# hún (blogs) — RSS Amplifier

Recent posts from the 1 feeds in the RSS Amplifier directory that cover hún.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/h%C3%BAn/blogs>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/h%C3%BAn/blogs.md>

---

## [Margmenni í miðborginni á Menningarnótt](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-22-margmenni-i-midborginni-a-menningarnott-484624/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fjöldinn allur af fólki hefur gert sér ferð í miðborg Reykjavíkur í dag í tilefni Menningarnætur. Þar hefur verið fjölbreytt dagskrá frá því fyrir hádegi, tónleikahald, listasýningar og að sjálfsögðu Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka.

## [Tónaflóð í beinni útsendingu](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-22-tonaflod-i-beinni-utsendingu-484619/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Tónaflóð er einn af hápunktum Menningarnætur í Reykjavík ár hvert. Tónleikarnir eru haldnir á Arnarhóli frá klukkan 19:00 til 22:00 og er búist við fjölda fólks. Fram koma JóiPé og Króli og vinir, Árný Margrét, Spacestation, Daði Freyr og Páll Óskar og Benni Hemm Hemm. Dagskránni lýkur á stórbrotinni flugeldasýningu klukkan 22:00.

## [„Mér þykir svo vænt um lífið mitt“](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-22-mer-thykir-svo-vaent-um-lifid-mitt-484548/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Leik og söngkonan Elín Hall hefur síðustu ár stormað upp á stjörnuhimininn og ekkert virðist geta stöðvað hana. Steinunn Ása Þorvaldsdóttir ræddi við Elínu í fyrsta þætti Með okkar augum, í nýrri seríu sem hóf göngu sína á miðvikudagskvöld. Mikill heiður að vera fjallkonan Á þjóðhátíðardaginn er þess jafnan beðið með eftirvæntingu að sjá hver er fjallkonan. Í ár varð Elín fyrir valinu og það voru…

## [Búist við hundrað þúsund gestum á Menningarnótt](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-21-buist-vid-hundrad-thusund-gestum-a-menningarnott-484572/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Reykjavík fyllist lífi á morgun þegar Menningarnótt verður haldin hátíðleg. Búist er við um hundrað þúsund gestum í miðborginni þar sem fjölbreyttir viðburðir verða frá morgni til kvölds. Dagurinn hefst snemma hjá þeim rúmlega 15 þúsund hlaupurum sem taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, sem verður ræst við Háskóla Íslands. Dagskrá Menningarnætur hefst síðan klukkan 12:30 á Klapparstíg. Þar býður…

## [Mætið tímanlega til að sjá leynigestina](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-21-maetid-timanlega-til-ad-sja-leynigestina-484560/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Félagarnir Jói Pé og Króli eru á meðal þeirra sem stíga á stokk á Tónaflóði Rásar 2 annað kvöld. Leikar hefjast stundvíslega klukkan 19:00 og eru þeir fyrstir á svið. En þeir verða ekki einir, með þeim fylgir stór hópur leynigesta sem þeir lofa að séu á meðal þeirra fremstu á sviði tónlistarfólks og skemmtikrafta. Jói Pé kíkti í Poppland til Margrétar Erlu Maack og sagði frá. „Við verðum með sama…

## [Hér eru sko engin leiðindi!](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-21-her-eru-sko-engin-leidindi-484434/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Arnar Eggert Thoroddssen skrifar: Það er gott að fá Bogomil Font aftur að hljóðnemanum, þennan óstýriláta skálk sem fæddist í Zagreb í gömlu Júgóslavíu við endaðan níunda áratug síðustu aldar. Vinur Bogomils, Sigtryggur Baldursson, nefndi reyndar Ljubljana í samtali við gagnrýnanda á dögunum og víst að öllu, að minnsta kosti flestu, sem heyra má upp á Bogomil ætti að taka með örlítilli klípu af…

## [Fimm strangheiðarlegir slagarar fyrir rokkþyrsta](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-21-fimm-strangheidarlegir-slagarar-fyrir-rokkthyrsta-484458/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Phoebe Bridgers – I Can't Wait Það er lágstemmd stemmning yfir laginu I Can't Wait en undirliggjandi spenna en það er tekið af nýrri plötu hennar Lost Weekend sem er að fá framúrskarandi dóma. Lagið kom út í vikunni og var mikið tekið á streymisveitum og YouTube eins og flest sem kemur frá Phoebe Bridgers þessa dagana en hún á risastóran aðdáendahóp sem fer bara stækkandi. This is Lorelei – Oh No…

## [Rjómi íslenskrar tónlistar á Tónaflóði Rásar 2](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-21-rjomi-islenskrar-tonlistar-a-tonaflodi-rasar-2-484519/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Landsmenn eru farnir að taka til hlaupagallann fyrir morgundaginn því fjölmargir hefja hann á að þeysast um borgina í Reykjavíkurmaraþoni. Að hlaupi loknu hefst þrusudagskrá um alla borg; tónlist, föndur, leiklist og hinar ýmsu uppákomur. Hápunkturinn er auðvitað Tónaflóð, stórtónleikar Rásar 2. Eins og venjulega verða tónleikarnir á Arnarhóli og hefjast klukkan 19 í beinni útsendingu á Rás 2 og á…

## [Þykir ástarkeflið í Viðey einn merkilegasti forngripurinn](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-21-thykir-astarkeflid-i-videy-einn-merkilegasti-forngripurinn-484465/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Það eru 800 ár síðan höfðingjar þjóðveldisaldar, Snorri Sturluson og Þorvaldur Gissurarson, stofnuðu klaustrið í Viðey árið 1226. Margrét Hallgrímsdóttir, fornleifafræðingur og fyrrverandi þjóðminjavörður, fór fyrir fyrstu fornleifarannsókninni á minjum miðaldaklaustursins á árunum 1987-1995 og vinnur nú að bók um niðurstöðunum. Víðsjá mælti sér mót við Margréti úti í Viðey. Hún segir rétt búið að…

## [Vísnapopp, vélbyssudiskó og víkingamálmur](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-20-visnapopp-velbyssudisko-og-vikingamalmur-484223/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sísý Ey – Up Close Íslenska dans- og hús-hljómsveitin Sísý Ey sem er skipuð systrunum Elínu, Elísabetu og Siggu Eyþórsdætrum, ásamt tónlistarmanninum Friðfinni Oculus tilkynnir um endurkomu sína með nýju lagi. Lagið heitir Up Close og kom út 14. ágúst og er það fyrsta frá genginu í 10 ár. Undiraldan fimmtudaginn 20. ágúst Að venju er fjölbreytnin við völd í Undiröldunni. Við fáum allt frá…

## [Sync Bookmarks Everywhere (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/p4qJTAjKJFEa)

_2026-08-20 · **Sponsored**_

Two-way sync keeps folders and toolbar intact across Chrome, Firefox, and Safari.

## [„Það er greinilegt að Venesúela hefur alltaf verið til á Íslandi og öfugt“](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-20-thad-er-greinilegt-ad-venesuela-hefur-alltaf-verid-til-a-islandi-og-ofugt-484327/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Gauti Kristmannsson skrifar: Það hljóta að teljast tíðindi að komin sé út fyrsta bókin frá Venesúela sem þýdd hefur verið á íslensku, bók eftir skáldkonuna Teresu de la Parra sem uppi var á fyrri hluta 20. aldar. Kannski ekki skrýtið þegar hugsað er til þess hve lítil samskipti Íslendinga og Venesúela voru áður fyrr. Ég hitti fyrst manneskju frá Venesúela fyrir 30 árum þegar ég var í námi við…

## [Hundrað ár frá fyrstu sinfóníutónleikum á Íslandi](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-20-hundrad-ar-fra-fyrstu-sinfoniutonleikum-a-islandi-484356/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Heimsókn Fílharmóníusveitar Hamborgar til Íslands árið 1926 var einn merkasti viðburður íslenskrar tónlistarsögu. Jón Leifs átti frumkvæði að heimsókninni, en hann starfaði sem tónskáld og hljómsveitarstjóri í Þýskalandi. Kona hans, Annie Leifs, var mjög fær píanóleikari og kom með hljómsveitinni sem einleikari. Heinesen notaði tónleikana sem efni í skáldsögu Fyrir utan þá fáu Íslendinga sem höfðu…

## [„Nú á að klappa þeim aldurhnigna herra sem ég er orðinn“](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-20-nu-a-ad-klappa-theim-aldurhnigna-herra-sem-eg-er-ordinn-484345/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Jazzhátíð Reykjavíkur fer fram 25.-30. ágúst. Á lokadegi hátíðarinnar sunnudaginn 30. ágúst kl 16 kemur saman fjöldi listamanna í Kirkju óháða safnaðarins við Háteigsveg og syngur og leikur lög eftir Tómas R. Einarsson kontrabassaleikara og tónskáld. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir ræddi við hann um ferilinn í þættinum Segðu mér á Rás 1. Varar sig í umgengni við pólitík Á einhverjum tímapunkti…

## [Ungar vonarstjörnur hvetja klassíka hljóðfæraleikara til að fylgja ekki alltaf fyrirmælum](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-19-ungar-vonarstjornur-hvetja-klassika-hljodfaeraleikara-til-ad-fylgja-ekki-alltaf-fyrirmaelum-484246/)

_2026-08-19 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ásta Dóra og María Qing hafa náð langt í klassískri tónlist þrátt fyrir ungan aldur. Ásta Dóra stundar píanónám við Curtis í Bandaríkjunum, einn virtasta tónlistarháskóla heims, og María er eftirsóttur sellisti í Þýskalandi þar sem hún er búsett. Í sumar hafa þær leikið saman kammertónlist í sumartónleikaröð sem lýkur í Hannesarholti í kvöld. Ein skilaboð urðu að tónleikaröð Leiðir Ástu Dóru og…

## [„Hann skrifaði lokakaflann sjálfur“](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-19-hann-skrifadi-lokakaflann-sjalfur-484232/)

_2026-08-19 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Auður H. Ingólfsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur hefur alla tíð haft mikinn áhuga á heiminum. Leið hennar í alþjóðamálin hefur því lengi verið greið. „Sem lítil stelpa var ég mikið að skrifa addressuna mína Auður, heimilið, Ísland, Evrópa, sólkerfið. Ég var óþreyjufull að skoða þennan heim. Mér fannst ég vera að springa,“ segir Auður. Hún var gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttir í þættinum…

## [Trommuleikarinn Frank Beard úr ZZ Top er látinn](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-19-trommuleikarinn-frank-beard-ur-zz-top-er-latinn-484274/)

_2026-08-19 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Bandaríski trommuleikarinn Frank Beard er látinn, 77 ára að aldri. Hann þandi húðirnar fyrir rokksveitina ZZ Top árum saman. Beard hafði lengi glímt við heilsufarsvanda og lést á búgarði sínum í Texas. Hljómsveitin segist í tilkynningu á Facebook hafa misst góðan vin og samstarfsmann og að veröldin hefði misst einhvern hugmyndaríkasta trommara heims, sannan son Texasríkis. ZZ Top hefur aflýst…

## [„Frænka mín hélt að þú hefðir sagt nei“](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-18-fraenka-min-helt-ad-thu-hefdir-sagt-nei-484147/)

_2026-08-18 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Margrét Arnardóttir og Mikkel Odu gengu í hjónaband í Tékklandi í fyrrasumar. Mikkel er tékkneskur en hjónin búa á Íslandi. Margrét er harmonikkuleikari en Mikkel er myndlistarmaður og hreyfimyndahönnuður með mikinn áhuga á fuglum. „Ég er að mála litlar myndir með fuglum og er fuglamanneskja. Ég elska fuglana. Himbrimi er uppáhalds,“ segir Mikkel. Þau sögðu Arnhildi Hálfdánardóttur og Guðrúnu…

## [Það er á ábyrgð samfélagsins að grípa hinsegin ungmenni](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-18-thad-er-a-abyrgd-samfelagsins-ad-gripa-hinsegin-ungmenni-483959/)

_2026-08-18 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

„Við þurfum meiri stuðning en fólk gerir sér grein fyrir,“ segir Snæ Humadóttir sem er 17 ára og hefur verið á vettvangi hinsegin félagsmiðstöðva fyrir ungmenni í nokkur ár. Snæ flutti hátíðarræðu Hinsegin daga í ár og sendi í henni ákall til fullorðna fólksins um að berjast fyrir tilverurétti hinsegin ungmenna og leyfa þeim að vera áfram börn. „Það er ekki bara að segja að fólki sé sama, „mér er…

## [Hljómsveitin Eva fékk alla í diskódans](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-17-hljomsveitin-eva-fekk-alla-i-diskodans-483350/)

_2026-08-17 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sigríður Eir og Vala Höskulds, sem skipa hljómsveitina Evu, fluttu lagið Ást. Það er úr sviðsverki sem þær settu upp í Tjarnarbíói í fyrra. Verkið nefnist Kosmískt skítamix og fjallar á kaldhæðnislegan hátt um hljómsveit sem var einu sinni upprennandi en þarf nú að horfast í augu við raunveruleikann. Páll Óskar kemur óvænt inn í lok lagsins sem er mikill diskósmellur. Gestir þáttarins lærðu lítinn…

