# yfir (news sources) — RSS Amplifier

Recent posts from the 1 feeds in the RSS Amplifier directory that cover yfir.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/yfir/news>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/yfir/news.md>

---

## [Það verður blautt fram eftir degi en léttir til í kvöld](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-thad-verdur-blautt-fram-eftir-degi-en-lettir-til-i-kvold-484639/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Í dag er spáð áframhaldandi skúrum á landinu, einkum þó á Suður- og Vesturlandi. Áttin verður suðvestlæg eða breytileg átt, yfirleitt gola eða stinningsgola. Það léttir víða til og lægir í kvöld, hiti frá 10 stigum norðvestantil upp að 20 stigum á Austurlandi. Áfram blautt á morgun Það kemur lægð upp að landinu í fyrramálið sem fer norður yfir landið á morgun. Það mun því blása úr norðri á…

## [Talsvert um drukkin ungmenni í miðborginni — skemmtistöðum lokað vegna fjölda gesta undir lögaldri](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-talsvert-um-drukkin-ungmenni-i-midborginni-skemmtistodum-lokad-vegna-fjolda-gesta-undir-logaldri-484637/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögreglumenn þurftu að hafa afskipti af talsvert mörgum ungmennum undir áhrifum áfengis í miðborg Reykjavíkur á menningarnótt auk þess sem tveimur skemmtistöðum var lokað vegna þess fjölda gesta innandyra sem reyndist undir lögaldri. Foreldrum og forráðamönnum var gert að sækja börn sín á lögreglustöð. Þrír voru handteknir í miðborginni grunaðir um líkamsárás með eggvopnum og hnúajárni. Þeir höfðu…

## [Þyrlupallurinn í Surtsey verður næstum þrefaldaður að stærð](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-thyrlupallurinn-i-surtsey-verdur-naestum-threfaldadur-ad-staerd-484632/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þyrlupallurinn í Surtsey verður stækkaður töluvert eftir að umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyjabæjar samþykkti umsókn Surtseyjarfélagsins þess efnis. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaleyfi. Í frétt vefmiðilsins Tíguls segir að ætlunin sé að stækka pallinn úr 36 fermetrum í hundrað í ljósi þess að sérfræðingar Landhelgisgæslunnar telja…

## [Mikil stemmning á Tónaflóði Rásar 2](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-mikil-stemmning-a-tonaflodi-rasar-2-484628/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Reykjavík iðaði af lífi í allan dag á Menningarnótt og fjölbreyttir listviðburðir voru í hverju horni miðborgarinnar. Borgin fagnar 240 ára afmæli sínu í dag. Dagskrá Menningarnætur lauk með stórbrotinni flugeldasýningu klukkan tíu í kvöld. Fjöldi fólks sótti Tónaflóð á Arnarhóli þar sem fram komu JóiPé og Króli og vinir, Árný Margrét, Spacestation, Daði Freyr og Páll Óskar og Benni Hemm Hemm auk…

## [100 ára tombóla Kvenfélags Grímsness sló í gegn](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-100-ara-tombola-kvenfelags-grimsness-slo-i-gegn-484608/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Það var mikið fjölmenni á sveitahátíðinni Grímsævintýri á Borg í Grímsnesi í dag. Þar voru langar raðir af fólki til að komast inn á markaðinn í félagsheimilinu á Borg en það voru líka raðir við íþróttahúsið hjá þeim sem voru að fara á tombóluna – sem hefur verið haldin árlega frá 1926 af kvenfélaginu, eða í 100 ár. Allur peningurinn sem hefur safnast hefur runnið óskertur til góðra málefna. „Eins…

## [Hlaupagarpar og listamenn settu svip sinn á Menningarnótt](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-hlaupagarpar-og-listamenn-settu-svip-sinn-a-menningarnott-484623/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fjölbreyttir listviðburðir eru um alla borg í tilefni Menningarnætur. Margir reimuðu á sig hlaupaskóna og studdu góðan málstað. Sprækir hlauparar spændu af stað í Reykjavíkurmaraþoninu í morgun. Alls hafa safnast yfir 285 milljónir króna. Reykjavík hefur iðað af lífi í allan dag og fjölbreyttir listviðburðir í hverju horni miðborgarinnar. Yfir sextán þúsund hlauparar tóku þátt í…

## [Fjögur útköll og þar af tvö á hafi úti](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-fjogur-utkoll-og-thar-af-tvo-a-hafi-uti-484625/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Landhelgisgæslan hefur sinnt fjórum útköllum í dag en þar af hafa tvö verið á hafi úti. „Þetta er búið að vera ansi annasamur dagur. Þó að það komi alveg fyrir að Gæslan sinni fjórum útköllum sama daginn þá sem betur fer eru ekki margir svona dagar sem eru svona annasamir,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Meðal útkalla var sjúkraflug seinni partinn í dag í Flatey á…

## [Segir sýslumann hafa kyrrsett Bandero í kyrrþey](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-segir-syslumann-hafa-kyrrsett-bandero-i-kyrrthey-484617/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögfræðingur félagsins sem á skipið Bandero segir óeðlilegt að kyrrsetningarkrafa Hvals hf. á skipinu hafi náð fram að ganga. Hann á von á að beiðni um endurupptöku á kyrrsetningunni verði tekin til afgreiðslu sem fyrst. Íslensk yfirvöld tóku yfir stjórn skipsins í júlí eftir að áhöfn Bandero sigldi án heimildar inn fyrir tólf mílna lögsögu landsins og ógnaði öryggi skipverja hvalveiðiskipsins…

## [Strætó keyrir frá Sæbraut í öll hverfi borgarinnar eftir flugeldasýninguna](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-straeto-keyrir-fra-saebraut-i-oll-hverfi-borgarinnar-eftir-flugeldasyninguna-484614/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Miðborg Reykjavíkur er lokuð fyrir umferð í dag vegna Menningarnætur. Ferðir Strætó hafa gengið vel það sem af er degi. Vegna götulokana þurfa vagnar að aka hjáleiðir og nú er endastöð flestra strætóleiða í Skúlagötu, fram á kvöld. Markús Vilhjálmsson, hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, segir nýtingu á vögnum hafa verið góða í dag. „Við höfum lítið verið að lenda í því að vagnar hafa…

## [Smitten íhugar að taka upp rafræna auðkenningu notenda](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-smitten-ihugar-ad-taka-upp-rafraena-audkenningu-notenda-484604/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri stefnumótaforritsins Smitten, segir í skoðun að taka upp rafræna auðkenningu hér á landi, líkt og er í Svíþjóð. Sænskir notendur forritsins þurfa að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum til þess að geta stofnað síðu á forritinu. Davíð segir það hvimleitt, en þó ekki vaxandi, vandamál að fólk noti gervigreind til þess að villa á sér heimildir á…

## [Countdown to Getting Paid (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/xIfNYsCYpSO4)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Create a shareable wallet timer — deposits buy back time and pay debt down

## [Manndráp á Kársnesi talið tengjast skipulagðri glæpastarfsemi](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-manndrap-a-karsnesi-talid-tengjast-skipulagdri-glaepastarfsemi-484611/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Tveir menn höfðu setið í gæsluvarðhaldi hér á landi í tengslum við manndráp á Kársnesi í Kópavogi í tæpar tvær vikur en öðrum þeirra var sleppt í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Sá er erlendur ríkisborgari en gæsluvarðhald yfir hinum manninum, sem er íslenskur, er í gildi fram á mánudag. Ekki liggur fyrir hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir honum. Tveir til viðbótar…

## [Hvetur gesti Tónaflóðs til að klæða sig eftir veðri](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-hvetur-gesti-tonaflods-til-ad-klaeda-sig-eftir-vedri-484613/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Menningarnótt er í dag. Einn af hápunktum dagskrárinnar eru tónleikarnir Tónaflóð Rásar tvö, sem hefjast á Arnarhóli klukkan 19:00. Tónleikarnir eru í beinni útsendingu bæði í sjónvarpi og á Rás 2. Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru Jói P. og Króli, Árný Margrét, Daði Freyr, Benni Hemm Hemm og Páll Óskar. Siggi Gunnars á DJ-græjunum Arnarhóll breytist því í stærsta dansgólf landsins áður…

## [Betur fór en á horfðist þegar jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-betur-for-en-a-horfdist-thegar-jeppa-var-ekid-framan-a-voruflutningabil-484612/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl á Vesturlandi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að báðir bílar höfnuðu utan vegar og flutningabíllinn á hliðinni. Áreksturinn varð á Vestfjarðarvegi við Grafarland í Dölunum. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, segir annan ökumanninn hafa verið fluttan af vettvangi með sjúkrabíl. Hann hafi þó aðeins verið með minni háttar áverka.…

## [Eltihrellar nota millifærslur til að áreita fólk](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-eltihrellar-nota-millifaerslur-til-ad-areita-folk-484609/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Indó sparisjóði hafa borist ábendingar um að eltihrellar misnoti millifærslur til að áreita fólk með því að millifæra óverulegar fjárhæðir á bankareikninga þess og hafa jafnvel skilaboð með sem skýringu. Viðskiptavinir bankans geta nú lokað á að sjá skýringar frá tilteknum aðilum vegna þessa. „Því miður höfum við orðið vör við að viðskiptavinir okkar hafa haft samband og látið okkur vita af því að…

## [Paul Watson krefst endurupptöku á kyrrsetningu Bandero](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-paul-watson-krefst-endurupptoku-a-kyrrsetningu-bandero-484607/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Paul Watson krefst endurupptöku vegna kyrrsetningar á skipinu Bandero af hálfu Hvals hf. og að hún verði felld niður. Hann telur augljóst að lögum um kyrrsetningu hafi ekki verið fylgt, að því er fram kemur í endurupptökubeiðni. Bandero er skip Paul Watson samtakanna, sem Watson stofnaði. Hann stofnaði einnig félagið Atlantic Marine Industries LLC. Samtökin sigldu til Íslands í þeim tilgangi að…

## [Brotist inn í apótek og lyfjum stolið](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-brotist-inn-i-apotek-og-lyfjum-stolid-484601/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Brotist var inn í Efstaleitisapótek í Reykjavík í nótt og lyfjum stolið. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu safnar upplýsingum til að komast að því hver var að verki, meðal annars upptökum úr öryggismyndavélum í nágrenninu. „Það var farið inn í nótt og einhverjum lyfjum stolið,“ segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Málið sé í rannsókn. Þetta er…

## [Björgunarsveitir komu göngumanni til bjargar á Fimmvörðuhálsi í gærkvöldi](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-bjorgunarsveitir-komu-gongumanni-til-bjargar-a-fimmvorduhalsi-i-gaerkvoldi-484603/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Björgunarsveitir víða af Suðurlandi, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, voru kallaðar út á hæsta forgangi vegna skyndilegra veikinda göngumanns á Fimmvörðuhálsi í gærkvöld. Þoka og lítið skyggni gerðu aðgerðir erfiðar en nota þurfti línur til að flytja manninn niður bratta brekku og í bíl björgunarsveitar. Um 60 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðinni sem lauk um klukkan tíu í gærkvöld. Staddur…

## [Samtal við nágranna upphaf þess að skólinn fékk veglega gjöf](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-samtal-vid-nagranna-upphaf-thess-ad-skolinn-fekk-veglega-gjof-484568/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Gagnaversfyrirtækið Verne Global og tæknifyrirtækið Ofar gáfu Hvassaleitisskóla á Ásbrú veglega gjöf í dag: Þrívíddarprentara, tölvur, sýndarveruleikagleraugu og fleira sem nýtist í nýsköpunar- og tæknismiðju skólans. Unnar Stefán Sigurðsson skólastjóri Hvassaleitisskóla segir forsöguna vera þá að hann hafi átt samtal við nágranna sinn. „Þetta kemur til af því að við búum í litlu samfélagi,…

## [„Engin takmörk fyrir því hvað gerandi gerir“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-engin-takmork-fyrir-thvi-hvad-gerandi-gerir-484577/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fær að meðaltali eitt eltihrellamál á borð til sín á fimm daga fresti. Flest málin tengjast heimilisofbeldi og oft fyrrverandi eða núverandi mökum. Jenný Kristín Valberg teymisstýra hjá Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, segir helstu birtingarmyndir brota af þessu tagi vera endurtekin óvelkomin samskipti. Hún segir áreitið oft stigmagnast þegar þolandi…

## [Leggur áherslu á að laga hnökra á fjarskiptakerfum](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-leggur-aherslu-a-ad-laga-hnokra-a-fjarskiptakerfum-484564/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ísland var eitt af fyrstu löndum heims til að slökkva á fjarskiptakerfum sem kallast 2G og 3G. Við taka kerfin 4G og 5G sem eiga að vera með sömu og/eða betri útbreiðslu. En þetta hefur ekki gengið snuðrulaust fyrir sig. Sagðar hafa verið fréttir af verra fjarskiptasambandi, sérstaklega á landsbyggðinni, og komið hafa upp tilvik þar sem fólk í neyð nær ekki sambandi við neyðarlínuna. Eyjólfur…

## [Non-Custodial Crypto Gateway (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/uUUEl9BJL6va)

_2026-08-21 · **Sponsored**_

Accept multi-chain crypto, automated fee handling, and trustless escrow with real-time settlement.

## [Einn eltihrellir á fimm daga fresti](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-einn-eltihrellir-a-fimm-daga-fresti-484563/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögregla hefur enn ekki nýtt heimild til að setja rafræn ökklabönd á eltihrella. Stundum vita þolendur ekki hver gerandinn er – og dæmi eru um að einn og hinn sami hrelli fjölda fólks. „Við erum að fá svona 60-80 mál á ári,“ segir Marta Kristín Hreiðarsdóttir, deildarsérfræðingur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi mála segir ekki alla söguna – því í einu máli geta falist mörg brot. „Ef…

## [Jákvætt að matvöruverð sé ekki að keyra upp verðbólgu](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-jakvaett-ad-matvoruverd-se-ekki-ad-keyra-upp-verdbolgu-484567/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Það er jákvætt að matvöruverð sé ekki að keyra upp verðbólgu, segir verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ. Hægt hefur á hækkunum á matarverði síðustu mánuði og sumir birgjar hafa lækkað verð í sumar. „Það sem við erum að sjá síðustu mánuði er að það er að hægja á hækkunum sem okkur þykir mjög jákvætt,“ segir Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ. Í gegnum tíðina hafi það…

## [Borgfirðingum eystra áfram ráðlagt að sjóða neysluvatn yfir helgina](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-borgfirdingum-eystra-afram-radlagt-ad-sjoda-neysluvatn-yfir-helgina-484565/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Íbúum á Borgarfirði eystra er ráðlagt að sjóða neysluvatn áfram yfir helgina vegna E. coli-bakteríumengunar. Í tilkynningu frá HEF veitum í dag segir að ekki hafi tekist að setja upp gegnumlýsingartæki til að sótthreinsa vatnið og tengingu við vatnstank fyrir helgina. Sú vinna haldi áfram á mánudag og stefnt sé að því að tækið komist þá í gagnið. Truflanir verði á afhendingu á vatni samhliða…

## [„Vonbrigði að fá þessa hækkun á okkur“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-vonbrigdi-ad-fa-thessa-haekkun-a-okkur-484554/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Forsætisráðherra segir hækkun stýrivaxta vonbrigði. Hækkanir opinberra gjalda sem ríkisstjórnin hafi staðið fyrir séu ekki hærri en þær sem áður hafa orðið og áhrif þeirra á verðbólguna ekki meiri en gengur og gerist. Verðbólga hefur verið yfir 5% það sem af er ári og mældist 5,3% í júlí. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er talið að hún aukist enn frekar á næstu mánuðum en hjaðni tiltölulega…

## [FÍA sakar Icelandair um að grafa undan kjaraviðræðum](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-fia-sakar-icelandair-um-ad-grafa-undan-kjaravidraedum-484561/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Félag íslenskra atvinnuflugmanna lítur kaup Icelandair á tæplega helmingshlut í Fly Play Europe alvarlegum augum. FÍA á í kjaradeilu við Icelandair um þessar mundir. Greint var frá því í gær að Icelandair hefði gengið frá kaupum á 49% hlut í Fly Play Europe, sem á dótturfélag á Möltu með maltneskt flugrekstrarleyfi. Kaupin eru háð því að samkomulag náist við maltnesk flugmálayfirvöld um…

## [Lægsta verðið oftast í Prís](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-laegsta-verdid-oftast-i-pris-484551/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lægsta verð á matvöru er í Prís, samkvæmt úttekt Verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands og um 2.000 krónum munar á verslunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ . Matarkarfan um þúsund krónum dýrari í Bónus Úttektin var gerð dagana 10. til 14. ágúst og verð í Bónus, Krónunni, Nettó og Prís borin saman. Verðsamanburður var gerður á 25 algengum neysluvörum. Lægsta verðið var oftast að finna í…

## [Vilja leggja niður skólaakstur úr Suðurhlíðum í Hlíðaskóla](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-vilja-leggja-nidur-skolaakstur-ur-sudurhlidum-i-hlidaskola-484556/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Meirihlutinn í Reykjavíkurborg leggur til að frá og með upphafi skólaársins 2026-2027 verði ekki boðið upp á skólaakstur úr Suðurhlíðunum í Hlíðaskóla. Tillaga þess efnis var samþykkt á fundi skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar með fjórum atkvæðum gegn tveimur. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins kusu gegn tillögunni og fulltrúi Miðflokks sat hjá. Í bókun þeirra…

## [Stefna á að ljúka byggingu nýs Landspítala fyrir árslok 2029](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-stefna-a-ad-ljuka-byggingu-nys-landspitala-fyrir-arslok-2029-484553/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Áætlað er að byggingu nýja Landspítalans við Hringbraut ljúki fyrir árslok 2029. Framkvæmdatímabil spítalans hófst árið 2010 og nær til 2031. Skóflustunga var tekin að sjúkrahóteli árið 2015, sem var fyrsti áfangi verkefnisins. Á vef Stjórnarráðs Íslands segir að heildaráætlun vegna spítalans hafi verið uppfærð og kynnt fyrir heilbrigðisráðherra og efnahags- og fjármálaráðherra. „Mikil uppbygging…

## [„Löggæslan er í fáránlegri stöðu“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-loggaeslan-er-i-faranlegri-stodu-484529/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Dregið hefur verið úr löggæslu á Þórshöfn eftir að lögreglustöðinni var lokað vegna myglu fyrir tæpu ári. Lítið hefur gerst í húsnæðismálum og stöðugildum lögreglumanna hefur fækkað. „Við höfum ekki orðið vör við neinar framkvæmdir þar eða séð neinar ákvarðanir teknar um hvort eigi að gera við húsnæðið eða leggja það af. Sveitarfélagið getur til dæmis aðstoðað lögregluembættið við að finna…

## [Merki um kólnun á fasteigna- og byggingamarkaði](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-merki-um-kolnun-a-fasteigna-og-byggingamarkadi-484532/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Merkja mátti kólnun á fasteignamarkaði á fyrri helmingi ársins, miðað við sama tímabil í fyrra, og færri byggingarleyfi voru gefin út. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar . Tæplega 5.000 kaupsamningum var þinglýst á landinu öllu á fyrstu sex mánuðum ársins, um 14% færri en á sama tíma í fyrra. Þinglýstir kaupsamningar hafa ekki verið færri á fyrstu sex mánuðum árs…

## [Accept your Doppler invite (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/oHDxwe89wPwd)

_2026-08-21 · **Sponsored**_

Create your Doppler account using the invite code you received.

## [Aska konu fjarlægð úr gröf í skjóli nætur: „Hér hvílir amma, eða fæturnir á henni“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-aska-konu-fjarlaegd-ur-grof-i-skjoli-naetur-her-hvilir-amma-eda-faeturnir-a-henni-484487/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

„Hér hvílir amma, eða fæturnir á henni. Það er ekki mikið ..., það var svona smá eftir af ösku,“ segir Aðalbjörg Jónsdóttir. Hún segir frá því hvernig gröf ömmu hennar var opnuð að nóttu til í Sóllandi í Fossvogskirkjugarði í Reykjavík í fyrrasumar og stór hluti öskunnar af henni tekinn úr duftkeri. Amma Aðalbjargar hét Kristjana Jónsdóttir Dinse. Daginn eftir sáust verksummerki um uppgröftinn.…

## [Heldur hvasst og vætusamt veður framundan en hlýtt og þurrt eystra](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-heldur-hvasst-og-vaetusamt-vedur-framundan-en-hlytt-og-thurrt-eystra-484495/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Í dag fikrar lægðardrag sig nær vesturhluta landsins með smávægilegri vætu til að byrja með. Búast má við suðvestanstrekkingi norðvestantil. Annars gola, stinningsgola, kaldi eða stinningskaldi og dálítil væta. Spáð er bjartviðri að mestu austanlands með allt að 19 stiga hita. Skynsamlegt gæti verið fyrir íbúa vestantil á landinu að að taka fram föt og yfirhafnir sem þola vel vætu enda hvessir…

## [Lögreglan rannsakar minni háttar líkamsárás, innbrot, þjófnað og eignaspjöll](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-logreglan-rannsakar-minni-hattar-likamsaras-innbrot-thjofnad-og-eignaspjoll-484494/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar minni háttar líkamsárás sem gerð var í því umdæmi sem þjónar Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi. Lögreglan rannsakar minni háttar líkamsárás, innbrot og eignaspjöll.RÚV / Vilhjálmur Þór Guðmundsson Einnig er verið að rannsaka innbrot og þjófnað í tveimur fyrirtækjum og eignarspjöll sem framin voru í öðru þeirra. Ferðamaður tilkynnti vasaþjófnað í vesturhluta…

## [SFS telur að Evrópusambandsaðild geti fært störf úr landi og skert aflaheimildir](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-sfs-telur-ad-evropusambandsadild-geti-faert-storf-ur-landi-og-skert-aflaheimildir-484492/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, líta svo á að aðild Íslands að Evrópusambandinu gæti orðið til að skerða aflaheimildir landsins og færa störf úr landi. Samtökin segja jafnframt að aðild geti opnað fyrir erlendar fjárfestingar og eignarhald í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Þannig myndi samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja breytast gagnvart niðurgreiddum sjávarútvegi innan…

## [Boða samnorræna stefnu um samfélagsmiðlanotkun barna og ungmenna](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-20-boda-samnorraena-stefnu-um-samfelagsmidlanotkun-barna-og-ungmenna-484473/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Norðurlöndin hafa í hyggju að gefa út sameiginlega stefnu um samfélagmiðlanotkun barna og ungmenna. Þetta segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, en hún og kollegar hennar funduðu í Kaupmannahöfn í dag. Ráðherrarnir fengu kynningu um áhrif samfélagsmiðla á geðheilsu og einbeitingu unglinga og Kristrún segir kláran vilja hjá hópnum til að sameinast um að því að sníða þessa tækni betur að ungu…

## [Finnur enga annmarka eftir sjálfstæða eftirlitsferð í Bandero](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-20-finnur-enga-annmarka-eftir-sjalfstaeda-eftirlitsferd-i-bandero-484483/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Paul Watson og lögmenn hans segja að lög hafi verið brotin þegar skipið var kyrrsett og segja skipið vel haffært. Nú er Bandero kominn upp á Akranes. Í dag barst tilkynning frá Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals hf. um að sýslumaðurinn á Vesturlandi hefði kyrrsett Bandero að kröfu Hvals. Fyrirtækið telur sig eiga skaðabótakröfu á hendur eigandanum og vill að skipið sé kyrrsett sem trygging fyrir…

## [„Frábært tækifæri til að geta gefið til baka“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-20-frabaert-taekifaeri-til-ad-geta-gefid-til-baka-484469/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Hlaupari sem hefur safnað áheitum upp á fjórar milljónir króna fyrir Píeta samtökin í Reykjavíkurmaraþoninu segist vilja gefa til baka eftir að hafa glímt við kvíða á yngri árum. Eiður Rafn Gunnarsson er einn þeirra sem ætla að reima á sig hlaupaskóna á laugardaginn og hlaupa sitt fyrsta maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu. Reykjavíkurmaraþonið er frábært tækifæri til að gefa til baka, segir hlaupari…

## [Reiknar með ráðningu starfsfólks á Möltu](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-20-reiknar-med-radningu-starfsfolks-a-moltu-484479/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Markmiðið með kaupum Icelandair á 49% hlut í Fly Play Europe Holdco er að ná fram einföldun og hagræðingu í starfsemi Icelandair á Íslandi, segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair. Tilkynnt var um kaupin í dag en Fly Play Europe Holdco á dótturfélag á Möltu með maltneskt flugrekstarleyfi. Kaupverðið nemur 686 þúsund bandaríkjadölum, eða 83,4 milljónum króna. „Við erum að hætta rekstri á 757…

## [Samfylkingin mælist stærst á Alþingi á ný](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-20-samfylkingin-maelist-staerst-a-althingi-a-ny-484481/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Samfylkingin mælist aftur stærsti flokkurinn á Alþingi í nýrri könnun Maskínu sem gerð var í ágúst. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna þriggja er 42,9% og breytist lítið milli kannana. Vísir greinir frá. Í könnuninni mælist Samfylkingin með 26,2% fylgi og bætir þar með við sig 1,8% frá Maskínukönnun júlímánaðar. Fast á hæla Samfylkingarinnar mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 25,1%. Þar á eftir…

## [Skólahald hefst í Grindavík eftir þriggja ára hlé: „Ég er bara svo spenntur“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-20-skolahald-hefst-i-grindavik-eftir-thriggja-ara-hle-eg-er-bara-svo-spenntur-484476/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Skólabjöllu grunnskóla Grindavíkurbæjar verður hringt í næstu viku, í fyrsta sinn í tæplega þrjú ár. Skólastjóri leik- og grunnskóla í bænum segir undirbúning hafa gengið vel. Líf er óðum að færast í Grindavíkurbæ í skugga náttúruvár og eldsumbrota. Skólastarf hófst í leikskólanum Laut í síðustu viku – og börnin nutu útiverunnar í blíðskaparveðri í morgun. Á þriðjudag mæta svo 24 nemendur á…

