# hefur (news sources) — RSS Amplifier

Recent posts from the 9 feeds in the RSS Amplifier directory that cover hefur.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/hefur/news>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/hefur/news.md>

---

## [Segir sýslumann hafa kyrrsett Bandero í kyrrþey](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-segir-syslumann-hafa-kyrrsett-bandero-i-kyrrthey-484617/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögfræðingur félagsins sem á skipið Bandero segir óeðlilegt að kyrrsetningarkrafa Hvals hf. á skipinu hafi náð fram að ganga. Hann á von á að beiðni um endurupptöku á kyrrsetningunni verði tekin til afgreiðslu sem fyrst. Íslensk yfirvöld tóku yfir stjórn skipsins í júlí eftir að áhöfn Bandero sigldi án heimildar inn fyrir tólf mílna lögsögu landsins og ógnaði öryggi skipverja hvalveiðiskipsins…

## [Strætó keyrir frá Sæbraut í öll hverfi borgarinnar eftir flugeldasýninguna](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-straeto-keyrir-fra-saebraut-i-oll-hverfi-borgarinnar-eftir-flugeldasyninguna-484614/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Miðborg Reykjavíkur er lokuð fyrir umferð í dag vegna Menningarnætur. Ferðir Strætó hafa gengið vel það sem af er degi. Vegna götulokana þurfa vagnar að aka hjáleiðir og nú er endastöð flestra strætóleiða í Skúlagötu, fram á kvöld. Markús Vilhjálmsson, hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, segir nýtingu á vögnum hafa verið góða í dag. „Við höfum lítið verið að lenda í því að vagnar hafa…

## [Smitten íhugar að taka upp rafræna auðkenningu notenda](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-smitten-ihugar-ad-taka-upp-rafraena-audkenningu-notenda-484604/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri stefnumótaforritsins Smitten, segir í skoðun að taka upp rafræna auðkenningu hér á landi, líkt og er í Svíþjóð. Sænskir notendur forritsins þurfa að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum til þess að geta stofnað síðu á forritinu. Davíð segir það hvimleitt, en þó ekki vaxandi, vandamál að fólk noti gervigreind til þess að villa á sér heimildir á…

## [Manndráp á Kársnesi talið tengjast skipulagðri glæpastarfsemi](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-manndrap-a-karsnesi-talid-tengjast-skipulagdri-glaepastarfsemi-484611/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Tveir menn höfðu setið í gæsluvarðhaldi hér á landi í tengslum við manndráp á Kársnesi í Kópavogi í tæpar tvær vikur en öðrum þeirra var sleppt í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Sá er erlendur ríkisborgari en gæsluvarðhald yfir hinum manninum, sem er íslenskur, er í gildi fram á mánudag. Ekki liggur fyrir hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir honum. Tveir til viðbótar…

## [Hvetur gesti Tónaflóðs til að klæða sig eftir veðri](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-hvetur-gesti-tonaflods-til-ad-klaeda-sig-eftir-vedri-484613/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Menningarnótt er í dag. Einn af hápunktum dagskrárinnar eru tónleikarnir Tónaflóð Rásar tvö, sem hefjast á Arnarhóli klukkan 19:00. Tónleikarnir eru í beinni útsendingu bæði í sjónvarpi og á Rás 2. Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru Jói P. og Króli, Árný Margrét, Daði Freyr, Benni Hemm Hemm og Páll Óskar. Siggi Gunnars á DJ-græjunum Arnarhóll breytist því í stærsta dansgólf landsins áður…

## [Betur fór en á horfðist þegar jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-betur-for-en-a-horfdist-thegar-jeppa-var-ekid-framan-a-voruflutningabil-484612/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl á Vesturlandi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að báðir bílar höfnuðu utan vegar og flutningabíllinn á hliðinni. Áreksturinn varð á Vestfjarðarvegi við Grafarland í Dölunum. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, segir annan ökumanninn hafa verið fluttan af vettvangi með sjúkrabíl. Hann hafi þó aðeins verið með minni háttar áverka.…

## [Óska eftir því að skila lóðum í Vatnsendahverfi](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/08/22/oska_eftir_thvi_ad_skila_lodum_i_vatnsendahverfi/)

_2026-08-22 · mbl.is - Forsíðufréttir_

Verktakafyrirtækið Fagmót hefur tvívegis í sumar gert athugasemdir við afgreiðslu Kópavogsbæjar vegna lóða í Vatnsendahvarfi.

## [Skildi 7 ára son sinn eftir einan á Fuji-fjalli](https://www.mbl.is/frettir/erlent/2026/08/22/skildi_7_ara_son_sinn_eftir_einan_a_fuji_fjalli/)

_2026-08-22 · mbl.is - Forsíðufréttir_

Faðir sem skildi sjö ára son sinn eftir einan í nokkrar klukkustundir á Fuji-fjalli í Japan var ávítaður af lögreglu.

## [Eltihrellar nota millifærslur til að áreita fólk](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-eltihrellar-nota-millifaerslur-til-ad-areita-folk-484609/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Indó sparisjóði hafa borist ábendingar um að eltihrellar misnoti millifærslur til að áreita fólk með því að millifæra óverulegar fjárhæðir á bankareikninga þess og hafa jafnvel skilaboð með sem skýringu. Viðskiptavinir bankans geta nú lokað á að sjá skýringar frá tilteknum aðilum vegna þessa. „Því miður höfum við orðið vör við að viðskiptavinir okkar hafa haft samband og látið okkur vita af því að…

## [Fluttur með sjúkraþyrlu úr brúðkaupsmyndatöku](https://www.mbl.is/frettir/erlent/2026/08/22/fluttur_med_sjukrathyrlu_ur_brudkaupsmyndatoku/)

_2026-08-22 · mbl.is - Forsíðufréttir_

Að minnsta kosti sjö brúðkaupsgestir slösuðust, og sá áttundi svo alvarlega að flytja þurfti hann með þyrlu á Ullevål-sjúkrahúsið í Ósló, þegar hlöðubrú gaf sig nú síðdegis undan 20 manns sem stilltu sér upp fyrir myndatöku í brúðkaupi í Gruetunet í Grue í Noregi.

## [Sync Bookmarks Everywhere (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/CIzBsfBMw92l)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Two-way sync keeps folders and toolbar intact across Chrome, Firefox, and Safari.

## [Skagafjörður skuldbatt sig til hundruð milljóna framkvæmda](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/08/22/skagafjordur_skuldbatt_sig_til_hundrud_milljona_fra/)

_2026-08-22 · mbl.is - Forsíðufréttir_

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur skuldbundið sig til 376 milljóna króna fráveituframkvæmda á Hólum í Hjaltadal samkvæmt nýlegu samkomulagi við íslenska ríkið.

## [Tíu milljarðar út og einn til baka](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/08/22/tiu_milljardar_ut_og_einn_til_baka/)

_2026-08-22 · mbl.is - Forsíðufréttir_

Ísland myndi greiða ríflega tíu milljarða króna á ári í uppbyggingu innviða í öðrum ríkjum Evrópusambandsins en fá innan við einn milljarð til baka til innviðauppbyggingar hér á landi, yrði Ísland aðili að sambandinu.

## [Giftust klukkan 13 en hættu saman klukkan 20](https://www.dv.is/fokus/2026/08/18/giftust-klukkan-1300-en-haettu-saman-klukkan-2000)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Sum hjónabönd lifa lengur en önnur. Dæmi eru um að hjónabönd lifi ekki nema nokkra klukkutíma eins og nýlegt dæmi frá Bretlandi sýnir.Breska blaðið The Mirror greinir frá þessu.

## [Mun mæta tollum Bandaríkjanna „dollara fyrir dollara“](https://www.mbl.is/frettir/erlent/2026/08/22/mun_maeta_tollum_bandarikjanna_dollara_fyrir_dollar/)

_2026-08-22 · mbl.is - Forsíðufréttir_

Bandaríkjunum og Kanada tókst ekki að ná samkomulagi til að koma í veg fyrir nýja tolla sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði áformað eftir margra daga samningaviðræður.

## [Paul Watson krefst endurupptöku á kyrrsetningu Bandero](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-paul-watson-krefst-endurupptoku-a-kyrrsetningu-bandero-484607/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Paul Watson krefst endurupptöku vegna kyrrsetningar á skipinu Bandero af hálfu Hvals hf. og að hún verði felld niður. Hann telur augljóst að lögum um kyrrsetningu hafi ekki verið fylgt, að því er fram kemur í endurupptökubeiðni. Bandero er skip Paul Watson samtakanna, sem Watson stofnaði. Hann stofnaði einnig félagið Atlantic Marine Industries LLC. Samtökin sigldu til Íslands í þeim tilgangi að…

## [Bökkuðu bíl á rúðu og rændu lyfjum](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/08/22/bokkudu_bil_a_rudu_og_raendu_lyfjum/)

_2026-08-22 · mbl.is - Forsíðufréttir_

Þjófar bökkuðu bíl á rúðu í Efstaleitisapóteki í nótt og stálu lyfjum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að því að ná í skottið á þjófunum.

## [Ótrúleg kenning breiðist út á Internetinu – Gerist þetta á hrekkjavökunni?](https://www.dv.is/pressan/2026/08/19/otruleg-kenning-breidist-ut-a-internetinu-gerist-thetta-a-hrekkjavokunni)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Hinar umdeildu og hötuðu Flock-myndavélar þurfa kannski aukna vernd í október þegar hrekkjavakan brestur á.Ástæðan er að nú er mikil hreyfing á samfélagsmiðlum þar sem fólk er hvatt til að nota hrekkjavökuna til að gera „Bandaríkin Flocklaus“. Dexerto skýrir frá þessu.

## [Stefán Teitur með tvennu í þægi­legum bikarsigri](https://www.visir.is/g/20262924666d/stefan-teitur-med-tvennu-i-thaegilegum-bikarsigri)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Stefán Teitur Þórðarson skoraði tvö mörk fyrir Hannover 96 í þægilegum 1-9 sigri gegn SV Hemelingen í fyrstu umferð þýska bikarsins.

## [Össur um falsfrétt Morgunblaðsins – „Síðustu tætlurnar af trúverðugleika blaðsins hafa gufað upp einsog héla fyrir sólu“](https://www.dv.is/frettir/2026/08/22/ossur-um-falsfrett-morgunbladsins-sidustu-taetlurnar-af-truverdugleika-bladsins)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Össur Skarphéðinssson, fyrrverandi ráðherra, er ómyrkur í máli í ljósi yfirlýsingar þriggja lagaprófessora um ranga frétt á forsíðu Morgunblaðsins. Prófessorarnir bentu á að fréttin væri ósönn.

## [Norris náði ráspólnum aftur](https://www.visir.is/g/20262924661d/norris-nadi-raspolnum-aftur)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Ríkjandi meistarinn Lando Norris hjá McLaren er ekki tilbúinn að játa sig sigraðan í baráttunni um heimsmeistaratitilinn og tryggði sér fremstu stöðu í Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í Hollandi á morgun.

## [Non-custodial Crypto Payments & Escrow (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/MXduQtiUrVLK)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Accept multi-chain crypto with trustless escrow, instant confirmations, and no KYC

## [Segir aug­ljóst að lögum hafi ekki verið fram­fylgt við kyrrsetninguna](https://www.visir.is/g/20262924637d/segir-augljost-ad-logum-hafi-ekki-verid-framfylgt-vid-kyrrsetninguna)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Paul Watson krefst endurupptöku á beiðni Hvals hf. um kyrrsetningu skipsins Banderos á grundvelli laga um kyrrsetningu en augljóst sé að þeim hafi ekki verið framfylgt. Félagið sem á Bandero hafi ekki verið gert vart við kyrrsetningarbeiðni Hvals hf. og því ekki gefist tækifæri til mótmæla kröfu Hvals áður en kyrrsetningu lauk.

## [Jóhann Berg náði markmiðum sínum í Reykjavíkurmaraþoninu](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-22-johann-berg-nadi-markmidum-sinum-i-reykjavikurmarathoninu-484606/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

„Ég náði mínum markmiðum, að vera undir 2 klukkutímum og gerði það nokkuð vel en það er mjög gaman að taka þátt í þessu. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hleyp hálft maraþon og svona lengi. Þetta er eitthvað nýtt og gríðarlega gaman.“ „Það kemur bara í ljós. Það er alltaf óráðið. Ég var hlaupari í dag og svo sjáum við til hvað ég er á morgun.“ „Stemningin var frábær og það var gríðarlega gaman að…

## [Skrifar undir allt að átta ára samning](https://www.dv.is/433/2026/08/21/skrifar-undir-allt-ad-atta-ara-samning)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Joao Pedro er við það að skrifa undir nýjan og betri samning við Chelsea eftir frábært fyrsta tímabil á Stamford Bridge.Brasilíski framherjinn gekk til liðs við Chelsea frá Brighton síðasta sumar fyrir 55 milljónir punda og hefur heldur betur staðið undir væntingum og raðað inn mörkum.

## [Myndir: Blautt, kalt en gott Reykjavíkurmaraþon](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/08/22/myndir_blautt_kalt_en_gott_reykjavikurmarathon/)

_2026-08-22 · mbl.is - Forsíðufréttir_

Reykjavíkurmaraþonið fór fram með pompi og prakt í dag þrátt fyrir blautt og kalt veðurfar.

## [Tveir lögreglumenn meðal látinna eftir árekstur í Bretlandi](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-tveir-logreglumenn-medal-latinna-eftir-arekstur-i-bretlandi-484605/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sjö létu lífið í hörðum árekstri á hraðbraut nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt. Tveir lögreglumenn eru meðal látinna. Áreksturinn varð þegar lögreglubíll var að eltast við fólksbíl sem grunur leikur á að hafi ekið á öfugum vegarhelmingi. Fjórtán sjúkrabílar voru sendir á vettvang og hraðbrautinni var lokað. Allir farþegar beggja bíla voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Samfélagið í áfalli…

## [Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni](https://www.visir.is/g/20262924652d/diana-vard-meistari-meistaranna-eftir-vitakeppni)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe er meistari meistaranna í þýska handboltanum. 22-22 jafntefli varð niðurstaða meistaraleiksins en 26-24 sigur vannst eftir vítakeppni gegn Borussia Dortmund.

## [Annar þrefalt fleiri viðskiptavinum](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/08/22/annar_threfalt_fleiri_vidskiptavinum/)

_2026-08-22 · mbl.is - Forsíðufréttir_

Ný og glæsileg endurvinnslustöð Sorpu við Lambhagaveg verður tekin í notkun um næstu mánaðamót. Óhætt er að segja að aðkoman og umgjörðin muni gera þá hversdagslegu athöfn að henda rusli ólíkt ánægjulegri en verið hefur.

## [Sigurvegarar Reykjavíkurmaraþonsins](https://www.mbl.is/sport/frettir/2026/08/22/sigurvegarar_reykjavikurmarathonsins/)

_2026-08-22 · mbl.is - Forsíðufréttir_

Austurríkismaðurinn Michael Bidmon og hin eistneska Marion Tibar unnu Reykjavíkurmaraþon karla og kvenna í dag.

## [Brotist inn í apótek og lyfjum stolið](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-brotist-inn-i-apotek-og-lyfjum-stolid-484601/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Brotist var inn í Efstaleitisapótek í Reykjavík í nótt og lyfjum stolið. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu safnar upplýsingum til að komast að því hver var að verki, meðal annars upptökum úr öryggismyndavélum í nágrenninu. „Það var farið inn í nótt og einhverjum lyfjum stolið,“ segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Málið sé í rannsókn. Þetta er…

## [Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjár­magnar](https://www.visir.is/g/20262924648d/infantino-bedinn-um-ad-maeta-ekki-a-barnamot-sem-fifa-fjarmagnar)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Gianni Infantino, umdeildur forseti FIFA, var beðinn um að mæta ekki á fótboltamót ungmenna sem fer fram í Lýðveldi Dóminíkana um helgina. Óttast var að viðvera hans myndi draga neikvæða athygli að mótinu.

## [One platform, from silicon to agent (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/hizJO3nBtPxa)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Serverless inference plus Inference Router to optimize cost and latency at scale.

## [Segja tvo spádóma Baba Vanga fyrir 2026 hafa ræst](https://www.dv.is/pressan/2026/08/18/segja-tvo-spadoma-baba-vanga-fyrir-2026-hafa-raest)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Hin goðsagnakennda blinda búlgarska spákona Baba Vanga er að sögn sögð hafa spáð fyrir um hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 2001, andlát Díönu prinsessu og heimsfaraldur kórónuveirunnar, svo fátt eitt sé nefnt.

## [Pútín herðir tökin og gamlir vinir falla í ónáð – „Einu skrefi nær Norður-Kóreu“](https://www.dv.is/pressan/2026/08/18/putin-herdir-tokin-og-gamlir-vinir-falla-i-onad-einu-skrefi-naer-nordur-koreu)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Handtökur og húsrannsóknir hjá fólki í toppstöðum í rússneska viðskiptalífinu það sem af er ári hafa vakið mikla athygli.

## [„Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“](https://www.visir.is/g/20262924643d/-their-litu-ut-fyrir-ad-vera-ekki-i-formi-)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Alan Shearer segir lið Manchester United hafa litið út fyrir að vera ekki í leikformi í 2-0 tapi gegn Hull City í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

## [Björgunarsveitir komu göngumanni til bjargar á Fimmvörðuhálsi í gærkvöldi](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-bjorgunarsveitir-komu-gongumanni-til-bjargar-a-fimmvorduhalsi-i-gaerkvoldi-484603/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Björgunarsveitir víða af Suðurlandi, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, voru kallaðar út á hæsta forgangi vegna skyndilegra veikinda göngumanns á Fimmvörðuhálsi í gærkvöld. Þoka og lítið skyggni gerðu aðgerðir erfiðar en nota þurfti línur til að flytja manninn niður bratta brekku og í bíl björgunarsveitar. Um 60 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðinni sem lauk um klukkan tíu í gærkvöld. Staddur…

## [Jón Pétur: „Ef við töpum tungunni þá hættum við að vera þjóð“](https://utvarpsaga.is/jon-petur-ef-vid-topum-tungunni-tha-haettum-vid-ad-vera-thjod/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Pétur Zimsen, þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóra í síðdegisútvarpinu um mikilvægi íslenskunnar fyrir menningu og þjóðarvitund. Jón Pétur sagði sameiginlegt tungumál, menningu og reynslu vera meðal þess sem skapaði þjóðina og varaði við því að ef Íslendingar töpuðu tungunni væri hætta á að þeir hættu að vera þjóð. Skólarnir gegndu \[…\]

## [Segja Morgun­blaðið leggja þeim orð í munn](https://www.visir.is/g/20262924624d/segja-morgunbladid-leggja-theim-ord-i-munn)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Þrír prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík segja frétt Morgunblaðsins um að þeir telji engar undanþágur í boði við aðild vera ranga. Einn prófessoranna segir blaðið leggja sér orð í munn.

## [Björguðu veikum göngumanni í kíló­metrahæð á Fimm­vörðu­hálsi](https://www.visir.is/g/20262924632d/bjorgudu-veikum-gongumanni-i-kilometrahaed-a-fimmvorduhalsi)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Björgunarsveitir björguðu í gær veikum einstaklingi sem hafði verið í ferð með gönguhópi á leið yfir Fimmvörðuháls. Aðstæður voru erfiðar, í mikilli þoku, í brattri brekku, í ríflega kílómetershæð.

## [Heildar­kostnaður aðildar­við­ræðna gæti sam­svarað 300–700 kr. á mann á mánuði](https://www.visir.is/g/20262924627d/heildarkostnadur-adildarvidraedna-gaeti-samsvarad-300-700-kr.-a-mann-a-manudi)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Nokkuð hefur verið rætt um kostnað vegna mögulegra aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Markmið þessarar greinar er ekki að færa rök með eða á móti aðild, heldur að setja kostnaðinn við að fara í aðildarviðræður við ESB í samhengi við þann fjölda landsmanna sem kostnaðurinn dreifist á.

## [Maður féll útbyrðis og drukknaði á heimleið frá Íslandi – „Svo dapurlegur endir á því sem hefur verið frábær skemmtiferð“](https://www.dv.is/frettir/2026/08/22/madur-fell-utbyrdis-og-drukknadi-a-heimleid-fra-islandi-svo-dapurlegur-endir-a)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Lögreglan í Skotlandi hefur staðfest að lík sem fannst við austurströnd landsins sé af manni sem féll útbyrðis af skemmtiferðaskipi. Skipið hafði verið við Íslandsstrendur að fylgjast með sólmyrkvanum þann 12. ágúst.Breska blaðið The Sun greinir frá þessu.

## [Sigmundur Ernir skrifar: 29. ágúst er stærsti vaxtaákvörðunardagur Íslendinga](https://www.dv.is/eyjan/2026/08/21/sigmundur-ernir-skrifar-29-agust-er-staersti-vaxtaakvordunardagur-islendinga)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Mynd

## [Meistaradeildarfótbolti á Stamford Bridge eftir allt saman](https://www.dv.is/433/2026/08/21/meistaradeildarfotbolti-a-stamford-bridge-eftir-allt-saman)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Meistaradeildarfótbolti verður spilaður á Stamford Bridge í vetur þrátt fyrir að Chelsea hafi ekki tryggt sér sæti í keppninni. Úkraínska stórliðið Shakhtar Donetsk hefur nefnilega samið við Chelsea um að leika heimaleiki sína í Meistaradeild Evrópu á Stamford Bridge.

## [Lagaprófessorar segja Morgunblaðið ljúga í frétt um álitsgerð þeirra – „Þessi frétt er ósönn“](https://www.dv.is/frettir/2026/08/22/lagaprofessorar-segja-morgunbladid-ljuga-i-frett-um-alitsgerd-theirra-thessi)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Þrír lagaprófessorar við Háskólann í Reykjavík segja Morgunblaðið segja ósatt í frétt þar sem vitnað er í þá. Í fréttinni var því haldið fram að engar undanþágur væru í boði fyrir Ísland við aðild að Evrópusambandinu.

## [Stöðug­leiki í vaxtaþróun langra ríkis­bréfa merki um „seiglu“ ís­lenska markaðarins](https://www.visir.is/g/20262924620d/stodugleiki-i-vaxtathroun-langra-rikisbrefa-merki-um-seiglu-islenska-markadarins)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Á meðan ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa hefur rokið upp beggja vegna Atlantshafsins að undanförnu hafa langtímavextir hér á landi haldist tiltölulega stöðugir þrátt fyrir mikla endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Seðlabankastjóri segir þróunina benda til góðs innra jafnvægis, en hækkun langra vaxta erlendis geti endurspeglað efasemdir um bæði peningastefnu og sjálfbærni ríkisfjármála hjá…

## [Erfingjar og erfðar­mál](https://www.visir.is/g/20262924616d/erfingjar-og-erfdarmal)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Gamall maður, hann Doddi frændi selur íbúðina sína árið 2022, þá 86 ára því hann er á leið á elliheimili. Frændi hans hann Robbi hjálpar honum með söluna og kaupandinn er Jáni athafnamaður, sem kaupir íbúðina á 5 milljónir þegar markaðsverð er um 20-25 milljónir.

## [Fundu leynilegt vopnabúr úti í þýskum skógi](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-fundu-leynilegt-vopnabur-uti-i-thyskum-skogi-484531/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þýskir leyniþjónustumenn fundu vopnabúr í skógi á mörkum Berlínar og Brandenborgar fyrir nærri ári en héldu því leyndu, gerðu vopnin óvirk og komu fyrir staðsetningarbúnaði til að rekja hvert þau bærust. Vopnin voru flest skotvopn. Svæðið var vaktað í von að unnt yrði að bera kennsl á þá sem kæmu að sækja vopnin. Enginn virðist hafa gert það og telja rannsakendur líklegt að þeir sem stóðu að baki…

## [Fjórtán leitað eftir að bátur sökk undan strönd Túnis](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-fjortan-leitad-eftir-ad-batur-sokk-undan-strond-tunis-484596/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Viðbragðsaðilar í Túnis leita fjórtán manna sem voru um borð í bát sem sökk undan ströndum landsins. Samkvæmt yfirvöldum í Túnis var báturinn á leið til Ítalíu með fimmtán manns um borð. Einum hefði verið bjargað úr sjónum. Erlendir miðlar hafa greint frá að minnsta kosti fjórum dauðsföllum en yfirvöld hafa ekki staðfest það. Fjöldi manna leggur í ferðalag yfir Miðjarðarhafið á ári hverju til að…

## [Varnarsamningurinn við Bandaríkin ásamt NATO aðild er skásti kosturinn fyrir Ísland](https://utvarpsaga.is/varnarsamningurinn-vid-bandarikin-asamt-nato-adild-er-skasti-kosturinn-fyrir-island/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri í Síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu um stöðu Íslands í varnar- og öryggismálum. Hilmar sagði legu Íslands á Norður-Atlantshafi gera það að verkum að þjóðaröryggishagsmunir Íslands og Bandaríkjanna færu saman. Hann taldi núverandi fyrirkomulag með NATO-aðild og tvíhliða varnarsamningi við Bandaríkin skásta kostinn…

## [Brottvísun á ekki að stytta refsingu fyrir alvarlega glæpi](https://utvarpsaga.is/brottvisun-a-ekki-ad-stytta-refsingu-fyrir-alvarlega-glaepi/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, í síðdegisútvarpinu um afplánun erlendra ríkisborgara og brottvísun þeirra úr landi. Guðrún sagði óeðlilegt að einstaklingur, sem dæmdur hefði verið fyrir alvarlegan glæp, gæti afplánað aðeins hluta dómsins áður en honum væri vísað úr landi. Hún taldi að eðli brotsins yrði að hafa…

## [Fjórtán sjúkrabílar á vettvang banaslyss á breskri hraðbraut](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-fjortan-sjukrabilar-a-vettvang-banaslyss-a-breskri-hradbraut-484591/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögreglubíll og tveir fólksbílar lentu í hörðum árekstri nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt. Breska lögreglan segir marga látna og að unnið sé að því að bera kennsl á fórnarlömbin. Fjórtán sjúkrabílar voru sendir á vettvang. Viðbragðsaðilar eru enn að störfum og hraðbrautin er lokuð. Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins kemur fram að rannsókn slyssins beinist meðal annars að því að…

## [Hvað er verið að gera á bak við ESB tjöldin](https://utvarpsaga.is/hvad-er-verid-ad-gera-a-bak-vid-esb-tjoldin/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Undirbúningur er þegar hafinn innan Evrópusambandsins vegna mögulegrar endurupptöku aðildarviðræðna við Ísland verði niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst sú að halda eigi viðræðunum áfram. Ráð Evrópusambandsins hefur formlega lýst sig reiðubúið til að hefja ferlið á ný. Jafnframt liggur fyrir hvernig búast má við að farið verði yfir þá 11 samningskafla sem var lokað til bráðabirgða \[…\]

