmaðurinn, eða Spider-Man, er ein þekktasta ofurhetja Marvel-heimsins. Hann getur klifrað veggi og er einstaklega sterkur og lipur og notar köngulóavefi til að sveifla sér milli bygginga.
Skólastarf hefst á ný í Grindavík í næstu viku eftir tæplega þriggja ára hlé. Skólastjóri segir að fámennur nemendahópur geri starfsfólki kleift að ná enn betur utan um börnin sem rík þörf sé á. Og krakkarnir eru hæstánægðir með að vera komnir til baka.
Grindavík/Njarðvík jók möguleika sína á að vera í efri helmingi Bestu deildar kvenna eftir skiptingu með 4-0 sigri á Fram í fyrsta leik 16. umferðar í Njarðvík í kvöld. Ása Björg Einarsdóttir skoraði fyrstu tvö leiksins og lagði það þriðja upp fyrir Söntu Vuskane. Sú síðarnefnda lagði svo fjórða og síðasta mark leiksins upp fyrir Emersen Jennings.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur lokið máli einstaklings sem miðlaði innherjaupplýsingum um fyrirhugaðan samruna. Hann féllst á greiðslu sektar upp á 65 milljónir króna.
Sverrir Einar Eiríksson athafnamaður segir rassíu lögreglunnar á farfuglaheimili og hóteli sem hann rekur í Grímsnesi hafa varðað endurnýjun rekstrarleyfis. Gestum hafi verið komið fyrir á öðru hóteli.
Samfylkingin mælist á ný stærsti flokkurinn á Alþingi í nýrri könnun Maskínu. Flokkurinn bætir mestu við sig milli mánaða en samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna stendur nánast í stað.
Hluthafafundur Símans hf. samþykkti í dag að breyta nafni samstæðunnar í Ásar hf. Félagið hefur staðið í stórræðum síðasta árið en í desember síðastliðnum var tilkynnt um kaup þess á bæði Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands. Það var svo í júlí síðastliðnum sem kaup Ása á Greiðslumiðlun Íslands gengu í gegn.