# hafa (news sources) — RSS Amplifier

Recent posts from the 7 feeds in the RSS Amplifier directory that cover hafa.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/hafa/news>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/hafa/news.md>

---

## [Meghan snýr aftur á skjáinn](https://www.visir.is/g/20262924464d/meghan-snyr-aftur-a-skjainn)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Meghan, hertogaynjan af Sussex, stendur nú í viðræðum um hlutverk í Netflix-þáttunum The Gentlemen. Leikkonan fyrrverandi hætti leiklistinni eftir að hún giftist Harry Bretaprinsi, hertoganum af Sussex, árið 2018.

## [TikTok gert að greiða Banda­ríkjunum sögu­lega upp­hæð](https://www.visir.is/g/20262924517d/tiktok-gert-ad-greida-bandarikjunum-sogulega-upphaed)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Samfélagsmiðillinn TikTok hefur samþykkt að greiða Bandaríkjunum fjögur hundruð milljónir Bandaríkjadala, eða um 49 milljarða íslenskra króna, til að ljúka málsókn en miðillinn var sakaður um að brjóta á friðhelgi barna með upplýsingaöflun. Sáttin er ein sú stærsta sem hefur verið gerð vegna slíks máls.

## [Sinner missir af Opna banda­ríska](https://www.visir.is/g/20262924497d/sinner-missir-af-opna-bandariska)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Heimsmeistarinn Jannik Sinner verður ekki með á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis sem hefst á sunnudaginn eftir að hann dró sig úr keppni vegna meiðsla.

## [United nær sam­komu­lagi við Brighton um Baleba](https://www.visir.is/g/20262924511d/united-naer-samkomulagi-vid-brighton-um-baleba)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Manchester United hefur náð samkomulagi við Brighton um kaup á miðjumanninum Carlos Baleba. United greiðir 65 milljónir punda fyrir leikmanninn en upphæðin getur hækkað um fimm milljónir til viðbótar í bónusgreiðslum.

## [„Kær­komið að fá eitt svona mark“](https://www.visir.is/g/20262924513d/-kaerkomid-ad-fa-eitt-svona-mark-)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, segir tilfinningarnar frábærar eftir að hafa sótt 1-0 sigur á Þór/KA fyrir norðan en eina mark leiksins kom á lokamínútu venjulegs leiktíma.

## [Aftur­elding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk](https://www.visir.is/g/20262924481d/afturelding-valtadi-yfir-aegi-og-skoradi-sjo-mork)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Afturelding vann stórsigur á Ægi, 7-0, þegar liðin mættust í 20. umferð Lengjudeildar karla í kvöld.

## [Einn látinn og tveir drengir al­var­lega særðir í Fagersta](https://www.visir.is/g/20262924501d/einn-latinn-og-tveir-drengir-alvarlega-saerdir-i-fagersta)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Einn er látinn og tveir drengir alvarlega slasaðir eftir að maður réðst inn í framhaldsskóla vopnaður sverði í Fagersta í Svíþjóð. Árásarmaðurinn grunaði hefur verið handtekinn og er sagður fyrrum nemandi skólans.

## [Karó­lína Lea skoraði fyrir Inter](https://www.visir.is/g/20262924504d/karolina-lea-skoradi-fyrir-inter)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði fyrir Inter þegar liðið vann Parma, 1-0, í ítalska deildarbikarnum í kvöld.

## [Blaut og vindasöm Menningar­nótt í vændum](https://www.visir.is/g/20262924489d/blaut-og-vindasom-menningarnott-i-vaendum)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp.

## [„Ég skora náttúru­lega ekki oft þannig að þetta er eigin­lega krafta­verk“](https://www.visir.is/g/20262924493d/-eg-skora-natturulega-ekki-oft-thannig-ad-thetta-er-eiginlega-kraftaverk-)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Valur kom sér upp úr fallsæti Bestu deildar kvenna með 1-0 sigri á Þór/KA á VÍS vellinum á Akureyri í kvöld.

## [Anthony Ettinger on LinkedIn (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/y3kNqCwgBjRM)

_2026-08-21 · **Sponsored**_

Public LinkedIn profile at linkedin.com/in/anthonyettinger.

## [Einn eltihrellir á fimm daga fresti](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-einn-eltihrellir-a-fimm-daga-fresti-484563/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögregla hefur enn ekki nýtt heimild til að setja rafræn ökklabönd á eltihrella. Stundum vita þolendur ekki hver gerandinn er – og dæmi eru um að einn og hinn sami hrelli fjölda fólks. „Við erum að fá svona 60-80 mál á ári,“ segir Marta Kristín Hreiðarsdóttir, deildarsérfræðingur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi mála segir ekki alla söguna – því í einu máli geta falist mörg brot. „Ef…

## [Einn drepinn í sverðaárásinni í Svíþjóð](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-21-einn-drepinn-i-sverdaarasinni-i-svithjod-484569/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Einn er látinn eftir að hafa verið stunginn með sverði í Fagersta í Svíþjóð í dag. Greint var frá þessu á blaðamannafundi fyrir skömmu. Árásin var framin við framhaldsskóla í Fagersta. Þrír særðust í árásinni, þar af tveir drengir alvarlega. Árásarmaðurinn var síðan handtekinn. Aftenbladed segir lögreglu hafa skotið mann vopnaðan sverði í fótinn. Lögreglan vill ekkert gefa upp um hver…

## [Jákvætt að matvöruverð sé ekki að keyra upp verðbólgu](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-jakvaett-ad-matvoruverd-se-ekki-ad-keyra-upp-verdbolgu-484567/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Það er jákvætt að matvöruverð sé ekki að keyra upp verðbólgu, segir verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ. Hægt hefur á hækkunum á matarverði síðustu mánuði og sumir birgjar hafa lækkað verð í sumar. „Það sem við erum að sjá síðustu mánuði er að það er að hægja á hækkunum sem okkur þykir mjög jákvætt,“ segir Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ. Í gegnum tíðina hafi það…

## [Belgískur bílasali óvænt orðinn prins](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-21-belgiskur-bilasali-ovaent-ordinn-prins-484562/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Nýr prins hefur verið tekinn inn í belgísku konungsfjölskylduna, sá er 26 ára fyrrverandi bílasali. Yngri bróðir Belgíukonungs hefur formlega viðurkennt hann sem son sinn og erfingja. Clément Vandenkerckhove var 16 ára þegar móðir hans, þekkt söng- og leikkona í Belgíu, sagði honum að raunverulegur faðir hans væri Laurent prins. Fjórum árum síðar hafði hann safnað kjarki og hringdi í prinsinn. Svo…

## [Borgfirðingum eystra áfram ráðlagt að sjóða neysluvatn yfir helgina](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-borgfirdingum-eystra-afram-radlagt-ad-sjoda-neysluvatn-yfir-helgina-484565/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Íbúum á Borgarfirði eystra er ráðlagt að sjóða neysluvatn áfram yfir helgina vegna E. coli-bakteríumengunar. Í tilkynningu frá HEF veitum í dag segir að ekki hafi tekist að setja upp gegnumlýsingartæki til að sótthreinsa vatnið og tengingu við vatnstank fyrir helgina. Sú vinna haldi áfram á mánudag og stefnt sé að því að tækið komist þá í gagnið. Truflanir verði á afhendingu á vatni samhliða…

## [„Vonbrigði að fá þessa hækkun á okkur“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-vonbrigdi-ad-fa-thessa-haekkun-a-okkur-484554/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Forsætisráðherra segir hækkun stýrivaxta vonbrigði. Hækkanir opinberra gjalda sem ríkisstjórnin hafi staðið fyrir séu ekki hærri en þær sem áður hafa orðið og áhrif þeirra á verðbólguna ekki meiri en gengur og gerist. Verðbólga hefur verið yfir 5% það sem af er ári og mældist 5,3% í júlí. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er talið að hún aukist enn frekar á næstu mánuðum en hjaðni tiltölulega…

## [FÍA sakar Icelandair um að grafa undan kjaraviðræðum](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-fia-sakar-icelandair-um-ad-grafa-undan-kjaravidraedum-484561/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Félag íslenskra atvinnuflugmanna lítur kaup Icelandair á tæplega helmingshlut í Fly Play Europe alvarlegum augum. FÍA á í kjaradeilu við Icelandair um þessar mundir. Greint var frá því í gær að Icelandair hefði gengið frá kaupum á 49% hlut í Fly Play Europe, sem á dótturfélag á Möltu með maltneskt flugrekstrarleyfi. Kaupin eru háð því að samkomulag náist við maltnesk flugmálayfirvöld um…

## [Mætið tímanlega til að sjá leynigestina](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-21-maetid-timanlega-til-ad-sja-leynigestina-484560/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Félagarnir Jói Pé og Króli eru á meðal þeirra sem stíga á stokk á Tónaflóði Rásar 2 annað kvöld. Leikar hefjast stundvíslega klukkan 19:00 og eru þeir fyrstir á svið. En þeir verða ekki einir, með þeim fylgir stór hópur leynigesta sem þeir lofa að séu á meðal þeirra fremstu á sviði tónlistarfólks og skemmtikrafta. Jói Pé kíkti í Poppland til Margrétar Erlu Maack og sagði frá. „Við verðum með sama…

## [Lægsta verðið oftast í Prís](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-laegsta-verdid-oftast-i-pris-484551/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lægsta verð á matvöru er í Prís, samkvæmt úttekt Verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands og um 2.000 krónum munar á verslunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ . Matarkarfan um þúsund krónum dýrari í Bónus Úttektin var gerð dagana 10. til 14. ágúst og verð í Bónus, Krónunni, Nettó og Prís borin saman. Verðsamanburður var gerður á 25 algengum neysluvörum. Lægsta verðið var oftast að finna í…

## [Tívolíferðin breyttist í martröð – Nú fá þær milljónir í bætur](https://www.dv.is/pressan/2026/08/21/tivoliferdin-breyttist-i-martrod-nu-fa-thaer-milljonir-i-baetur)

_2026-08-21 · DV - Nýjustu fréttir_

Tvær unglingsstúlkur í Oregon í Bandaríkjunum hafa fengið dæmdar 275 þúsund dali hvor, jafnvirði rúmlega 33 milljóna íslenskra króna, eftir að þær sátu fastar á hvolfi í tívolítæki í 25 mínútur.Atvikið átti sér stað í Oaks Amusement Park í Portland í júní 2024.

## [Crush Every Threat in Real Time (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/rqSQEckOFF9M)

_2026-08-21 · **Sponsored**_

One agent for real-time detection, exposure tracking, and active defense.

## [Vilja leggja niður skólaakstur úr Suðurhlíðum í Hlíðaskóla](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-vilja-leggja-nidur-skolaakstur-ur-sudurhlidum-i-hlidaskola-484556/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Meirihlutinn í Reykjavíkurborg leggur til að frá og með upphafi skólaársins 2026-2027 verði ekki boðið upp á skólaakstur úr Suðurhlíðunum í Hlíðaskóla. Tillaga þess efnis var samþykkt á fundi skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar með fjórum atkvæðum gegn tveimur. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins kusu gegn tillögunni og fulltrúi Miðflokks sat hjá. Í bókun þeirra…

## [Tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-21-tveir-drengir-alvarlega-saerdir-i-fagersta-484558/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Tveir drengir eru alvarlega særðir í bænum Fagersta í Svíþjóð þar sem sverðaárás var framin í framhaldsskóla. Nemendur nemendur lýsa í viðtali við SVT því hvernig árásarmaðurinn birtist snögglega og stakk vin þeirra í handlegginn. „Við fórum út og sjáum að það var blóð um allan handlegginn og hann segir: „Hringið í lögregluna.“ Svo var hringt í lögregluna og við hlupum á brot því við vorum hrædd,“…

## [Stefna á að ljúka byggingu nýs Landspítala fyrir árslok 2029](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-stefna-a-ad-ljuka-byggingu-nys-landspitala-fyrir-arslok-2029-484553/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Áætlað er að byggingu nýja Landspítalans við Hringbraut ljúki fyrir árslok 2029. Framkvæmdatímabil spítalans hófst árið 2010 og nær til 2031. Skóflustunga var tekin að sjúkrahóteli árið 2015, sem var fyrsti áfangi verkefnisins. Á vef Stjórnarráðs Íslands segir að heildaráætlun vegna spítalans hafi verið uppfærð og kynnt fyrir heilbrigðisráðherra og efnahags- og fjármálaráðherra. „Mikil uppbygging…

## [Segja eldhúsinu á Vitatorgi ekki viðbjargandi og hætta við endurbætur - Hver máltíð dýrari fyrir borgina eftir útvistunina](https://www.dv.is/frettir/2026/08/21/segja-eldhusinu-a-vitatorgi-ekki-vidbjargandi-haetta-vid-endurbaeturnar-hver)

_2026-08-21 · DV - Nýjustu fréttir_

Í þessari viku hefur töluvert verið fjallað um gjaldskrárhækkanir Reykjavíkurborgar á máltíðum sem sendar eru heim til eldri borgara og annarra lífeyrisþega sem búa ýmist í þjónustuíbúðum, öðru húsnæði eða þeim er boðið upp á máltíðirnar í félagsmiðstöðvum borgarinnar.

## [Hurzeler gefur ekkert upp um framtíð Baleba](https://www.dv.is/433/2026/08/21/hurzeler-gefur-ekkert-upp-um-framtid-baleba)

_2026-08-21 · DV - Nýjustu fréttir_

Fabian Hurzeler, knattspyrnustjóri Brighton, vildi lítið tjá sig um framtíð Carlos Baleba þegar hann var spurður út í möguleg félagaskipti miðjumannsins til Manchester United.

## [„Löggæslan er í fáránlegri stöðu“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-loggaeslan-er-i-faranlegri-stodu-484529/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Dregið hefur verið úr löggæslu á Þórshöfn eftir að lögreglustöðinni var lokað vegna myglu fyrir tæpu ári. Lítið hefur gerst í húsnæðismálum og stöðugildum lögreglumanna hefur fækkað. „Við höfum ekki orðið vör við neinar framkvæmdir þar eða séð neinar ákvarðanir teknar um hvort eigi að gera við húsnæðið eða leggja það af. Sveitarfélagið getur til dæmis aðstoðað lögregluembættið við að finna…

## [Fundu rúss­neskt vopna­búr í skógi fyrir utan Ber­lín](https://www.visir.is/g/20262924385d/fundu-russneskt-vopnabur-i-skogi-fyrir-utan-berlin)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Skotvopn sem höfðu verið grafin í jörðu fundust í skógi nærri Berlín sem rússnesk yfirvöld telja að tengist rússnesku leyniþjónustunni. Þýsk yfirvöld reyna að nú að fá einstakling framseldan frá Rúmeníu vegna fundarins.

## [Grunaður um innbrot í 27 bíla á Tenerife](https://www.dv.is/pressan/2026/08/21/grunadur-um-innbrot-i-27-bila-a-tenerife)

_2026-08-21 · DV - Nýjustu fréttir_

Lögreglan á Tenerife hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa brotist inn í alls 27 bíla í nágrenni La Tejita-strandarinnar í suðurhluta eyjunnar.

## [Auka fjár­út­lát til varnar­mála um tæpan fimmtung](https://www.visir.is/g/20262924355d/auka-fjarutlat-til-varnarmala-um-taepan-fimmtung)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Ríkisstjórn Taívan lagði í gær fram fjárlagafrumvarp sem felur í sér gífurlega aukningu í útlátum til varnarmála. Aukningin samsvarar átján prósentum á milli ára og verði frumvarpið samþykkt mun eyríkið verja 3,1 prósenti af landsframleiðslu til varnarmála. Til stendur að hækka hlutfallið enn frekar vegna hernaðarógnana frá Kína.

## [Spörum milljarða](https://www.visir.is/g/20262924349d/sporum-milljarda)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Það hefur ekki farið framhjá neinum að framundan er kosning um hvort hefja eigi viðræður við ESB um aðild að sambandinu. Flest venjulegt fólk er nú þegar orðið þreytt á þessu karpi, sem er skiljanlegt.

## [Pirate.io on Google Play (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/Ptb5Bw1ywhUX)

_2026-08-21 · **Sponsored**_

Open the Pirate.io listing on Google Play to view the app’s details.

## [Kylfingarnir „kjöt á hlað­borði“ í Kanada](https://www.visir.is/g/20262924333d/kylfingarnir-kjot-a-hladbordi-i-kanada)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Moskítóflugur herja á bestu kvenkylfinga heims í Edmonton í Kanada, á CPKCmótinu á LPGA-mótaröðinni í golfi.

## [Argentínumönnum refsað harkalega - Einn fær tíu leikja bann](https://www.dv.is/433/2026/08/21/argentinumonnum-refsad-harkalega-einn-faer-tiu-leikja-bann)

_2026-08-21 · DV - Nýjustu fréttir_

Leandro Paredes, miðjumaður argentínska landsliðsins, hefur verið úrskurðaður í tíu leikja bann vegna óláta eftir tap Argentínu gegn Spáni í úrslitaleik HM.

## [Merki um kólnun á fasteigna- og byggingamarkaði](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-merki-um-kolnun-a-fasteigna-og-byggingamarkadi-484532/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Merkja mátti kólnun á fasteignamarkaði á fyrri helmingi ársins, miðað við sama tímabil í fyrra, og færri byggingarleyfi voru gefin út. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar . Tæplega 5.000 kaupsamningum var þinglýst á landinu öllu á fyrstu sex mánuðum ársins, um 14% færri en á sama tíma í fyrra. Þinglýstir kaupsamningar hafa ekki verið færri á fyrstu sex mánuðum árs…

## [Nýi Land­spítalinn verði til­búinn í árs­lok 2029](https://www.visir.is/g/20262924353d/nyi-landspitalinn-verdi-tilbuinn-i-arslok-2029)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Stefnt er að verklokum við framkvæmd nýs Landspítala í árslok 2029. Á sama tími hefs yfirfærslutími svo hægt sé að hefja starfsemi spítalans á ný.

## [Etur kappi við Obama og Reynolds](https://www.visir.is/g/20262924336d/etur-kappi-vid-obama-og-reynolds)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók eftir Andra Snæ Magnason, hefur verið tilnefnd til tveggja verðlauna á Jackson Wild-verðlaunahátíðinni sem hefur verið lýst sem Óskarsverðlaunum náttúrulífsmynda. Andri Snær er tilnefndur í flokki þula og etur þar kappi við Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Hollywood-stjörnuna Ryan Reynolds.

## [Leik­menn beggja liða fá bönn eftir úr­slita­leik HM](https://www.visir.is/g/20262924359d/leikmenn-beggja-lida-fa-bonn-eftir-urslitaleik-hm)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Leandro Paredes fær tíu leikja bann fyrir slagsmálin eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Leikmenn úr báðum liðum fengu leikbönn.

## [Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið](https://www.visir.is/g/20262924296d/drottningavidtal-thegar-ein-rodd-faer-svidid)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Stundum hlusta ég á viðtöl um umdeild mál í samfélaginu og velti fyrir mér hvert hlutverk spyrilsins eiginlega sé. Viðmælandi fær orðið og segir sína sögu. Það er gott og gilt. Vandinn byrjar þegar frásögn eins einstaklings fær að standa nær óáreitt, jafnvel lengi, án þess að spurt sé um það sem kann að vanta í myndina.

## [Baunað á Jónas Má þvert á flokka](https://www.visir.is/g/20262924325d/baunad-a-jonas-ma-thvert-a-flokka)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Bókað var í gríð og erg á fundi bæjarráðs Kópavogs í gær, þegar bæjarfulltrúar allra flokka nema Samfylkingar sökuðu Jónas Má Torfason, oddvita Samfylkingar, um að taka stöðu með ríkinu í stað sveitarfélagsins.

## [Fyrsta kvenna­lands­liðið í kotru býður á opna æfingu](https://www.visir.is/g/20262924354d/fyrsta-kvennalandslidid-i-kotru-bydur-a-opna-aefingu)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Fyrsta kvennalandslið Íslands í kotru (backgammon) heldur í dag opna lokaæfingu fyrir heimsmeistaramót landsliða í London í Kaffi Dal, Sundlaugavegi 34. Landsliðskonurnar ætla á viðburðinum að kenna gestum, börnum og fullorðnum, að spila spilið. Viðburðurinn er einnig fjáröflun fyrir keppnina.

## [Þungt högg fyrir Arsenal rétt fyrir mót](https://www.dv.is/433/2026/08/21/thungt-hogg-fyrir-arsenal-rett-fyrir-mot)

_2026-08-21 · DV - Nýjustu fréttir_

Bruno Guimaraes gæti misst af fyrstu vikum tímabilsins með Arsenal vegna meiðsla.

## [„Ísraelsmenn eiga að hætta þessu tafarlaust“](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-21-israelsmenn-eiga-ad-haetta-thessu-tafarlaust-484542/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að íslensk stjórnvöld taki undir með ríkjum sem segja útboð ísraelskra stjórnvalda óásættanlegt. Bretland, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Holland, Kanada og Noregur gáfu í gær út yfirlýsingu þess efnis. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem áformin mæta andstöðu í alþjóðasamfélaginu. „Ísraelsmenn eiga að hætta þessu tafarlaust. Það er alveg makalaust…

## [Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum](https://www.visir.is/g/20262924339d/geti-munad-allt-ad-tvo-thusund-kronum-a-matarkorfunni-eftir-verslunum)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Lægsta verðið á matvöru er enn að finna í Prís samkvæmt úttekt Verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var dagana 10. til 14. ágúst. Þegar verð voru borin saman í lágvöruverslununum: Bónus, Krónunni, Nettó og Prís var lægsta verðið oftast að finna í Prís.

## [Þegar náttúran verður okkur framandi](https://www.visir.is/g/20262924293d/thegar-natturan-verdur-okkur-framandi)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Hvað gerist þegar forvitið barn kemur með könguló til að sýna fullorðna fólkinu, en það bregst við með öskri og grípur dagblað að vopni? Barnið lærir ekki aðeins að köngulær séu óvelkomnar, það lærir líka að náttúran sé eitthvað sem þurfi að halda í hæfilegri fjarlægð, helst fyrir utan lokaðan glugga.

## [BBC birtir inn­slag um sögu­legt ein­vígi KR og Liver­pool](https://www.visir.is/g/20262924334d/bbc-birtir-innslag-um-sogulegt-einvigi-kr-og-liverpool)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

BBC hefur birt skemmti­legt inn­slag frá árinu 1964 þegar að KR mætti Liver­pool í Evrópu­keppni félagsliða. Kunnug­legum and­litum bregður fyrir, meðal annars Ellert B. Schram, þá leik­manni KR og Alberti Guð­munds­syni, fyrsta at­vinnu­manni Ís­lands í knatt­spyrnu.

## [Tölfræðin styður það að Marmoush myndi bæta sóknarleik Tottenham mikið](https://www.dv.is/433/2026/08/21/tolfraedin-stydur-thad-ad-marmoush-myndi-baeta-soknarleik-tottenham-mikid)

_2026-08-21 · DV - Nýjustu fréttir_

Omar Marmoush gæti veitt Tottenham mun fjölbreyttari sóknarleik ef félagið nær að fá hann frá Manchester City.Tölur Opta frá síðasta tímabili sýna að Marmoush var mun öflugri með boltann en bæði Dominic Solanke og Richarlison.

## [Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Tóm vitleysa að við höfum verið algerlega fullvalda og staðið ein og óstudd](https://www.dv.is/eyjan/2026/08/21/ingibjorg-solrun-gisladottir-tom-vitleysa-ad-vid-hofum-verid-algerlega-fullvalda)

_2026-08-21 · DV - Nýjustu fréttir_

Ísland hefur ekkert vöðvaafl og við höfum hrakist undan veðrum og vindum norður í Ballarhafi í bæði eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Við höfum alltaf þurft að vera í vari og njóta skjóls af einhverjum.

## [Mislukkuð tilraun Meghan og Harry til að komast til pólitískra metorða](https://www.dv.is/frettir/2026/08/21/mislukkud-tilraun-meghan-og-harry-til-ad-komast-til-politiskra-metorda)

_2026-08-21 · DV - Nýjustu fréttir_

Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja eiginkona hans hyggja á flutninga til Bretlands frá Bandaríkjunum ásamt börnum sínum tveimur.

## [Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningar­nótt](https://www.visir.is/g/20262924323d/afmaelistonleikar-bylgjunnar-a-menningarnott)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Fjörutíu ára afmælistónleikar Bylgjunnar verða haldnir í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Stórstjörnur líkt og Friðrik Dór, Birgitta Haukdal og Stebbi Hilmars munu stíga á svið.

## [Iraola boðar það að Liverpool kaupi leikmenn](https://www.dv.is/433/2026/08/21/iraola-bodar-thad-ad-liverpool-kaupi-leikmenn)

_2026-08-21 · DV - Nýjustu fréttir_

Andoni Iraola, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að félagið muni örugglega bæta við leikmannahópinn áður en félagaskiptaglugginn lokar 1. september.

## [Sverðaárás í framhaldsskóla í Svíþjóð](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-21-sverdaaras-i-framhaldsskola-i-svithjod-484540/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Maður réðst með sverði á fólk í framhaldsskóla í Fagersta í Svíþjóð fyrr í dag. Nokkrir eru særðir og árásarmaðurinn er í haldi lögreglu. „Árásarmaður vopnaður sverði gekk inn í Brinellskolan og særði nokkra,“ segir í yfirlýsingu frá sveitarfélaginu Fagersta. Ekki hefur komið fram hversu mörg eru særð. Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn og Aftonbladet greindi frá því að lögreglumenn hefðu…

