# fer (news sources) — RSS Amplifier

Recent posts from the 1 feeds in the RSS Amplifier directory that cover fer.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/fer/news>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/fer/news.md>

---

## [Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga fer fram 8.-11. október í MH](https://skak.is/2026/08/20/fyrri-hluti-islandsmots-skakfelaga-fer-fram-8-11-oktober-i-mh/)

_2026-08-20 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2026-27 fer fram dagana 8.–11. október 2026. Mótsupplýsingar: Fyrsta umferð í úrvalsdeild hefst fimmtudaginn 8. október kl. 19:00 í Taflfélagi Reykjavíkur (Faxafen 12). Aðrar umferðir (og allar umferðir annarra deilda) fara fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð (Hamrahlíð 10). Umferð / Deild Dagur Dagsetning Tími Staður 1. umferð – Úrvalsdeild Fimmtudagur 8. \[…\]

## [Helgi Áss ræðir sjötuga goðsögn, Vigni og skákminni við skákborð Kristjáns Arnar](https://skak.is/2026/08/20/helgi-ass-raedir-sjotuga-godsogn-vigni-og-skakminni-vid-skakbord-kristjans-arnar/)

_2026-08-20 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Kristján Örn Elíasson stjórnar vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið. Í gær settist stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson við skákborð Kristjáns Arnar í Skipholtinu. Í kynningu um þáttinn segir: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og varaborgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík var gestur þáttarins. Í upphafi þáttar var hringt í stórmeistarann Helga…

## [Borgarskákmótið hefst kl. 15:30 &#8211; enn opið fyrir skráningu!](https://skak.is/2026/08/20/borgarskakmotid-fer-fram-fimmtudaginn-20-agust/)

_2026-08-20 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Borgarskákmótið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur fer fram fimmtudaginn 20. ágúst, og hefst kl. 15:30. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem…

## [Íslandsmótið í atskák fer fram á sunnudaginn](https://skak.is/2026/08/20/islandsmotid-i-atskak-fer-fram-sunnudaginn-23-agust/)

_2026-08-20 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Íslandsmótið í atskák verður að þessu sinni haldið sunnudaginn 23. ágúst kl. 13:00 í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12. Heildarverðlaun eru 125.000 kr. Mótið er opið öllum og keppt verður um titil Íslandsmeistara í atskák auk sérstakra verðlauna fyrir konur og ungmenni. Efsta konan verður Íslandsmeistari kvenna í atskák. Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum \[…\]

## [Fimmtudagsmót hjá TR í kvöld](https://skak.is/2026/08/20/fimmtudagsmot-hja-tr-i-kvold-102/)

_2026-08-20 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Hraðskákmót hjá TR í kvöld! Tefldar eru 10 skákir og tímamörkin eru 3 mínútur á skákina að viðbættum 2 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá \[…\]

## [Aleksandr að tafli í Tyrklandi](https://skak.is/2026/08/19/aleksandr-ad-tafli-i-tyrklandi/)

_2026-08-19 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352) situr að tafli þessa dagana á Kapadokya Open í Tyrklandi. Sasha hefur ekki byrjað vel og hefur 1 vinning eftir 3 umferðir. Í móti Sasha, sem fram fer 17.-23. ágúst tefla 84 keppendur og þar af fjórir stórmeistarar. Sasha er nr. 16 í stigaröð keppenda. Heimasíða mótsins Chess-Results Beinar \[…\]

## [Lenka að tafli í Olomouc](https://skak.is/2026/08/19/lenka-ad-tafli-i-olomouc/)

_2026-08-19 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Lenka Ptácníková (2063), stórmeistari kvenna, situr að tafli 16.-23. ágúst í Olomouc í Tékklandi. Teflir þar í 10 manna lokuðuðum flokki og er langstigalægst keppenda. Lenka hefur ekki byrjað vel og hefur ½ vinning eftir fjórar umferðir. Teflir auðvitað í hverri umferð við andstæðinga sem eru mun stigahærri en hún. Meðalstigin í flokki Lenku er \[…\]

## [Íslandsmótið í netskák &#8211; undanrásir fara fram 25. ágúst](https://skak.is/2026/08/18/islandsmotid-i-netskak-undanrasir-fara-fram-25-agust/)

_2026-08-18 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Undanrásir Íslandsmótsins í netskák fara fram, þriðjudaginn 25. ágúst á Chess.com og hefjast kl. 19.30. Til að hafa keppnisrétt þurfa viðkomandi að hafa rétt á því að tefla fyrir Íslands hönd og vera meðlimir í TeamIceland á Chess.com. Tefldar verða 11 umferðir með umhugsunartímanum 3+2. Fjórir efstu + efsta konan fá keppnisrétt í úrslitum. Mótsstig Chess.com gildir séu \[…\]

## [Skákþing Norðlendinga fer fram 18.-20. september](https://skak.is/2026/08/18/skakthing-nordlendinga-fer-fram-18-20-september/)

_2026-08-18 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Skákþingi Norðlendinga sem vera átti í apríl, en var þá frestað verður haldið, 18.- 20. sept. í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð og hefst með hraðskákmóti föstudaginn 18. kl. 20.00. Tímamörk verða 3+2 og umferðafjöldi getur ráðist af þátttöku, en miðað við 11 umf (hámark 14) Á laugardag og sunnudag verður síðan telfd atskák og gert \[…\]

## [Ask the crowd: AI or not (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/Ri6l8JjaEhXb)

_2026-08-18 · **Sponsored**_

Get a transparent verdict from verified humans via web, RSS, or API.

## [Þriðjudagsmót hjá TR í kvöld](https://skak.is/2026/08/18/thridjudagsmot-hja-tr-i-kvold-167/)

_2026-08-18 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig \[…\]

