# esb (news sources) — RSS Amplifier

Recent posts from the 1 feeds in the RSS Amplifier directory that cover esb.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/esb/news>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/esb/news.md>

---

## [Dagur: Samningaviðræður hefjast strax ef svarið verður já](https://utvarpsaga.is/dagur-samningavidraedur-hefjast-strax-ef-svarid-verdur-ja/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Dag B. Eggertsson, þingmann Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra, í síðdegisútvarpinu í dag, um þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Dagur sagði að ef niðurstaðan yrði já myndu samningaviðræður við ESB hefjast strax enda væri aðildarumsókn Íslands um fulla aðild að Evrópusambandinu frá 2009 enn í gildi. Hann sagði þjóðina…

## [Farrar hætti hjá WHO sama dag og Morens játaði að hafa leynt gögnum um COVID-19](https://utvarpsaga.is/farrar-haetti-hja-who-sama-dag-og-morens-jatadi-ad-hafa-leynt-gognum-um-covid-19/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Jeremy Farrar, fyrrverandi aðalvísindamaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO, hættir hjá stofnuninni en tilkynnt var um brotthvarf hans sama dag og David Morens, fyrrverandi ráðgjafi Anthony Fauci, játaði sök vegna þess að hafa leynt opinberum gögnum og eyðilagt gögn sem tengdust uppruna COVID-19. Farrar hefur verið áberandi talsmaður þeirrar kenningar að COVID-19 eigi uppruna sinn í…

## [Verður vísitölutenging lífeyris að fátækragildru með upptöku evru?](https://utvarpsaga.is/verdur-visitolutenging-lifeyris-ad-fataekragildru-med-upptoku-evru/)

_2026-08-21 · Júlíusi Valssyni · Útvarp Saga_

Júlíus Valsson skrifar: Þegar gólfið verður að þaki Alþingi samþykkti hinn 19. mars síðastliðinn frumvarp Flokks fólksins þ.e. lög sem lífeyrisþegar höfðu beðið eftir í áratugi þ.e. að greiðslur almannatrygginga skulu framvegis fylgja launavísitölu Hagstofu Íslands og aldrei hækka minna en verðlag. Breytingin kemur til framkvæmda 1. janúar 2027.Forsagan er flestum kunn. Eldra ákvæðið kvað \[…\]

## [Guðmundur í Brim: Seðlabankinn bremsar á meðan ríkisstjórn stígur á bensíngjöfina](https://utvarpsaga.is/gudmundur-i-brim-sedlabankinn-bremsar-a-medan-rikisstjorn-stigur-a-bensingjofina/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims, í síðdegisútvarpinu í dag, á Útvarpi Sögu um nýjustu stýrivaxtahækkun Seðlabankans og áhrif hennar á íslenskt atvinnulíf. Guðmundur sagði hækkun stýrivaxta í 8% kolranga ákvörðun og vaxtatækið eitt og sér ekki virka á Íslandi þegar ríkissjóður héldi áfram að auka útgjöld. Háir vextir héldu jafnframt gengi krónunnar \[…\]

## [Bandarískir þingmenn ræddu áhættuþætti gervigreindar við páfa](https://utvarpsaga.is/bandariskir-thingmenn-raeddu-ahaettuthaetti-gervigreindar-vid-pafa/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Þverpólitísk sendinefnd 8 þingmanna úr fulltrúadeild Bandaríkjaþings heimsótti Vatíkanið og ræddi við háttsetta embættismenn kaþólsku kirkjunnar um þróun gervigreindar. Þingmennirnir hittu einnig Leó XIV páfa stuttlega en hann hefur lagt sífellt meiri áherslu á siðferðileg, samfélagsleg og efnahagsleg áhrif tækninnar. Greint er frá þessu á vef Politico. Mannleg reisn og jafnrétti í forgrunni Ro…

## [Framkvæmdum við nýjan meðferðarkjarna Landspítala lýkur að mestu 2029](https://utvarpsaga.is/framkvaemdum-vid-nyjan-medferdarkjarna-landspitala-lykur-ad-mestu-2029/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Byggingaframkvæmdum við nýjan meðferðarkjarna Landspítala við Hringbraut er ætlað að ljúka að mestu í árslok 2029. Uppbygging Landspítala stendur yfir til ársins 2031 og nær einnig til framkvæmda við Grensás, Sjúkrahúsið á Akureyri og bráðamóttökuna í Fossvogi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu. Stjórn Nýs Landspítala ohf. og stýrihópur um framkvæmdir við Landspítala og \[…\]

## [Bandarísk stjórnvöld vara við netárásum á vatnsveitur með aðstoð gervigreindar](https://utvarpsaga.is/bandarisk-stjornvold-vara-vid-netarasum-a-vatnsveitur-med-adstod-gervigreindar/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Bandarískar öryggisstofnanir vara við yfirstandandi netárásum þar sem reynt er að komast inn í iðnaðarstýrikerfi sem meðal annars eru notuð í vatns- og fráveitum, orkukerfum og öðrum mikilvægum innviðum. Samkvæmt viðvöruninni nota árásaraðilar meðal annars forritskóða sem búinn er til með aðstoð gervigreindar. Þetta kemur fram í umfjöllun Zerohedge. Siemens-stýribúnaður skotmark árásanna FBI,…

## [NASA mistókst að bjarga Swift-geimsjónaukanum](https://utvarpsaga.is/nasa-mistokst-ad-bjarga-swift-geimsjonaukanum/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

NASA hefur hætt við 30 milljóna dollara björgunarleiðangur sem átti að koma Swift-geimsjónaukanum í hærri braut um jörðu. Björgunarfarið sem átti að ná til sjónaukans varð stjórnlaust og er nú búist við að Swift falli inn í lofthjúp jarðar og brenni þar upp síðar á þessu ári. Þetta kemur fram í frétt France24. Átti að \[…\]

## [Heimsmálin: Óánægja Pólverja með ESB fer vaxandi](https://utvarpsaga.is/heimsmalin-oanaegja-polverja-med-esb-fer-vaxandi/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum um vaxandi spennu milli Póllands og Evrópusambandsins. Guðmundur sagði andstöðu Pólverja við stefnu sambandsins fara vaxandi, meðal annars í innflytjenda- og varnarmálum. Hann sagði þróunina geta leitt til þess að framtíð Póllands innan ESB yrði dregin í efa og nefndi möguleikann á „Polexit“ ef sambandið héldi \[…\]

## [Regluverk ESB hrekur nýsköpunarfyrirtæki vestur um haf](https://utvarpsaga.is/regluverk-esb-hrekur-nyskopunarfyrirtaeki-vestur-um-haf/)

_2026-08-21 · Júlíusi Valssyni · Útvarp Saga_

Júlíus Valsson skrifar: Forstjóri Fenris Creations segir „einhyrninga” flýja sambandið tugum saman og að fyrsta ESB-fyrirtækið á lista yfir verðmætustu fyrirtæki heims sitji í tuttugasta sæti Regluverk ESB er sökudólgurinn Evrópusambandið er orðið afar fjandsamlegt umhverfi fyrir nýsköpunarfyrirtæki og ber íþyngjandi og flókið regluverk sambandsins er þar sökudólgurinn. Þetta kom fram í erindi…

## [AI QA that opens fix PRs (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/5mPIt01AWzBS)

_2026-08-21 · **Sponsored**_

Run a browser QA from plain-English instructions; get GitHub issues and optional fix PRs.

## [Fauci neitar að mæta aftur fyrir þingnefnd eftir að hafa neitað að svara yfir 100 spurningum](https://utvarpsaga.is/fauci-neitar-ad-maeta-aftur-fyrir-thingnefnd-eftir-ad-hafa-neitad-ad-svara-yfir-100-spurningum/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Anthony Fauci, fyrrverandi forstjóri bandarísku Ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunarinnar NIAID, hefur hafnað því að mæta sjálfviljugur aftur fyrir rannsóknarnefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings. Áður hafði hann beitt 5. viðauka stjórnarskrárinnar, sem verndar fólk gegn því að þurfa að bera vitni gegn sjálfu sér, meira en 100 sinnum við yfirheyrslu þingnefndar 29. júlí. Lögmenn Fauci segja frekari…

## [Ólafur Ragnar í beinni útsendingu á morgun laugardag og svarar hlustendum](https://utvarpsaga.is/olafur-ragnar-i-beinni-utsendingu-a-morgun-laugardag-og-svarar-hlustendum/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands og einn stofnenda Áfram Ísland, verður gestur Arnþrúðar Karlsdóttur, í beinni útsendingu á Útvarpi Sögu á morgun, laugardaginn 22. ágúst kl. 13:00 – 15:00. Í þættinum verður rætt um helstu álitamálin í umræðunni um Evópusambandið og stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Hlustendur fá jafnframt tækifæri til að hringja inn í \[…\]

## [Heimsmálin: Covid-uppgjörið gæti náð langt út fyrir Bandaríkin](https://utvarpsaga.is/heimsmalin-covid-uppgjorid-gaeti-nad-langt-ut-fyrir-bandarikin/)

_2026-08-20 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum í dag, um uppgjör vegna Covid-faraldursins eftir að David Morens, fyrrverandi háttsettur ráðgjafi Anthony Fauci hjá bandarísku smitsjúkdómastofnuninni NIAID, játaði sök vegna samsæris um að komast hjá lögum um opinber gögn. Hann játaði einnig svik gagnvart bandaríska ríkinu. Þau sögðu málið geta orðið upphaf að mun \[…\]

## [Nýtt bóluefni gegn sortuæxlum. Hlutabréf Moderna ruku upp](https://utvarpsaga.is/nytt-boluefni-gegn-sortuaexlum-hlutabref-moderna-ruku-upp/)

_2026-08-20 · Júlíusi Valssyni · Útvarp Saga_

Júlíus Valsson læknir skrifar: Hlutabréf líftæknifyrirtækisins Moderna hækkuðu um tæp 177% á miðvikudag og lokuðu í 174,38 dölum á hlut, eftir að fyrirtækið og Merck greindu frá því að sameiginlegt bóluefni þeirra hefði náð meginmarkmiði sínu í þriðja stigs klínískri rannsókn á sortuæxlum. Veltan nam 185 milljónum hluta, eða um 1.800% umfram þriggja mánaða meðaltal, \[…\]

## [Portúgal bannar búrkur á almannafæri](https://utvarpsaga.is/portugal-bannar-burkur-a-almannafaeri/)

_2026-08-20 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Forseti Portúgals, António José Seguro, hefur staðfest lög sem banna búrkur og annan fatnað sem hylur andlit á almannafæri. Lögin hafa verið kölluð „búrku-lögin“ í portúgölskum fjölmiðlum og taka sérstaklega til fatnaðar sem kemur í veg fyrir að hægt sé að bera kennsl á einstakling. Þetta kemur fram í frétt Euronews. Brot gegn lögunum geta \[…\]

## [Rúm 93% treysta ekki upplýsingum frá ríkisstjórninni í ESB málum](https://utvarpsaga.is/rum-93-treysta-ekki-upplysingum-fra-rikisstjorninni-i-esb-malum/)

_2026-08-20 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Afgerandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu segjast ekki treysta upplýsingum frá ríkisstjórninni í ESB-málum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Treystir þú upplýsingum frá ríkisstjórninni \[…\]

## [Spánn flytur 500 stúlkur frá Ceuta til meginlandsins þrátt fyrir afstöðu ESB](https://utvarpsaga.is/spann-flytur-500-stulkur-fra-ceuta-til-meginlandsins-thratt-fyrir-afstodu-esb/)

_2026-08-20 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Spænsk stjórnvöld undirbúa bráðaflutning 500 stúlkna sem komu ólögráða og fylgdarlausar til Ceuta frá Marokkó yfir á spænska meginlandið. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur á sama tíma lýst stuðningi við að þeir sem dvelja ólöglega í Ceuta verði sendir aftur til Marokkó. Þetta kemur fram í umfjöllun Euronews. Stúlkurnar komu til Ceuta í miklum straumi fólks yfir \[…\]

## [Upprifjun: Kristrún vill yfirvegaða og upplýsta umræðu um Evrópusambandsaðild](https://utvarpsaga.is/kristrun-vill-yfirvegada-og-upplysta-umraedu-um-evropusambandsadild/)

_2026-08-20 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Í tilefni af umræðunni um Evrópusamband og þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB var í dag endurflutt viðtal Arnþrúðar Karlsdóttur við Kristrúnu Frostadóttur sem fram fór rétt fyrir kosningar í nóvember 2024. Í þættinum sagði Kristrún meðal annars að ekki væri kominn tími á að opna á viðræðræður þar sem leggja þyrfti áherslu á uppbyggingu \[…\]

## [Fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu skorar Zelenskyy á hólm og krefst kosninga](https://utvarpsaga.is/fyrrverandi-varnarmalaradherra-ukrainu-skorar-zelenskyy-a-holm-og-krefst-kosninga/)

_2026-08-20 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Mykhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, hefur kallað eftir kosningum í landinu og gagnrýnt stjórnarhætti Volodymyrs Zelenskyy forseta. Krafa hans hefur mætt harðri andstöðu þar sem gagnrýnendur segja kosningar á meðan stríðið stendur yfir geta sundrað þjóðinni og auðveldað Rússum að grafa undan stjórnmálakerfi landsins. Frá þessu er greint á vef Politico. Fedorov var rekinn úr…

## [Könnun: Mikill meirihluti vill halda íslensku krónunni](https://utvarpsaga.is/konnun-mikill-meirihluti-vill-halda-islensku-kronunni/)

_2026-08-20 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Mikill meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vill hafa íslensku krónuna áfram sem gjaldmiðil á Íslandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni og birt var í gær. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hvaða gjaldmiðil \[…\]

## [Find what they just said (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/Gy1vtT5280Ff)

_2026-08-20 · **Sponsored**_

Surface recent public signals so you can send policy-aware, relevant outreach

## [Vegna þjóðaratkvæðagreiðslu þykir nauðsyn og skylda því við að bregðast á þann veg að styða og styrkja nei ákvarðanir](https://utvarpsaga.is/vegna-thjodaratkvaedagreidslu-thykir-naudsyn-og-skylda-thvi-vid-ad-bregdast-a-thann-veg-ad-styda-og-styrkja-nei-akvardanir/)

_2026-08-20 · Bjarni Hannesson frá Undirfelli · Útvarp Saga_

Bjarni Hannesson ritar og mynda inn síðuraðar. Sjá nánar með því að smella hér.

## [Samningaviðræður – eða aðlögun?](https://utvarpsaga.is/samningavidraedur-eda-adlogun/)

_2026-08-20 · Júlíusi Valssyni · Útvarp Saga_

Júlíus Valsson skrifar: Utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hefur lagt mikla áherslu á að þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snúist um eitt: hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Í málflutningi hennar eru þær nær undantekningarlaust kallaðar „samningaviðræður“. Mun minna hefur farið fyrir þeirri staðreynd að aðildarferli ESB felur einnig í sér að…

## [„Að kíkja í pakkann“ er blekking þegar reglur ESB liggja fyrir](https://utvarpsaga.is/ad-kikja-i-pakkann-er-blekking-thegar-reglur-esb-liggja-fyrir/)

_2026-08-20 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins, í síðdegisútvarpinu um þjóðaratkvæðagreiðsluna um samningaviðræður við Evrópusambandið. Guðrún hafnaði þeirri framsetningu að Íslendingar væru aðeins að ákveða hvort þeir vildu „kíkja í pakkann“ og sjá hvað fengist í samningum. Hún sagði sameiginlegt regluverk ESB þegar liggja fyrir og grundvallarspurningin væri…

