# segir (news sources) — RSS Amplifier

Recent posts from the 6 feeds in the RSS Amplifier directory that cover segir.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/segir/news>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/segir/news.md>

---

## [Það verður blautt fram eftir degi en léttir til í kvöld](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-thad-verdur-blautt-fram-eftir-degi-en-lettir-til-i-kvold-484639/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Í dag er spáð áframhaldandi skúrum á landinu, einkum þó á Suður- og Vesturlandi. Áttin verður suðvestlæg eða breytileg átt, yfirleitt gola eða stinningsgola. Það léttir víða til og lægir í kvöld, hiti frá 10 stigum norðvestantil upp að 20 stigum á Austurlandi. Áfram blautt á morgun Það kemur lægð upp að landinu í fyrramálið sem fer norður yfir landið á morgun. Það mun því blása úr norðri á…

## [Í dag: Úrslit í liðakeppni á EM í fimleikum](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-23-i-dag-urslit-i-lidakeppni-a-em-i-fimleikum-484610/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lokadagur Evrópumeistaramótsins í áhaldafimleikum er í dag. Mótið hefur farið fram í Zagreb í Króatíu síðustu daga. Keppni í kvennaflokkum fór fram í síðustu viku en í þessari viku hefur verið keppt í karlaflokkum. Í dag eru úrslit í liðakeppni. Bretar eru ríkjandi Evrópumeistarar. Sviss tók silfur og Ítalir tóku brons. RÚV sýnir beint frá úrslitunum í dag og útsending hefst klukkan 11:25.

## [Björgunarsveitir leita að skipverjum flutningaskips sem sökk við Indland](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-bjorgunarsveitir-leita-ad-skipverjum-flutningaskips-sem-sokk-vid-indland-484638/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þyrla indversku strandgæslunnar við æfingar.EPA / IDREES MOHAMMED Björgunarsveitir leita 22 skipverja flutningaskips sem sökk undan austurströnd Indlands. Ocean Winner siglir undir fána Panama og var á leið til Singapúr frá hafnarborginni Paradip á austurströnd Indlands samkvæmt upplýsingum MarineTraffic, sem sýnir staðsetningu skipa á rauntíma. Eftir að neyðarkall barst frá skipinu hófu indverski…

## [Talsvert um drukkin ungmenni í miðborginni — skemmtistöðum lokað vegna fjölda gesta undir lögaldri](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-talsvert-um-drukkin-ungmenni-i-midborginni-skemmtistodum-lokad-vegna-fjolda-gesta-undir-logaldri-484637/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögreglumenn þurftu að hafa afskipti af talsvert mörgum ungmennum undir áhrifum áfengis í miðborg Reykjavíkur á menningarnótt auk þess sem tveimur skemmtistöðum var lokað vegna þess fjölda gesta innandyra sem reyndist undir lögaldri. Foreldrum og forráðamönnum var gert að sækja börn sín á lögreglustöð. Þrír voru handteknir í miðborginni grunaðir um líkamsárás með eggvopnum og hnúajárni. Þeir höfðu…

## [Faðir skildi sjö ára son sinn eftir meðan hann sjálfur hélt áfram að klífa hlíðar Fuji](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-fadir-skildi-sjo-ara-son-sinn-eftir-medan-hann-sjalfur-helt-afram-ad-klifa-hlidar-fuji-484636/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Faðir um fimmtugt hefur verið áminntur af lögreglu fyrir að skilja sjö ára son sinn eftir í átta klukkustundir á bekk í hlíðum Fuji, hæsta fjalls Japans. Drengurinn hafði aðeins gosdrykk og snarl til að seðja sárasta hungrið. BBC fjallar um málið. Starfsfólk fjallakofa gekk fram á drenginn þar sem hann sat þreyttur, blautur og hrakinn á áningarstað í um tveggja kílómetra hæð í fjallinu og…

## [Um 40 slösuðust lítillega í öflugum jarðskjálfta nærri Tókýó](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-um-40-slosudust-litillega-i-oflugum-jardskjalfta-naerri-tokyo-484634/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Um fjörutíu slösuðust lítillega þegar jarðskjálfti af stærðinni 5,8 reið yfir Ibarak-hérað austanvert í Japan klukkan fimm síðdegis að staðartíma. Áhrifa skjálftans varð mjög vart í höfuðborginni Tókýó þar sem truflanir urðu á lestarsamgöngum. Jarðskjálftastofnun Japans sagði skjálftann eiga upptök á 68 kílómetra dýpi og enga hættu á flóðbylgjum. Hún varar við sterkum eftirskjálftum næstu daga.…

## [Engin flugumferð um Gardemoen fram eftir degi — ferðum SAS til og frá Osló aflýst](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-engin-flugumferd-um-gardemoen-fram-eftir-degi-ferdum-sas-til-og-fra-oslo-aflyst-484635/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Komu þotu SAS frá Osló til Keflavíkur klukkan 9:50 og brottför klukkan 10:40 hefur verið aflýst, að vþví er fram kemur á vef Isavia. Engin flugumferð verður til og frá Gardermoen-flugvelli við Osló næstu klukkustundir hið minnsta. Það er vegna vinnustöðvunar norskra flugumferðarstjóra. Þeir lögðu niður störf klukkan hálfsjö að staðartíma eða hálffimm að íslenskum tíma. VG vitnar í tilkynningu frá…

## [Ákærður ríkisstjóri hætti við að hætta við að hætta](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-akaerdur-rikisstjori-haetti-vid-ad-haetta-vid-ad-haetta-484633/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ruben Rocha Moya, ríkisstjóri Sinaloa-ríkis í Mexíkó, hefur tilkynnt að hann ætli að láta af störfum tímabundið að nýju degi eftir að hann sneri óvænt til starfa á ný. Hann réttlæti endurhvarfið í langri færslu á X og kvaðst enga glæpi hafa framið. Moya var ásamt níu öðrum embættismönnum ákærður í apríl og eftirlýstur í Bandaríkjunum fyrir fíkniefnamakk með Sinaloa-glæpahringnum. Bandaríska…

## [Þyrlupallurinn í Surtsey verður næstum þrefaldaður að stærð](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-thyrlupallurinn-i-surtsey-verdur-naestum-threfaldadur-ad-staerd-484632/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þyrlupallurinn í Surtsey verður stækkaður töluvert eftir að umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyjabæjar samþykkti umsókn Surtseyjarfélagsins þess efnis. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaleyfi. Í frétt vefmiðilsins Tíguls segir að ætlunin sé að stækka pallinn úr 36 fermetrum í hundrað í ljósi þess að sérfræðingar Landhelgisgæslunnar telja…

## [Viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kanada harðnar](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-vidskiptastrid-bandarikjanna-og-kanada-hardnar-484626/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kanada komst á alvarlegra stig í gær þegar slitnaði upp úr viðræðum um tollasamning. Hvorir segja hina hafa komið með skilmála á síðustu stundu sem ekki var hægt að samþykkja. Þetta varð til þess að nýir tollar Bandaríkjanna á kanadískar vörur, sem áttu að taka gildi á miðvikudaginn en var frestað um þrjá daga, tóku gildi í dag. Þá bættist 50 prósenta tollur við…

## [Refer a Friend, Earn Rewards (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/uq3jvFdNyVA8)

_2026-08-23 · **Sponsored**_

Earn rewards when a friend signs up for the Graphite Business Card

## [Tvöfaldur heimsmeistari í hnefaleikum skotinn til bana](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-tvofaldur-heimsmeistari-i-hnefaleikum-skotinn-til-bana-484631/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Zolani Tete, tvöfaldur heimsmeistari í hnefaleikum, var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Suður-Afríku á föstudag. Tete var að sögn lögreglu á leið heim til sín í bænum Mdantsane þegar tveir menn klæddir lambhúshettum stukku út úr bíl og hófu skothríð. Tæplega þrítug kona í fylgd með Tete særðist í árásinni og var flutt á sjúkrahús. Lögregla segir ástæður morðsins harla óljósar og að…

## [Frakkar útvega varnarflaugar sem grandað geta langdrægum flugskeytum](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-frakkar-utvega-varnarflaugar-sem-grandad-geta-langdraegum-flugskeytum-484630/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Frönsk stjórnvöld heita því að útvega Úkraínumönnum nýjar varnarflaugar til að skjóta niður flugskeyti í kjölfar þess að Rússar hafa aukið árásarþunga sinn á landið undanfarna mánuði. Langdrægum eldflaugum hefur nánast rignt yfir höfuðborgina Kyiv. Það hefur orðið til þess að mannfall meðal almennra borgara í Úkraínu er orðið meira en það var á fyrstu mánuðum innrásarinnar að mati Sameinuðu…

## [Íranar segja alla samherja Bandaríkjanna sjálfkrafa óvini](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-iranar-segja-alla-samherja-bandarikjanna-sjalfkrafa-ovini-484629/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Yfirmaður öryggisráðs Írans segir að öll ríki sem styðji eða taki þátt í efnahagsstríði Bandaríkjanna verði álitin óvinir íslamska lýðveldisins. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað refsiaðgerðir gegn Írönum sem engan eigi sinni líka og jafnframt hverju því landi sem á í viðskiptum við þá eða liðsinnir á nokkurn hátt. Bandaríkin hafa brýnt önnur ríki til að liðsinna við einangrun Írana, þar…

## [„Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“](https://www.visir.is/g/20262924773d/-their-badu-um-of-mikid-og-budu-of-litid-)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Forsætisráðherra Kanada hefur sagt að bylgju bandarískra tolla á landið sé ætlað að „skaða og sundra okkur“, eftir að viðskiptaviðræður fóru út um þúfur á dögunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað tilkynnt nýja íþyngjandi tolla og nú hefur forsætisráðherrann sagst ætla að jafna bandaríska tolla „dollara fyrir dollara“ frá og með 8. september.

## [Mikil stemmning á Tónaflóði Rásar 2](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-mikil-stemmning-a-tonaflodi-rasar-2-484628/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Reykjavík iðaði af lífi í allan dag á Menningarnótt og fjölbreyttir listviðburðir voru í hverju horni miðborgarinnar. Borgin fagnar 240 ára afmæli sínu í dag. Dagskrá Menningarnætur lauk með stórbrotinni flugeldasýningu klukkan tíu í kvöld. Fjöldi fólks sótti Tónaflóð á Arnarhóli þar sem fram komu JóiPé og Króli og vinir, Árný Margrét, Spacestation, Daði Freyr og Páll Óskar og Benni Hemm Hemm auk…

## [Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ó­gilt](https://www.visir.is/g/20262924720d/vesen-hja-palace-mateta-heldur-thvi-fram-ad-lokaar-samningsins-se-ogilt)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Jean-Philippe Mateta, framherji Crystal Palace, heldur því fram að lokaár samnings síns við félagið sé ógilt. Hann fór með málið til Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA.

## [Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata](https://www.visir.is/g/20262924774d/er-marta-kos-einnig-ad-plata-..-en-thad-ma-ekki-plata)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Ísland ber þá gæfu að hafa jafnan kosið stangheiðarlega og grandvara menn til setu á Alþingi. Því vakti það athygli þegar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, nýbúin að mynda ríkisstjórn með Þorgerði Katrínu (og eftir atvikum Ingu), lýsti því yfir að í mikilvægum ráðherraembættum „mætti ekki plata“. Menn áttuðu sig ekki strax á því hvert hún var að fara. Nú, viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu,…

## [Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn](https://www.visir.is/g/20262924771d/kynlifsleikfongum-aftur-kastad-inn-a-vollinn)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Gera þurfti hlé á leik Chicago Sky og Golden State Valkyries í WNBA-deildinni eftir að kynlífsleikföngum var kastað inn á völlinn. Þetta er í annað sinn í vikunni sem þetta gerist.

## [100 ára tombóla Kvenfélags Grímsness sló í gegn](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-100-ara-tombola-kvenfelags-grimsness-slo-i-gegn-484608/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Það var mikið fjölmenni á sveitahátíðinni Grímsævintýri á Borg í Grímsnesi í dag. Þar voru langar raðir af fólki til að komast inn á markaðinn í félagsheimilinu á Borg en það voru líka raðir við íþróttahúsið hjá þeim sem voru að fara á tombóluna – sem hefur verið haldin árlega frá 1926 af kvenfélaginu, eða í 100 ár. Allur peningurinn sem hefur safnast hefur runnið óskertur til góðra málefna. „Eins…

## [Fór létt með tíu kíló­metra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“](https://www.visir.is/g/20262924760d/for-lett-med-tiu-kilometra-vid-sjaumst-bara-i-markinu-gamla-min-)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ein þeirra sem gerðu sér lítið fyrir og hlupu tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í fyrsta skipti en hún fór létt með það ef marka má færslur sem hún deildi á Facebook.

## [One Cloud, Every AI Layer (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/vIsCK0ZXwDSd)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Run agents, inference, and infrastructure on one stack — economics improve as you scale.

## [Hlaupagarpar og listamenn settu svip sinn á Menningarnótt](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-hlaupagarpar-og-listamenn-settu-svip-sinn-a-menningarnott-484623/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fjölbreyttir listviðburðir eru um alla borg í tilefni Menningarnætur. Margir reimuðu á sig hlaupaskóna og studdu góðan málstað. Sprækir hlauparar spændu af stað í Reykjavíkurmaraþoninu í morgun. Alls hafa safnast yfir 285 milljónir króna. Reykjavík hefur iðað af lífi í allan dag og fjölbreyttir listviðburðir í hverju horni miðborgarinnar. Yfir sextán þúsund hlauparar tóku þátt í…

## [Sigur­mark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endur­komu Mourinhos](https://www.visir.is/g/20262924279d/sigurmark-a-lokaminutunni-i-fyrsta-leiknum-i-endurkomu-mourinhos)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

José Mourinho stýrði Real Madrid í fyrsta sinn í keppnisleik í þrettán ár þegar liðið mætti Espanyol á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Einn af nýju leikmönnum Real Madrid skoraði sigurmark liðsins undir blálokin, 1-2.

## [De Bruyne gerði gæfu­muninn gegn Mikael Agli og fé­lögum](https://www.visir.is/g/20262924750d/de-bruyne-gerdi-gaefumuninn-gegn-mikael-agli-og-felogum)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn þegar Genoa laut í lægra haldi fyrir Napoli, 0-2, í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fyrrverandi fyrirliði Manchester City breytti gangi mála eftir að hann kom inn á.

## [Fjögur útköll og þar af tvö á hafi úti](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-fjogur-utkoll-og-thar-af-tvo-a-hafi-uti-484625/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Landhelgisgæslan hefur sinnt fjórum útköllum í dag en þar af hafa tvö verið á hafi úti. „Þetta er búið að vera ansi annasamur dagur. Þó að það komi alveg fyrir að Gæslan sinni fjórum útköllum sama daginn þá sem betur fer eru ekki margir svona dagar sem eru svona annasamir,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Meðal útkalla var sjúkraflug seinni partinn í dag í Flatey á…

## [Mynda­syrpa frá Reykja­víkur­mara­þoninu: Bleyta, bætingar og bros](https://www.visir.is/g/20262924727d/myndasyrpa-fra-reykjavikurmarathoninu-bleyta-baetingar-og-bros)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Hið árlega Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í morgun. Sextán þúsund hlauparar spreyttu sig í rigningunni í höfuðborginni.

## [Sautján ára stúlka lést í sverðaárásinni í Svíþjóð](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-sautjan-ara-stulka-lest-i-sverdaarasinni-i-svithjod-484615/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sú sem lést í sverðaárás í framhaldsskólanum Brinnell í Fagersta í gærkvöldi var 17 ára gömul stúlka. Sænska lögreglan staðfesti það í morgun. Lögregla var kölluð að skólanum skömmu eftir klukkan tvö að staðartíma. Þá hafði árásarmaðurinn sært fjölda fólks með sverði. Lögregla skaut hann í fótinn áður en hann var handtekinn. Árásarmaðurinn, sem er 18 ára, verður líklega ákærður fyrir morð og…

## [Báðar þyrlur og flug­vél gæslunnar á loft sam­tímis](https://www.visir.is/g/20262924722d/badar-thyrlur-og-flugvel-gaeslunnar-a-loft-samtimis)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur sinnt fjórum sjúkraflugum það sem af er degi en þar af var eitt á Flateyri í Breiðafirði og eitt á Patreksfirði. Eftirlitsflugvélin TF-SIF hefur komið að útköllum þar sem farið var djúpt á haf út en á tímabili var nauðsynlegt að forgangsraða verkefnum þar sem þau bárust nánast samtímis.

## [De Zerbi ó­sáttur: „Vorum ekki til­búnir að berjast“](https://www.visir.is/g/20262924716d/de-zerbi-osattur-vorum-ekki-tilbunir-ad-berjast-)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Roberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Tottenham, sagði að sínir menn hefðu ekki verið klárir í baráttuna gegn Brentford í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Spurs tapaði leiknum, 3-0.

## [Segir sýslumann hafa kyrrsett Bandero í kyrrþey](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-segir-syslumann-hafa-kyrrsett-bandero-i-kyrrthey-484617/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögfræðingur félagsins sem á skipið Bandero segir óeðlilegt að kyrrsetningarkrafa Hvals hf. á skipinu hafi náð fram að ganga. Hann á von á að beiðni um endurupptöku á kyrrsetningunni verði tekin til afgreiðslu sem fyrst. Íslensk yfirvöld tóku yfir stjórn skipsins í júlí eftir að áhöfn Bandero sigldi án heimildar inn fyrir tólf mílna lögsögu landsins og ógnaði öryggi skipverja hvalveiðiskipsins…

## [Strætó keyrir frá Sæbraut í öll hverfi borgarinnar eftir flugeldasýninguna](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-straeto-keyrir-fra-saebraut-i-oll-hverfi-borgarinnar-eftir-flugeldasyninguna-484614/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Miðborg Reykjavíkur er lokuð fyrir umferð í dag vegna Menningarnætur. Ferðir Strætó hafa gengið vel það sem af er degi. Vegna götulokana þurfa vagnar að aka hjáleiðir og nú er endastöð flestra strætóleiða í Skúlagötu, fram á kvöld. Markús Vilhjálmsson, hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, segir nýtingu á vögnum hafa verið góða í dag. „Við höfum lítið verið að lenda í því að vagnar hafa…

## [PixelRift — Platforming with Level Editor (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/RGhNzCQiqAFx)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Includes a built-in level editor, campaign with elemental heroes, and boss encounters.

## [Smitten íhugar að taka upp rafræna auðkenningu notenda](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-smitten-ihugar-ad-taka-upp-rafraena-audkenningu-notenda-484604/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri stefnumótaforritsins Smitten, segir í skoðun að taka upp rafræna auðkenningu hér á landi, líkt og er í Svíþjóð. Sænskir notendur forritsins þurfa að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum til þess að geta stofnað síðu á forritinu. Davíð segir það hvimleitt, en þó ekki vaxandi, vandamál að fólk noti gervigreind til þess að villa á sér heimildir á…

## [Manndráp á Kársnesi talið tengjast skipulagðri glæpastarfsemi](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-manndrap-a-karsnesi-talid-tengjast-skipulagdri-glaepastarfsemi-484611/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Tveir menn höfðu setið í gæsluvarðhaldi hér á landi í tengslum við manndráp á Kársnesi í Kópavogi í tæpar tvær vikur en öðrum þeirra var sleppt í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Sá er erlendur ríkisborgari en gæsluvarðhald yfir hinum manninum, sem er íslenskur, er í gildi fram á mánudag. Ekki liggur fyrir hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir honum. Tveir til viðbótar…

## [Hvetur gesti Tónaflóðs til að klæða sig eftir veðri](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-hvetur-gesti-tonaflods-til-ad-klaeda-sig-eftir-vedri-484613/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Menningarnótt er í dag. Einn af hápunktum dagskrárinnar eru tónleikarnir Tónaflóð Rásar tvö, sem hefjast á Arnarhóli klukkan 19:00. Tónleikarnir eru í beinni útsendingu bæði í sjónvarpi og á Rás 2. Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru Jói P. og Króli, Árný Margrét, Daði Freyr, Benni Hemm Hemm og Páll Óskar. Siggi Gunnars á DJ-græjunum Arnarhóll breytist því í stærsta dansgólf landsins áður…

## [Betur fór en á horfðist þegar jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-betur-for-en-a-horfdist-thegar-jeppa-var-ekid-framan-a-voruflutningabil-484612/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl á Vesturlandi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að báðir bílar höfnuðu utan vegar og flutningabíllinn á hliðinni. Áreksturinn varð á Vestfjarðarvegi við Grafarland í Dölunum. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, segir annan ökumanninn hafa verið fluttan af vettvangi með sjúkrabíl. Hann hafi þó aðeins verið með minni háttar áverka.…

## [Eltihrellar nota millifærslur til að áreita fólk](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-eltihrellar-nota-millifaerslur-til-ad-areita-folk-484609/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Indó sparisjóði hafa borist ábendingar um að eltihrellar misnoti millifærslur til að áreita fólk með því að millifæra óverulegar fjárhæðir á bankareikninga þess og hafa jafnvel skilaboð með sem skýringu. Viðskiptavinir bankans geta nú lokað á að sjá skýringar frá tilteknum aðilum vegna þessa. „Því miður höfum við orðið vör við að viðskiptavinir okkar hafa haft samband og látið okkur vita af því að…

## [Paul Watson krefst endurupptöku á kyrrsetningu Bandero](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-paul-watson-krefst-endurupptoku-a-kyrrsetningu-bandero-484607/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Paul Watson krefst endurupptöku vegna kyrrsetningar á skipinu Bandero af hálfu Hvals hf. og að hún verði felld niður. Hann telur augljóst að lögum um kyrrsetningu hafi ekki verið fylgt, að því er fram kemur í endurupptökubeiðni. Bandero er skip Paul Watson samtakanna, sem Watson stofnaði. Hann stofnaði einnig félagið Atlantic Marine Industries LLC. Samtökin sigldu til Íslands í þeim tilgangi að…

## [Stefán Teitur með tvennu í þægi­legum bikarsigri](https://www.visir.is/g/20262924666d/stefan-teitur-med-tvennu-i-thaegilegum-bikarsigri)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Stefán Teitur Þórðarson skoraði tvö mörk fyrir Hannover 96 í þægilegum 1-9 sigri gegn SV Hemelingen í fyrstu umferð þýska bikarsins.

## [Norris náði ráspólnum aftur](https://www.visir.is/g/20262924661d/norris-nadi-raspolnum-aftur)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Ríkjandi meistarinn Lando Norris hjá McLaren er ekki tilbúinn að játa sig sigraðan í baráttunni um heimsmeistaratitilinn og tryggði sér fremstu stöðu í Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í Hollandi á morgun.

## [Segir aug­ljóst að lögum hafi ekki verið fram­fylgt við kyrrsetninguna](https://www.visir.is/g/20262924637d/segir-augljost-ad-logum-hafi-ekki-verid-framfylgt-vid-kyrrsetninguna)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Paul Watson krefst endurupptöku á beiðni Hvals hf. um kyrrsetningu skipsins Banderos á grundvelli laga um kyrrsetningu en augljóst sé að þeim hafi ekki verið framfylgt. Félagið sem á Bandero hafi ekki verið gert vart við kyrrsetningarbeiðni Hvals hf. og því ekki gefist tækifæri til mótmæla kröfu Hvals áður en kyrrsetningu lauk.

## [Jóhann Berg náði markmiðum sínum í Reykjavíkurmaraþoninu](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-22-johann-berg-nadi-markmidum-sinum-i-reykjavikurmarathoninu-484606/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

„Ég náði mínum markmiðum, að vera undir 2 klukkutímum og gerði það nokkuð vel en það er mjög gaman að taka þátt í þessu. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hleyp hálft maraþon og svona lengi. Þetta er eitthvað nýtt og gríðarlega gaman.“ „Það kemur bara í ljós. Það er alltaf óráðið. Ég var hlaupari í dag og svo sjáum við til hvað ég er á morgun.“ „Stemningin var frábær og það var gríðarlega gaman að…

## [Tveir lögreglumenn meðal látinna eftir árekstur í Bretlandi](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-tveir-logreglumenn-medal-latinna-eftir-arekstur-i-bretlandi-484605/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sjö létu lífið í hörðum árekstri á hraðbraut nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt. Tveir lögreglumenn eru meðal látinna. Áreksturinn varð þegar lögreglubíll var að eltast við fólksbíl sem grunur leikur á að hafi ekið á öfugum vegarhelmingi. Fjórtán sjúkrabílar voru sendir á vettvang og hraðbrautinni var lokað. Allir farþegar beggja bíla voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Samfélagið í áfalli…

## [Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni](https://www.visir.is/g/20262924652d/diana-vard-meistari-meistaranna-eftir-vitakeppni)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe er meistari meistaranna í þýska handboltanum. 22-22 jafntefli varð niðurstaða meistaraleiksins en 26-24 sigur vannst eftir vítakeppni gegn Borussia Dortmund.

## [Brotist inn í apótek og lyfjum stolið](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-brotist-inn-i-apotek-og-lyfjum-stolid-484601/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Brotist var inn í Efstaleitisapótek í Reykjavík í nótt og lyfjum stolið. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu safnar upplýsingum til að komast að því hver var að verki, meðal annars upptökum úr öryggismyndavélum í nágrenninu. „Það var farið inn í nótt og einhverjum lyfjum stolið,“ segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Málið sé í rannsókn. Þetta er…

## [Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjár­magnar](https://www.visir.is/g/20262924648d/infantino-bedinn-um-ad-maeta-ekki-a-barnamot-sem-fifa-fjarmagnar)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Gianni Infantino, umdeildur forseti FIFA, var beðinn um að mæta ekki á fótboltamót ungmenna sem fer fram í Lýðveldi Dóminíkana um helgina. Óttast var að viðvera hans myndi draga neikvæða athygli að mótinu.

## [„Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“](https://www.visir.is/g/20262924643d/-their-litu-ut-fyrir-ad-vera-ekki-i-formi-)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Alan Shearer segir lið Manchester United hafa litið út fyrir að vera ekki í leikformi í 2-0 tapi gegn Hull City í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

## [Björgunarsveitir komu göngumanni til bjargar á Fimmvörðuhálsi í gærkvöldi](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-bjorgunarsveitir-komu-gongumanni-til-bjargar-a-fimmvorduhalsi-i-gaerkvoldi-484603/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Björgunarsveitir víða af Suðurlandi, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, voru kallaðar út á hæsta forgangi vegna skyndilegra veikinda göngumanns á Fimmvörðuhálsi í gærkvöld. Þoka og lítið skyggni gerðu aðgerðir erfiðar en nota þurfti línur til að flytja manninn niður bratta brekku og í bíl björgunarsveitar. Um 60 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðinni sem lauk um klukkan tíu í gærkvöld. Staddur…

## [Segja Morgun­blaðið leggja þeim orð í munn](https://www.visir.is/g/20262924624d/segja-morgunbladid-leggja-theim-ord-i-munn)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Þrír prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík segja frétt Morgunblaðsins um að þeir telji engar undanþágur í boði við aðild vera ranga. Einn prófessoranna segir blaðið leggja sér orð í munn.

## [Björguðu veikum göngumanni í kíló­metrahæð á Fimm­vörðu­hálsi](https://www.visir.is/g/20262924632d/bjorgudu-veikum-gongumanni-i-kilometrahaed-a-fimmvorduhalsi)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Björgunarsveitir björguðu í gær veikum einstaklingi sem hafði verið í ferð með gönguhópi á leið yfir Fimmvörðuháls. Aðstæður voru erfiðar, í mikilli þoku, í brattri brekku, í ríflega kílómetershæð.

## [Heildar­kostnaður aðildar­við­ræðna gæti sam­svarað 300–700 kr. á mann á mánuði](https://www.visir.is/g/20262924627d/heildarkostnadur-adildarvidraedna-gaeti-samsvarad-300-700-kr.-a-mann-a-manudi)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Nokkuð hefur verið rætt um kostnað vegna mögulegra aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Markmið þessarar greinar er ekki að færa rök með eða á móti aðild, heldur að setja kostnaðinn við að fara í aðildarviðræður við ESB í samhengi við þann fjölda landsmanna sem kostnaðurinn dreifist á.

## [Stöðug­leiki í vaxtaþróun langra ríkis­bréfa merki um „seiglu“ ís­lenska markaðarins](https://www.visir.is/g/20262924620d/stodugleiki-i-vaxtathroun-langra-rikisbrefa-merki-um-seiglu-islenska-markadarins)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Á meðan ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa hefur rokið upp beggja vegna Atlantshafsins að undanförnu hafa langtímavextir hér á landi haldist tiltölulega stöðugir þrátt fyrir mikla endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Seðlabankastjóri segir þróunina benda til góðs innra jafnvægis, en hækkun langra vaxta erlendis geti endurspeglað efasemdir um bæði peningastefnu og sjálfbærni ríkisfjármála hjá…

