# hefst (news sources) — RSS Amplifier

Recent posts from the 1 feeds in the RSS Amplifier directory that cover hefst.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/hefst/news>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/hefst/news.md>

---

## [Hilmir byrjaði Barcelona með sigri!](https://skak.is/2026/08/22/hilmir-byrjadi-barcelona-med-sigri/)

_2026-08-22 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Íslandsmeistarinn í skák, alþjóðlegi meistarinn, Hilmir Freyr Heimisson (2338) hóf í gær þátttöku á alþjóðlegu móti í Barselóna á Spáni. Alls taka 359 skákmenn þátt frá 50 löndum og þar af 16 stórmeistarar. Hilmir er nr. 55 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 21.-30. ágúst. Tefldar eru 10 umferðir á jafnmörgum dögum. Gamli skólinn. Heimasíða \[…\]

## [Guðrún Fanney byrjaði með sterku jafntefli í Maia í Portúgal](https://skak.is/2026/08/22/gudrun-fanney-byrjadi-med-sterku-jafntefli-i-maia-i-portugal/)

_2026-08-22 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

WFM Guðrún Fanney Briem (1816) hóf í gær þátttöku á alþjóðlegu móti í Maia í Portúgal. Hún tekur þar þátt í efsta flokki. Í fyrstu umferð sem fram fór í gær gerði hún jafntefli við franska skákkonu sem er mun stigahærri en Guðrún. Alls taka 139 skákmenn frá 32 löndum í flokki (1800+) Guðrúnar og \[…\]

## [Aleksandr með þriðju sigurskákina í röð](https://skak.is/2026/08/22/aleksandr-med-thridju-sigurskakina-i-rod/)

_2026-08-22 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352) situr að tafli þessa dagana á Kapadokya Open í Tyrklandi. Eftir skrykkjóta byrjun er Sasha kominn í stuð og vann sína þriðju skák í röð í sjöundu umferð í gær. Aleksandr hefur 4½ vinning og er í 10.-21. sæti. Í áttundu og næstsíðustu umferð sem fram fer í dag \[…\]

## [Minningarmót um Friðrik Ólafsson fer fram 24.-29. nóvember](https://skak.is/2026/08/21/minningarmot-um-fridrik-olafsson-fer-fram-24-29-november/)

_2026-08-21 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Skáksamband Íslands og Taflfélag Reykjavíkur halda Minningarmót Friðriks Ólafssonar sem 24.–29. nóvember nk. Mótið er tileinkað minningu fyrsta íslenska stórmeistarans, sem lést 4. apríl 2025, níræður að aldri. Mótið fer fram í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur. Friðrik Ólafsson (26. janúar 1935 – 4. apríl 2025) var ekki aðeins fyrsti Íslendingurinn til að hljóta stórmeistaratitilinn árið 1958 heldur…

## [Taflfélag Reykjavíkur kynnir nýja hraðskákmótaröð!](https://skak.is/2026/08/21/taflfelag-reykjavikur-kynnir-nyja-hradskakmotarod/)

_2026-08-21 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Taflfélag Reykjavíkur kynnir nýja hraðskákmótaröð! Komandi skákvetur mun fyrsta fimmtudagsmót hvers mánaðar hjá Taflfélagi Reykjavíkur verða með stigalágmarki upp á 1900 hraðskákstig. Allir skákmenn yfir 1900 hraðskákstig geta tekið þátt. Mótin hefjast stundvíslega klukkan 19:30 og teflt er í sal Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Hefðbundnu fimmtudagsmótin sem eru opin öllum eru áfram á sinni…

## [Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl Open skákmótið – Skráning í fullum gangi](https://skak.is/2026/08/21/sel-hotel-myvatn-myvatn-ol-open-skakmotid-skraning-i-fullum-gangi/)

_2026-08-21 · Hermann Aðalsteinsson · Skak.is_

Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl og Skákfélagið Goðinn standa saman að opnu alþjóðlegu skákmóti dagana 19-22 nóvember 2026 sem fram fer í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Mótið er sett upp á sama hátt og 20 ára afmælismót Goðans sem fram fór í mars árið 2025 sem þóttist heppnast vel og því er nú leikurinn endurtekinn. Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl er aðal \[…\]

[Listen](https://skak.is/wp-content/uploads/2026/08/AQMHzvosOaAQw3gMmgCFuDCRq7ly10-xt7wRzfQoGGNIOXvM-fl5C6TntZEaDxcFZQQnbQk5Sw_GXbEN9kiZUUfOvj4YFhYBsiyaprAB5A-1.mp4)

## [Aleksandr vann báðar skákir gærdagsins í Tyrklandi](https://skak.is/2026/08/21/aleksandr-vann-badar-skakir-gaerdagsins-i-tyrklandi/)

_2026-08-21 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352) situr að tafli þessa dagana á Kapadokya Open í Tyrklandi. Sasha byrjaði ekki vel og var með 1½ eftir fjórar umferðir. Í gær var tvöfaldur dagur og þá gekk allt upp og Sasha vann báðar skákirnar. Aleksandr hefur 3½ eftir sex umferðir. Sjöunda umferð fer fram í dag. Í móti \[…\]

## [Tvö 100 ára afmælismót Taflfélags Vestmannaeyja fara fram 29.-30. ágúst nk.](https://skak.is/2026/08/21/tvo-100-ara-afmaelismot-taflfelags-vestmannaeyja-fara-fram-29-30-agust-nk/)

_2026-08-21 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Þann 29. ágúst 2026 verða liðin 100 ár frá stofnun Taflfélags Vestmannaeyja, þessa verður minnst með skákmótum og blaðaútgáfu. Á þessum merku tímamótum stendur TV fyrir atskákmóti laugardaginn 29. ágúst nk. kl. 12.00 og ráðgert að því ljúki um kl. 18.00. Tímamörk verða 15 mín. + 5 sek. – veitingar í boði TV- tefldar átta umferðir \[…\]

## [Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga fer fram 8.-11. október í MH](https://skak.is/2026/08/20/fyrri-hluti-islandsmots-skakfelaga-fer-fram-8-11-oktober-i-mh/)

_2026-08-20 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2026-27 fer fram dagana 8.–11. október 2026. Mótsupplýsingar: Fyrsta umferð í úrvalsdeild hefst fimmtudaginn 8. október kl. 19:00 í Taflfélagi Reykjavíkur (Faxafen 12). Aðrar umferðir (og allar umferðir annarra deilda) fara fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð (Hamrahlíð 10). Umferð / Deild Dagur Dagsetning Tími Staður 1. umferð – Úrvalsdeild Fimmtudagur 8. \[…\]

## [Helgi Áss ræðir sjötuga goðsögn, Vigni og skákminni við skákborð Kristjáns Arnar](https://skak.is/2026/08/20/helgi-ass-raedir-sjotuga-godsogn-vigni-og-skakminni-vid-skakbord-kristjans-arnar/)

_2026-08-20 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Kristján Örn Elíasson stjórnar vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið. Í gær settist stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson við skákborð Kristjáns Arnar í Skipholtinu. Í kynningu um þáttinn segir: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og varaborgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík var gestur þáttarins. Í upphafi þáttar var hringt í stórmeistarann Helga…

## [Reach prospects with real signals (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/zyJhO116YuGQ)

_2026-08-20 · **Sponsored**_

Find prospects talking about your problem and get context-backed moments to engage

## [Borgarskákmótið hefst kl. 15:30 &#8211; enn opið fyrir skráningu!](https://skak.is/2026/08/20/borgarskakmotid-fer-fram-fimmtudaginn-20-agust/)

_2026-08-20 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Borgarskákmótið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur fer fram fimmtudaginn 20. ágúst, og hefst kl. 15:30. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem…

## [Íslandsmótið í atskák fer fram á sunnudaginn](https://skak.is/2026/08/20/islandsmotid-i-atskak-fer-fram-sunnudaginn-23-agust/)

_2026-08-20 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Íslandsmótið í atskák verður að þessu sinni haldið sunnudaginn 23. ágúst kl. 13:00 í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12. Heildarverðlaun eru 125.000 kr. Mótið er opið öllum og keppt verður um titil Íslandsmeistara í atskák auk sérstakra verðlauna fyrir konur og ungmenni. Efsta konan verður Íslandsmeistari kvenna í atskák. Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum \[…\]

## [Fimmtudagsmót hjá TR í kvöld](https://skak.is/2026/08/20/fimmtudagsmot-hja-tr-i-kvold-102/)

_2026-08-20 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Hraðskákmót hjá TR í kvöld! Tefldar eru 10 skákir og tímamörkin eru 3 mínútur á skákina að viðbættum 2 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá \[…\]

## [Aleksandr að tafli í Tyrklandi](https://skak.is/2026/08/19/aleksandr-ad-tafli-i-tyrklandi/)

_2026-08-19 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352) situr að tafli þessa dagana á Kapadokya Open í Tyrklandi. Sasha hefur ekki byrjað vel og hefur 1 vinning eftir 3 umferðir. Í móti Sasha, sem fram fer 17.-23. ágúst tefla 84 keppendur og þar af fjórir stórmeistarar. Sasha er nr. 16 í stigaröð keppenda. Heimasíða mótsins Chess-Results Beinar \[…\]

## [Lenka að tafli í Olomouc](https://skak.is/2026/08/19/lenka-ad-tafli-i-olomouc/)

_2026-08-19 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Lenka Ptácníková (2063), stórmeistari kvenna, situr að tafli 16.-23. ágúst í Olomouc í Tékklandi. Teflir þar í 10 manna lokuðuðum flokki og er langstigalægst keppenda. Lenka hefur ekki byrjað vel og hefur ½ vinning eftir fjórar umferðir. Teflir auðvitað í hverri umferð við andstæðinga sem eru mun stigahærri en hún. Meðalstigin í flokki Lenku er \[…\]

## [Íslandsmótið í netskák &#8211; undanrásir fara fram 25. ágúst](https://skak.is/2026/08/18/islandsmotid-i-netskak-undanrasir-fara-fram-25-agust/)

_2026-08-18 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Undanrásir Íslandsmótsins í netskák fara fram, þriðjudaginn 25. ágúst á Chess.com og hefjast kl. 19.30. Til að hafa keppnisrétt þurfa viðkomandi að hafa rétt á því að tefla fyrir Íslands hönd og vera meðlimir í TeamIceland á Chess.com. Tefldar verða 11 umferðir með umhugsunartímanum 3+2. Fjórir efstu + efsta konan fá keppnisrétt í úrslitum. Mótsstig Chess.com gildir séu \[…\]

## [Skákþing Norðlendinga fer fram 18.-20. september](https://skak.is/2026/08/18/skakthing-nordlendinga-fer-fram-18-20-september/)

_2026-08-18 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Skákþingi Norðlendinga sem vera átti í apríl, en var þá frestað verður haldið, 18.- 20. sept. í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð og hefst með hraðskákmóti föstudaginn 18. kl. 20.00. Tímamörk verða 3+2 og umferðafjöldi getur ráðist af þátttöku, en miðað við 11 umf (hámark 14) Á laugardag og sunnudag verður síðan telfd atskák og gert \[…\]

## [Þriðjudagsmót hjá TR í kvöld](https://skak.is/2026/08/18/thridjudagsmot-hja-tr-i-kvold-167/)

_2026-08-18 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig \[…\]

