# hafa (blogs) — RSS Amplifier

Recent posts from the 9 feeds in the RSS Amplifier directory that cover hafa.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/hafa/blogs>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/hafa/blogs.md>

---

## [Vegleg bókagjöf til minningar um Ásgeir H Ingólfsson](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/vegleg-bokagjof-til-minningar-um-asgeir-h-ingolfsson)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Leikskólanum Lundarseli-Pálmholti hefur borist einstaklega vegleg bókagjöf frá Hrefnu Hjálmarsdóttur leikskólakennara til minningar um son hennar Ásgeir H Ingólfsson.

## [Orkan hefur safnað 83 tonnum af garðúrgangi](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/orkan-hefur-safnad-83-tonnum-af-gardurgangi)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Síðastliðin fimm ár hefur Orkan boðið viðskiptavinum sínum upp á að losa garðúrgang sér að kostnaðarlausu á völdum Orkustöðvum í sérstökum móttöku gámum og hafa gámarnir notið mikilla vinsælda. Í upphafi voru gámar á fjórum staðsetningum á suðvesturhorninu en í fyrra bættist Orkustöðin á Mýrarvegi á Akureyri við. Frá árinu 2021 hefur 83,1 tonn af garðúrgangi safnast í móttökugámunum á fimm…

## [Jón Þór Kristjánsson ráðinn verkefnastjóri upplýsingamiðlunar hjá Samherja](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/jon-thor-kristjansson-radinn-verkefnastjori-upplysingamidlunar-hja-samherja)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Jón Þór Kristjánsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri upplýsingamiðlunar hjá Samherja.

## [Kvíði frá sjónarhorni barna.](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/kvidi-fra-sjonarhorni-barna)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Kvíðinn passar upp á sjálfan sig: Eðluheilinn Kvíði er eðlilegt ástand sem flestir upplifa reglulega. Í grunninn er eini tilgangur kvíðans að passa upp á öryggi okkar. Það má segja að kjarni kvíðans sé óttaviðbragðið sem er rótgróið í taugakerfinu og birtist í líkama okkar, hegðun og hugsunum. Það svæði í heilanum sem stjórnar óttaviðbragðinu er stundum kallað eðluheilinn vegna þess að talið er að…

## [Starfsemi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra verði óskert til áramóta](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/starfsemi-heilbrigdiseftirlits-nordurlands-eystra-verdi-oskert-til-aramota)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Stjórn SSNE leggur áherslu á mikilvægi þess að starfsemi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra verði óskert til loka þessa árs, 2026 og að hagsmunir starfsfólks verði tryggðir. Einnig að skýrt liggi fyrir hvaða verkefni verða áfram á ábyrgð sveitarfélaga. Fyrirhugað er að leggja HNE í núverandi mynd um komandi áramót eða frá og með1. janúar 2027.

## [Beint frá býlidagurinn haldinn í Syðra Holti í Svarfaðardal](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/beint-fra-bylidagurinn-haldinn-i-sydra-holti-i-svarfadardal)

_2026-08-21 · Vikublaðið_

Það verður líf og fjör í Syðra Holti í Svarfaðardal á sunnudaginn, 23. Ágúst en frá kl. 13 til 16 taka ábúendur á móti gestum í tilefni af Beint frá býli deginum sem haldin verður hátíðlegum um land allt. Eitt býli í hverjum landsfjórðungi opnar dyr sínar fyrir gestum og gangandi og kynnir framleiðslu sína.

## [Kona ákærð fyrir að skipuleggja sprengjutilræði gegn stjórnarbyggingum í New York](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-21-kona-akaerd-fyrir-ad-skipuleggja-sprengjutilraedi-gegn-stjornarbyggingum-i-new-york-484488/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Jessica Bowie er 35 ára bandarísk kona sem hefur verið ákærð fyrir brot á hryðjuverkalögum eftir að hún tjáði uppljóstrara alríkislögreglunnar að hún ætlaði sér að gera sprengjutilræði gegn aðsetri löggjafarþings og ríkisstjórnar New York-ríkis. Það er í borginni Albany, skammt frá landamærunum að Kanada. Samkvæmt dómsskjölum er Bowie ákærð fyrir tilraun til að veita tilteknum, erlendum…

## [Rúmlega 2500 laxar á land](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23042)

_2026-08-20 · Húnahornið_

Miðfjarðará rauf þúsund laxa múrinn í vikunni og hafa 1.080 laxar veiðst í ánni sem af er sumri. Á sama tíma í fyrra voru 770 laxar komnir á land. Blanda er komin í 415 laxa en í fyrra veiddust aðeins 54 laxar í ánni og munar um minna. Laxá á Ásum er komin í 333 laxa sem er svipuð veiði og á sama tíma í fyrra. Víðidalsá stendur í 291 laxi og Vatnsdalsá í 235 löxum og eru báðar árnar að gera betur…

## [Viltu minni verðbólgu og lægri vexti?](http://www.huni.is/index.php?pid=58&cid=23043)

_2026-08-20 · Húnahornið_

Frá því að fyrstu fjárlög núverandi ríkisstjórnar tóku gildi um síðustu áramót hefur verðbólgan farið vaxandi og stýrivextir hækkað. Fram að því fóru vextir lækkandi á grundvelli fjárlaga síðustu stjórnar. Ríkisstjórnin hefur ítrekað tekið ákvarðanir frá áramótum sem hafa stuðlað að aukinni verðbólgu og hefur sama og ekkert gert til þess að forða því að kjarasamningar verði í uppnámi síðar í…

## [Efla á atvinnutækifæri fyrir fólk á Skagaströnd sem er með skerta starfsgetu](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23041)

_2026-08-20 · Húnahornið_

Sveitarstjórn Skagastrandar ætlar að hefja markvissa vinnu við að fjölga atvinnutækifærum fyrir fólk með skerta starfsgetu í sveitarfélaginu. Málið var lagt fram nýverið í sveitarstjórn af K‑listanum en á sveitarstjórnarfundi í gær var lögð fram breytingartillaga þess efnis að ekki yrði sett fram sérstök tímasett aðgerðaráætlun, heldur yrði unnið áfram með reglulegri endurgjöf. Sú tillaga var…

## [Every Channel. One Login. (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/yCT8PPJDU9IH)

_2026-08-20 · **Sponsored**_

17,000+ live channels, movies and sports on any device. Free trial, no IP lock.

## [Skagaströnd verði heilsueflandi samfélag](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23040)

_2026-08-20 · Húnahornið_

Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að fela sveitarstjóra og varaoddvita að hefja undirbúning og sækja um fyrir hönd sveitarfélagsins þátttöku í verkefninu Heilsueflandi samfélag. Verkefnið er unnið í samstarfi við Embætti landlæknis og hefur víða reynst mikilvægt tæki til að efla lýðheilsu, styrkja forvarnir og samræma starf ólíkra aðila innan samfélagsins. Tillagan kom frá Framsókn og…

## [Skýr skilboð &#8211; andstaða við múslima hefur ekkert með húðlit að gera](https://www.nutiminn.is/forsida/skyr-skilbod-andstada-vid-muslima-hefur-ekkert-med-hudlit-ad-gera/)

_2026-08-20 · Jón Einarsson Þormar Pálsson · Nútíminn_

Þetta meiðyrðamál sem Morten Messerschmidt hefur ákveðið að höfða gegn formanni Radikale Venstre, Martin Lidegaard er nauðsynlegt. Húðlitur er afar mikilvægur í fórnarlambshugsun vinstrisins. Þau velta sér upp úr „brúnum“, „hvítum“ og „svörtum.“ Andstaða borgaralegra afla við íslam hefur hins vegar ekkert með húðlit múslima að gera. Þetta skrifar Lars Kaaber, ritstjóri Kontrast. Í…

## [Fullfermi í fyrsta túr sem skipstjóri](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/fullfermi-i-fyrsta-tur-sem-skipstjori-1)

_2026-08-20 · Vikublaðið_

Togari Samherja, Harðbakur EA 3, landaði í gærkvöld fullfermi sem fer til vinnslu í landvinnslum félagsins á Akureyri og Dalvík. Skipstjóri var Lýður Valgeir Jóhannesson og var þetta hans fyrsta veiðiferð sem skipstjóri. Lýður útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 2010 og hefur flest árin eftir nám starfað hjá Samherja, þar af undanfarin fimm ár sem fyrsti stýrimaður á Harðbak.

## [Vísnapopp, vélbyssudiskó og víkingamálmur](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-20-visnapopp-velbyssudisko-og-vikingamalmur-484223/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sísý Ey – Up Close Íslenska dans- og hús-hljómsveitin Sísý Ey sem er skipuð systrunum Elínu, Elísabetu og Siggu Eyþórsdætrum, ásamt tónlistarmanninum Friðfinni Oculus tilkynnir um endurkomu sína með nýju lagi. Lagið heitir Up Close og kom út 14. ágúst og er það fyrsta frá genginu í 10 ár. Undiraldan fimmtudaginn 20. ágúst Að venju er fjölbreytnin við völd í Undiröldunni. Við fáum allt frá…

## [Fyrsti skóladagurinn á nýrri önn](https://www.mtr.is/is/skolinn/frettir/fyrsti-skoladagurinn-a-nyrri-onn)

_2026-08-20 · Menntaskólinn á Tröllaskaga_

Þá er skólastarfið hafið á ný eftir gott sumarfrí. Fyrsti nemendadagurinn var í gær og var ánægjulegt að sjá okkar unga og efnilega fólk flykkjast í skólann tilbúið að takast á við fyrstu verkefni annarinnar. Nýnemar, í hópi staðnema, eru fleiri en síðustu annir og mátti vel merkja blöndu af tilhlökkun og kvíða meðal þeirra sem eðlilegt er á fyrsta degi. Eldri nemendur gengu til sinna verka af…

## [Breska ríkið útskýrir fyrir hælisleitendum að ekki megi nauðga, stjórna konum eða stunda kynlíf með börnum](https://www.nutiminn.is/forsida/breska-rikid-utskyrir-fyrir-haelisleitendum-ad-ekki-megi-naudga-stjorna-konum-eda-stunda-kynlif-med-bornum/)

_2026-08-20 · Jón Einarsson Þormar Pálsson · Nútíminn_

Breska innanríkisráðuneytið gaf á miðvikudag út nýjan leiðbeiningabækling fyrir hælisleitendur þar sem farið er yfir lög, samfélagsleg viðmið og þá hegðun sem ætlast er til af fólki sem býr í Bretlandi. Í bæklingnum, Understanding behaviours and expectations in the UK: a guide for asylum seekers, er meðal annars útskýrt að karlar og konur hafi jafnan \[…\] Greinin Breska ríkið útskýrir fyrir…

## [„Það er greinilegt að Venesúela hefur alltaf verið til á Íslandi og öfugt“](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-20-thad-er-greinilegt-ad-venesuela-hefur-alltaf-verid-til-a-islandi-og-ofugt-484327/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Gauti Kristmannsson skrifar: Það hljóta að teljast tíðindi að komin sé út fyrsta bókin frá Venesúela sem þýdd hefur verið á íslensku, bók eftir skáldkonuna Teresu de la Parra sem uppi var á fyrri hluta 20. aldar. Kannski ekki skrýtið þegar hugsað er til þess hve lítil samskipti Íslendinga og Venesúela voru áður fyrr. Ég hitti fyrst manneskju frá Venesúela fyrir 30 árum þegar ég var í námi við…

## [Hundrað ár frá fyrstu sinfóníutónleikum á Íslandi](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-20-hundrad-ar-fra-fyrstu-sinfoniutonleikum-a-islandi-484356/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Heimsókn Fílharmóníusveitar Hamborgar til Íslands árið 1926 var einn merkasti viðburður íslenskrar tónlistarsögu. Jón Leifs átti frumkvæði að heimsókninni, en hann starfaði sem tónskáld og hljómsveitarstjóri í Þýskalandi. Kona hans, Annie Leifs, var mjög fær píanóleikari og kom með hljómsveitinni sem einleikari. Heinesen notaði tónleikana sem efni í skáldsögu Fyrir utan þá fáu Íslendinga sem höfðu…

## [Diljá segir Evrópuþingið hafa farið í herferð gegn flokkum sem því líkaði ekki við &#8211; „Ótrúlega andlýðræðislegt apparat“](https://www.nutiminn.is/forsida/dilja-segir-evroputhingid-hafa-farid-i-herferd-gegn-flokkum-sem-thvi-likadi-ekki-vid-otrulega-andlydraedislegt-apparat/)

_2026-08-20 · Jón Einarsson Þormar Pálsson · Nútíminn_

Diljá Mist Einarsdóttir segir að starfsmaður Evrópuþingsins hafi kynnt fyrir henni og Arndísi Önnu Kristínardóttur, áform um kosningaherferð sem meðal annars ætti að vinna gegn fylgi „popúlískra flokka“ í Evrópu. Diljá sagði frá þessu í viðtali við Þórarin Hjartarson í hlaðvarpinu Ein Pæling þar sem rætt var um mikla fylgisaukningu AfD í Þýskalandi en hann \[…\] Greinin Diljá segir Evrópuþingið hafa…

## [Hvað þýðir Já fyrir bændur?](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/hvad-thydir-ja-fyrir-baendur)

_2026-08-20 · Vikublaðið_

Í kosningunum 29. ágúst nk. munu landsmenn taka afstöðu til þess hvort hefja skuli aðildarferli að ESB. Eðlilegast væri að meta þá ákvörðun fyrst og fremst út frá þjóðhagslegum þáttum; hvort hag Íslands væri betur borgið innan ESB eða utan þess.

## [Trade Bitcoin and Ethereum Today (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/0cn9lO8NbJmU)

_2026-08-20 · **Sponsored**_

Buy, sell, and margin trade BTC and ETH with EUR, USD, CAD, GBP, or JPY.

## [Góð aðsókn að framhaldsskólum á Akureyri](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/god-adsokn-ad-framhaldsskolum-a-akureyri)

_2026-08-20 · Vikublaðið_

Aðsókn að framhaldsskólum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri og Verkmenntaskólanum á Akureyri er mjög góð. Nýtt skólaár hófst nú fyrr í vikunni.

## [„Nú á að klappa þeim aldurhnigna herra sem ég er orðinn“](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-20-nu-a-ad-klappa-theim-aldurhnigna-herra-sem-eg-er-ordinn-484345/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Jazzhátíð Reykjavíkur fer fram 25.-30. ágúst. Á lokadegi hátíðarinnar sunnudaginn 30. ágúst kl 16 kemur saman fjöldi listamanna í Kirkju óháða safnaðarins við Háteigsveg og syngur og leikur lög eftir Tómas R. Einarsson kontrabassaleikara og tónskáld. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir ræddi við hann um ferilinn í þættinum Segðu mér á Rás 1. Varar sig í umgengni við pólitík Á einhverjum tímapunkti…

## [Tilkynntur til barnaverndar vegna myndar af sér og syni sínum á veiðum &#8211; „Mér finnst það galið“](https://www.nutiminn.is/featured/tilkynntur-til-barnaverndar-vegna-myndar-af-ser-og-syni-sinum-a-veidum-mer-finnst-thad-galid/)

_2026-08-20 · Jón Einarsson Þormar Pálsson · Nútíminn_

Ragnar Þór Jóhannsson segist hafa verið tilkynntur til barnaverndar vegna myndar sem tekin var af honum og syni hans í Elliðaey þar sem þeir voru saman við veiðar. Á myndinni sjást feðgarnir úti í náttúrunni í veiðifatnaði. Ragnar segir að þeir hafi stillt sér upp fyrir mynd á meðan þeir gengu um eyjuna og hafi \[…\] Greinin Tilkynntur til barnaverndar vegna myndar af sér og syni sínum á veiðum –…

## [Tap fyrir toppliðinu](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23039)

_2026-08-19 · Húnahornið_

Kormákur Hvöt náði ekki að sigra topplið Hauka á Blönduósvelli í kvöld en þá var leikið í 2. deild á Íslandsmóti karla í fótbolta. Gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörkin leiksins á 10. mínútu og 18. mínútu en Guzman Díaz Scarone minnkaði muninn fyrir heimamenn á 24. mínútu. Hvorugt liðið náði að skora fleiri mörk og endaði leikurinn því með sigri Hauka 2-1. Þetta var annar tapleikur Kormáks Hvatar í…

## [Snærós dregur rauða línu í ESB-viðræðum: „Ef þetta er ekki hægt þá getum við bara ekkert haldið áfram“](https://www.nutiminn.is/forsida/vid-myndum-finna-betur-fyrir-thvi-ad-vera-rik-thjod-framkvaemdastjori-evropuhreyfingarinnar-segir-adild-geta-faert-islendingum-laegri-vexti-aukna-samkeppni-og-meiri-efnahagslegan/)

_2026-08-19 · Frosti · Nútíminn_

Framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar vill að undanþága frá frjálsum flutningi lifandi dýra verði fyrsta prófraunin í Brussel og segir ekkert vit í að halda aðildarviðræðum áfram ef Evrópusambandið fellst ekki á slíka kröfu. Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, vill að mögulegar aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið hefjist á afdráttarlausri kröfu um undanþágu frá…

## [Ungar vonarstjörnur hvetja klassíka hljóðfæraleikara til að fylgja ekki alltaf fyrirmælum](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-19-ungar-vonarstjornur-hvetja-klassika-hljodfaeraleikara-til-ad-fylgja-ekki-alltaf-fyrirmaelum-484246/)

_2026-08-19 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ásta Dóra og María Qing hafa náð langt í klassískri tónlist þrátt fyrir ungan aldur. Ásta Dóra stundar píanónám við Curtis í Bandaríkjunum, einn virtasta tónlistarháskóla heims, og María er eftirsóttur sellisti í Þýskalandi þar sem hún er búsett. Í sumar hafa þær leikið saman kammertónlist í sumartónleikaröð sem lýkur í Hannesarholti í kvöld. Ein skilaboð urðu að tónleikaröð Leiðir Ástu Dóru og…

## [Harmageddon &#124; Hinn raunverulegi kostnaður við aðildarviðræður við ESB](https://www.nutiminn.is/brotkast/harmageddon-hinn-raunverulegi-kostnadur-vid-adildarvidraedur-vid-esb/)

_2026-08-19 · Brotkast · Nútíminn_

Harmageddon Því er gjarnan haldið fram að aðildarviðræður við Evrópusambandið séu aðeins saklaus leið til að „kíkja í pakkann“. En viðræðurnar eru hvorki hlutlaus könnunarferð né ókeypis. Þær eru umfangsmikið pólitískt og stjórnsýslulegt ferli sem hefur eitt skýrt lokamarkmið: fulla aðild Íslands að ESB. Í Harmageddon förum við yfir kostnaðinn við slíkt ferli, skortinn á \[…\] Greinin Harmageddon |…

## [Félag spænskra lögreglumanna segir kynferðisbrot daglegt brauð í Ceuta &#8211; Vargöld ríkir í borginni](https://www.nutiminn.is/forsida/felag-spaenskra-logreglumanna-segir-kynferdisbrot-daglegt-braud-i-ceuta-vargold-rikir-i-borginni/)

_2026-08-19 · Jón Einarsson Þormar Pálsson · Nútíminn_

Félag spænskra lögreglumanna, JUPOL, segir mikinn fjölda kynferðisbrota hafa átt sér stað í Ceuta eftir innrásina í borgina þar sem tugþúsundir manna frá Marokkó ruddust inn í borgina. Félagið varar við því að slíkar árásir muni halda áfram daglega verði ekki gripið til aðgerða og svo virðist sem algert úrræðaleysi ríki í borginni. JUPOL segir \[…\] Greinin Félag spænskra lögreglumanna segir…

## [Ný framtíðarsýn fyrir Hofsbót](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/ny-framtidarsyn-fyrir-hofsbot)

_2026-08-19 · Vikublaðið_

Akureyrarbær hefur kynnt nýja tillögu að breytingu á deiliskipulagi við Hofsbót 1-3. Tillagan er liður í áframhaldandi þróun miðbæjarins og markar mikilvægt skref í þeirri framtíðarsýn að efla mannlíf, þjónustu og aðdráttarafl miðbæjarins. Frá þessu segir á vef Akureyrarbæjar.

## [Þrír úr sömu fjölskyldu létust í sjóslysi &#8211; Ung stúlka í lífshættu](https://www.nutiminn.is/forsida/thrir-ur-somu-fjolskyldu-letust-i-sjoslysi-ung-stulka-i-lifshaettu/)

_2026-08-19 · Jón Einarsson Þormar Pálsson · Nútíminn_

Þrír úr sömu fjölskyldu létust og ung stúlka berst fyrir lífi sínu eftir að fjölskyldan lenti í erfiðleikum í sjónum við Shoreham-by-Sea á suðurströnd Englands síðdegis á þriðjudag. Karlmaður, kona og unglingsstúlka létust þrátt fyrir umfangsmiklar björgunartilraunir. Yngri stúlka var flutt alvarlega slösuð á sjúkrahús og er hún sögð í lífshættu. Foreldrarnir reyndu að bjarga \[…\] Greinin Þrír úr…

## [Open directory of blogs (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/BhlZbnJOp1c3)

_2026-08-19 · **Sponsored**_

Drop URLs or OPML — get per-blog pages plus machine-readable JSON, OPML, text

## [Festi bætist við hóp öflugra bakhjarla Driftar EA](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/festi-baetist-vid-hop-oflugra-bakhjarla-driftar-ea)

_2026-08-19 · Vikublaðið_

Festi hefur gerst bakhjarl Driftar EA og bæst í hóp öflugra fyrirtækja sem styðja við uppbyggingu nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á Norðurlandi. Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi og Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA, undirrituðu samstarfssamning þess efnis á dögunum.

## [Spjallið með Frosta Logasyni &#124; „Við myndum finna betur fyrir því að vera rík þjóð í ESB“](https://www.nutiminn.is/brotkast/spjallid-med-frosta-logasyni-vid-myndum-finna-betur-fyrir-thvi-ad-vera-rik-thjod-i-esb/)

_2026-08-19 · Brotkast · Nútíminn_

Spjallið með Frosta Logasyni Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, mætir í ítarlegt og beinskeytt samtal um Evrópusambandið og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Snærós telur að Íslendingar eigi að segja já við áframhaldandi aðildarviðræðum. Með því sé ekki verið að samþykkja inngöngu í Evrópusambandið heldur kaupa þjóðinni tíma til að fá skýrari svör, sjá mögulegan…

## [Tveir farþegar settir á bið hjá Icelandair þrátt fyrir keypt sæti &#8211; „Óþarfa kvíði og stress“](https://www.nutiminn.is/forsida/tveir-farthegar-settir-a-bid-hja-icelandair-thratt-fyrir-keypt-saeti-otharfa-kvidi-og-stress/)

_2026-08-19 · Jón Einarsson Þormar Pálsson · Nútíminn_

Tveir íslenskir farþegar á sitt hvorri bókuninni hafa verið settir á bið hjá Icelandair á leið frá Alicante til Keflavíkur þrátt fyrir að flugmiðarnir hafi verið keyptir með margra mánaða fyrirvara og sæti pöntuð með ferðunum. Málið vakti athygli í Facebook hópnum Íslendingar á Spáni Costa Blanca á þriðjudagskvöld. Annar farþeganna, sem er nýorðinn 18 \[…\] Greinin Tveir farþegar settir á bið hjá…

## [„Hann skrifaði lokakaflann sjálfur“](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-19-hann-skrifadi-lokakaflann-sjalfur-484232/)

_2026-08-19 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Auður H. Ingólfsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur hefur alla tíð haft mikinn áhuga á heiminum. Leið hennar í alþjóðamálin hefur því lengi verið greið. „Sem lítil stelpa var ég mikið að skrifa addressuna mína Auður, heimilið, Ísland, Evrópa, sólkerfið. Ég var óþreyjufull að skoða þennan heim. Mér fannst ég vera að springa,“ segir Auður. Hún var gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttir í þættinum…

## [Trommuleikarinn Frank Beard úr ZZ Top er látinn](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-19-trommuleikarinn-frank-beard-ur-zz-top-er-latinn-484274/)

_2026-08-19 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Bandaríski trommuleikarinn Frank Beard er látinn, 77 ára að aldri. Hann þandi húðirnar fyrir rokksveitina ZZ Top árum saman. Beard hafði lengi glímt við heilsufarsvanda og lést á búgarði sínum í Texas. Hljómsveitin segist í tilkynningu á Facebook hafa misst góðan vin og samstarfsmann og að veröldin hefði misst einhvern hugmyndaríkasta trommara heims, sannan son Texasríkis. ZZ Top hefur aflýst…

## [Stökuspjall: Nú ber Mælihnjúk hátt](http://www.huni.is/index.php?pid=58&cid=23037)

_2026-08-18 · Húnahornið_

Góða messu á Mælifelli/ og móttökurnar þökkum vér. Sælugeislum sínum helli / ​sólin yfir staðinn hér. SBE. Stólinn bælir stundargestur / stakk við hæl á svellinu. Engan fælir Ágúst prestur / undan Mælifellinu. RBS. Mælifellskirkja er orðin aldargömul og afmælishátíð í vændum þar og í Árgarði um næstu helgi, þetta frétti ég síðastliðinn sunnudag vestur í Dagverðarnesi v/Hvammsfjörð, en þar var…

## [ABC kærir fjarskiptastofnun Bandaríkjanna](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-18-abc-kaerir-fjarskiptastofnun-bandarikjanna-484256/)

_2026-08-18 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sjónvarpsstöðin ABC kærði fjarskiptastofnun Bandaríkjanna, FCC, í dag fyrir meintar hótanir í garð fyrirtækisins. Í kærunni er stofnuninni gefið að sök að hafa, að undirlagi Donalds Trumps forseta, hótað að afturkalla útsendingarleyfi stöðvarinnar vegna ósættis við efnistök í dagskrá. FCC krafði ABC, sem er í eigu Disney-samsteypunnar, um að endurnýja leyfi sín fyrr en til stóð. Trump hefur…

## [Handtaka og gæsluvarðhald eftir umferðareftirlit á Norðurlandi vestra](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23036)

_2026-08-18 · Húnahornið_

Við hefðbundið umferðareftirlit síðastliðið fimmtudagskvöld stöðvaði lögreglan á Norðurlandi vestra bifreið á suðurleið vegna gruns um of hraðan akstur en í henni voru þrír erlendir ríkisborgarar. Ökumaður framvísaði ökuskírteini, en ekki var unnt að staðfesta hverjir hinir farþegarnir voru þar sem þeir kváðust ekki vera með skilríki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi…

## [Stebbi JAK með útgáfutónleika á Húsavík og Akureyri](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/enginn-titill-56)

_2026-08-18 · Vikublaðið_

Stebbi JAK gefur nú út sína aðra sólóplötu og blæs til glæsilegra útgáfutónleika í Samkomuhúsinu á Húsavík n.k. fimmtudagskvöld 20. ágúst og á Græna hattinum föstudagskvöldið 21 ágúst. Tónleikarnir hefjast í báðum tilfellum klukkan 21:00.

## [Nýr leikskóli tekur til starfa á Akureyri í næstu viku](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/nyr-leikskoli-tekur-til-starfa-a-akureyri-i-naestu-viku)

_2026-08-18 · Vikublaðið_

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri heimsótti í morgun starfsfólk nýja leikskólans Hagasteins við Naustagötu. Þar eru nú allir í óða önn að undirbúa opnun skólans í næstu viku.

## [Eigendur ferðavagna við grunnskóla athugið](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/eigendur-ferdavagna-vid-grunnskola-athugid)

_2026-08-18 · Vikublaðið_

Nú er starf í grunnskólum að hefjast og þeim tilmælum er beint til eigenda ferðavagna að fjarlægja þá af bílastæðum við skólana.

## [Ákvörðun Trumps áróðurssigur fyrir Norður-Kóreu](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-18-akvordun-trumps-arodurssigur-fyrir-nordur-koreu-484205/)

_2026-08-18 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ákvörðun Bandaríkjaforseta að draga úr sameiginlegum heræfingum með Suður-Kóreu grefur undan áratuga sambandi ríkjanna tveggja. Bandarískur öldungadeildarþingmaður segir þetta áróðurssigur fyrir Norður-Kóreu. Bandaríkjaher segir Norður-Kóreu hafa prófað langdrægar skotflaugar sem geta ferðast milli heimsálfa og borið kjarnavopn með góðum árangri. Vill fulla stjórn yfir suður-kóreska hernum…

## [„Frænka mín hélt að þú hefðir sagt nei“](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-18-fraenka-min-helt-ad-thu-hefdir-sagt-nei-484147/)

_2026-08-18 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Margrét Arnardóttir og Mikkel Odu gengu í hjónaband í Tékklandi í fyrrasumar. Mikkel er tékkneskur en hjónin búa á Íslandi. Margrét er harmonikkuleikari en Mikkel er myndlistarmaður og hreyfimyndahönnuður með mikinn áhuga á fuglum. „Ég er að mála litlar myndir með fuglum og er fuglamanneskja. Ég elska fuglana. Himbrimi er uppáhalds,“ segir Mikkel. Þau sögðu Arnhildi Hálfdánardóttur og Guðrúnu…

## [Umsóknarfrestur Skúnaskralls framlengdur](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23035)

_2026-08-18 · Húnahornið_

Búið er að framlengja umsóknarfrest vegna Skúnaskralls - barnamenningarhátíðar Norðurlands vestra, en tekið verður við umsóknum til og með 24. ágúst. Eins og vonandi öllum er kunnugt mun barnamenningarhátíðin Skúnaskrall fara fram dagana 21. október til 4. nóvember 2026 undir yfirskriftinni Öll saman. Hátíðin er haldin á vegum SSNV í góðu samstarfi við sveitarfélögin á Norðurlandi vestra og er…

## [Vatnshæð í sögulegu lágmarki í tveimur stærstu uppistöðulónum](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-18-vatnshaed-i-sogulegu-lagmarki-i-tveimur-staerstu-uppistodulonum-484199/)

_2026-08-18 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Tvö stærstu uppistöðulón í Bandaríkjunum hafa aldrei verið jafn vatnslítil, eftir mikla þurrkatíð í vesturhluta Bandaríkjanna. Loftslagsbreytingar hafa valdið því að vatn í Colarado-á mælist sögulega lítið. Áin rennur í bæði Powell-vatn og Mead-vatn sem eru tvö stærstu uppistöðulón í Bandaríkjunum og sjá 40 milljónum manna fyrir vatni og rafmagni. Lækki vatnsborð enn frekar gæti það haft áhrif á…

## [Það er á ábyrgð samfélagsins að grípa hinsegin ungmenni](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-18-thad-er-a-abyrgd-samfelagsins-ad-gripa-hinsegin-ungmenni-483959/)

_2026-08-18 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

„Við þurfum meiri stuðning en fólk gerir sér grein fyrir,“ segir Snæ Humadóttir sem er 17 ára og hefur verið á vettvangi hinsegin félagsmiðstöðva fyrir ungmenni í nokkur ár. Snæ flutti hátíðarræðu Hinsegin daga í ár og sendi í henni ákall til fullorðna fólksins um að berjast fyrir tilverurétti hinsegin ungmenna og leyfa þeim að vera áfram börn. „Það er ekki bara að segja að fólki sé sama, „mér er…

## [Hljómsveitin Eva fékk alla í diskódans](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-17-hljomsveitin-eva-fekk-alla-i-diskodans-483350/)

_2026-08-17 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sigríður Eir og Vala Höskulds, sem skipa hljómsveitina Evu, fluttu lagið Ást. Það er úr sviðsverki sem þær settu upp í Tjarnarbíói í fyrra. Verkið nefnist Kosmískt skítamix og fjallar á kaldhæðnislegan hátt um hljómsveit sem var einu sinni upprennandi en þarf nú að horfast í augu við raunveruleikann. Páll Óskar kemur óvænt inn í lok lagsins sem er mikill diskósmellur. Gestir þáttarins lærðu lítinn…

## [Moses Hightower í Krúttinu 23. ágúst](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23034)

_2026-08-17 · Húnahornið_

Í ágúst og september ætlar hljómsveitin Moses Hightower að vera víða við fimmta mann og spila sig í fyrsta sinn hringinn í kringum landið í einni rispu. Það verður allt að frétta; glóðvolg nýútkomin plata í farteskinu og ennþá nýrri lög af annarri í smíðum á prógramminu. Hljómsveiting kemur auðvitað við í Krúttinu á Blönduósi og það verður sunnudaginn 23. ágúst klukkan 16.

## [Beiðni Trumps um endurupptöku í máli E. Jean Carroll hafnað í annað sinn](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-17-beidni-trumps-um-endurupptoku-i-mali-e-jean-carroll-hafnad-i-annad-sinn-484163/)

_2026-08-17 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur aftur hafnað beiðni Donald Trump um endurupptöku í máli rithöfundarins E. Jean Carrol. Trump var árið 2023 dæmdur fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn Carrol og fyrir ærumeiðingar í hennar garð. Þetta er í annað sinn sem Hæstiréttur hafnar beiðni Trumps um endurskoðun málsins. Í júní hafnaði Hæstiréttur Bandaríkjanna beiðni Trumps um endurupptöku en honum var…

## [Sýning Myndlistarfélagsins í Hofi](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/syning-myndlistarfelagsins-i-hofi)

_2026-08-17 · Vikublaðið_

Nú stendur yfir glæsileg sýning í Hofi þar sem sextíu og einn félagi í Myndlistarfélaginu á Akureyri sýnir verk sín. Sýningin gefur innsýn í persónulegan og margslunginn myndheim þar sem tekist er á við flókinn veruleika með fjölbreyttum tjáningarformum myndlistarinnar.

