RSS Amplifier

News source

Allar fréttir

Main feed

visir.isSource feed ↗30 articles

Overdue Last read · last published · next check
Last read 3 hours ago, longer than this feed's 1 hour schedule.

Latest articles

Meghan snýr aftur á skjáinn

Meghan, hertogaynjan af Sussex, stendur nú í viðræðum um hlutverk í Netflix-þáttunum The Gentlemen. Leikkonan fyrrverandi hætti leiklistinni eftir að hún giftist Harry Bretaprinsi, hertoganum af Sussex, árið 2018.

TikTok gert að greiða Banda­ríkjunum sögu­lega upp­hæð

Samfélagsmiðillinn TikTok hefur samþykkt að greiða Bandaríkjunum fjögur hundruð milljónir Bandaríkjadala, eða um 49 milljarða íslenskra króna, til að ljúka málsókn en miðillinn var sakaður um að brjóta á friðhelgi barna með upplýsingaöflun. Sáttin er ein sú stærsta sem hefur verið gerð vegna slíks máls.

Sinner missir af Opna banda­ríska

Heimsmeistarinn Jannik Sinner verður ekki með á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis sem hefst á sunnudaginn eftir að hann dró sig úr keppni vegna meiðsla.

United nær sam­komu­lagi við Brighton um Baleba

Manchester United hefur náð samkomulagi við Brighton um kaup á miðjumanninum Carlos Baleba. United greiðir 65 milljónir punda fyrir leikmanninn en upphæðin getur hækkað um fimm milljónir til viðbótar í bónusgreiðslum.

„Kær­komið að fá eitt svona mark“

Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, segir tilfinningarnar frábærar eftir að hafa sótt 1-0 sigur á Þór/KA fyrir norðan en eina mark leiksins kom á lokamínútu venjulegs leiktíma.

Aftur­elding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk

Afturelding vann stórsigur á Ægi, 7-0, þegar liðin mættust í 20. umferð Lengjudeildar karla í kvöld.

Einn látinn og tveir drengir al­var­lega særðir í Fagersta

Einn er látinn og tveir drengir alvarlega slasaðir eftir að maður réðst inn í framhaldsskóla vopnaður sverði í Fagersta í Svíþjóð. Árásarmaðurinn grunaði hefur verið handtekinn og er sagður fyrrum nemandi skólans.

Karó­lína Lea skoraði fyrir Inter

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði fyrir Inter þegar liðið vann Parma, 1-0, í ítalska deildarbikarnum í kvöld.

Blaut og vindasöm Menningar­nótt í vændum

Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp.

„Ég skora náttúru­lega ekki oft þannig að þetta er eigin­lega krafta­verk“

Valur kom sér upp úr fallsæti Bestu deildar kvenna með 1-0 sigri á Þór/KA á VÍS vellinum á Akureyri í kvöld.

Nýi Land­spítalinn verði til­búinn í árs­lok 2029

Stefnt er að verklokum við framkvæmd nýs Landspítala í árslok 2029. Á sama tími hefs yfirfærslutími svo hægt sé að hefja starfsemi spítalans á ný.

Etur kappi við Obama og Reynolds

Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók eftir Andra Snæ Magnason, hefur verið tilnefnd til tveggja verðlauna á Jackson Wild-verðlaunahátíðinni sem hefur verið lýst sem Óskarsverðlaunum náttúrulífsmynda. Andri Snær er tilnefndur í flokki þula og etur þar kappi við Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Hollywood-stjörnuna Ryan Reynolds.

Leik­menn beggja liða fá bönn eftir úr­slita­leik HM

Leandro Paredes fær tíu leikja bann fyrir slagsmálin eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Leikmenn úr báðum liðum fengu leikbönn.

Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið

Stundum hlusta ég á viðtöl um umdeild mál í samfélaginu og velti fyrir mér hvert hlutverk spyrilsins eiginlega sé. Viðmælandi fær orðið og segir sína sögu. Það er gott og gilt. Vandinn byrjar þegar frásögn eins einstaklings fær að standa nær óáreitt, jafnvel lengi, án þess að spurt sé um það sem kann að vanta í myndina.

Baunað á Jónas Má þvert á flokka

Bókað var í gríð og erg á fundi bæjarráðs Kópavogs í gær, þegar bæjarfulltrúar allra flokka nema Samfylkingar sökuðu Jónas Má Torfason, oddvita Samfylkingar, um að taka stöðu með ríkinu í stað sveitarfélagsins.

Fyrsta kvenna­lands­liðið í kotru býður á opna æfingu

Fyrsta kvennalandslið Íslands í kotru (backgammon) heldur í dag opna lokaæfingu fyrir heimsmeistaramót landsliða í London í Kaffi Dal, Sundlaugavegi 34. Landsliðskonurnar ætla á viðburðinum að kenna gestum, börnum og fullorðnum, að spila spilið. Viðburðurinn er einnig fjáröflun fyrir keppnina.

Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum

Lægsta verðið á matvöru er enn að finna í Prís samkvæmt úttekt Verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var dagana 10. til 14. ágúst. Þegar verð voru borin saman í lágvöruverslununum: Bónus, Krónunni, Nettó og Prís var lægsta verðið oftast að finna í Prís.

Þegar náttúran verður okkur framandi

Hvað gerist þegar forvitið barn kemur með könguló til að sýna fullorðna fólkinu, en það bregst við með öskri og grípur dagblað að vopni? Barnið lærir ekki aðeins að köngulær séu óvelkomnar, það lærir líka að náttúran sé eitthvað sem þurfi að halda í hæfilegri fjarlægð, helst fyrir utan lokaðan glugga.

BBC birtir inn­slag um sögu­legt ein­vígi KR og Liver­pool

BBC hefur birt skemmti­legt inn­slag frá árinu 1964 þegar að KR mætti Liver­pool í Evrópu­keppni félagsliða. Kunnug­legum and­litum bregður fyrir, meðal annars Ellert B. Schram, þá leik­manni KR og Alberti Guð­munds­syni, fyrsta at­vinnu­manni Ís­lands í knatt­spyrnu.

Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningar­nótt

Fjörutíu ára afmælistónleikar Bylgjunnar verða haldnir í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Stórstjörnur líkt og Friðrik Dór, Birgitta Haukdal og Stebbi Hilmars munu stíga á svið.

„Eftir að koma í ljós“ hvort ís­lenskar á­hafnir manni leigu­flug Icelandair

„Það á eftir að koma í ljós,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, aðspurður um hvort íslenskar áhafnir muni manna vélar dótturfélags sem fyrirtækið hyggst koma á fót undir erlendu flugrekstrarleyfi. Fyrr í dag var greint frá kaupum Icelandair á 49 prósenta hlut í FlyPlay Europe sem býr yfir maltnesku flugrekstrarleyfi sem Icelandair ásælist. Bogi segir skrefið styrkja starfsemi…

Brann náði í frá­bær úr­slit ytra

Eggert Aron Guðmundsson lék allan leikinn með Brann sem gerði 1-1 jafntefli við PAOK í forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld en leikurinn fór fram úti í Grikklandi.

Hvað veistu um... Köngulóar­manninn?

Köngulóarmaðurinn, eða Spider-Man, er ein þekktasta ofurhetja Marvel-heimsins. Hann getur klifrað veggi og er einstaklega sterkur og lipur og notar köngulóavefi til að sveifla sér milli bygginga.

„Ég elska að vera hér“

Skólastarf hefst á ný í Grindavík í næstu viku eftir tæplega þriggja ára hlé. Skólastjóri segir að fámennur nemendahópur geri starfsfólki kleift að ná enn betur utan um börnin sem rík þörf sé á. Og krakkarnir eru hæstánægðir með að vera komnir til baka.

Leik lokið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar

Grindavík/Njarðvík jók möguleika sína á að vera í efri helmingi Bestu deildar kvenna eftir skiptingu með 4-0 sigri á Fram í fyrsta leik 16. umferðar í Njarðvík í kvöld. Ása Björg Einarsdóttir skoraði fyrstu tvö leiksins og lagði það þriðja upp fyrir Söntu Vuskane. Sú síðarnefnda lagði svo fjórða og síðasta mark leiksins upp fyrir Emersen Jennings.

Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur lokið máli einstaklings sem miðlaði innherjaupplýsingum um fyrirhugaðan samruna. Hann féllst á greiðslu sektar upp á 65 milljónir króna.

Elías Rafn hélt hreinu og Midtjylland í kjörstöðu

Elías Rafn Ólafsson átti góðan leik í marki FC Midtjylland þegar liðið vann Rijeka 2-0 í fyrri leik liðanna í umspili Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.

Gestum komið fyrir á öðru hóteli

Sverrir Einar Eiríksson athafnamaður segir rassíu lögreglunnar á farfuglaheimili og hóteli sem hann rekur í Grímsnesi hafa varðað endurnýjun rekstrarleyfis. Gestum hafi verið komið fyrir á öðru hóteli.

Sam­fylkingin aftur stærst en ríkis­stjórnin stendur í stað

Samfylkingin mælist á ný stærsti flokkurinn á Alþingi í nýrri könnun Maskínu. Flokkurinn bætir mestu við sig milli mánaða en samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna stendur nánast í stað.

Síminn orðinn Ásar hf

Hluthafafundur Símans hf. samþykkti í dag að breyta nafni samstæðunnar í Ásar hf. Félagið hefur staðið í stórræðum síðasta árið en í desember síðastliðnum var tilkynnt um kaup þess á bæði Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands. Það var svo í júlí síðastliðnum sem kaup Ása á Greiðslumiðlun Íslands gengu í gegn.