# með (blogs) — RSS Amplifier

Recent posts from the 29 feeds in the RSS Amplifier directory that cover með.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/me%C3%B0/blogs>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/me%C3%B0/blogs.md>

---

## [Hin mörgu andlit Steins Ármanns](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-23-hin-morgu-andlit-steins-armanns-484659/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Steinn Ármann Magnússon lést á föstudag . Leikarinn ruddi sér til rúms á tíunda áratug síðustu aldar. Hann lék í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþáttaraða yfir áratugina og naut mikilla vinsælda á skjánum. Hér rifjum við upp fáein eftirminnileg hlutverk Steins Ármanns sem er að finna í Safni RÚV og víðar. Radíusbróðirinn Steinn Ármann Steinn Ármann vakti fyrst athygli sem helmingur gamantvíeykisins…

## [Vasar eiga sviðsljósið í HAKK Gallery](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-23-vasar-eiga-svidsljosid-i-hakk-gallery-484485/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sýningin Vasar opnaði í HAKK Gallery á Óðinsgötu 1 í vikunni. Sýningin er sú þriðja í röð „sérstakra fyrirmælasýninga gallerísins þar sem hönnuðum, listamönnum og handverksfólki er boðið að takast á við eitt af tímalausum viðfangsefnum formgerðarinnar,“ eins og segir í kynningartexta sýningarinnar. HAKK Gallery var opnað árið 2024 og er rekið af þeim Brynhildi Pálsdóttur vöruhönnuði og Gunnari M…

## [Ný könnun meðal Evrópubúa: 55% segja Evrópusambandið stefna í ranga átt](https://www.nutiminn.is/frettir/ny-konnun-medal-evropubua-55-segja-evropusambandid-stefna-i-ranga-att/)

_2026-08-23 · Brotkast · Nútíminn_

Meirihluti íbúa Evrópusambandsins telur að þróun mála innan sambandsins sé á rangri leið samkvæmt nýjustu Standard Eurobarometer-könnun framkvæmdastjórnar ESB. Alls sögðu 55% aðspurðra að hlutirnir væru almennt að þróast í ranga átt innan Evrópusambandsins, en aðeins 32% töldu þróunina vera í rétta átt. Átta prósent sögðu hvorki né og fimm prósent sögðust ekki vita. Niðurstaðan \[…\] Greinin Ný…

## [Sororicide lagði Tékkland að velli á fyrstu tónleikunum erlendis](https://www.nutiminn.is/forsida/sororicide-lagdi-tekkland-ad-velli-a-fyrstu-tonleikunum-erlendis/)

_2026-08-23 · Frosti · Nútíminn_

Frumherjar íslensks dauðarokks stigu á svið á Back to the Symbolic-hátíðinni á föstudagskvöld – Myndskeið frá tónleikunum sýna sveitina í hörkuformi og áhorfendur taka henni fagnandi. Íslenska dauðarokkssveitin Sororicide braut blað í sögu sinni á föstudagskvöld þegar hún kom fram á tónlistarhátíðinni Back to the Symbolic í Tékklandi. Þetta voru fyrstu tónleikar sveitarinnar utan Íslands \[…\]…

## [Steinn Ármann Magnússon er látinn](https://www.nutiminn.is/featured/steinn-armann-magnusson-er-latinn/)

_2026-08-23 · Frosti · Nútíminn_

Hinn ástsæli leikari, grínisti og Radíusbróðir lést á heimili sínu í Hafnarfirði á föstudag – Steinn setti mark sitt á íslenskt skemmtanalíf og gladdi margar kynslóðir í leikhúsi, sjónvarpi, útvarpi og barnaefni Steinn Ármann Magnússon, leikari, grínisti og dagskrárgerðarmaður, er látinn, 61 árs að aldri. Hann andaðist á heimili sínu í Hafnarfirði föstudaginn 21. ágúst. \[…\] Greinin Steinn Ármann…

## [Í dag: Úrslit í liðakeppni á EM í fimleikum](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-23-i-dag-urslit-i-lidakeppni-a-em-i-fimleikum-484610/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lokadagur Evrópumeistaramótsins í áhaldafimleikum er í dag. Mótið hefur farið fram í Zagreb í Króatíu síðustu daga. Keppni í kvennaflokkum fór fram í síðustu viku en í þessari viku hefur verið keppt í karlaflokkum. Í dag eru úrslit í liðakeppni. Bretar eru ríkjandi Evrópumeistarar. Sviss tók silfur og Ítalir tóku brons. RÚV sýnir beint frá úrslitunum í dag og útsending hefst klukkan 11:25.

## [Faðirvorið endurskrifað í „transmessu“ á Hinsegin dögum: „Gef oss í dag vor hormónaskammt“](https://www.nutiminn.is/forsida/fadirvorid-endurskrifad-i-transmessu-a-hinsegin-dogum-gef-oss-i-dag-vor-hormonaskammt/)

_2026-08-23 · Brotkast · Nútíminn_

Ljósmyndir af sálmaskrá sem sögð er hafa verið dreift á fyrstu opinberu „messu“ Trans kirkjunnar á Hinsegin dögum sýna að Faðir vor var tekið til gagngerrar endurskrifunar. Í stað hinnar hefðbundnu kristnu bænar birtist þar texti undir fyrirsögninni „Móðir vor“, þar sem meðal annars er beðið um „hormónaskammt“ og vísað til „trans teymis“, „glimmers“, „regnbogans“ \[…\] Greinin Faðirvorið…

## [Mikil stemmning á Tónaflóði Rásar 2](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-22-mikil-stemmning-a-tonaflodi-rasar-2-484628/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Reykjavík iðaði af lífi í allan dag á Menningarnótt og fjölbreyttir listviðburðir voru í hverju horni miðborgarinnar. Borgin fagnar 240 ára afmæli sínu í dag. Dagskrá Menningarnætur lauk með stórbrotinni flugeldasýningu klukkan tíu í kvöld. Fjöldi fólks sótti Tónaflóð á Arnarhóli þar sem fram komu JóiPé og Króli og vinir, Árný Margrét, Spacestation, Daði Freyr og Páll Óskar og Benni Hemm Hemm auk…

## [Þrír tapleikir í röð](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23046)

_2026-08-22 · Húnahornið_

Kormákur Hvöt tapaði illa í dag fyrir botnliði 2. deildar KFG en leikurinn fór fram í Miðgarði í Garðabæ. Lokatölur urðu 4-0 fyrir heimamenn og var þetta þriðji tapleikurinn í röð hjá Kormáki Hvöt. Líklega er leikjaálag að taka sinn toll en þetta var þriðji leikurinn á átta dögum. Tapið í dag er það stærsta í sumar hjá liðinu en þrátt fyrir það situr það enn í 6. sæti deildarinnar. Dalvík/Reynir,…

## [Aðeins 98 fengu sænskan ríkisborgararétt eftir að reglurnar voru hertar](https://www.nutiminn.is/forsida/adeins-98-fengu-saenskan-rikisborgararett-eftir-ad-reglurnar-voru-hertar/)

_2026-08-22 · Frosti · Nútíminn_

Veitingum ríkisborgararéttar fækkaði um tæp 94 prósent milli mánaða – Svíar hafa snúið frá áratugalangri frjálslyndri útlendingastefnu eftir vaxandi aðlögunarvanda, útbreidda félagslega einangrun og aukið álag á samfélagið Aðeins 98 einstaklingum var veittur sænskur ríkisborgararéttur í júlí, fyrsta heila mánuðinum eftir að nýjar og mun strangari reglur tóku gildi í Svíþjóð. Til samanburðar fengu…

## [Never miss a game (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/S6uQqu0NvoLo)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Follow any team; get an hour and one-minute web and email reminders.

## [Tvö töp í Portúgal](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-22-tvo-top-i-portugal-484627/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Danielle Rodriguez.RÚV / Mummi Lú Kvennalandsliðið í körfubolta tapaði báðum æfingaleikjum sínum gegn Portúgal. Leikirnir fóru fram ytra á föstudag og sunnudag. Ísland tapaði með þrettán stigum í fyrri leiknum, 66-53 . Portúgal leiddi frá upphafi leiks og náði mest 19 stiga forskoti. Rebekka Rut Steingrímsdóttir var stigahæst með 12 stig. Í dag léku liðin seinni leikinn og vann Portúgal með níu…

## [Margmenni í miðborginni á Menningarnótt](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-22-margmenni-i-midborginni-a-menningarnott-484624/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fjöldinn allur af fólki hefur gert sér ferð í miðborg Reykjavíkur í dag í tilefni Menningarnætur. Þar hefur verið fjölbreytt dagskrá frá því fyrir hádegi, tónleikahald, listasýningar og að sjálfsögðu Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka.

## [Tónaflóð í beinni útsendingu](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-22-tonaflod-i-beinni-utsendingu-484619/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Tónaflóð er einn af hápunktum Menningarnætur í Reykjavík ár hvert. Tónleikarnir eru haldnir á Arnarhóli frá klukkan 19:00 til 22:00 og er búist við fjölda fólks. Fram koma JóiPé og Króli og vinir, Árný Margrét, Spacestation, Daði Freyr og Páll Óskar og Benni Hemm Hemm. Dagskránni lýkur á stórbrotinni flugeldasýningu klukkan 22:00.

## [Morð í Kópavogi](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-22-mord-i-kopavogi-484622/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Maður var drepinn á Kársnesi í Kópavogi. Það gerðist 9. ágúst. 4 menn voru handteknir út af morðinu. Núna eru 3 menn í fangaklefa. Einn maður var látinn laus. Einn maður er í fangaklefa á Íslandi. Einn maður er í fangaklefa á Spáni. Einn maður er í fangaklefa í Póllandi. Maðurinn sem dó var frá öðru landi. Hann var um 50 ára gamall. Maðurinn fannst úti. Hann var mikið slasaður. Maðurinn dó á…

## [Brentford fór illa með Tottenham](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-22-brentford-for-illa-med-tottenham-484621/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Richarlison felur sig í treyjunni er Brentford menn fagna einu af mörkum sínum.IMAGO Brentford vann afar öruggan 3-0 sigur gegn Tottenham í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta. Keane Lewis-Potter kom heimamönnum yfir eftir að Sangare fann hann í miðjum teignum. Markið kom á 12. mínútu og þá var ljóst í hvað stefndi. Vitaly Janelt skoraði annað markið á 33. mínútu eftir að Kinsky í…

## [Strætó á Menningarnótt](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-22-straeto-a-menningarnott-484620/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Það er Menningarnótt í Reykjavík. Margar götur í miðbænum eru lokaðar. Þess vegna keyrir strætó aðrar leiðir í dag. Markús Vilhjálmsson vinnur hjá Strætó. Markús segir að allt hafi gengið vel í dag. Strætó er ekki of fullur. Allir komast með. Menningarnótt endar með flugelda·sýningu. Flugelda·sýningin er klukkan 10 að kvöldi. Eftir sýninguna keyrir strætó fólk heim. Strætó fer frá Sólfarinu á…

## [Slys í Bretlandi](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-22-slys-i-bretlandi-484618/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

7 manns dóu í bílslysi í Bretlandi. Slysið varð í nótt. 2 þeirra sem dóu voru lögreglu·menn. Lögreglu·bíll og annar bíll rákust saman. Lögreglan var að elta hinn bílinn. Lögreglan heldur að hinn bíllinn hafi keyrt á röngum vegarhelmingi. Allt fólkið í bílunum dó. Lauren Somerville er yfirmaður hjá lögreglunni. Lauren sagði: Hugur okkar er hjá fjölskyldum fólksins sem dó. Sérstök nefnd rannsakar…

## [Björguðu manni á Fimmvörðuhálsi](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-22-bjorgudu-manni-a-fimmvorduhalsi-484616/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Maður var á göngu á Fimmvörðuhálsi í gærkvöldi. Maðurinn var með hóp af fólki. Maðurinn veiktist skyndilega. Björgunarsveitir voru kallaðar út. Þær komu víða að af Suðurlandi. Þyrla frá Landhelgis·gæslunni var líka kölluð út. Veðrið var vont á Fimmvörðuhálsi. Það var mikil þoka. Þess vegna sást mjög lítið. Björgunin var þess vegna erfið. Maðurinn var í brattri brekku. Um 60 björgunar·sveitar·menn…

## [Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum Áfram unnið að viðhaldi](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/bruin-yfir-jokulsa-a-fjollum-afram-unnid-ad-vidhaldi)

_2026-08-22 · Vikublaðið_

Viðhaldsvinna á á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði á Hringvegi (1) er hafin að nýju, en hlé var gert á vinnunni vegna veðurfars í júlí síðastliðnum.

## [Hranastaðir í Eyjafjarðarsveit Nýtt varphænuhús að rísa](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/hranastadir-i-eyjafjardarsveit-nytt-varphaenuhus-ad-risa)

_2026-08-22 · Vikublaðið_

Verið er að reisa stálgrindarhús, tæplega 3.500 fermetrar við Hranastaði sem verður undir varphænur.

## [Watch chovy live code (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/7sMEcFyYjhFH)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Join Mosh Coding streams with collaborative screen sharing and remote control, open source.

## [Akureyrarbær samþykkir þátttöku í Kolku](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/akureyrarbaer-samthykkir-thatttoku-i-kolku)

_2026-08-22 · Vikublaðið_

Akureyrarbær hefur samþykkt þátttöku í Kolku, nýju rafrænu og sjálfvirku losunarbókhaldi fyrir sveitarfélög á Norðurlandi eystra.

## [Hyllti fjöldamorðingja á TikTok áður en hann réðst inn í skóla með sveðju](https://www.nutiminn.is/forsida/hyllti-fjoldamordingja-a-tiktok-adur-en-hann-redst-inn-i-skola-med-svedju/)

_2026-08-22 · Brotkast · Nútíminn_

Nýjar upplýsingar um hinn 18 ára gamla mann sem grunaður er um mannskæða sveðjuárás í sænskum framhaldsskóla benda til þess að hann hafi haft mikinn áhuga á fyrri fjöldamorðum og skólárásum og mögulega sótt beina fyrirmynd í alræmda sveðjuárás í Trollhättan árið 2015. 17 ára stúlka lést og þrír drengir særðust þegar maður vopnaður sveðju \[…\] Greinin Hyllti fjöldamorðingja á TikTok áður en hann…

## [Jóhann Berg náði markmiðum sínum í Reykjavíkurmaraþoninu](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-22-johann-berg-nadi-markmidum-sinum-i-reykjavikurmarathoninu-484606/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

„Ég náði mínum markmiðum, að vera undir 2 klukkutímum og gerði það nokkuð vel en það er mjög gaman að taka þátt í þessu. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hleyp hálft maraþon og svona lengi. Þetta er eitthvað nýtt og gríðarlega gaman.“ „Það kemur bara í ljós. Það er alltaf óráðið. Ég var hlaupari í dag og svo sjáum við til hvað ég er á morgun.“ „Stemningin var frábær og það var gríðarlega gaman að…

## [Arnar hughreystir hlaupara: „Hefðu ekki getað verið mikið verri aðstæður“](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-22-arnar-hughreystir-hlaupara-hefdu-ekki-getad-verid-mikid-verri-adstaedur-484602/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Austurríkismaðurinn Michael Bidmon og hin eistneska Marion Tibar unnu Reykjavíkurmaraþon karla og kvenna í dag. Arnar Pétursson og Kristjana Pálsdóttir komu fyrst Íslendinga í mark. Aðstæður voru erfiðar þar sem rigning og rok settu strik í reikninginn varðandi tíma hlaupara. Arnar hughreysti hins vegar öll þau sem hlupu í dag. Maraþonið í ár gilti ekki til Íslandsmeistaratitils eins og oft áður,…

## [Afleitt og andlaust hjá United í fyrsta leik](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-22-afleitt-og-andlaust-hja-united-i-fyrsta-leik-484600/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Hull vann auðveldan 2-0 sigur gegn Manchester United í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta rétt í þessu. Hull eru nýliðar í deildinni í ár og var varnarmúr þeirra afar þéttur, en auk þess ógnuðu heimamenn úr skyndisóknum og föstum leikatriðum. Bæði mörk þeirra komu eftir föst leikatriði í fyrri hálfleik. United ógnaði aldrei marki Hull í leiknum þrátt fyrir ógrynni fyrirgjafa. Semi…

## [Ætla að kenna íslensku úti á velli](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/aetla-ad-kenna-islensku-uti-a-velli)

_2026-08-22 · Vikublaðið_

-Nýtt íslenskunámskeið á Húsavík sem byggir á reynslu erlendra íbúa

## [Malbikað við Hafnarfjall annað kvöld](https://skessuhorn.is/blog/malbikad-vid-hafnarfjall-annad-kvold)

_2026-08-22 · Skessuhorn_

Á morgun, sunnudaginn 23. ágúst, er stefnt á að sinna malbiksviðgerðum á Vesturlandsvegi við Hafnarfjall. Einhverjar tafir geta orðið á umferð á meðan framkvæmdum stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til 07:00 að morgni mánudags. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng…

## [Beint frá býli dagurinn verður á morgun](https://skessuhorn.is/blog/beint-fra-byli-dagurinn-er-a-sunnudaginn-2)

_2026-08-22 · Skessuhorn_

Beint frá býli dagurinn verður haldinn á morgun, sunnudaginn, 23. ágúst, fjórða árið í röð, en viðburðurinn hefur fest sig í sessi sem fjölskylduvæn matarhátíð í íslenskri sveit. Markmiðið er að vekja athygli á hugmyndafræði beint frá býli og smáframleiðslu matvæla, efla tengsl milli framleiðenda og neytenda og hvetja fleiri til að hasla sér völl…

## [Fyrrverandi ráðgjafi Fauci játar samsæri um að fela COVID-gögn fyrir almenningi](https://www.nutiminn.is/forsida/fyrrverandi-radgjafi-fauci-jatar-samsaeri-um-ad-fela-covid-gogn-fra-almenningi/)

_2026-08-22 · Brotkast · Nútíminn_

David Morens, fyrrverandi háttsettur ráðgjafi hjá bandarísku sóttvarnastofnuninni NIAID á meðan Anthony Fauci stýrði henni, hefur játað að hafa tekið þátt í samsæri um að komast hjá upplýsingalögum og halda opinberum gögnum um rannsóknir tengdar COVID-19 frá almenningi. Morens, sem er 78 ára, játaði sök fyrir alríkisdómstól í Maryland á þriðjudag. Hann játaði sig sekan \[…\] Greinin Fyrrverandi…

## [Skipað í nýtt embætti sýslumanns](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23045)

_2026-08-22 · Húnahornið_

Kristín Þórðardóttir hefur verið skipuð í nýtt embætti sýslumanns. Frumvarp dómsmálaráðherra um sameinað embætti sýslumanns var samþykkt á Alþingi í febrúar síðastliðnum. Með lögunum verða núverandi níu sýslumannsembætti sameinuð í eitt embætti sýslumanns frá og með 1. janúar 2027. Þá verður landið eitt umdæmi með starfsstöðvar um land allt. Kristín tók við stöðunni í gær og mun vinna ásamt…

## [Brisk AI News Briefings (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/74C1spsm88vU)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Read AI summaries and listen to audio briefings for top stories.

## [Fyrsta raflínunefndin hefur störf](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23044)

_2026-08-22 · Húnahornið_

Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað fyrstu raflínunefndina á Íslandi þ.e. raflínunefnd um Holtavörðuheiðarlínu 1. Tilgangur hennar að brúa ágreining og tryggja að stórframkvæmdir, sem varða mikilvæga þjóðarhagsmuni geti gengið eftir á málefnalegan og skilvirkan hátt. Formaður nefndarinnar er Gissur Pétursson og er hún skipuð fulltrúum Borgarbyggðar, Húnaþings vestra, Hvalfjarðarsveitar og…

## [Stefanía Rakel á verðlaunamynd Hvalfjarðardaga](https://skessuhorn.is/blog/stefania-rakel-a-verdlaunamynd-hvalfjardardaga)

_2026-08-22 · Skessuhorn_

Úrslit eru ráðin í ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðardaga 2026 en þátttaka var með besta móti. Alls bárust 120 ljósmyndir frá 22 þátttakendum undir þemanu „Hvalfjarðarsveit – Allt milli himins og jarðar.“ Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar valdi tíu myndir úr hópi innsendra verka sem þóttu skara fram úr. Myndirnar voru til sýnis í stjórnsýsluhúsinu á Hvalfjarðardögum og í…

## [Malbikunarframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu](https://skessuhorn.is/blog/malbikunarframkvaemdir-a-hofudborgarsvaedinu)

_2026-08-22 · Skessuhorn_

Sunnudagskvöldið 23. ágúst, kl. 20:00-23:30, verður malbikað í norðurátt frá Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík. Einnig verður malbikað í norðurátt frá Skarhólabraut kl. 21:00-01:30. Þrengt verður í eina akrein framhjá vinnusvæðum. „Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát. Mánudagskvöldið 24. ágúst og fram eftir nóttu, kl. 22:30-07:00, verður malbikað yfir Leirvogsá. Umferðarstýring verður á svæðinu og…

## [„Mér þykir svo vænt um lífið mitt“](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-22-mer-thykir-svo-vaent-um-lifid-mitt-484548/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Leik og söngkonan Elín Hall hefur síðustu ár stormað upp á stjörnuhimininn og ekkert virðist geta stöðvað hana. Steinunn Ása Þorvaldsdóttir ræddi við Elínu í fyrsta þætti Með okkar augum, í nýrri seríu sem hóf göngu sína á miðvikudagskvöld. Mikill heiður að vera fjallkonan Á þjóðhátíðardaginn er þess jafnan beðið með eftirvæntingu að sjá hver er fjallkonan. Í ár varð Elín fyrir valinu og það voru…

## [Í dag: Úrslit á einstökum áhöldum á EM í fimleikum](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-22-i-dag-urslit-a-einstokum-aholdum-a-em-i-fimleikum-484576/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Evrópumeistaramótið í áhaldafimleikum fer fram í Zagreb í Króatíu um þessar mundir. Keppni í kvennaflokkum fór fram í síðustu viku en í þessari viku hefur verið keppt í karlaflokkum. Í dag er komið að úrslitum á einstökum áhöldum, keppt var á gólfi, bogahesti og í hringjum í gær og í dag eru það hin þrjú áhöldin sem eru á dagskrá, svifrá, tvíslá og stökk. Illia Kovtun, frá Úkraínu sem keppir nú…

## [Snærós talaði um lygi &#8211; en sagði ekki alveg rétt frá](https://www.nutiminn.is/forsida/snaeros-taladi-um-lygi-en-sagdi-ekki-alveg-rett-fra/)

_2026-08-22 · Brotkast · Nútíminn_

Framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar sagði 50 milljarða kostnað við ESB-aðild „lygi“, fasteignafélög vera með „mjög fá lán“ og talaði um hundruð milljarða sem mætti losa úr gjaldeyrisforðanum. Nútíminn fór yfir fullyrðingarnar – og opinber gögn segja aðra sögu. Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, setti fram ýmsar afdráttarlausar fullyrðingar um íslenskt efnahagslíf og…

## [Bygging veislusalarins heimiluð áfram tímabundið](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-bygging-veislusalarins-heimilud-afram-timabundid-484581/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna veitti í gær tímabundna heimild til áframhaldandi framkvæmda við gríðarstóran veislusal á lóð Hvíta hússins. Halda má framkvæmdum áfram meðan fjallað verður um málið á lægri dómsstigum. Niðurstaðan er því áfangasigur fyrir Donald Trump forseta eftir að áfrýjunardómstóll úrskurðaði fyrr í mánuðinum að ekki mætti halda framkvæmdum ofanjarðar áfram nema með samþykki…

## [Sannfærandi hjá Arsenal þegar enska úrvalsdeildin fór af stað](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-21-sannfaerandi-hja-arsenal-thegar-enska-urvalsdeildin-for-af-stad-484575/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Nýliðar Coventry voru lítil fyrirstaða fyrir Englandsmeistara Arsenal í fyrsta leik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal vann leikinn 3-0. Kai Havertz opnaði markareikning Arsenal á 15. mínútu og skömmu síðar hafði Bukayo Saka bætt öðru marki við. 2-0 stóð í hálfleik og strax í upphafi seinni hálfleiksins skoraði fyrirliðinn Martin Ødegaard þriðja markið. Það létu Arsenal-menn duga og 3-0…

## [FH tapaði og náði ekki að jafna Blika á toppnum](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-21-fh-tapadi-og-nadi-ekki-ad-jafna-blika-a-toppnum-484574/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þrír leikir voru spilaðir í Bestu deild kvenna í kvöld þegar 17. umferðin kláraðist. Þróttur vann ÍBV 2-1, Valur hafði betur gegn Þór/KA 1-0 og botnlið Víkings vann FH 1-0. FH-ingar eru í harðri toppbaráttu og eftir tap Breiðabliks fyrir Stjörnunni í gær var ljóst að sigur í kvöld myndi koma þeim aftur upp að hlið Blika með jafn mörg stig á toppnum. Það var hins vegar Bergdís Sveinsdóttir sem…

## [Búist við hundrað þúsund gestum á Menningarnótt](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-21-buist-vid-hundrad-thusund-gestum-a-menningarnott-484572/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Reykjavík fyllist lífi á morgun þegar Menningarnótt verður haldin hátíðleg. Búist er við um hundrað þúsund gestum í miðborginni þar sem fjölbreyttir viðburðir verða frá morgni til kvölds. Dagurinn hefst snemma hjá þeim rúmlega 15 þúsund hlaupurum sem taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, sem verður ræst við Háskóla Íslands. Dagskrá Menningarnætur hefst síðan klukkan 12:30 á Klapparstíg. Þar býður…

## [Glódís byrjaði tímabilið með marki í sigri](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-21-glodis-byrjadi-timabilid-med-marki-i-sigri-484573/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Glódís Perla Viggósdóttir hóf fjórða tímabilið sitt sem fyrirliði Bayern München þegar þýska úrvalsdeildin fór af stað í dag. Glódís og stöllur hennar eru ríkjandi meistarar og mættu Union Berlin í fyrsta leik tímabilsins. Bayern var ekki í miklum vandræðum í leiknum og Klara Bühl kom þeim yfir með marki beint úr aukaspyrnu á 26. mínútu og staðan var 1-0 í hálfleik. Markahrókurinn Pernille Harder…

## [Komu til Íslands til að búa í húsbíl næstu fjóra mánuði &#8211; „Verðlagið er algjörlega galið“](https://www.nutiminn.is/forsida/komu-til-islands-til-ad-bua-i-husbil-naestu-fjora-manudi-verdlagid-er-algjorlega-galid/)

_2026-08-21 · Jón Einarsson Þormar Pálsson · Nútíminn_

Ítalska parið á bak við YouTube „ferða“rásina STEPSOVER er komið til Íslands þar sem það hyggst verja næstu fjórum mánuðum í húsbílnum sínum og ferðast um landið. Rásin er með um 367 þúsund áskrifendur og fyrstu tvö myndböndin frá Íslandsferðinni hafa þegar fengið tugþúsundir áhorfa. Parið kom með Norrænu til Seyðisfjarðar og í fyrsta myndbandinu \[…\] Greinin Komu til Íslands til að búa í húsbíl…

## [Mætið tímanlega til að sjá leynigestina](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-21-maetid-timanlega-til-ad-sja-leynigestina-484560/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Félagarnir Jói Pé og Króli eru á meðal þeirra sem stíga á stokk á Tónaflóði Rásar 2 annað kvöld. Leikar hefjast stundvíslega klukkan 19:00 og eru þeir fyrstir á svið. En þeir verða ekki einir, með þeim fylgir stór hópur leynigesta sem þeir lofa að séu á meðal þeirra fremstu á sviði tónlistarfólks og skemmtikrafta. Jói Pé kíkti í Poppland til Margrétar Erlu Maack og sagði frá. „Við verðum með sama…

## [Kjörstaðir við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB](https://www.skagafjordur.is/is/frettir/thjodaratkvaedagreidsla-um-adildarvidraedur-vid-esb)

_2026-08-21 · Skagafjörður_

Við þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer laugardaginn 29. ágúst n.k. er skipan í kjördeildir sem hér segir: Kjördeild í Bóknámshúsi FNV: þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs-, Rípur- og Skefilsstaðahreppa – kjörfundur hefst kl. 09:00 Kjördeild í Grunnskólanum austan Vatna: þar kjósa íbúar fyrrum Hofs-, Fljóta-, Hóla- og...

## [Hér eru sko engin leiðindi!](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-21-her-eru-sko-engin-leidindi-484434/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Arnar Eggert Thoroddssen skrifar: Það er gott að fá Bogomil Font aftur að hljóðnemanum, þennan óstýriláta skálk sem fæddist í Zagreb í gömlu Júgóslavíu við endaðan níunda áratug síðustu aldar. Vinur Bogomils, Sigtryggur Baldursson, nefndi reyndar Ljubljana í samtali við gagnrýnanda á dögunum og víst að öllu, að minnsta kosti flestu, sem heyra má upp á Bogomil ætti að taka með örlítilli klípu af…

## [Ný verslun Parka opnuð á Akureyri](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/ny-verslun-parka-opnud-a-akureyri)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Parki Interiors opnaði í dag nýja afar rúmgóða og glæsilega verslun við Sjafnargötu 1b á Akureyri. Parki er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Íslandi og hefur á undanförnum árum byggt upp öflugt vöruúrval og sérþekkingu á sviði innréttinga og hönnunar.

## [Segir íslenska vinnumarkaðsmódelið það besta í Evrópu &#8211; Vill ekki færa valdið lengra frá fólkinu](https://www.nutiminn.is/forsida/segir-islenska-vinnumarkadsmodelid-thad-besta-i-evropu-vill-ekki-faera-valdid-lengra-fra-folkinu/)

_2026-08-21 · Jón Einarsson Þormar Pálsson · Nútíminn_

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, ætlar að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst og segir íslenskt sjálfstæði, réttindi verkafólks og yfirráð yfir auðlindum landsins órjúfanlega tengd. Þetta kom fram í erindi sem hún flutti á fundi Áfram Ísland í Hofi á Akureyri í gær og birti í heild sinni á Facebook. Sólveig Anna fór í \[…\] Greinin Segir íslenska vinnumarkaðsmódelið það besta í…

## [Alcaraz loksins aftur með en óvissa með Sinner](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-21-alcaraz-loksins-aftur-med-en-ovissa-med-sinner-484543/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Opna bandaríska meistaramótið í tennis, það síðasta á árinu af risamótunum fjórum, hefst 30. ágúst og nú hefur ríkjandi meistarinn Carlos Alcaraz tilkynnt að hann verði með. Það telst til tíðinda þar sem Alcaraz hefur ekki spilað síðan á Opna Barcelona-mótinu í apríl en hann hefur verið að glíma við meiðsli í úlnlið. Hann missti því af Opna franska mótinu í sumar sem og Wimbledon en hann vann Opna…

## [Þekktur bikblæðingakafli malbikaður](https://vegagerdin.is/vegagerdin/starfsemi/frettir/thekktur-bikblaedingakafli-malbikadur)

_2026-08-21 · Vegagerðin.is_

Hringvegur (1) við veitingastaðinn Baulu í Borgarfirði verður malbikaður í næstu viku. Um er að ræða 1,6 kílómetra langan kafla sem nær frá Gljúfurárbrú og um 1 km fram yfir gatnamót Borgarfjarðarbrautar (50) í norður.

## [Vegleg bókagjöf til minningar um Ásgeir H Ingólfsson](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/vegleg-bokagjof-til-minningar-um-asgeir-h-ingolfsson)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Leikskólanum Lundarseli-Pálmholti hefur borist einstaklega vegleg bókagjöf frá Hrefnu Hjálmarsdóttur leikskólakennara til minningar um son hennar Ásgeir H Ingólfsson.

