# fyrir (blogs) — RSS Amplifier

Recent posts from the 31 feeds in the RSS Amplifier directory that cover fyrir.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/fyrir/blogs>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/fyrir/blogs.md>

---

## [Akranes er bær tækifæranna](https://skessuhorn.is/blog/akranes-er-baer-taekifaeranna)

_2026-08-21 · Skessuhorn_

Rætt við Sturlaug Haraldsson nýjan bæjarstjóra Sturlaugur Haraldsson tók við nýju starfi sl. miðvikudag sem bæjarstjóri Akraneskaupstaðar og segist mæta fullur tilhlökkunar til leiks. Eftir áralanga reynslu úr atvinnulífinu, einkum sjávarútvegi, er hann kominn aftur á heimaslóðir og ætlar að leggja ríka áherslu á atvinnuuppbyggingu og að nýta þau fjölmörgu tækifæri sem hann telur felast…

## [Forval hönnunar fyrir nýjar höfuðstöðvar Faxaflóahafna](https://skessuhorn.is/blog/forval-honnunar-fyrir-nyjar-hofudstodvar-faxafloahafna)

_2026-08-21 · Skessuhorn_

Faxaflóahafnir hafa nú á evrópska efnahgssvæðinu auglýst forval um þátttöku í lokuðu útboði á hönnun nýs Hafnarhúss við Viðeyjarsund í Sundahöfn. Þar er fyrirhugað að reisa nýjar höfuðstöðvar félagsins og sameina meginstarfsemi þess á einum stað. Ráðgert er að nýtt Hafnarhús verði um 3.000 fermetrar og hýsi skrifstofu- og þjónustustarfsemi Faxaflóahafna ásamt sérhæfðri vinnu- og…

## [Frábær þátttaka í sumarlestri Bókasafns Akraness](https://skessuhorn.is/blog/frabaer-thatttaka-i-sumarlestri-bokasafns-akraness)

_2026-08-21 · Skessuhorn_

Það var sannkölluð lestrarveisla á Bókasafni Akraness í sumar en alls lásu þátttakendur í sumarlestri safnsins 1.475 bækur og rúmlega 85 þúsund blaðsíður. Sumarlestrinum lauk með hinu árlega Húllum-hæi á safninu fyrr í vikunni þar sem trúðurinn Wally mætti í heimsókn og glatt var á hjalla. Sumarlesturinn stóð frá 1. júní til 17. ágúst og…

## [Um 70 manns á opnum fundi SJÁ á Akranesi](https://skessuhorn.is/blog/um-70-manns-a-opnum-fundi-sja-a-akranesi)

_2026-08-21 · Skessuhorn_

Haldinn var fundur samtakanna SJÁ í Tónbergi á Akranesi síðdegis í gær. Fundurinn var liður í fundaröð samtakanna víðs vegar um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Berglind Guðmundsdóttir hjá SJÁ setti fundinn, en á fundinum fluttu erindi þau Heimir Fannar Gunnlaugsson, Halldór Emil Unnarsson, Hjálmar Vilhjálmsson, Jens Baldursson og Ingunn Ríkharðsdóttir. Aðsókn var góð…

## [Fararskjótar af ýmsu tagi](https://skessuhorn.is/blog/fararskjotar-af-ymsu-tagi)

_2026-08-21 · Skessuhorn_

Það er býsna ólíkt hvernig fólk ferðast um landið okkar. Getur verið allt frá því að fara á puttanum, hjólandi, í rútum, einkabílum, húsbílum og svo framvegis. Fjölskyldan á þessari mynd valdi að ferðast um landið á reiðhjólum. Annað hjólin er sérútbúið til að hafa barnið framan við stýrið og það stígur einnig pedala ásamt…

## [Fagna 60 ára vígsluafmæli kirkjunnar](https://skessuhorn.is/blog/fagna-60-ara-vigsluafmaeli-kirkjunnar)

_2026-08-21 · Skessuhorn_

Sunnudaginn 6. september næstkomandi verður þess minnst með hátíðlegum hætti að 60 ár eru liðin frá vígslu Grundarfjarðarkirkju. Hátíðarmessa hefst í kirkjunni kl. 14 og að henni lokinni verður boðið upp á hátíðarkaffi í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Kvenfélagið Gleym mér ei sér um kaffiveitingarnar og eru allir hjartanlega velkomnir til að taka þátt í afmælisfagnaðinum.

## [Tjaran þarf hita og ákveðið handbragð í Görðum](https://skessuhorn.is/blog/tjaran-tharf-hita-og-akvedid-handbragd-i-gordum)

_2026-08-21 · Skessuhorn_

Það hefur verið nóg að gera í viðhaldi á Byggðasafninu í Görðum á Akranesi í sumar. Þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði var Guðmundur Sigurðsson smiður þar við störf, léttklæddur í sumarblíðunni og önnum kafinn við að tjarga Neðri-Sýrupart, eitt húsanna á safnsvæðinu. Neðri-Sýrupartur er elsta varðveitta timburhús á Akranesi, byggt árið 1875 og stóð…

## [Hreinskilinn Martin: „Margir búnir að vera of góðir við sig í fríinu“](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-21-hreinskilinn-martin-margir-bunir-ad-vera-of-godir-vid-sig-i-friinu-484454/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Finnum í æfingaleik á morgun. Lykilmaðurinn Martin Hermannsson viðurkennir að liðsmenn gætu verið í betra formi. Ísland mætir Finnlandi í æfingaleik ytra klukkan fimm á föstudaginn. Fram undan eru svo mikilvægir leikir gegn Tyrkjum og Serbum í seinni hluta undankeppni heimsmeistaramótsins. Æfingaleikur á þessum tímapunkti er nokkuð óvanalegur en Martin…

## [Traktorastrákarnir endurbyggðu land til að mæla hland](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-21-traktorastrakarnir-endurbyggdu-land-til-ad-maela-hland-484406/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ipswich Town undirbýr sig af kappi fyrir keppni í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Liðið hefur byggt upp nýtt æfingasvæði þar sem boðið er upp á alls kyns nýjungar. Meðal annars mælir liðið þvag leikmanna. Auk þess er notast við austurrískar þurrkunaraðferðir úr Ölpunum. Ipswich, eða traktorastrákarnir eins og liðið er kallað, eyddi 4,9 milljörðum íslenskra króna (30 milljónum punda) í að gera…

## [Hyggjast auka öryggi við gatnamót](https://skessuhorn.is/blog/hyggjast-auka-oryggi-vid-gatnamot)

_2026-08-21 · Skessuhorn_

Vegagerðin hyggst ráðast í breytingar á umferðarskipulagi við gatnamót Akrafjallsvegar og Hringvegar í Hvalfjarðarsveit með það að markmiði að auka umferðaröryggi. Ákveðið hefur verið að lækka leyfilegan hámarkshraða á Akrafjallsvegi þegar komið er að gatnamótunum. Jafnframt verður núverandi biðskyldu breytt í stöðvunarskyldu og þurfa ökumenn því að stöðva ökutæki sín áður en ekið er inn…

## [Hire AI-Powered Professionals (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/B72nAPV1INLr)

_2026-08-21 · **Sponsored**_

Browse public gigs, message candidates, and run video interviews — free to start.

## [Kona ákærð fyrir að skipuleggja sprengjutilræði gegn stjórnarbyggingum í New York](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-21-kona-akaerd-fyrir-ad-skipuleggja-sprengjutilraedi-gegn-stjornarbyggingum-i-new-york-484488/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Jessica Bowie er 35 ára bandarísk kona sem hefur verið ákærð fyrir brot á hryðjuverkalögum eftir að hún tjáði uppljóstrara alríkislögreglunnar að hún ætlaði sér að gera sprengjutilræði gegn aðsetri löggjafarþings og ríkisstjórnar New York-ríkis. Það er í borginni Albany, skammt frá landamærunum að Kanada. Samkvæmt dómsskjölum er Bowie ákærð fyrir tilraun til að veita tilteknum, erlendum…

## [Rúmlega 2500 laxar á land](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23042)

_2026-08-20 · Húnahornið_

Miðfjarðará rauf þúsund laxa múrinn í vikunni og hafa 1.080 laxar veiðst í ánni sem af er sumri. Á sama tíma í fyrra voru 770 laxar komnir á land. Blanda er komin í 415 laxa en í fyrra veiddust aðeins 54 laxar í ánni og munar um minna. Laxá á Ásum er komin í 333 laxa sem er svipuð veiði og á sama tíma í fyrra. Víðidalsá stendur í 291 laxi og Vatnsdalsá í 235 löxum og eru báðar árnar að gera betur…

## [Viltu minni verðbólgu og lægri vexti?](http://www.huni.is/index.php?pid=58&cid=23043)

_2026-08-20 · Húnahornið_

Frá því að fyrstu fjárlög núverandi ríkisstjórnar tóku gildi um síðustu áramót hefur verðbólgan farið vaxandi og stýrivextir hækkað. Fram að því fóru vextir lækkandi á grundvelli fjárlaga síðustu stjórnar. Ríkisstjórnin hefur ítrekað tekið ákvarðanir frá áramótum sem hafa stuðlað að aukinni verðbólgu og hefur sama og ekkert gert til þess að forða því að kjarasamningar verði í uppnámi síðar í…

## [Stjarnan setti strik í toppbaráttu Blika](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-20-stjarnan-setti-strik-i-toppbarattu-blika-484482/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Vigdís Edda Garðarsdóttir og Snædís María Jörundsdóttir skoruðu mörk Stjörnunnar í 2-0 sigri liðsins á toppliði Breiðabliks. Mörkin komu á 79. og 82. mínútu leiksins. Stjarnan er þar með komið í 3. sæti og hefur þar 26 stig en Breiðablik trónir áfram á toppnum með 36 stig. Með tapi Breiðabliks í kvöld er þó ljóst að FH getur með sigri á Víkingi annað kvöld jafnað Blika að stigum og toppbaráttan…

## [Víkingur í þröngri stöðu](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-20-vikingur-i-throngri-stodu-484480/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fyrri leikur Víkings og Borac í Sambandsdeildarumspilinu var spilaður í Fossvoginum í kvöld og gestirnir frá Banja Luka reyndust sterkari frá byrjun. Þeir komust í 2-0 á skömmum tíma eftir að Luka Juricic og Milos Jojic skoruðu á 21. og 23. mínútu og þannig stóð í hálfleik. Gylfi Þór Sigurðsson minnkaði muninn fyrir Víking í 2-1 með marki úr vítaspyrnu en Luka Juricic kom Boruc aftur tveimur…

## [Samkeppnin mun harðari eftir að Rússum var veitt brautargengi á ný](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-20-samkeppnin-mun-hardari-eftir-ad-russum-var-veitt-brautargengi-a-ny-484474/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Í dag varð ljóst að frammistaðan hjá Degi Kára Ólafssyni og Ágústi Inga Davíðssyni í forkeppninni á EM í gær hefði tryggt þeim sæti á heimsmeistaramótinu í október. Áður hafði Lilja Katrín Gunnarsdóttir fengið HM sæti í kvennaflokki og Thelma Aðalsteinsdóttir bættist sömuleiðis við í dag. Guðmundur Brynjólfsson fimleikasérfræðingur RÚV segir þetta í takt við væntingar fyrir EM. Árangur Íslands í…

## [Efla á atvinnutækifæri fyrir fólk á Skagaströnd sem er með skerta starfsgetu](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23041)

_2026-08-20 · Húnahornið_

Sveitarstjórn Skagastrandar ætlar að hefja markvissa vinnu við að fjölga atvinnutækifærum fyrir fólk með skerta starfsgetu í sveitarfélaginu. Málið var lagt fram nýverið í sveitarstjórn af K‑listanum en á sveitarstjórnarfundi í gær var lögð fram breytingartillaga þess efnis að ekki yrði sett fram sérstök tímasett aðgerðaráætlun, heldur yrði unnið áfram með reglulegri endurgjöf. Sú tillaga var…

## [Skagaströnd verði heilsueflandi samfélag](http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=23040)

_2026-08-20 · Húnahornið_

Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að fela sveitarstjóra og varaoddvita að hefja undirbúning og sækja um fyrir hönd sveitarfélagsins þátttöku í verkefninu Heilsueflandi samfélag. Verkefnið er unnið í samstarfi við Embætti landlæknis og hefur víða reynst mikilvægt tæki til að efla lýðheilsu, styrkja forvarnir og samræma starf ólíkra aðila innan samfélagsins. Tillagan kom frá Framsókn og…

## [Endurnýjaðar rennibrautir teknar í notkun í Borgarnesi](https://skessuhorn.is/blog/endurnyjadar-rennibrautir-teknar-i-notkun-i-borgarnesi)

_2026-08-20 · Skessuhorn_

Það var líf og fjör við sundlaugina í Borgarnesi síðdegis í dag þegar fram fór vígsla á endurnýjuðum rennibrautum í Skallagrímslitunum. Gömlu brautirnar voru hátt í 30 ára gamlar og voru því teknar niður fyrr á árinu. Allt trefjaplast var endurnýjað í brautunum en stoðir lagfærðar og endurnýttar. Fulltrúar ungu kynslóðarinnar drógu spil um röð…

## [Mikill fjöldi skráninga í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka](https://skessuhorn.is/blog/mikill-fjoldi-skraninga-i-reykjavikurmarathon-islandsbanka)

_2026-08-20 · Skessuhorn_

Yfir 15 þúsund keppendur eru nú skráðir í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 22. ágúst og styttist í að uppselt verði í heilt og hálft maraþon. „Við hvetjum hlaupara sem vilja ná sér í miða í lengri hlaupin að hlaupa til því nú eru aðeins örfáir miðar eftir í heilt og hálft maraþon. Svo…

## [A Friend Gave You $30 (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/dIO8XTajMWa7)

_2026-08-20 · **Sponsored**_

Sign up, deposit $5 within 30 days, and start investing with expert guidance.

## [Fá hjálp foreldra til að kaupa íbúð](https://heimildin.is/grein/27092/fa-hjalp-foreldra-til-ad-kaupa-ibud/?utm_medium=rss)

_2026-08-20 · Heimildin_

Fasteignasalar svara v til 80% tilfella a fyrstu kaupendur fasteigna f i a sto foreldra sinna e a annarra ttingja, samkv mt v sbendingum r ranns kn H sn is-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS). T lurnar eru fengnar r spurningak nnunum me al fasteignasala sem HMS hefur sent t fr v j n fyrra og birtir n rri m na arsk rslu sinni dag. Ein spurninganna er hva a fj rm gnunarlei fyrstu kaupendur…

## [Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands lýkur máli vegna ólögmætrar miðlunar innherjaupplýsinga með sátt](https://www.sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/fjarmalaeftirlit-sedlabanka-islands-lykur-mali-vegna-ologmaetrar-midlunar-innherjaupplysinga-med-satt)

_2026-08-20 · Fréttir og tilkynningar frá Seðlabanka Íslands_

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur lokið máli sem varðaði brot einstaklings gegn c-lið 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. 10. gr. reglugerðarinnar, sem hefur lagagildi hér á landi samkvæmt lögum nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum. Samkvæmt reglugerðinni er óheimilt að miðla innherjaupplýsingum til annarra nema slíkt fari fram…

## [Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 08/2026](https://www.sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/tilkynning-um-drattarvexti-og-vexti-af-peningakrofum-nr-08-2026)

_2026-08-20 · Fréttir og tilkynningar frá Seðlabanka Íslands_

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 07/2026 dagsettri 16. júlí sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað síðan þá. Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 15,75% fyrir tímabilið 1. – 30. september 2026.

## [Skýr skilboð &#8211; andstaða við múslima hefur ekkert með húðlit að gera](https://www.nutiminn.is/forsida/skyr-skilbod-andstada-vid-muslima-hefur-ekkert-med-hudlit-ad-gera/)

_2026-08-20 · Jón Einarsson Þormar Pálsson · Nútíminn_

Þetta meiðyrðamál sem Morten Messerschmidt hefur ákveðið að höfða gegn formanni Radikale Venstre, Martin Lidegaard er nauðsynlegt. Húðlitur er afar mikilvægur í fórnarlambshugsun vinstrisins. Þau velta sér upp úr „brúnum“, „hvítum“ og „svörtum.“ Andstaða borgaralegra afla við íslam hefur hins vegar ekkert með húðlit múslima að gera. Þetta skrifar Lars Kaaber, ritstjóri Kontrast. Í…

## [Glatt á hjalla í stórafmæli Landsbankans og TM í dag](https://skessuhorn.is/blog/glatt-a-hjalla-i-storafmaeli-landsbankans-og-tm-i-dag)

_2026-08-20 · Skessuhorn_

Landsbankinn fagnar um þessar mundir 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli. Af því tilefni buðu fyrirtækin landsmönnum að fagna með sér í útibúum Landsbankans um allt land í dag, fimmtudaginn 20. ágúst. Þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði þá var sjálfur útibússtjórinn að bera fram afmæliskökuna með brosi á bör. Það var greinilega…

## [Halla Sif ein af kvenhetjum FAO](https://skessuhorn.is/blog/halla-sif-ein-af-kvenhetjum-fao)

_2026-08-20 · Skessuhorn_

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis á Suðurlandi, hefur verið valin í hóp fyrstu hundrað kvenhetja Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í landbúnaði og byggðaþróun. Tilnefningar með nöfnum 600 kvenna frá 131 landi bárust til FAO. Halla Sif var tilnefnd af atvinnuvegaráðuneytinu en öllum aðildarríkjum FAO bauðst að tilnefna. Í bréfi…

## [Fullfermi í fyrsta túr sem skipstjóri](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/fullfermi-i-fyrsta-tur-sem-skipstjori-1)

_2026-08-20 · Vikublaðið_

Togari Samherja, Harðbakur EA 3, landaði í gærkvöld fullfermi sem fer til vinnslu í landvinnslum félagsins á Akureyri og Dalvík. Skipstjóri var Lýður Valgeir Jóhannesson og var þetta hans fyrsta veiðiferð sem skipstjóri. Lýður útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 2010 og hefur flest árin eftir nám starfað hjá Samherja, þar af undanfarin fimm ár sem fyrsti stýrimaður á Harðbak.

## [Vísnapopp, vélbyssudiskó og víkingamálmur](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-20-visnapopp-velbyssudisko-og-vikingamalmur-484223/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sísý Ey – Up Close Íslenska dans- og hús-hljómsveitin Sísý Ey sem er skipuð systrunum Elínu, Elísabetu og Siggu Eyþórsdætrum, ásamt tónlistarmanninum Friðfinni Oculus tilkynnir um endurkomu sína með nýju lagi. Lagið heitir Up Close og kom út 14. ágúst og er það fyrsta frá genginu í 10 ár. Undiraldan fimmtudaginn 20. ágúst Að venju er fjölbreytnin við völd í Undiröldunni. Við fáum allt frá…

## [Ágúst og Dagur fara á HM](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-20-agust-og-dagur-fara-a-hm-484439/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ágúst Ingi Davíðsson og Dagur Kári Ólafsson eru fimleikamenn. Ágúst og Dagur keppa fyrir Ísland á Heims·meistaramótinu í fimleikum. Heims·meistaramótið er kallað HM. HM er í Hollandi í október. Ágúst og Dagur stóðu sig vel á Evrópumótinu. Evrópumótið er kallað EM. Þess vegna komust Ágúst og Dagur á HM. Þetta er í fyrsta sinn sem Ágúst kemst svona á HM. Dagur komst líka á HM í fyrra. Þá var Dagur…

## [Ari Edwald nýr stjórnarformaður Orkuveitunnar](https://heimildin.is/grein/27095/ari-edwald-nyr-stjornarformadur-orkuveitunnar/?utm_medium=rss)

_2026-08-20 · Heimildin_

Ari Edwald, oddviti Mi flokksins Reykjav k, hefur veri kj rinn stj rnarforma ur Orkuveitu Reykjav kur, sem er eigu almennings. Ni ursta an var tilkynnt dag, en Hildur Bj rnsd ttir, oddviti Sj lfst isflokksins, tilkynnti um tilbo sitt til Ara egar n r meirihluti Sj lfst isflokks, Vi reisnar og Frams knarflokks var tilkynntur vor. Varaforma ur er Einar orsteinsson, oddviti Frams knarflokksins og…

## [Privacy-first AI-native browser (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/Nw7N3BYTI1q8)

_2026-08-20 · **Sponsored**_

No telemetry or ads — built on Ungoogled Chromium with a built-in AI sidebar and CLI.

## [Krefjandi Ljósufjallaganga með hraunbaði og kvöldverði í lokin](https://skessuhorn.is/blog/krefjandi-ljosufjallaganga-med-hraunbadi-og-kvoldverdi-i-lokin)

_2026-08-20 · Skessuhorn_

Ferðafélag Snæfellsness efnir laugardaginn 29. ágúst til krefjandi göngu á Ljósufjöll þar sem stefnt verður á þrjá tinda ef veður og aðstæður leyfa. Að göngu lokinni bíður þátttakenda kærkomin slökun í hraunbaðinu á Miðhrauni og kvöldverður í Hlöðunni. Hópurinn leggur af stað kl. 9 að morgni og er gert ráð fyrir að gönguferðin sjálf taki…

## [Vitadagar-hátíð milli vita](https://www.sudurnesjabaer.is/is/moya/news/vitadagar-hatid-milli-vita-2)

_2026-08-20 · Suðurnesjabær_

Vitadagar-hátíð milli vita

## [Thelma komst inn á HM þrátt fyrir puttabrotið](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-20-thelma-komst-inn-a-hm-thratt-fyrir-puttabrotid-484450/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Thelma Aðalsteinsdóttir fékk þátttökurétt á heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum. Thelma keppti fingurbrotin á Evrópumeistaramótinu nýverið en kemst þrátt fyrir það á HM. Árangur Thelmu á heimsbikarmóti er ástæðan fyrir þátttökurétti hennar á HM. Þar keppti Thelma til úrslita í golfi á mótinu í Egyptalandi og var nálægt verðlaunasæti. Ísland hefur aldrei áður fengið keppanda á HM út frá árangri á…

## [Fyrsti skóladagurinn á nýrri önn](https://www.mtr.is/is/skolinn/frettir/fyrsti-skoladagurinn-a-nyrri-onn)

_2026-08-20 · Menntaskólinn á Tröllaskaga_

Þá er skólastarfið hafið á ný eftir gott sumarfrí. Fyrsti nemendadagurinn var í gær og var ánægjulegt að sjá okkar unga og efnilega fólk flykkjast í skólann tilbúið að takast á við fyrstu verkefni annarinnar. Nýnemar, í hópi staðnema, eru fleiri en síðustu annir og mátti vel merkja blöndu af tilhlökkun og kvíða meðal þeirra sem eðlilegt er á fyrsta degi. Eldri nemendur gengu til sinna verka af…

## [Breska ríkið útskýrir fyrir hælisleitendum að ekki megi nauðga, stjórna konum eða stunda kynlíf með börnum](https://www.nutiminn.is/forsida/breska-rikid-utskyrir-fyrir-haelisleitendum-ad-ekki-megi-naudga-stjorna-konum-eda-stunda-kynlif-med-bornum/)

_2026-08-20 · Jón Einarsson Þormar Pálsson · Nútíminn_

Breska innanríkisráðuneytið gaf á miðvikudag út nýjan leiðbeiningabækling fyrir hælisleitendur þar sem farið er yfir lög, samfélagsleg viðmið og þá hegðun sem ætlast er til af fólki sem býr í Bretlandi. Í bæklingnum, Understanding behaviours and expectations in the UK: a guide for asylum seekers, er meðal annars útskýrt að karlar og konur hafi jafnan \[…\] Greinin Breska ríkið útskýrir fyrir…

## [Dusta rykið af Tsunoda sem kemur beint af ströndinni](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-20-dusta-rykid-af-tsunoda-sem-kemur-beint-af-strondinni-484440/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Red Bull hafa kallað inn japanska ökuþórinn Yuki Tsunoda vegna meiðsla Isack Hadjar. Fram undan er heimakeppni Max Verstappen, hollenska keppnin í Zandvoort. Tsunoda var á ströndinni í Grikklandi þegar hann fékk kallið en segist himinlifandi að fá tækifæri til að keyra aftur fyrir Red Bull. „Ég vil samt ekki að þið takið því þannig að ég hafi bara verið liggjandi á ströndinni allan tímann. Ég var…

## [„Það er greinilegt að Venesúela hefur alltaf verið til á Íslandi og öfugt“](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-20-thad-er-greinilegt-ad-venesuela-hefur-alltaf-verid-til-a-islandi-og-ofugt-484327/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Gauti Kristmannsson skrifar: Það hljóta að teljast tíðindi að komin sé út fyrsta bókin frá Venesúela sem þýdd hefur verið á íslensku, bók eftir skáldkonuna Teresu de la Parra sem uppi var á fyrri hluta 20. aldar. Kannski ekki skrýtið þegar hugsað er til þess hve lítil samskipti Íslendinga og Venesúela voru áður fyrr. Ég hitti fyrst manneskju frá Venesúela fyrir 30 árum þegar ég var í námi við…

## [Aukið rennsli og mikil gasmengun í Múlakvísl](http://www.vedur.is/um-vi/frettir/litil-hlaup-i-mulakvisl)

_2026-08-20 · Veðurstofa Íslands - Fréttir_

Jökulhlaupið sem hófst í Múlakvísl þann 18. ágúst heldur áfram. Síðan í gær hefur rafleiðni og rennsli í ánni aukist og áfram mælist gasmengun á svæðinu.

## [Hundrað ár frá fyrstu sinfóníutónleikum á Íslandi](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-20-hundrad-ar-fra-fyrstu-sinfoniutonleikum-a-islandi-484356/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Heimsókn Fílharmóníusveitar Hamborgar til Íslands árið 1926 var einn merkasti viðburður íslenskrar tónlistarsögu. Jón Leifs átti frumkvæði að heimsókninni, en hann starfaði sem tónskáld og hljómsveitarstjóri í Þýskalandi. Kona hans, Annie Leifs, var mjög fær píanóleikari og kom með hljómsveitinni sem einleikari. Heinesen notaði tónleikana sem efni í skáldsögu Fyrir utan þá fáu Íslendinga sem höfðu…

## [Klapparfljótið gefur vel](https://skessuhorn.is/blog/klapparfljotid-gefur-vel)

_2026-08-20 · Skessuhorn_

„Það er búið að veiða 41 lax í sumar í Hvolsá og Staðarhólsá,“ segir Úlfar Reynisson sem var að hætta veiðum í góðra vina hópi. „Við veiddum sex laxa, tvo sjóbirtinga og 15 – 20 bleikjur. Það vantar rigningu, báðar árnar eru vatnslitlar. Það er óvenjulítið vatn í Brekkudalsá og þess vegna er óvenjulítið vatn…

## [Jón Þór látinn fara - sá annar í sumar í Garðabæ](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-20-jon-thor-latinn-fara-sa-annar-i-sumar-i-gardabae-484428/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Stjarnan óskaði eftir því að Jón Þór Hauksson myndi láta af störfum sem þjálfari liðsins í Bestu deild karla í fótbolta. Áður hafði Jökull Elísabetarson hætt þjálfun liðsins. Jón Þór hefur stýrt liðinu frá 13. júní og stýrði því liðinu í 68 daga. Alls stýrði hann Stjörnunni í 13 leikjum, bæði í Bestu deildinni og í undankeppni Sambandsdeildarinnar. Síðasti leikur hans með liðið var 3-1 tap gegn…

## [Tæpt tap hjá DV](https://heimildin.is/grein/27090/taept-tap-hja-dv/?utm_medium=rss)

_2026-08-20 · Heimildin_

tg fuf lag DV.is, Fj lmi latorgi ehf, tapa i t pum fj rum millj num kr na fyrra, ri ar sem tekjur l kku u um 14 millj nir. ri ur haf i a hagnast um rj r millj nir kr na. F lagi , sem var stofna 2022 og keypti DV.is t r Torgi ehf, sem gaf l ka t Fr ttabla i og f r rot 2023, hefur aldrei skila j kv u sj streymi. Skuldir f lagsins vi ...

## [Góður árangur á EM](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-20-godur-arangur-a-em-484426/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Evrópu·mótið í frjálsum íþróttum var nýlega. Mótið var í borginni Birmingham. 8 keppendur frá Íslandi fóru á mótið. Íslandi gekk mjög vel. Þetta er besti árangur Íslands í 28 ár. Guðmundur Karlsson er framkvæmda·stjóri Frjáls·íþrótta·sambands Íslands. Guðmundur er mjög ánægður. Guðmundur segir: Við erum á réttri leið. Nokkrir keppendur frá Íslandi náðu góðum árangri: Einn var í 7. sæti. Einn var í…

## [Stómi er á engan hátt endir á lífinu](https://skessuhorn.is/blog/stomi-er-a-engan-hatt-endir-a-lifinu)

_2026-08-20 · Skessuhorn_

Auður Helgadóttir Möller segir frá reynslu sinni af lífinu með stóma og vill með opinskárri frásögn sinni draga úr fordómum og sýna að hægt er að lifa innihaldsríku og góðu lífi þrátt fyrir stóma „Ég geri allt sem ég gerði áður, nákvæmlega allt. Ég þarf bara að aðlaga mig,“ segir Auður Helgadóttir Möller í Borgarnesi.…

## [Umferðaröryggi bætt við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar](https://vegagerdin.is/vegagerdin/starfsemi/frettir/umferdaroryggi-baett-vid-gatnamot-miklubrautar-og-grensasvegar)

_2026-08-20 · Vegagerðin.is_

Á næstu dögum verður ráðist í framkvæmdir við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar með það að markmiði að bæta umferðaröryggi, sýnileika og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Áætlað er að verkinu ljúki um mánaðamótin september-október.

## [Diljá segir Evrópuþingið hafa farið í herferð gegn flokkum sem því líkaði ekki við &#8211; „Ótrúlega andlýðræðislegt apparat“](https://www.nutiminn.is/forsida/dilja-segir-evroputhingid-hafa-farid-i-herferd-gegn-flokkum-sem-thvi-likadi-ekki-vid-otrulega-andlydraedislegt-apparat/)

_2026-08-20 · Jón Einarsson Þormar Pálsson · Nútíminn_

Diljá Mist Einarsdóttir segir að starfsmaður Evrópuþingsins hafi kynnt fyrir henni og Arndísi Önnu Kristínardóttur, áform um kosningaherferð sem meðal annars ætti að vinna gegn fylgi „popúlískra flokka“ í Evrópu. Diljá sagði frá þessu í viðtali við Þórarin Hjartarson í hlaðvarpinu Ein Pæling þar sem rætt var um mikla fylgisaukningu AfD í Þýskalandi en hann \[…\] Greinin Diljá segir Evrópuþingið hafa…

## [Harry og Meghan flytja](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-20-harry-og-meghan-flytja-484417/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Harry prins og Meghan flytja frá Bandaríkjunum. Harry og Meghan flytja aftur til Bretlands í þessum mánuði. Harry og Meghan ætla samt ekki að vinna fyrir konungs·fjölskylduna. Harry og Meghan ætla að búa nálægt borginni London. Húsið er ekki eign konungs·fjölskyldunnar. Harry og Meghan eiga 2 börn. Börnin heita Archie og Lillibet. Archie er 7 ára. Lillibet er 5 ára. Börnin byrja í skóla í…

## [Maður keyrði á ljósastaur](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-20-madur-keyrdi-a-ljosastaur-484415/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Maður keyrði bíl í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Maðurinn keyrði á ljósastaur. Lögreglan heldur að maðurinn hafi brotið umferðar·reglur. Þess vegna varð slysið. Lögreglan rannsakar málið. Enginn meiddist í slysinu. Bíllinn og ljósastaurinn skemmdust. Lögreglan rannsakar líka árás á fólk. Árásin var í Hafnarfirði, Garðabæ eða Álftanesi. Slökkviliðið slökkti eld á gámasvæði í Hafnarfirði. Það var…

## [Hvað þýðir Já fyrir bændur?](https://www.vikubladid.is/is/moya/news/hvad-thydir-ja-fyrir-baendur)

_2026-08-20 · Vikublaðið_

Í kosningunum 29. ágúst nk. munu landsmenn taka afstöðu til þess hvort hefja skuli aðildarferli að ESB. Eðlilegast væri að meta þá ákvörðun fyrst og fremst út frá þjóðhagslegum þáttum; hvort hag Íslands væri betur borgið innan ESB eða utan þess.

## [Tvö mörk Naim tryggðu Víkingi sigur í Ólafsvík](https://skessuhorn.is/blog/tvo-mork-naim-tryggdu-vikingi-sigur-i-olafsvik)

_2026-08-20 · Skessuhorn_

Víkingur Ólafsvík vann mikilvægan 2:1 sigur á Þrótti Vogum þegar liðin mættust á Ólafsvíkurvelli í 18. umferð 2. deildar karla í gær. 110 áhorfendur fylgdust með leiknum. Naim Aaras El Hmaidi var maður leiksins í liði heimamanna og skoraði bæði mörk Víkings. Hann kom liði sínu yfir á 30. mínútu og staðan var 1:0 í…

