# nú (blogs) — RSS Amplifier

Recent posts from the 3 feeds in the RSS Amplifier directory that cover nú.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/n%C3%BA/blogs>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/n%C3%BA/blogs.md>

---

## [Ný verslun Parka opnuð á Akureyri](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/ny-verslun-parka-opnud-a-akureyri)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Parki Interiors opnaði í dag nýja afar rúmgóða og glæsilega verslun við Sjafnargötu 1b á Akureyri. Parki er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Íslandi og hefur á undanförnum árum byggt upp öflugt vöruúrval og sérþekkingu á sviði innréttinga og hönnunar.

## [Vegleg bókagjöf til minningar um Ásgeir H Ingólfsson](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/vegleg-bokagjof-til-minningar-um-asgeir-h-ingolfsson)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Leikskólanum Lundarseli-Pálmholti hefur borist einstaklega vegleg bókagjöf frá Hrefnu Hjálmarsdóttur leikskólakennara til minningar um son hennar Ásgeir H Ingólfsson.

## [Orkan hefur safnað 83 tonnum af garðúrgangi](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/orkan-hefur-safnad-83-tonnum-af-gardurgangi)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Síðastliðin fimm ár hefur Orkan boðið viðskiptavinum sínum upp á að losa garðúrgang sér að kostnaðarlausu á völdum Orkustöðvum í sérstökum móttöku gámum og hafa gámarnir notið mikilla vinsælda. Í upphafi voru gámar á fjórum staðsetningum á suðvesturhorninu en í fyrra bættist Orkustöðin á Mýrarvegi á Akureyri við. Frá árinu 2021 hefur 83,1 tonn af garðúrgangi safnast í móttökugámunum á fimm…

## [Jón Þór Kristjánsson ráðinn verkefnastjóri upplýsingamiðlunar hjá Samherja](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/jon-thor-kristjansson-radinn-verkefnastjori-upplysingamidlunar-hja-samherja)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Jón Þór Kristjánsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri upplýsingamiðlunar hjá Samherja.

## [Kvíði frá sjónarhorni barna.](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/kvidi-fra-sjonarhorni-barna)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Kvíðinn passar upp á sjálfan sig: Eðluheilinn Kvíði er eðlilegt ástand sem flestir upplifa reglulega. Í grunninn er eini tilgangur kvíðans að passa upp á öryggi okkar. Það má segja að kjarni kvíðans sé óttaviðbragðið sem er rótgróið í taugakerfinu og birtist í líkama okkar, hegðun og hugsunum. Það svæði í heilanum sem stjórnar óttaviðbragðinu er stundum kallað eðluheilinn vegna þess að talið er að…

## [Starfsemi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra verði óskert til áramóta](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/starfsemi-heilbrigdiseftirlits-nordurlands-eystra-verdi-oskert-til-aramota)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Stjórn SSNE leggur áherslu á mikilvægi þess að starfsemi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra verði óskert til loka þessa árs, 2026 og að hagsmunir starfsfólks verði tryggðir. Einnig að skýrt liggi fyrir hvaða verkefni verða áfram á ábyrgð sveitarfélaga. Fyrirhugað er að leggja HNE í núverandi mynd um komandi áramót eða frá og með1. janúar 2027.

## [Beint frá býlidagurinn haldinn í Syðra Holti í Svarfaðardal](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/beint-fra-bylidagurinn-haldinn-i-sydra-holti-i-svarfadardal)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Það verður líf og fjör í Syðra Holti í Svarfaðardal á sunnudaginn, 23. Ágúst en frá kl. 13 til 16 taka ábúendur á móti gestum í tilefni af Beint frá býli deginum sem haldin verður hátíðlegum um land allt. Eitt býli í hverjum landsfjórðungi opnar dyr sínar fyrir gestum og gangandi og kynnir framleiðslu sína.

## [Rúmlega 2500 laxar á land](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23042)

_2026-08-20 · Húnahornið_

Miðfjarðará rauf þúsund laxa múrinn í vikunni og hafa 1.080 laxar veiðst í ánni sem af er sumri. Á sama tíma í fyrra voru 770 laxar komnir á land. Blanda er komin í 415 laxa en í fyrra veiddust aðeins 54 laxar í ánni og munar um minna. Laxá á Ásum er komin í 333 laxa sem er svipuð veiði og á sama tíma í fyrra. Víðidalsá stendur í 291 laxi og Vatnsdalsá í 235 löxum og eru báðar árnar að gera betur…

## [Viltu minni verðbólgu og lægri vexti?](http://www.huni.is/index.php?pid=58&cid=23043)

_2026-08-20 · Húnahornið_

Frá því að fyrstu fjárlög núverandi ríkisstjórnar tóku gildi um síðustu áramót hefur verðbólgan farið vaxandi og stýrivextir hækkað. Fram að því fóru vextir lækkandi á grundvelli fjárlaga síðustu stjórnar. Ríkisstjórnin hefur ítrekað tekið ákvarðanir frá áramótum sem hafa stuðlað að aukinni verðbólgu og hefur sama og ekkert gert til þess að forða því að kjarasamningar verði í uppnámi síðar í…

## [Efla á atvinnutækifæri fyrir fólk á Skagaströnd sem er með skerta starfsgetu](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23041)

_2026-08-20 · Húnahornið_

Sveitarstjórn Skagastrandar ætlar að hefja markvissa vinnu við að fjölga atvinnutækifærum fyrir fólk með skerta starfsgetu í sveitarfélaginu. Málið var lagt fram nýverið í sveitarstjórn af K‑listanum en á sveitarstjórnarfundi í gær var lögð fram breytingartillaga þess efnis að ekki yrði sett fram sérstök tímasett aðgerðaráætlun, heldur yrði unnið áfram með reglulegri endurgjöf. Sú tillaga var…

## [Generate Viral Hot Takes (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/7FX1s1ePjPNN)

_2026-08-20 · **Sponsored**_

Get platform-optimized hot takes and rebuttals to spark debate and engagement

## [Skagaströnd verði heilsueflandi samfélag](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23040)

_2026-08-20 · Húnahornið_

Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að fela sveitarstjóra og varaoddvita að hefja undirbúning og sækja um fyrir hönd sveitarfélagsins þátttöku í verkefninu Heilsueflandi samfélag. Verkefnið er unnið í samstarfi við Embætti landlæknis og hefur víða reynst mikilvægt tæki til að efla lýðheilsu, styrkja forvarnir og samræma starf ólíkra aðila innan samfélagsins. Tillagan kom frá Framsókn og…

## [Fullfermi í fyrsta túr sem skipstjóri](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/fullfermi-i-fyrsta-tur-sem-skipstjori-1)

_2026-08-20 · Vikublaðið_

Togari Samherja, Harðbakur EA 3, landaði í gærkvöld fullfermi sem fer til vinnslu í landvinnslum félagsins á Akureyri og Dalvík. Skipstjóri var Lýður Valgeir Jóhannesson og var þetta hans fyrsta veiðiferð sem skipstjóri. Lýður útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 2010 og hefur flest árin eftir nám starfað hjá Samherja, þar af undanfarin fimm ár sem fyrsti stýrimaður á Harðbak.

## [Hvað þýðir Já fyrir bændur?](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/hvad-thydir-ja-fyrir-baendur)

_2026-08-20 · Vikublaðið_

Í kosningunum 29. ágúst nk. munu landsmenn taka afstöðu til þess hvort hefja skuli aðildarferli að ESB. Eðlilegast væri að meta þá ákvörðun fyrst og fremst út frá þjóðhagslegum þáttum; hvort hag Íslands væri betur borgið innan ESB eða utan þess.

## [Góð aðsókn að framhaldsskólum á Akureyri](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/god-adsokn-ad-framhaldsskolum-a-akureyri)

_2026-08-20 · Vikublaðið_

Aðsókn að framhaldsskólum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri og Verkmenntaskólanum á Akureyri er mjög góð. Nýtt skólaár hófst nú fyrr í vikunni.

## [Tap fyrir toppliðinu](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23039)

_2026-08-19 · Húnahornið_

Kormákur Hvöt náði ekki að sigra topplið Hauka á Blönduósvelli í kvöld en þá var leikið í 2. deild á Íslandsmóti karla í fótbolta. Gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörkin leiksins á 10. mínútu og 18. mínútu en Guzman Díaz Scarone minnkaði muninn fyrir heimamenn á 24. mínútu. Hvorugt liðið náði að skora fleiri mörk og endaði leikurinn því með sigri Hauka 2-1. Þetta var annar tapleikur Kormáks Hvatar í…

## [Ný framtíðarsýn fyrir Hofsbót](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/ny-framtidarsyn-fyrir-hofsbot)

_2026-08-19 · Vikublaðið_

Akureyrarbær hefur kynnt nýja tillögu að breytingu á deiliskipulagi við Hofsbót 1-3. Tillagan er liður í áframhaldandi þróun miðbæjarins og markar mikilvægt skref í þeirri framtíðarsýn að efla mannlíf, þjónustu og aðdráttarafl miðbæjarins. Frá þessu segir á vef Akureyrarbæjar.

## [Festi bætist við hóp öflugra bakhjarla Driftar EA](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/festi-baetist-vid-hop-oflugra-bakhjarla-driftar-ea)

_2026-08-19 · Vikublaðið_

Festi hefur gerst bakhjarl Driftar EA og bæst í hóp öflugra fyrirtækja sem styðja við uppbyggingu nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á Norðurlandi. Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi og Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA, undirrituðu samstarfssamning þess efnis á dögunum.

## [Stökuspjall: Nú ber Mælihnjúk hátt](http://www.huni.is/index.php?pid=58&cid=23037)

_2026-08-18 · Húnahornið_

Góða messu á Mælifelli/ og móttökurnar þökkum vér. Sælugeislum sínum helli / ​sólin yfir staðinn hér. SBE. Stólinn bælir stundargestur / stakk við hæl á svellinu. Engan fælir Ágúst prestur / undan Mælifellinu. RBS. Mælifellskirkja er orðin aldargömul og afmælishátíð í vændum þar og í Árgarði um næstu helgi, þetta frétti ég síðastliðinn sunnudag vestur í Dagverðarnesi v/Hvammsfjörð, en þar var…

## [Handtaka og gæsluvarðhald eftir umferðareftirlit á Norðurlandi vestra](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23036)

_2026-08-18 · Húnahornið_

Við hefðbundið umferðareftirlit síðastliðið fimmtudagskvöld stöðvaði lögreglan á Norðurlandi vestra bifreið á suðurleið vegna gruns um of hraðan akstur en í henni voru þrír erlendir ríkisborgarar. Ökumaður framvísaði ökuskírteini, en ekki var unnt að staðfesta hverjir hinir farþegarnir voru þar sem þeir kváðust ekki vera með skilríki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi…

## [Stebbi JAK með útgáfutónleika á Húsavík og Akureyri](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/enginn-titill-56)

_2026-08-18 · Vikublaðið_

Stebbi JAK gefur nú út sína aðra sólóplötu og blæs til glæsilegra útgáfutónleika í Samkomuhúsinu á Húsavík n.k. fimmtudagskvöld 20. ágúst og á Græna hattinum föstudagskvöldið 21 ágúst. Tónleikarnir hefjast í báðum tilfellum klukkan 21:00.

## [Hire AI-Powered Professionals (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/vURq6kgwYdkC)

_2026-08-18 · **Sponsored**_

Browse public gigs, message candidates, and run video interviews — free to start.

## [Nýr leikskóli tekur til starfa á Akureyri í næstu viku](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/nyr-leikskoli-tekur-til-starfa-a-akureyri-i-naestu-viku)

_2026-08-18 · Vikublaðið_

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri heimsótti í morgun starfsfólk nýja leikskólans Hagasteins við Naustagötu. Þar eru nú allir í óða önn að undirbúa opnun skólans í næstu viku.

## [Eigendur ferðavagna við grunnskóla athugið](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/eigendur-ferdavagna-vid-grunnskola-athugid)

_2026-08-18 · Vikublaðið_

Nú er starf í grunnskólum að hefjast og þeim tilmælum er beint til eigenda ferðavagna að fjarlægja þá af bílastæðum við skólana.

## [Umsóknarfrestur Skúnaskralls framlengdur](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23035)

_2026-08-18 · Húnahornið_

Búið er að framlengja umsóknarfrest vegna Skúnaskralls - barnamenningarhátíðar Norðurlands vestra, en tekið verður við umsóknum til og með 24. ágúst. Eins og vonandi öllum er kunnugt mun barnamenningarhátíðin Skúnaskrall fara fram dagana 21. október til 4. nóvember 2026 undir yfirskriftinni Öll saman. Hátíðin er haldin á vegum SSNV í góðu samstarfi við sveitarfélögin á Norðurlandi vestra og er…

## [Moses Hightower í Krúttinu 23. ágúst](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23034)

_2026-08-17 · Húnahornið_

Í ágúst og september ætlar hljómsveitin Moses Hightower að vera víða við fimmta mann og spila sig í fyrsta sinn hringinn í kringum landið í einni rispu. Það verður allt að frétta; glóðvolg nýútkomin plata í farteskinu og ennþá nýrri lög af annarri í smíðum á prógramminu. Hljómsveiting kemur auðvitað við í Krúttinu á Blönduósi og það verður sunnudaginn 23. ágúst klukkan 16.

## [Sýning Myndlistarfélagsins í Hofi](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/syning-myndlistarfelagsins-i-hofi)

_2026-08-17 · Vikublaðið_

Nú stendur yfir glæsileg sýning í Hofi þar sem sextíu og einn félagi í Myndlistarfélaginu á Akureyri sýnir verk sín. Sýningin gefur innsýn í persónulegan og margslunginn myndheim þar sem tekist er á við flókinn veruleika með fjölbreyttum tjáningarformum myndlistarinnar.

## [Þjóðaratkvæðagreiðsla, laugardaginn 29. ágúst 2026](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/thjodaratkvaedagreidsla-laugardaginn-29-agust-2026)

_2026-08-17 · Vikublaðið_

Kjörstaðir í Akureyrarbæ vegna þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 29. ágúst nk. eru í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hríseyjarskóla og í Félagsheimilinu Múla í Grímsey.

## [Tækifæri til bættra samganga](http://www.huni.is/index.php?pid=58&cid=23032)

_2026-08-16 · Húnahornið_

Nú styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram aðildarviðræður við ESB. Eðlilega eru margir að horfa í lækkun vaxta og verðbólgu í samhengi við aðildarviðræður, enda er það eitt stærsta hagsmunamál íslenskra heimila og fyrirtækja. Þóroddur Bjarnason prófessor skrifaði grein í vikunni þar sem hann greinir áhrif aðildar að ESB á landsbyggðirnar. Það hafa ekki margir verið að koma inn…

