# fyrir (news sources) — RSS Amplifier

Recent posts from the 8 feeds in the RSS Amplifier directory that cover fyrir.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/fyrir/news>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/fyrir/news.md>

---

## [Það verður blautt fram eftir degi en léttir til í kvöld](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-thad-verdur-blautt-fram-eftir-degi-en-lettir-til-i-kvold-484639/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Í dag er spáð áframhaldandi skúrum á landinu, einkum þó á Suður- og Vesturlandi. Áttin verður suðvestlæg eða breytileg átt, yfirleitt gola eða stinningsgola. Það léttir víða til og lægir í kvöld, hiti frá 10 stigum norðvestantil upp að 20 stigum á Austurlandi. Áfram blautt á morgun Það kemur lægð upp að landinu í fyrramálið sem fer norður yfir landið á morgun. Það mun því blása úr norðri á…

## [Í dag: Úrslit í liðakeppni á EM í fimleikum](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-23-i-dag-urslit-i-lidakeppni-a-em-i-fimleikum-484610/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lokadagur Evrópumeistaramótsins í áhaldafimleikum er í dag. Mótið hefur farið fram í Zagreb í Króatíu síðustu daga. Keppni í kvennaflokkum fór fram í síðustu viku en í þessari viku hefur verið keppt í karlaflokkum. Í dag eru úrslit í liðakeppni. Bretar eru ríkjandi Evrópumeistarar. Sviss tók silfur og Ítalir tóku brons. RÚV sýnir beint frá úrslitunum í dag og útsending hefst klukkan 11:25.

## [Björgunarsveitir leita að skipverjum flutningaskips sem sökk við Indland](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-bjorgunarsveitir-leita-ad-skipverjum-flutningaskips-sem-sokk-vid-indland-484638/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þyrla indversku strandgæslunnar við æfingar.EPA / IDREES MOHAMMED Björgunarsveitir leita 22 skipverja flutningaskips sem sökk undan austurströnd Indlands. Ocean Winner siglir undir fána Panama og var á leið til Singapúr frá hafnarborginni Paradip á austurströnd Indlands samkvæmt upplýsingum MarineTraffic, sem sýnir staðsetningu skipa á rauntíma. Eftir að neyðarkall barst frá skipinu hófu indverski…

## [Talsvert um drukkin ungmenni í miðborginni — skemmtistöðum lokað vegna fjölda gesta undir lögaldri](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-talsvert-um-drukkin-ungmenni-i-midborginni-skemmtistodum-lokad-vegna-fjolda-gesta-undir-logaldri-484637/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögreglumenn þurftu að hafa afskipti af talsvert mörgum ungmennum undir áhrifum áfengis í miðborg Reykjavíkur á menningarnótt auk þess sem tveimur skemmtistöðum var lokað vegna þess fjölda gesta innandyra sem reyndist undir lögaldri. Foreldrum og forráðamönnum var gert að sækja börn sín á lögreglustöð. Þrír voru handteknir í miðborginni grunaðir um líkamsárás með eggvopnum og hnúajárni. Þeir höfðu…

## [Faðir skildi sjö ára son sinn eftir meðan hann sjálfur hélt áfram að klífa hlíðar Fuji](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-fadir-skildi-sjo-ara-son-sinn-eftir-medan-hann-sjalfur-helt-afram-ad-klifa-hlidar-fuji-484636/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Faðir um fimmtugt hefur verið áminntur af lögreglu fyrir að skilja sjö ára son sinn eftir í átta klukkustundir á bekk í hlíðum Fuji, hæsta fjalls Japans. Drengurinn hafði aðeins gosdrykk og snarl til að seðja sárasta hungrið. BBC fjallar um málið. Starfsfólk fjallakofa gekk fram á drenginn þar sem hann sat þreyttur, blautur og hrakinn á áningarstað í um tveggja kílómetra hæð í fjallinu og…

## [Um 40 slösuðust lítillega í öflugum jarðskjálfta nærri Tókýó](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-um-40-slosudust-litillega-i-oflugum-jardskjalfta-naerri-tokyo-484634/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Um fjörutíu slösuðust lítillega þegar jarðskjálfti af stærðinni 5,8 reið yfir Ibarak-hérað austanvert í Japan klukkan fimm síðdegis að staðartíma. Áhrifa skjálftans varð mjög vart í höfuðborginni Tókýó þar sem truflanir urðu á lestarsamgöngum. Jarðskjálftastofnun Japans sagði skjálftann eiga upptök á 68 kílómetra dýpi og enga hættu á flóðbylgjum. Hún varar við sterkum eftirskjálftum næstu daga.…

## [Engin flugumferð um Gardemoen fram eftir degi — ferðum SAS til og frá Osló aflýst](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-engin-flugumferd-um-gardemoen-fram-eftir-degi-ferdum-sas-til-og-fra-oslo-aflyst-484635/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Komu þotu SAS frá Osló til Keflavíkur klukkan 9:50 og brottför klukkan 10:40 hefur verið aflýst, að vþví er fram kemur á vef Isavia. Engin flugumferð verður til og frá Gardermoen-flugvelli við Osló næstu klukkustundir hið minnsta. Það er vegna vinnustöðvunar norskra flugumferðarstjóra. Þeir lögðu niður störf klukkan hálfsjö að staðartíma eða hálffimm að íslenskum tíma. VG vitnar í tilkynningu frá…

## [Ákærður ríkisstjóri hætti við að hætta við að hætta](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-akaerdur-rikisstjori-haetti-vid-ad-haetta-vid-ad-haetta-484633/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ruben Rocha Moya, ríkisstjóri Sinaloa-ríkis í Mexíkó, hefur tilkynnt að hann ætli að láta af störfum tímabundið að nýju degi eftir að hann sneri óvænt til starfa á ný. Hann réttlæti endurhvarfið í langri færslu á X og kvaðst enga glæpi hafa framið. Moya var ásamt níu öðrum embættismönnum ákærður í apríl og eftirlýstur í Bandaríkjunum fyrir fíkniefnamakk með Sinaloa-glæpahringnum. Bandaríska…

## [Þyrlupallurinn í Surtsey verður næstum þrefaldaður að stærð](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-thyrlupallurinn-i-surtsey-verdur-naestum-threfaldadur-ad-staerd-484632/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þyrlupallurinn í Surtsey verður stækkaður töluvert eftir að umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyjabæjar samþykkti umsókn Surtseyjarfélagsins þess efnis. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaleyfi. Í frétt vefmiðilsins Tíguls segir að ætlunin sé að stækka pallinn úr 36 fermetrum í hundrað í ljósi þess að sérfræðingar Landhelgisgæslunnar telja…

## [Viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kanada harðnar](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-vidskiptastrid-bandarikjanna-og-kanada-hardnar-484626/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kanada komst á alvarlegra stig í gær þegar slitnaði upp úr viðræðum um tollasamning. Hvorir segja hina hafa komið með skilmála á síðustu stundu sem ekki var hægt að samþykkja. Þetta varð til þess að nýir tollar Bandaríkjanna á kanadískar vörur, sem áttu að taka gildi á miðvikudaginn en var frestað um þrjá daga, tóku gildi í dag. Þá bættist 50 prósenta tollur við…

## [Dissecting Series A Rounds (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/2pfPHNa0Uhj5)

_2026-08-23 · **Sponsored**_

Two real Series A cases: timelines, investor sequencing, and common founder mistakes.

## [Tvöfaldur heimsmeistari í hnefaleikum skotinn til bana](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-tvofaldur-heimsmeistari-i-hnefaleikum-skotinn-til-bana-484631/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Zolani Tete, tvöfaldur heimsmeistari í hnefaleikum, var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Suður-Afríku á föstudag. Tete var að sögn lögreglu á leið heim til sín í bænum Mdantsane þegar tveir menn klæddir lambhúshettum stukku út úr bíl og hófu skothríð. Tæplega þrítug kona í fylgd með Tete særðist í árásinni og var flutt á sjúkrahús. Lögregla segir ástæður morðsins harla óljósar og að…

## [Frakkar útvega varnarflaugar sem grandað geta langdrægum flugskeytum](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-frakkar-utvega-varnarflaugar-sem-grandad-geta-langdraegum-flugskeytum-484630/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Frönsk stjórnvöld heita því að útvega Úkraínumönnum nýjar varnarflaugar til að skjóta niður flugskeyti í kjölfar þess að Rússar hafa aukið árásarþunga sinn á landið undanfarna mánuði. Langdrægum eldflaugum hefur nánast rignt yfir höfuðborgina Kyiv. Það hefur orðið til þess að mannfall meðal almennra borgara í Úkraínu er orðið meira en það var á fyrstu mánuðum innrásarinnar að mati Sameinuðu…

## [Íranar segja alla samherja Bandaríkjanna sjálfkrafa óvini](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-iranar-segja-alla-samherja-bandarikjanna-sjalfkrafa-ovini-484629/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Yfirmaður öryggisráðs Írans segir að öll ríki sem styðji eða taki þátt í efnahagsstríði Bandaríkjanna verði álitin óvinir íslamska lýðveldisins. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað refsiaðgerðir gegn Írönum sem engan eigi sinni líka og jafnframt hverju því landi sem á í viðskiptum við þá eða liðsinnir á nokkurn hátt. Bandaríkin hafa brýnt önnur ríki til að liðsinna við einangrun Írana, þar…

## [„Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“](https://www.visir.is/g/20262924773d/-their-badu-um-of-mikid-og-budu-of-litid-)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Forsætisráðherra Kanada hefur sagt að bylgju bandarískra tolla á landið sé ætlað að „skaða og sundra okkur“, eftir að viðskiptaviðræður fóru út um þúfur á dögunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað tilkynnt nýja íþyngjandi tolla og nú hefur forsætisráðherrann sagst ætla að jafna bandaríska tolla „dollara fyrir dollara“ frá og með 8. september.

## [Mikil stemmning á Tónaflóði Rásar 2](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-mikil-stemmning-a-tonaflodi-rasar-2-484628/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Reykjavík iðaði af lífi í allan dag á Menningarnótt og fjölbreyttir listviðburðir voru í hverju horni miðborgarinnar. Borgin fagnar 240 ára afmæli sínu í dag. Dagskrá Menningarnætur lauk með stórbrotinni flugeldasýningu klukkan tíu í kvöld. Fjöldi fólks sótti Tónaflóð á Arnarhóli þar sem fram komu JóiPé og Króli og vinir, Árný Margrét, Spacestation, Daði Freyr og Páll Óskar og Benni Hemm Hemm auk…

## [Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ó­gilt](https://www.visir.is/g/20262924720d/vesen-hja-palace-mateta-heldur-thvi-fram-ad-lokaar-samningsins-se-ogilt)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Jean-Philippe Mateta, framherji Crystal Palace, heldur því fram að lokaár samnings síns við félagið sé ógilt. Hann fór með málið til Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA.

## [Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata](https://www.visir.is/g/20262924774d/er-marta-kos-einnig-ad-plata-..-en-thad-ma-ekki-plata)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Ísland ber þá gæfu að hafa jafnan kosið stangheiðarlega og grandvara menn til setu á Alþingi. Því vakti það athygli þegar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, nýbúin að mynda ríkisstjórn með Þorgerði Katrínu (og eftir atvikum Ingu), lýsti því yfir að í mikilvægum ráðherraembættum „mætti ekki plata“. Menn áttuðu sig ekki strax á því hvert hún var að fara. Nú, viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu,…

## [Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn](https://www.visir.is/g/20262924771d/kynlifsleikfongum-aftur-kastad-inn-a-vollinn)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Gera þurfti hlé á leik Chicago Sky og Golden State Valkyries í WNBA-deildinni eftir að kynlífsleikföngum var kastað inn á völlinn. Þetta er í annað sinn í vikunni sem þetta gerist.

## [100 ára tombóla Kvenfélags Grímsness sló í gegn](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-100-ara-tombola-kvenfelags-grimsness-slo-i-gegn-484608/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Það var mikið fjölmenni á sveitahátíðinni Grímsævintýri á Borg í Grímsnesi í dag. Þar voru langar raðir af fólki til að komast inn á markaðinn í félagsheimilinu á Borg en það voru líka raðir við íþróttahúsið hjá þeim sem voru að fara á tombóluna – sem hefur verið haldin árlega frá 1926 af kvenfélaginu, eða í 100 ár. Allur peningurinn sem hefur safnast hefur runnið óskertur til góðra málefna. „Eins…

## [Fór létt með tíu kíló­metra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“](https://www.visir.is/g/20262924760d/for-lett-med-tiu-kilometra-vid-sjaumst-bara-i-markinu-gamla-min-)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ein þeirra sem gerðu sér lítið fyrir og hlupu tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í fyrsta skipti en hún fór létt með það ef marka má færslur sem hún deildi á Facebook.

## [From any door to your door (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/rYO9KhmXW4wv)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Book rides, errands, deliveries, groceries and home help in one app

## [Evrópubúar vilja frekar innlendar vörur en vörur merktar „Made in Europe“](https://utvarpsaga.is/evropubuar-vilja-frekar-innlendar-vorur-en-vorur-merktar-made-in-europe/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Meirihluti kjósenda í flestum ríkjum Evrópusambandsins vill frekar að hið opinbera kaupi vörur sem framleiddar eru í eigin landi en að veita almennt forskot vörum sem framleiddar eru annars staðar innan ESB. Niðurstöðurnar ganga að hluta gegn áformum framkvæmdastjórnar ESB um að styrkja svonefnda „Buy European“ stefnu í opinberum innkaupum. Þetta kemur fram í umfjöllun \[…\]

## [Hlaupagarpar og listamenn settu svip sinn á Menningarnótt](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-hlaupagarpar-og-listamenn-settu-svip-sinn-a-menningarnott-484623/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fjölbreyttir listviðburðir eru um alla borg í tilefni Menningarnætur. Margir reimuðu á sig hlaupaskóna og studdu góðan málstað. Sprækir hlauparar spændu af stað í Reykjavíkurmaraþoninu í morgun. Alls hafa safnast yfir 285 milljónir króna. Reykjavík hefur iðað af lífi í allan dag og fjölbreyttir listviðburðir í hverju horni miðborgarinnar. Yfir sextán þúsund hlauparar tóku þátt í…

## [Sigur­mark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endur­komu Mourinhos](https://www.visir.is/g/20262924279d/sigurmark-a-lokaminutunni-i-fyrsta-leiknum-i-endurkomu-mourinhos)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

José Mourinho stýrði Real Madrid í fyrsta sinn í keppnisleik í þrettán ár þegar liðið mætti Espanyol á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Einn af nýju leikmönnum Real Madrid skoraði sigurmark liðsins undir blálokin, 1-2.

## [Nektarveitingastaður vekur mikla athygli – Netnotendur geta ekki jafnað sig á einu atriði](https://www.dv.is/pressan/2026/08/19/nektarveitingastadur-vekur-mikla-athygli-netnotendur-geta-ekki-jafnad-sig-a-einu)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Steikhús í Flórída hefur fundið upp á ansi óvenjulegri aðferð til að skera sig úr fjöldanum. Einu sinni í mánuði er gestunum boðið að borða fimm rétta málsverð án þess að vera í einni einustu spjör.

## [Nakin lítil stúlka skaust út úr runnunum – „Eruð þið mannræningjar?“](https://www.dv.is/pressan/2026/08/18/nakin-litil-stulka-skaust-ut-ur-runnunum-erud-thid-mannraeningjar)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Devil‘s Dyke, sem er við suðausturströnd Englands, er þurr dalur um átta kílómetra frá strandborginni Brighton. Þetta er vinsælt útivistarsvæði. Í febrúar 1990 fóru hjónin David og Susanna Clifton þangað til að njóta útvistar og fallegrar náttúru.

## [De Bruyne gerði gæfu­muninn gegn Mikael Agli og fé­lögum](https://www.visir.is/g/20262924750d/de-bruyne-gerdi-gaefumuninn-gegn-mikael-agli-og-felogum)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn þegar Genoa laut í lægra haldi fyrir Napoli, 0-2, í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fyrrverandi fyrirliði Manchester City breytti gangi mála eftir að hann kom inn á.

## [Fjögur útköll og þar af tvö á hafi úti](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-fjogur-utkoll-og-thar-af-tvo-a-hafi-uti-484625/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Landhelgisgæslan hefur sinnt fjórum útköllum í dag en þar af hafa tvö verið á hafi úti. „Þetta er búið að vera ansi annasamur dagur. Þó að það komi alveg fyrir að Gæslan sinni fjórum útköllum sama daginn þá sem betur fer eru ekki margir svona dagar sem eru svona annasamir,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Meðal útkalla var sjúkraflug seinni partinn í dag í Flatey á…

## [Algjört forræði yfir fiskveiðiauðlindinni verði að tryggja í ESB-samningi](https://utvarpsaga.is/algjort-forraedi-yfir-fiskveidiaudlindinni-verdi-ad-tryggja-i-esb-samningi/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Dag B. Eggertsson, þingmann Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra, í síðdegisútvarpinu um stöðu íslensks sjávarútvegs og aðild að Evrópusambandinu. Dagur sagði algjört forræði Íslands yfir fiskveiðiauðlindinni þurfa að vera tryggt í aðildarsamningi og sagðist ekki hafa fundið dæmi um að ESB hefði tekið auðlindir af aðildarríki. Arnþrúður benti hins vegar á…

## [Mynda­syrpa frá Reykja­víkur­mara­þoninu: Bleyta, bætingar og bros](https://www.visir.is/g/20262924727d/myndasyrpa-fra-reykjavikurmarathoninu-bleyta-baetingar-og-bros)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Hið árlega Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í morgun. Sextán þúsund hlauparar spreyttu sig í rigningunni í höfuðborginni.

## [Sautján ára stúlka lést í sverðaárásinni í Svíþjóð](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-sautjan-ara-stulka-lest-i-sverdaarasinni-i-svithjod-484615/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sú sem lést í sverðaárás í framhaldsskólanum Brinnell í Fagersta í gærkvöldi var 17 ára gömul stúlka. Sænska lögreglan staðfesti það í morgun. Lögregla var kölluð að skólanum skömmu eftir klukkan tvö að staðartíma. Þá hafði árásarmaðurinn sært fjölda fólks með sverði. Lögregla skaut hann í fótinn áður en hann var handtekinn. Árásarmaðurinn, sem er 18 ára, verður líklega ákærður fyrir morð og…

## [AI News Summaries & Audio (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/08ZUp12llwCO)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Tap an article for an AI summary and an audio briefing.

## [Leystu 30 ára gamla morðgátu – Ferðakona var myrt í virki](https://www.dv.is/pressan/2026/08/19/leystu-30-ara-gamla-mordgatu-ferdakona-var-myrt-i-virki)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

81 árs þýskur maður hefur játað að hafa myrt bandarísku ferðakonuna Amy Lopez fyrir rúmlega 30 árum. Maðurinn játaði að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi og myrt í Koblenz 1994.

## [Afleiðingarnar geta orðið svakalegar – Létu gervigreind búa til veiru](https://www.dv.is/pressan/2026/08/18/afleidingarnar-geta-ordid-svakalegar-letu-gervigreind-bua-til-veiru)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Bandarískir vísindamenn urðu nýlega fyrstir til að nota gervigreind til að búa til veiru sem er ekki til í náttúrunni. Þetta hefur vakið bæði hrifningu og óhug. Í réttum höndum getur þessi tækni verið himnasending en í röngum höndum getur hún verið hugsanlegt dómsdagsvopn.

## [Báðar þyrlur og flug­vél gæslunnar á loft sam­tímis](https://www.visir.is/g/20262924722d/badar-thyrlur-og-flugvel-gaeslunnar-a-loft-samtimis)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur sinnt fjórum sjúkraflugum það sem af er degi en þar af var eitt á Flateyri í Breiðafirði og eitt á Patreksfirði. Eftirlitsflugvélin TF-SIF hefur komið að útköllum þar sem farið var djúpt á haf út en á tímabili var nauðsynlegt að forgangsraða verkefnum þar sem þau bárust nánast samtímis.

## [Bandaríkin: Færslu Comeys mátti skilja sem hótun gegn Trump](https://utvarpsaga.is/bandarikin-faerslu-comeys-matti-skilja-sem-hotun-gegn-trump/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Bandaríska dómsmálaráðuneytið telur að færsla James Comey, fyrrverandi forstjóra FBI, birti með tölunum „86 47“ hafi með hlutlægum hætti mátt skilja sem hótun um að Donald Trump Bandaríkjaforseti yrði drepinn. Ráðuneytið hafnar jafnframt ásökunum Comeys um að ákæran gegn honum sé pólitísk hefnd. Þetta segir í frétt Zerohedge. Comey birti í maí 2025 ljósmynd á \[…\]

## [De Zerbi ó­sáttur: „Vorum ekki til­búnir að berjast“](https://www.visir.is/g/20262924716d/de-zerbi-osattur-vorum-ekki-tilbunir-ad-berjast-)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Roberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Tottenham, sagði að sínir menn hefðu ekki verið klárir í baráttuna gegn Brentford í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Spurs tapaði leiknum, 3-0.

## [Ræddu horfurnar hér á landi á næstu vikum - „Ef við værum sölumenn gætum við alveg reynt að selja það“](https://www.dv.is/433/2026/08/21/raeddu-horfurnar-her-a-landi-a-naestu-vikum-ef-vid-vaerum-solumenn-gaetum-vid-alveg)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helst í Íþróttavikunni á 433.isVíkingur er kominn með 8 stiga forskot í Bestu deild karla eftir sigur á FH í sama leik, á sama tíma og KR gerði jafntefli við Breiðablik.

## [Segir sýslumann hafa kyrrsett Bandero í kyrrþey](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-segir-syslumann-hafa-kyrrsett-bandero-i-kyrrthey-484617/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögfræðingur félagsins sem á skipið Bandero segir óeðlilegt að kyrrsetningarkrafa Hvals hf. á skipinu hafi náð fram að ganga. Hann á von á að beiðni um endurupptöku á kyrrsetningunni verði tekin til afgreiðslu sem fyrst. Íslensk yfirvöld tóku yfir stjórn skipsins í júlí eftir að áhöfn Bandero sigldi án heimildar inn fyrir tólf mílna lögsögu landsins og ógnaði öryggi skipverja hvalveiðiskipsins…

## [Báðir hreyflarnir eyðilögðust rétt eftir flugtak – Hetjudáð flugmannsins](https://www.dv.is/pressan/2026/08/18/badir-hreyflarnir-eydilogdust-rett-eftir-flugtak-hetjudad-flugmannsins)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Þann 15. janúar 2009 hóf flug 1549 frá US Airways sig á loft frá LaGuardia flugvellinum í New York. 155 farþegar og áhafnarmeðlimir voru um borð. Þetta var Airbus A320 vél sem vó 70 tonn.

## [Svona langur þarf göngutúrinn að vera til að gagnast hjartanu](https://www.dv.is/pressan/2026/08/19/svona-langur-tharf-gonguturinn-ad-vera-til-ad-gagnast-hjartanu)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Almennt er mælt með að fólk stundi hreyfingu í 150 til 300 mínútur á viku til að draga úr hættunni á hjarta- og æðasjúkdómum. Þetta þýðir að 25 til 30 mínútna göngutúr fimm daga í viku dugir til að ná þessu viðmiði.

## [Strætó keyrir frá Sæbraut í öll hverfi borgarinnar eftir flugeldasýninguna](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-straeto-keyrir-fra-saebraut-i-oll-hverfi-borgarinnar-eftir-flugeldasyninguna-484614/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Miðborg Reykjavíkur er lokuð fyrir umferð í dag vegna Menningarnætur. Ferðir Strætó hafa gengið vel það sem af er degi. Vegna götulokana þurfa vagnar að aka hjáleiðir og nú er endastöð flestra strætóleiða í Skúlagötu, fram á kvöld. Markús Vilhjálmsson, hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, segir nýtingu á vögnum hafa verið góða í dag. „Við höfum lítið verið að lenda í því að vagnar hafa…

## [Smitten íhugar að taka upp rafræna auðkenningu notenda](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-smitten-ihugar-ad-taka-upp-rafraena-audkenningu-notenda-484604/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri stefnumótaforritsins Smitten, segir í skoðun að taka upp rafræna auðkenningu hér á landi, líkt og er í Svíþjóð. Sænskir notendur forritsins þurfa að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum til þess að geta stofnað síðu á forritinu. Davíð segir það hvimleitt, en þó ekki vaxandi, vandamál að fólk noti gervigreind til þess að villa á sér heimildir á…

## [Manndráp á Kársnesi talið tengjast skipulagðri glæpastarfsemi](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-manndrap-a-karsnesi-talid-tengjast-skipulagdri-glaepastarfsemi-484611/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Tveir menn höfðu setið í gæsluvarðhaldi hér á landi í tengslum við manndráp á Kársnesi í Kópavogi í tæpar tvær vikur en öðrum þeirra var sleppt í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Sá er erlendur ríkisborgari en gæsluvarðhald yfir hinum manninum, sem er íslenskur, er í gildi fram á mánudag. Ekki liggur fyrir hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir honum. Tveir til viðbótar…

## [Hvetur gesti Tónaflóðs til að klæða sig eftir veðri](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-hvetur-gesti-tonaflods-til-ad-klaeda-sig-eftir-vedri-484613/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Menningarnótt er í dag. Einn af hápunktum dagskrárinnar eru tónleikarnir Tónaflóð Rásar tvö, sem hefjast á Arnarhóli klukkan 19:00. Tónleikarnir eru í beinni útsendingu bæði í sjónvarpi og á Rás 2. Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru Jói P. og Króli, Árný Margrét, Daði Freyr, Benni Hemm Hemm og Páll Óskar. Siggi Gunnars á DJ-græjunum Arnarhóll breytist því í stærsta dansgólf landsins áður…

## [Svona oft ættirðu að skipta nærfötunum út](https://www.dv.is/pressan/2026/08/19/svona-oft-aettirdu-ad-skipta-naerfotunum-ut)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Flestir skipta vonandi um nærfatnað daglega og setja í þvott. En við hvern þvott slitnar nærfatnaðurinn og teygjanleikinn minnkar og efnið verður sífellt verra. Þetta getur haft í för með sér að fatnaðurinn sitji verr á manni og þetta getur einnig valdið húðertingu.

## [Ólafur Ragnar: Lissabon-sáttmálinn er stóra málið sem ekki er rætt](https://utvarpsaga.is/olafur-ragnar-lissabon-sattmalinn-er-stora-malid-sem-ekki-er-raett/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands og einn stofnenda Áfram Ísland, í síðdegisútvarpinu í dag, laugardag, um þær breytingar sem orðið hafa á Evrópusambandinu frá því Ísland sótti um aðild árið 2009. Ólafur Ragnar sagði Lissabon-sáttmálann hafa breytt eðli sambandsins verulega en lítið væri fjallað um þær breytingar í ESB-umræðunni hér \[…\]

## [Betur fór en á horfðist þegar jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-betur-for-en-a-horfdist-thegar-jeppa-var-ekid-framan-a-voruflutningabil-484612/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl á Vesturlandi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að báðir bílar höfnuðu utan vegar og flutningabíllinn á hliðinni. Áreksturinn varð á Vestfjarðarvegi við Grafarland í Dölunum. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, segir annan ökumanninn hafa verið fluttan af vettvangi með sjúkrabíl. Hann hafi þó aðeins verið með minni háttar áverka.…

## [Þorsteinn Pálsson: Bændasamtökin hafa brugðist bændum](https://www.dv.is/eyjan/2026/08/22/thorsteinn-palsson-baendasamtokin-hafa-brugdist-baendum)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Bændasamtökin hafa brugðist bændum með því að leggja bara aðra hliðina á borðið og gera ekki grein fyrir því hvaða lausnir þau hafa fyrir íslenskan landbúnað og bændur án aðildar að Evrópusambandinu.

## [Eltihrellar nota millifærslur til að áreita fólk](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-eltihrellar-nota-millifaerslur-til-ad-areita-folk-484609/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Indó sparisjóði hafa borist ábendingar um að eltihrellar misnoti millifærslur til að áreita fólk með því að millifæra óverulegar fjárhæðir á bankareikninga þess og hafa jafnvel skilaboð með sem skýringu. Viðskiptavinir bankans geta nú lokað á að sjá skýringar frá tilteknum aðilum vegna þessa. „Því miður höfum við orðið vör við að viðskiptavinir okkar hafa haft samband og látið okkur vita af því að…

## [Fyrsta tilboði hafnað - Langt frá því að uppfylla kröfurnar](https://www.dv.is/433/2026/08/21/fyrsta-tilbodi-hafnad-langt-fra-thvi-ad-uppfylla-krofurnar)

_2026-08-22 · DV - Nýjustu fréttir_

Crystal Palace hefur hafnað fyrsta tilboði Galatasaray í Ismaila Sarr og vill fá um 50 milljónir punda fyrir Senegalann.Galatasaray vill styrkja sóknarlínu sína fyrir lok félagaskiptagluggans og er Sarr sagður ofarlega á óskalista tyrkneska stórliðsins.

## [Bandaríkin ætla að hafa viðveru á Íslandi til frambúðar](https://utvarpsaga.is/bandarikin-aetla-ad-hafa-vidveru-a-islandi-til-frambudar/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson hagfræðing í síðdegisútvarpinu um stöðu Íslands í varnarmálum og ummæli Alexus G. Grynkewich hershöfðingja, yfirhershöfðingja Atlantshafsbandalagsins í Evrópu og yfirmanns herafla Bandaríkjanna í Evrópu. Guðmundur sagði skilaboðin skýr um að Bandaríkin hygðust áfram tryggja varnir Íslands og taldi þau styrkja þá stöðu að Ísland héldi…

