# hún (news sources) — RSS Amplifier

Recent posts from the 3 feeds in the RSS Amplifier directory that cover hún.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/h%C3%BAn/news>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/h%C3%BAn/news.md>

---

## [Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd](https://www.visir.is/g/20262924963d/vaxtaakvordunin-hafi-ekki-verid-raedd)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Þorgerður Katrín Guðmundsdóttir fundaði með Ásgeiri Jónssyni skömmu fyrir vaxtahækkunarákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans í síðustu viku. Aðstoðarmaður Þorgerðar segir vaxtaákvörðunina ekki hafa verið rædda á fundi þeirra.

## [Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City](https://www.visir.is/g/20262924957d/lidsfelagi-hakonar-a-leidinni-til-city)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Manchester City hefur náð samkomulagi við Lille um kaup á fransk-marokkóska miðjumanninum Ayyoub Bouaddi. Hann kemur til félagsins fyrir um 95 milljónir evra og er ætlað að leysa Spánverjann Rodri af hólmi.

## [Gagn­rýnir við­bragð lög­reglu eftir á­hlaup ung­menna](https://www.visir.is/g/20262924956d/gagnrynir-vidbragd-logreglu-eftir-ahlaup-ungmenna)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Forsvarsmenn veitinga- og skemmtistaðarins Priksins við Bankastræti í Reykjavík gagnrýna vinnubrögð lögreglu þegar staðnum var lokað í gær vegna áhlaups ungmenna. Viðbragð lögreglu hafi verið brot gegn meðalhófsreglu. Veitingastaðnum Gömlu Reykjavík við Austurvöll var einnig lokað.

## [ÍA - FH | Heldur sigur­ganga Skagamanna á­fram eða nær FH vopnum á ný?](https://www.visir.is/g/20262924292d/ia-fh-heldur-sigurganga-skagamanna-afram-eda-naer-fh-vopnum-a-ny-)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

ÍA tekur á móti FH í 20. umferð Bestu deildar karla.

## [Kefla­vík - ÍBV | Heima­menn vilja halda sér í efri hlutanum](https://www.visir.is/g/20262924306d/keflavik-ibv-heimamenn-vilja-halda-ser-i-efri-hlutanum)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Keflavík tekur á móti ÍBV í 20. umferð Bestu deildar karla.

## [KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan?](https://www.visir.is/g/20262924312d/ka-kr-hvad-gerir-eidur-smari-i-nyju-starfi-fyrir-nordan-)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

KA er með nýjan þjálfara við stjórnvölinn í leik liðsins gegn KR í 20. umferð Bestu deildar karla.

## [Stjarnan - Þór | Nýir menn við stjórn­völinn hjá Stjörnunni](https://www.visir.is/g/20262924298d/stjarnan-thor-nyir-menn-vid-stjornvolinn-hja-stjornunni)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Stjarnan mætir með nýtt þjálfarateymi þegar liðið tekur á móti Þór i 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta.

## [Ísak skoraði og klúðraði víti í ís­lenskum nýliðaslag](https://www.visir.is/g/20262924954d/isak-skoradi-og-kludradi-viti-i-islenskum-nylidaslag)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Ísak Snær Þorvaldsson skoraði mark Lyngby en klúðraði líka vítaspyrnu í 2-1 tapi á útivelli gegn Horsens í nýliðaslag Íslendingaliðanna í 5. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar.

## [Ráð­herra byrjar með hlaðvarp](https://www.visir.is/g/20262924948d/radherra-byrjar-med-hladvarp)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, er byrjaður með hlaðvarp. Hlaðvarpið heitir Sjónarhorn. Annar þingmaður flokksins er einnig með hlaðvarp og flokkurinn sjálfur rekur hlaðvarp þar sem iðulega er rætt við þingmenn flokksins.

## [Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Banda­ríkjunum](https://www.visir.is/g/20262924941d/kanada-vilji-fridindi-thess-ad-vera-hluti-af-bandarikjunum)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Kanada vilja njóta allra þeirra fríðinda sem fylgir því að vera ríki Bandaríkjanna án þess að vera það. Kanadamenn segja þau skilyrði sem Bandaríkin lögðu fram vera óásættanleg.

## [One platform, from silicon to agent (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/MlTUENAiLyT4)

_2026-08-23 · **Sponsored**_

Serverless inference plus Inference Router to optimize cost and latency at scale.

## [Norris náði öðrum sigri](https://www.visir.is/g/20262924943d/norris-nadi-odrum-sigri)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Lando Norris hjá McLaren stóð uppi sem sigurvegari í Formúlu 1 kappakstrinum í Hollandi. Hann hefur nú unnið tvær keppnir í röð og minnkað forystu Kimi Antonelli hjá Mercedes í efsta sæti heimslistans.

## [„Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“](https://www.visir.is/g/20262924773d/-their-badu-um-of-mikid-og-budu-of-litid-)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Forsætisráðherra Kanada hefur sagt að bylgju bandarískra tolla á landið sé ætlað að „skaða og sundra okkur“, eftir að viðskiptaviðræður fóru út um þúfur á dögunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað tilkynnt nýja íþyngjandi tolla og nú hefur forsætisráðherrann sagst ætla að jafna bandaríska tolla „dollara fyrir dollara“ frá og með 8. september.

## [Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ó­gilt](https://www.visir.is/g/20262924720d/vesen-hja-palace-mateta-heldur-thvi-fram-ad-lokaar-samningsins-se-ogilt)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Jean-Philippe Mateta, framherji Crystal Palace, heldur því fram að lokaár samnings síns við félagið sé ógilt. Hann fór með málið til Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA.

## [Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata](https://www.visir.is/g/20262924774d/er-marta-kos-einnig-ad-plata-..-en-thad-ma-ekki-plata)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Ísland ber þá gæfu að hafa jafnan kosið stangheiðarlega og grandvara menn til setu á Alþingi. Því vakti það athygli þegar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, nýbúin að mynda ríkisstjórn með Þorgerði Katrínu (og eftir atvikum Ingu), lýsti því yfir að í mikilvægum ráðherraembættum „mætti ekki plata“. Menn áttuðu sig ekki strax á því hvert hún var að fara. Nú, viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu,…

## [Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn](https://www.visir.is/g/20262924771d/kynlifsleikfongum-aftur-kastad-inn-a-vollinn)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Gera þurfti hlé á leik Chicago Sky og Golden State Valkyries í WNBA-deildinni eftir að kynlífsleikföngum var kastað inn á völlinn. Þetta er í annað sinn í vikunni sem þetta gerist.

## [Fór létt með tíu kíló­metra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“](https://www.visir.is/g/20262924760d/for-lett-med-tiu-kilometra-vid-sjaumst-bara-i-markinu-gamla-min-)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ein þeirra sem gerðu sér lítið fyrir og hlupu tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í fyrsta skipti en hún fór létt með það ef marka má færslur sem hún deildi á Facebook.

## [Sigur­mark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endur­komu Mourinhos](https://www.visir.is/g/20262924279d/sigurmark-a-lokaminutunni-i-fyrsta-leiknum-i-endurkomu-mourinhos)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

José Mourinho stýrði Real Madrid í fyrsta sinn í keppnisleik í þrettán ár þegar liðið mætti Espanyol á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Einn af nýju leikmönnum Real Madrid skoraði sigurmark liðsins undir blálokin, 1-2.

## [De Bruyne gerði gæfu­muninn gegn Mikael Agli og fé­lögum](https://www.visir.is/g/20262924750d/de-bruyne-gerdi-gaefumuninn-gegn-mikael-agli-og-felogum)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn þegar Genoa laut í lægra haldi fyrir Napoli, 0-2, í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fyrrverandi fyrirliði Manchester City breytti gangi mála eftir að hann kom inn á.

## [Mynda­syrpa frá Reykja­víkur­mara­þoninu: Bleyta, bætingar og bros](https://www.visir.is/g/20262924727d/myndasyrpa-fra-reykjavikurmarathoninu-bleyta-baetingar-og-bros)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Hið árlega Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í morgun. Sextán þúsund hlauparar spreyttu sig í rigningunni í höfuðborginni.

## [Báðar þyrlur og flug­vél gæslunnar á loft sam­tímis](https://www.visir.is/g/20262924722d/badar-thyrlur-og-flugvel-gaeslunnar-a-loft-samtimis)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur sinnt fjórum sjúkraflugum það sem af er degi en þar af var eitt á Flateyri í Breiðafirði og eitt á Patreksfirði. Eftirlitsflugvélin TF-SIF hefur komið að útköllum þar sem farið var djúpt á haf út en á tímabili var nauðsynlegt að forgangsraða verkefnum þar sem þau bárust nánast samtímis.

## [Persona-led AI publishing (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/DdNYGLzLpyYL)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Generate drafts, schedule subdomain publishing, and keep human review where needed.

## [De Zerbi ó­sáttur: „Vorum ekki til­búnir að berjast“](https://www.visir.is/g/20262924716d/de-zerbi-osattur-vorum-ekki-tilbunir-ad-berjast-)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Roberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Tottenham, sagði að sínir menn hefðu ekki verið klárir í baráttuna gegn Brentford í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Spurs tapaði leiknum, 3-0.

## [Stefán Teitur með tvennu í þægi­legum bikarsigri](https://www.visir.is/g/20262924666d/stefan-teitur-med-tvennu-i-thaegilegum-bikarsigri)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Stefán Teitur Þórðarson skoraði tvö mörk fyrir Hannover 96 í þægilegum 1-9 sigri gegn SV Hemelingen í fyrstu umferð þýska bikarsins.

## [Norris náði ráspólnum aftur](https://www.visir.is/g/20262924661d/norris-nadi-raspolnum-aftur)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Ríkjandi meistarinn Lando Norris hjá McLaren er ekki tilbúinn að játa sig sigraðan í baráttunni um heimsmeistaratitilinn og tryggði sér fremstu stöðu í Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í Hollandi á morgun.

## [Segir aug­ljóst að lögum hafi ekki verið fram­fylgt við kyrrsetninguna](https://www.visir.is/g/20262924637d/segir-augljost-ad-logum-hafi-ekki-verid-framfylgt-vid-kyrrsetninguna)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Paul Watson krefst endurupptöku á beiðni Hvals hf. um kyrrsetningu skipsins Banderos á grundvelli laga um kyrrsetningu en augljóst sé að þeim hafi ekki verið framfylgt. Félagið sem á Bandero hafi ekki verið gert vart við kyrrsetningarbeiðni Hvals hf. og því ekki gefist tækifæri til mótmæla kröfu Hvals áður en kyrrsetningu lauk.

## [Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni](https://www.visir.is/g/20262924652d/diana-vard-meistari-meistaranna-eftir-vitakeppni)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe er meistari meistaranna í þýska handboltanum. 22-22 jafntefli varð niðurstaða meistaraleiksins en 26-24 sigur vannst eftir vítakeppni gegn Borussia Dortmund.

## [Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjár­magnar](https://www.visir.is/g/20262924648d/infantino-bedinn-um-ad-maeta-ekki-a-barnamot-sem-fifa-fjarmagnar)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Gianni Infantino, umdeildur forseti FIFA, var beðinn um að mæta ekki á fótboltamót ungmenna sem fer fram í Lýðveldi Dóminíkana um helgina. Óttast var að viðvera hans myndi draga neikvæða athygli að mótinu.

## [„Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“](https://www.visir.is/g/20262924643d/-their-litu-ut-fyrir-ad-vera-ekki-i-formi-)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Alan Shearer segir lið Manchester United hafa litið út fyrir að vera ekki í leikformi í 2-0 tapi gegn Hull City í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

## [Segja Morgun­blaðið leggja þeim orð í munn](https://www.visir.is/g/20262924624d/segja-morgunbladid-leggja-theim-ord-i-munn)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Þrír prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík segja frétt Morgunblaðsins um að þeir telji engar undanþágur í boði við aðild vera ranga. Einn prófessoranna segir blaðið leggja sér orð í munn.

## [Björguðu veikum göngumanni í kíló­metrahæð á Fimm­vörðu­hálsi](https://www.visir.is/g/20262924632d/bjorgudu-veikum-gongumanni-i-kilometrahaed-a-fimmvorduhalsi)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Björgunarsveitir björguðu í gær veikum einstaklingi sem hafði verið í ferð með gönguhópi á leið yfir Fimmvörðuháls. Aðstæður voru erfiðar, í mikilli þoku, í brattri brekku, í ríflega kílómetershæð.

## [Heildar­kostnaður aðildar­við­ræðna gæti sam­svarað 300–700 kr. á mann á mánuði](https://www.visir.is/g/20262924627d/heildarkostnadur-adildarvidraedna-gaeti-samsvarad-300-700-kr.-a-mann-a-manudi)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Nokkuð hefur verið rætt um kostnað vegna mögulegra aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Markmið þessarar greinar er ekki að færa rök með eða á móti aðild, heldur að setja kostnaðinn við að fara í aðildarviðræður við ESB í samhengi við þann fjölda landsmanna sem kostnaðurinn dreifist á.

## [Stream Torrents & IPTV Instantly (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/3bG0uW4fskB4)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Search magnet links and stream movies, music, books, and live TV in-browser

## [Stöðug­leiki í vaxtaþróun langra ríkis­bréfa merki um „seiglu“ ís­lenska markaðarins](https://www.visir.is/g/20262924620d/stodugleiki-i-vaxtathroun-langra-rikisbrefa-merki-um-seiglu-islenska-markadarins)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Á meðan ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa hefur rokið upp beggja vegna Atlantshafsins að undanförnu hafa langtímavextir hér á landi haldist tiltölulega stöðugir þrátt fyrir mikla endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Seðlabankastjóri segir þróunina benda til góðs innra jafnvægis, en hækkun langra vaxta erlendis geti endurspeglað efasemdir um bæði peningastefnu og sjálfbærni ríkisfjármála hjá…

## [Erfingjar og erfðar­mál](https://www.visir.is/g/20262924616d/erfingjar-og-erfdarmal)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Gamall maður, hann Doddi frændi selur íbúðina sína árið 2022, þá 86 ára því hann er á leið á elliheimili. Frændi hans hann Robbi hjálpar honum með söluna og kaupandinn er Jáni athafnamaður, sem kaupir íbúðina á 5 milljónir þegar markaðsverð er um 20-25 milljónir.

## [Meghan snýr aftur á skjáinn](https://www.visir.is/g/20262924464d/meghan-snyr-aftur-a-skjainn)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Meghan, hertogaynjan af Sussex, stendur nú í viðræðum um hlutverk í Netflix-þáttunum The Gentlemen. Leikkonan fyrrverandi hætti leiklistinni eftir að hún giftist Harry Bretaprinsi, hertoganum af Sussex, árið 2018.

## [TikTok gert að greiða Banda­ríkjunum sögu­lega upp­hæð](https://www.visir.is/g/20262924517d/tiktok-gert-ad-greida-bandarikjunum-sogulega-upphaed)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Samfélagsmiðillinn TikTok hefur samþykkt að greiða Bandaríkjunum fjögur hundruð milljónir Bandaríkjadala, eða um 49 milljarða íslenskra króna, til að ljúka málsókn en miðillinn var sakaður um að brjóta á friðhelgi barna með upplýsingaöflun. Sáttin er ein sú stærsta sem hefur verið gerð vegna slíks máls.

## [Sinner missir af Opna banda­ríska](https://www.visir.is/g/20262924497d/sinner-missir-af-opna-bandariska)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Heimsmeistarinn Jannik Sinner verður ekki með á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis sem hefst á sunnudaginn eftir að hann dró sig úr keppni vegna meiðsla.

## [United nær sam­komu­lagi við Brighton um Baleba](https://www.visir.is/g/20262924511d/united-naer-samkomulagi-vid-brighton-um-baleba)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Manchester United hefur náð samkomulagi við Brighton um kaup á miðjumanninum Carlos Baleba. United greiðir 65 milljónir punda fyrir leikmanninn en upphæðin getur hækkað um fimm milljónir til viðbótar í bónusgreiðslum.

## [„Kær­komið að fá eitt svona mark“](https://www.visir.is/g/20262924513d/-kaerkomid-ad-fa-eitt-svona-mark-)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, segir tilfinningarnar frábærar eftir að hafa sótt 1-0 sigur á Þór/KA fyrir norðan en eina mark leiksins kom á lokamínútu venjulegs leiktíma.

## [Aftur­elding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk](https://www.visir.is/g/20262924481d/afturelding-valtadi-yfir-aegi-og-skoradi-sjo-mork)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Afturelding vann stórsigur á Ægi, 7-0, þegar liðin mættust í 20. umferð Lengjudeildar karla í kvöld.

## [Einn látinn og tveir drengir al­var­lega særðir í Fagersta](https://www.visir.is/g/20262924501d/einn-latinn-og-tveir-drengir-alvarlega-saerdir-i-fagersta)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Einn er látinn og tveir drengir alvarlega slasaðir eftir að maður réðst inn í framhaldsskóla vopnaður sverði í Fagersta í Svíþjóð. Árásarmaðurinn grunaði hefur verið handtekinn og er sagður fyrrum nemandi skólans.

## [Karó­lína Lea skoraði fyrir Inter](https://www.visir.is/g/20262924504d/karolina-lea-skoradi-fyrir-inter)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði fyrir Inter þegar liðið vann Parma, 1-0, í ítalska deildarbikarnum í kvöld.

## [Blaut og vindasöm Menningar­nótt í vændum](https://www.visir.is/g/20262924489d/blaut-og-vindasom-menningarnott-i-vaendum)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp.

## [„Ég skora náttúru­lega ekki oft þannig að þetta er eigin­lega krafta­verk“](https://www.visir.is/g/20262924493d/-eg-skora-natturulega-ekki-oft-thannig-ad-thetta-er-eiginlega-kraftaverk-)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Valur kom sér upp úr fallsæti Bestu deildar kvenna með 1-0 sigri á Þór/KA á VÍS vellinum á Akureyri í kvöld.

## [Fundu rúss­neskt vopna­búr í skógi fyrir utan Ber­lín](https://www.visir.is/g/20262924385d/fundu-russneskt-vopnabur-i-skogi-fyrir-utan-berlin)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Skotvopn sem höfðu verið grafin í jörðu fundust í skógi nærri Berlín sem rússnesk yfirvöld telja að tengist rússnesku leyniþjónustunni. Þýsk yfirvöld reyna að nú að fá einstakling framseldan frá Rúmeníu vegna fundarins.

## [Auka fjár­út­lát til varnar­mála um tæpan fimmtung](https://www.visir.is/g/20262924355d/auka-fjarutlat-til-varnarmala-um-taepan-fimmtung)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Ríkisstjórn Taívan lagði í gær fram fjárlagafrumvarp sem felur í sér gífurlega aukningu í útlátum til varnarmála. Aukningin samsvarar átján prósentum á milli ára og verði frumvarpið samþykkt mun eyríkið verja 3,1 prósenti af landsframleiðslu til varnarmála. Til stendur að hækka hlutfallið enn frekar vegna hernaðarógnana frá Kína.

## [Spörum milljarða](https://www.visir.is/g/20262924349d/sporum-milljarda)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Það hefur ekki farið framhjá neinum að framundan er kosning um hvort hefja eigi viðræður við ESB um aðild að sambandinu. Flest venjulegt fólk er nú þegar orðið þreytt á þessu karpi, sem er skiljanlegt.

## [Kylfingarnir „kjöt á hlað­borði“ í Kanada](https://www.visir.is/g/20262924333d/kylfingarnir-kjot-a-hladbordi-i-kanada)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Moskítóflugur herja á bestu kvenkylfinga heims í Edmonton í Kanada, á CPKCmótinu á LPGA-mótaröðinni í golfi.

## [Nýi Land­spítalinn verði til­búinn í árs­lok 2029](https://www.visir.is/g/20262924353d/nyi-landspitalinn-verdi-tilbuinn-i-arslok-2029)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Stefnt er að verklokum við framkvæmd nýs Landspítala í árslok 2029. Á sama tími hefs yfirfærslutími svo hægt sé að hefja starfsemi spítalans á ný.

## [Etur kappi við Obama og Reynolds](https://www.visir.is/g/20262924336d/etur-kappi-vid-obama-og-reynolds)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók eftir Andra Snæ Magnason, hefur verið tilnefnd til tveggja verðlauna á Jackson Wild-verðlaunahátíðinni sem hefur verið lýst sem Óskarsverðlaunum náttúrulífsmynda. Andri Snær er tilnefndur í flokki þula og etur þar kappi við Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Hollywood-stjörnuna Ryan Reynolds.

## [Leik­menn beggja liða fá bönn eftir úr­slita­leik HM](https://www.visir.is/g/20262924359d/leikmenn-beggja-lida-fa-bonn-eftir-urslitaleik-hm)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Leandro Paredes fær tíu leikja bann fyrir slagsmálin eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Leikmenn úr báðum liðum fengu leikbönn.

## [Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið](https://www.visir.is/g/20262924296d/drottningavidtal-thegar-ein-rodd-faer-svidid)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Stundum hlusta ég á viðtöl um umdeild mál í samfélaginu og velti fyrir mér hvert hlutverk spyrilsins eiginlega sé. Viðmælandi fær orðið og segir sína sögu. Það er gott og gilt. Vandinn byrjar þegar frásögn eins einstaklings fær að standa nær óáreitt, jafnvel lengi, án þess að spurt sé um það sem kann að vanta í myndina.

