# hefst — RSS Amplifier

Recent posts from the 2 feeds in the RSS Amplifier directory that cover hefst.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/hefst>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/hefst.md>

---

## [Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga fer fram 8.-11. október í MH](https://skak.is/2026/08/20/fyrri-hluti-islandsmots-skakfelaga-fer-fram-8-11-oktober-i-mh/)

_2026-08-20 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2026-27 fer fram dagana 8.–11. október 2026. Mótsupplýsingar: Fyrsta umferð í úrvalsdeild hefst fimmtudaginn 8. október kl. 19:00 í Taflfélagi Reykjavíkur (Faxafen 12). Aðrar umferðir (og allar umferðir annarra deilda) fara fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð (Hamrahlíð 10). Umferð / Deild Dagur Dagsetning Tími Staður 1. umferð – Úrvalsdeild Fimmtudagur 8. \[…\]

## [Helgi Áss ræðir sjötuga goðsögn, Vigni og skákminni við skákborð Kristjáns Arnar](https://skak.is/2026/08/20/helgi-ass-raedir-sjotuga-godsogn-vigni-og-skakminni-vid-skakbord-kristjans-arnar/)

_2026-08-20 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Kristján Örn Elíasson stjórnar vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið. Í gær settist stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson við skákborð Kristjáns Arnar í Skipholtinu. Í kynningu um þáttinn segir: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og varaborgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík var gestur þáttarins. Í upphafi þáttar var hringt í stórmeistarann Helga…

## [Borgarskákmótið hefst kl. 15:30 &#8211; enn opið fyrir skráningu!](https://skak.is/2026/08/20/borgarskakmotid-fer-fram-fimmtudaginn-20-agust/)

_2026-08-20 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Borgarskákmótið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur fer fram fimmtudaginn 20. ágúst, og hefst kl. 15:30. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem…

## [Íslandsmótið í atskák fer fram á sunnudaginn](https://skak.is/2026/08/20/islandsmotid-i-atskak-fer-fram-sunnudaginn-23-agust/)

_2026-08-20 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Íslandsmótið í atskák verður að þessu sinni haldið sunnudaginn 23. ágúst kl. 13:00 í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12. Heildarverðlaun eru 125.000 kr. Mótið er opið öllum og keppt verður um titil Íslandsmeistara í atskák auk sérstakra verðlauna fyrir konur og ungmenni. Efsta konan verður Íslandsmeistari kvenna í atskák. Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum \[…\]

## [Fimmtudagsmót hjá TR í kvöld](https://skak.is/2026/08/20/fimmtudagsmot-hja-tr-i-kvold-102/)

_2026-08-20 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Hraðskákmót hjá TR í kvöld! Tefldar eru 10 skákir og tímamörkin eru 3 mínútur á skákina að viðbættum 2 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá \[…\]

## [Aleksandr að tafli í Tyrklandi](https://skak.is/2026/08/19/aleksandr-ad-tafli-i-tyrklandi/)

_2026-08-19 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352) situr að tafli þessa dagana á Kapadokya Open í Tyrklandi. Sasha hefur ekki byrjað vel og hefur 1 vinning eftir 3 umferðir. Í móti Sasha, sem fram fer 17.-23. ágúst tefla 84 keppendur og þar af fjórir stórmeistarar. Sasha er nr. 16 í stigaröð keppenda. Heimasíða mótsins Chess-Results Beinar \[…\]

## [Lenka að tafli í Olomouc](https://skak.is/2026/08/19/lenka-ad-tafli-i-olomouc/)

_2026-08-19 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Lenka Ptácníková (2063), stórmeistari kvenna, situr að tafli 16.-23. ágúst í Olomouc í Tékklandi. Teflir þar í 10 manna lokuðuðum flokki og er langstigalægst keppenda. Lenka hefur ekki byrjað vel og hefur ½ vinning eftir fjórar umferðir. Teflir auðvitað í hverri umferð við andstæðinga sem eru mun stigahærri en hún. Meðalstigin í flokki Lenku er \[…\]

## [Íslandsmótið í netskák &#8211; undanrásir fara fram 25. ágúst](https://skak.is/2026/08/18/islandsmotid-i-netskak-undanrasir-fara-fram-25-agust/)

_2026-08-18 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Undanrásir Íslandsmótsins í netskák fara fram, þriðjudaginn 25. ágúst á Chess.com og hefjast kl. 19.30. Til að hafa keppnisrétt þurfa viðkomandi að hafa rétt á því að tefla fyrir Íslands hönd og vera meðlimir í TeamIceland á Chess.com. Tefldar verða 11 umferðir með umhugsunartímanum 3+2. Fjórir efstu + efsta konan fá keppnisrétt í úrslitum. Mótsstig Chess.com gildir séu \[…\]

## [Skákþing Norðlendinga fer fram 18.-20. september](https://skak.is/2026/08/18/skakthing-nordlendinga-fer-fram-18-20-september/)

_2026-08-18 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Skákþingi Norðlendinga sem vera átti í apríl, en var þá frestað verður haldið, 18.- 20. sept. í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð og hefst með hraðskákmóti föstudaginn 18. kl. 20.00. Tímamörk verða 3+2 og umferðafjöldi getur ráðist af þátttöku, en miðað við 11 umf (hámark 14) Á laugardag og sunnudag verður síðan telfd atskák og gert \[…\]

## [Þriðjudagsmót hjá TR í kvöld](https://skak.is/2026/08/18/thridjudagsmot-hja-tr-i-kvold-167/)

_2026-08-18 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig \[…\]

## [Dissecting Series A Rounds (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/LxJF85TvXhj5)

_2026-08-18 · **Sponsored**_

Two real Series A cases: timelines, investor sequencing, and common founder mistakes.

## [Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026](https://www.stykkisholmur.is/is/frettir/thjodaratkvaedagreidsla-2027)

_2026-08-17 · Sveitarfélagið Stykkishólmur_

Kjörfundur í Sveitarfélaginu Stykkishólmi vegna þjóðaratkvæðagreiðslu verður laugardaginn 29. ágúst 2026 í Grunnskólanum í Stykkishólmi, Borgarbraut 6. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00. Kjörskrá liggur frammi til kjördags í Ráðhúsi Stykkishólms alla virka daga á opnunartíma. Kjósendur geta einnig séð á heimasíðu Þjóðskrár hvar þeir eru á kjörskrá. Kynningarvefur landskjörstjórnar um…

## [Áminning frá forvarnarteymi Snæfellsness og lögreglunni á Vesturlandi](https://www.stykkisholmur.is/is/frettir/aminning-fra-forvarnarteymi-snaefellsness-og-logreglunni-a-vesturlandi)

_2026-08-14 · Sveitarfélagið Stykkishólmur_

Hér að neðan er áminning frá forvarnarteymi Snæfellsness og lögreglunni á Vesturlandi varðandi ábyrgð foreldra og hættur sem stafa að eftirlitslausum unglingasamkomum á bæjarhátíðum og öðrum hátíðum. Um helgina eru bæði Danskir dagar í Stykkishólmi og Iceland Eclipse á Hellissandi.

## [Nýr söngkennari í Stykkishólmi](https://www.stykkisholmur.is/is/frettir/nyr-songkennari-i-stykkisholmi)

_2026-08-12 · Sveitarfélagið Stykkishólmur_

Tónlistarskóli Stykkishólms vekur athygli á því að Hólmarinn Friðrik S. Kristinsson er fluttur aftur heim og tekur nú við sem söngkennari tónlistarskólans. Friðrik er lærður söngvari, söngkennari og kórstjóri. Lengst af hefur hann stjórnað og starfað hjá Karlakór Reykjavíkur þar sem hann mun eiga starfslok 1. janúar nk. eftir 38 farsæl ár sem söngstjóri kórsins.

## [Götulýsing slökkt vegna almyrkva](https://www.stykkisholmur.is/is/frettir/gotulysing-slokkt-vegna-almyrkva)

_2026-08-10 · Sveitarfélagið Stykkishólmur_

Götulýsing í Stykkishólmi verður slökkt miðvikudaginn 12. ágúst á meðan almyrkvi á sólu stendur yfir. Almyrkvinn verður sýnilegur í Stykkishólmi og stendur yfir í um 1 mínútu og 28 sekúndur frá Hólminum séð. Með því að slökkva á götulýsingunni er leitast við að draga úr birtu í bænum og skapa sem bestar aðstæður fyrir íbúa til að upplifa þennan einstaka náttúruviðburð. Íbúar sem vilja njóta…

## [Danskir dagar 2026](https://www.stykkisholmur.is/is/frettir/danskir-dagar-2026)

_2026-08-10 · Sveitarfélagið Stykkishólmur_

Danskir dagar verða haldnir í Stykkishólmi dagana 12.–16. ágúst 2026. Hátíðin er ein elsta bæjarhátíð landsins og hefur verið haldin frá árinu 1994. Eftir afar vel heppnaða hátíð árið 2024 er á ný stefnt að fjölbreyttri og líflegri bæjarhátíð þar sem íbúar og gestir koma saman og njóta þess besta sem Stykkishólmur hefur upp á að bjóða.

## [Hækusýning á Frúarhól](https://www.stykkisholmur.is/is/frettir/haekusyning-a-fruarhol)

_2026-08-04 · Sveitarfélagið Stykkishólmur_

Hækusýning hefur verið sett upp á Frúarhól í þriðja sinn. Anna Sigríður Gunnarsdóttir stendur fyrir sýningunni ásamt höfundi, en hækurnar eru eftir Theodóru Gallant Helgason, og eru á ensku.

## [Almyrkvi verður 12. ágúst](https://www.stykkisholmur.is/is/frettir/almyrkvi-verdur-12-agust)

_2026-08-04 · Sveitarfélagið Stykkishólmur_

Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvi á sér stað þegar tunglið gengur beint milli sólar og jarðar og skyggir alveg á sólina í örfáar mínútur. Á þeim tíma verður dimmt og hita­stig getur jafnvel lækkað lítil­lega. Fyrir og eftir almyrkva sést deild­ar­myrkvi, það er þegar tunglið skyggir á hluta sólar.Almyrkvinn sést frá Vestfjörðum,…

## [Hólmarar stigu á svið á Wacken Metal Battle](https://www.stykkisholmur.is/is/frettir/holmarar-stigu-a-svid-a-wacken-metal-battle)

_2026-07-30 · Sveitarfélagið Stykkishólmur_

Hljómsveitin SÓT steig á svið á Wacken Metal Battle í Þýskalandi í gær og stóð sig með miklum glæsibrag fyrir hönd Íslands. Hljómsveitina skipa Hólmararnir Ísleifur Jónsson gítarleikari og Ívar Leo Hauksson bassaleikari ásamt norðlendingunum Arnari Smára Sigurðssyni trommuleikara, Aroni Frey Ívarssyni söngvara og Daníel Hrafni Ingvarssyni gítarleikara. SÓT vann sér þátttökurétt í alþjóðlegu…

## [Hringabrynjusund í Sundlaug Stykkishólms](https://www.stykkisholmur.is/is/frettir/hringabrynjusund-i-sundlaug-stykkisholms)

_2026-07-27 · Sveitarfélagið Stykkishólmur_

Í Íslendingasögunum eru lýsingar á bardögum þar sem einstaklingar berjast á bátum á sjó en detta útbyrðis og þurfa að synda til að bjarga lífi sínu, eins og í Ólafs sögu Tryggvasonar, ellegar sökkva. Til að kynnast betur sögunum okkar efna skipuleggjendur viðburðarins til keppni milli sundlauga í hringabrynjusundi til að komast að því hversu erfitt er að synda "milli skipa" í hringabrynju eins og…

## [Meet Claude, the AI assistant (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/80XH62HeQD3p)

_2026-07-27 · **Sponsored**_

Conversational AI to answer questions, brainstorm ideas, and help with tasks.

## [Baldur kominn heim](https://www.stykkisholmur.is/is/frettir/baldur-kominn-heim)

_2026-07-23 · Sveitarfélagið Stykkishólmur_

Breiðafjarðarferjan Baldur sneri heim í dag, fimmtudaginn 23. júlí, eftir að hafa sinnt siglingum milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja frá því í byrjun júní vegna bilunar í Herjólfi. Frá og með morgundeginum, 24. júlí, hefjast svo reglubundnar ferjusiglingar milli Stykkishólms, Flateyjar og Brjánslækjar á ný. Vegagerðin tilkynnti um ákvörðun innviðaráðherra um að færa Baldur til Vestmannaeyja 2.…

