# eru (news sources) — RSS Amplifier

Recent posts from the 3 feeds in the RSS Amplifier directory that cover eru.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/eru/news>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/eru/news.md>

---

## [Meghan snýr aftur á skjáinn](https://www.visir.is/g/20262924464d/meghan-snyr-aftur-a-skjainn)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Meghan, hertogaynjan af Sussex, stendur nú í viðræðum um hlutverk í Netflix-þáttunum The Gentlemen. Leikkonan fyrrverandi hætti leiklistinni eftir að hún giftist Harry Bretaprinsi, hertoganum af Sussex, árið 2018.

## [TikTok gert að greiða Banda­ríkjunum sögu­lega upp­hæð](https://www.visir.is/g/20262924517d/tiktok-gert-ad-greida-bandarikjunum-sogulega-upphaed)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Samfélagsmiðillinn TikTok hefur samþykkt að greiða Bandaríkjunum fjögur hundruð milljónir Bandaríkjadala, eða um 49 milljarða íslenskra króna, til að ljúka málsókn en miðillinn var sakaður um að brjóta á friðhelgi barna með upplýsingaöflun. Sáttin er ein sú stærsta sem hefur verið gerð vegna slíks máls.

## [Sinner missir af Opna banda­ríska](https://www.visir.is/g/20262924497d/sinner-missir-af-opna-bandariska)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Heimsmeistarinn Jannik Sinner verður ekki með á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis sem hefst á sunnudaginn eftir að hann dró sig úr keppni vegna meiðsla.

## [United nær sam­komu­lagi við Brighton um Baleba](https://www.visir.is/g/20262924511d/united-naer-samkomulagi-vid-brighton-um-baleba)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Manchester United hefur náð samkomulagi við Brighton um kaup á miðjumanninum Carlos Baleba. United greiðir 65 milljónir punda fyrir leikmanninn en upphæðin getur hækkað um fimm milljónir til viðbótar í bónusgreiðslum.

## [„Kær­komið að fá eitt svona mark“](https://www.visir.is/g/20262924513d/-kaerkomid-ad-fa-eitt-svona-mark-)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, segir tilfinningarnar frábærar eftir að hafa sótt 1-0 sigur á Þór/KA fyrir norðan en eina mark leiksins kom á lokamínútu venjulegs leiktíma.

## [Aftur­elding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk](https://www.visir.is/g/20262924481d/afturelding-valtadi-yfir-aegi-og-skoradi-sjo-mork)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Afturelding vann stórsigur á Ægi, 7-0, þegar liðin mættust í 20. umferð Lengjudeildar karla í kvöld.

## [Einn látinn og tveir drengir al­var­lega særðir í Fagersta](https://www.visir.is/g/20262924501d/einn-latinn-og-tveir-drengir-alvarlega-saerdir-i-fagersta)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Einn er látinn og tveir drengir alvarlega slasaðir eftir að maður réðst inn í framhaldsskóla vopnaður sverði í Fagersta í Svíþjóð. Árásarmaðurinn grunaði hefur verið handtekinn og er sagður fyrrum nemandi skólans.

## [Karó­lína Lea skoraði fyrir Inter](https://www.visir.is/g/20262924504d/karolina-lea-skoradi-fyrir-inter)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði fyrir Inter þegar liðið vann Parma, 1-0, í ítalska deildarbikarnum í kvöld.

## [Blaut og vindasöm Menningar­nótt í vændum](https://www.visir.is/g/20262924489d/blaut-og-vindasom-menningarnott-i-vaendum)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp.

## [„Ég skora náttúru­lega ekki oft þannig að þetta er eigin­lega krafta­verk“](https://www.visir.is/g/20262924493d/-eg-skora-natturulega-ekki-oft-thannig-ad-thetta-er-eiginlega-kraftaverk-)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Valur kom sér upp úr fallsæti Bestu deildar kvenna með 1-0 sigri á Þór/KA á VÍS vellinum á Akureyri í kvöld.

## [Find it on Amazon (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/l7UgYVrw58LK)

_2026-08-21 · **Sponsored**_

Open the Amazon product listing to see details and availability

## [Minningarmót um Friðrik Ólafsson fer fram 24.-29. nóvember](https://skak.is/2026/08/21/minningarmot-um-fridrik-olafsson-fer-fram-24-29-november/)

_2026-08-21 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Skáksamband Íslands og Taflfélag Reykjavíkur halda Minningarmót Friðriks Ólafssonar sem 24.–29. nóvember nk. Mótið er tileinkað minningu fyrsta íslenska stórmeistarans, sem lést 4. apríl 2025, níræður að aldri. Mótið fer fram í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur. Friðrik Ólafsson (26. janúar 1935 – 4. apríl 2025) var ekki aðeins fyrsti Íslendingurinn til að hljóta stórmeistaratitilinn árið 1958 heldur…

## [Nýi Land­spítalinn verði til­búinn í árs­lok 2029](https://www.visir.is/g/20262924353d/nyi-landspitalinn-verdi-tilbuinn-i-arslok-2029)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Stefnt er að verklokum við framkvæmd nýs Landspítala í árslok 2029. Á sama tími hefs yfirfærslutími svo hægt sé að hefja starfsemi spítalans á ný.

## [Etur kappi við Obama og Reynolds](https://www.visir.is/g/20262924336d/etur-kappi-vid-obama-og-reynolds)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók eftir Andra Snæ Magnason, hefur verið tilnefnd til tveggja verðlauna á Jackson Wild-verðlaunahátíðinni sem hefur verið lýst sem Óskarsverðlaunum náttúrulífsmynda. Andri Snær er tilnefndur í flokki þula og etur þar kappi við Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Hollywood-stjörnuna Ryan Reynolds.

## [Leik­menn beggja liða fá bönn eftir úr­slita­leik HM](https://www.visir.is/g/20262924359d/leikmenn-beggja-lida-fa-bonn-eftir-urslitaleik-hm)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Leandro Paredes fær tíu leikja bann fyrir slagsmálin eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Leikmenn úr báðum liðum fengu leikbönn.

## [Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið](https://www.visir.is/g/20262924296d/drottningavidtal-thegar-ein-rodd-faer-svidid)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Stundum hlusta ég á viðtöl um umdeild mál í samfélaginu og velti fyrir mér hvert hlutverk spyrilsins eiginlega sé. Viðmælandi fær orðið og segir sína sögu. Það er gott og gilt. Vandinn byrjar þegar frásögn eins einstaklings fær að standa nær óáreitt, jafnvel lengi, án þess að spurt sé um það sem kann að vanta í myndina.

## [Baunað á Jónas Má þvert á flokka](https://www.visir.is/g/20262924325d/baunad-a-jonas-ma-thvert-a-flokka)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Bókað var í gríð og erg á fundi bæjarráðs Kópavogs í gær, þegar bæjarfulltrúar allra flokka nema Samfylkingar sökuðu Jónas Má Torfason, oddvita Samfylkingar, um að taka stöðu með ríkinu í stað sveitarfélagsins.

## [Fyrsta kvenna­lands­liðið í kotru býður á opna æfingu](https://www.visir.is/g/20262924354d/fyrsta-kvennalandslidid-i-kotru-bydur-a-opna-aefingu)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Fyrsta kvennalandslið Íslands í kotru (backgammon) heldur í dag opna lokaæfingu fyrir heimsmeistaramót landsliða í London í Kaffi Dal, Sundlaugavegi 34. Landsliðskonurnar ætla á viðburðinum að kenna gestum, börnum og fullorðnum, að spila spilið. Viðburðurinn er einnig fjáröflun fyrir keppnina.

## [Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum](https://www.visir.is/g/20262924339d/geti-munad-allt-ad-tvo-thusund-kronum-a-matarkorfunni-eftir-verslunum)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Lægsta verðið á matvöru er enn að finna í Prís samkvæmt úttekt Verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var dagana 10. til 14. ágúst. Þegar verð voru borin saman í lágvöruverslununum: Bónus, Krónunni, Nettó og Prís var lægsta verðið oftast að finna í Prís.

## [Þegar náttúran verður okkur framandi](https://www.visir.is/g/20262924293d/thegar-natturan-verdur-okkur-framandi)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Hvað gerist þegar forvitið barn kemur með könguló til að sýna fullorðna fólkinu, en það bregst við með öskri og grípur dagblað að vopni? Barnið lærir ekki aðeins að köngulær séu óvelkomnar, það lærir líka að náttúran sé eitthvað sem þurfi að halda í hæfilegri fjarlægð, helst fyrir utan lokaðan glugga.

## [BBC birtir inn­slag um sögu­legt ein­vígi KR og Liver­pool](https://www.visir.is/g/20262924334d/bbc-birtir-innslag-um-sogulegt-einvigi-kr-og-liverpool)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

BBC hefur birt skemmti­legt inn­slag frá árinu 1964 þegar að KR mætti Liver­pool í Evrópu­keppni félagsliða. Kunnug­legum and­litum bregður fyrir, meðal annars Ellert B. Schram, þá leik­manni KR og Alberti Guð­munds­syni, fyrsta at­vinnu­manni Ís­lands í knatt­spyrnu.

## [A Friend Gave You $30 (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/WFFyr1Zwl7wm)

_2026-08-21 · **Sponsored**_

Sign up, deposit $5 within 30 days, and start investing with expert guidance.

## [Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningar­nótt](https://www.visir.is/g/20262924323d/afmaelistonleikar-bylgjunnar-a-menningarnott)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Fjörutíu ára afmælistónleikar Bylgjunnar verða haldnir í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Stórstjörnur líkt og Friðrik Dór, Birgitta Haukdal og Stebbi Hilmars munu stíga á svið.

## [Taflfélag Reykjavíkur kynnir nýja hraðskákmótaröð!](https://skak.is/2026/08/21/taflfelag-reykjavikur-kynnir-nyja-hradskakmotarod/)

_2026-08-21 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Taflfélag Reykjavíkur kynnir nýja hraðskákmótaröð! Komandi skákvetur mun fyrsta fimmtudagsmót hvers mánaðar hjá Taflfélagi Reykjavíkur verða með stigalágmarki upp á 1900 hraðskákstig. Allir skákmenn yfir 1900 hraðskákstig geta tekið þátt. Mótin hefjast stundvíslega klukkan 19:30 og teflt er í sal Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Hefðbundnu fimmtudagsmótin sem eru opin öllum eru áfram á sinni…

## [Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl Open skákmótið – Skráning í fullum gangi](https://skak.is/2026/08/21/sel-hotel-myvatn-myvatn-ol-open-skakmotid-skraning-i-fullum-gangi/)

_2026-08-21 · Hermann Aðalsteinsson · Skak.is_

Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl og Skákfélagið Goðinn standa saman að opnu alþjóðlegu skákmóti dagana 19-22 nóvember 2026 sem fram fer í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Mótið er sett upp á sama hátt og 20 ára afmælismót Goðans sem fram fór í mars árið 2025 sem þóttist heppnast vel og því er nú leikurinn endurtekinn. Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl er aðal \[…\]

[Listen](https://skak.is/wp-content/uploads/2026/08/AQMHzvosOaAQw3gMmgCFuDCRq7ly10-xt7wRzfQoGGNIOXvM-fl5C6TntZEaDxcFZQQnbQk5Sw_GXbEN9kiZUUfOvj4YFhYBsiyaprAB5A-1.mp4)

## [Aleksandr vann báðar skákir gærdagsins í Tyrklandi](https://skak.is/2026/08/21/aleksandr-vann-badar-skakir-gaerdagsins-i-tyrklandi/)

_2026-08-21 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352) situr að tafli þessa dagana á Kapadokya Open í Tyrklandi. Sasha byrjaði ekki vel og var með 1½ eftir fjórar umferðir. Í gær var tvöfaldur dagur og þá gekk allt upp og Sasha vann báðar skákirnar. Aleksandr hefur 3½ eftir sex umferðir. Sjöunda umferð fer fram í dag. Í móti \[…\]

## [Tvö 100 ára afmælismót Taflfélags Vestmannaeyja fara fram 29.-30. ágúst nk.](https://skak.is/2026/08/21/tvo-100-ara-afmaelismot-taflfelags-vestmannaeyja-fara-fram-29-30-agust-nk/)

_2026-08-21 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Þann 29. ágúst 2026 verða liðin 100 ár frá stofnun Taflfélags Vestmannaeyja, þessa verður minnst með skákmótum og blaðaútgáfu. Á þessum merku tímamótum stendur TV fyrir atskákmóti laugardaginn 29. ágúst nk. kl. 12.00 og ráðgert að því ljúki um kl. 18.00. Tímamörk verða 15 mín. + 5 sek. – veitingar í boði TV- tefldar átta umferðir \[…\]

## [„Eftir að koma í ljós“ hvort ís­lenskar á­hafnir manni leigu­flug Icelandair](https://www.visir.is/g/20262923976d/-eftir-ad-koma-i-ljos-hvort-islenskar-ahafnir-manni-leiguflug-icelandair)

_2026-08-20 · Allar fréttir_

„Það á eftir að koma í ljós,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, aðspurður um hvort íslenskar áhafnir muni manna vélar dótturfélags sem fyrirtækið hyggst koma á fót undir erlendu flugrekstrarleyfi. Fyrr í dag var greint frá kaupum Icelandair á 49 prósenta hlut í FlyPlay Europe sem býr yfir maltnesku flugrekstrarleyfi sem Icelandair ásælist. Bogi segir skrefið styrkja starfsemi…

## [Brann náði í frá­bær úr­slit ytra](https://www.visir.is/g/20262923983d/brann-nadi-i-frabaer-urslit-ytra)

_2026-08-20 · Allar fréttir_

Eggert Aron Guðmundsson lék allan leikinn með Brann sem gerði 1-1 jafntefli við PAOK í forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld en leikurinn fór fram úti í Grikklandi.

## [Hvað veistu um... Köngulóar­manninn?](https://www.visir.is/g/20262920558d/hvad-veistu-um...-konguloarmanninn-)

_2026-08-20 · Allar fréttir_

Köngulóarmaðurinn, eða Spider-Man, er ein þekktasta ofurhetja Marvel-heimsins. Hann getur klifrað veggi og er einstaklega sterkur og lipur og notar köngulóavefi til að sveifla sér milli bygginga.

## [„Ég elska að vera hér“](https://www.visir.is/g/20262923896d/-eg-elska-ad-vera-her-)

_2026-08-20 · Allar fréttir_

Skólastarf hefst á ný í Grindavík í næstu viku eftir tæplega þriggja ára hlé. Skólastjóri segir að fámennur nemendahópur geri starfsfólki kleift að ná enn betur utan um börnin sem rík þörf sé á. Og krakkarnir eru hæstánægðir með að vera komnir til baka.

## [Leik lokið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar](https://www.visir.is/g/20262923664d/leik-lokid-grindavik-njardvik-fram-4-0-unnu-fram-i-thridja-sinn-i-sumar)

_2026-08-20 · Allar fréttir_

Grindavík/Njarðvík jók möguleika sína á að vera í efri helmingi Bestu deildar kvenna eftir skiptingu með 4-0 sigri á Fram í fyrsta leik 16. umferðar í Njarðvík í kvöld. Ása Björg Einarsdóttir skoraði fyrstu tvö leiksins og lagði það þriðja upp fyrir Söntu Vuskane. Sú síðarnefnda lagði svo fjórða og síðasta mark leiksins upp fyrir Emersen Jennings.

## [Make any domain metal (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/dl1Rzsq9IzX0)

_2026-08-20 · **Sponsored**_

Turn any domain into a blacked-out metal landing page with an email waitlist

## [Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga](https://www.visir.is/g/20262923969d/sektadur-um-65-milljonir-fyrir-midlun-innherjaupplysinga)

_2026-08-20 · Allar fréttir_

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur lokið máli einstaklings sem miðlaði innherjaupplýsingum um fyrirhugaðan samruna. Hann féllst á greiðslu sektar upp á 65 milljónir króna.

## [Elías Rafn hélt hreinu og Midtjylland í kjörstöðu](https://www.visir.is/g/20262923964d/elias-rafn-helt-hreinu-og-midtjylland-i-kjorstodu)

_2026-08-20 · Allar fréttir_

Elías Rafn Ólafsson átti góðan leik í marki FC Midtjylland þegar liðið vann Rijeka 2-0 í fyrri leik liðanna í umspili Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.

## [Gestum komið fyrir á öðru hóteli](https://www.visir.is/g/20262923960d/gestum-komid-fyrir-a-odru-hoteli)

_2026-08-20 · Allar fréttir_

Sverrir Einar Eiríksson athafnamaður segir rassíu lögreglunnar á farfuglaheimili og hóteli sem hann rekur í Grímsnesi hafa varðað endurnýjun rekstrarleyfis. Gestum hafi verið komið fyrir á öðru hóteli.

## [Sam­fylkingin aftur stærst en ríkis­stjórnin stendur í stað](https://www.visir.is/g/20262923931d/samfylkingin-aftur-staerst-en-rikisstjornin-stendur-i-stad)

_2026-08-20 · Allar fréttir_

Samfylkingin mælist á ný stærsti flokkurinn á Alþingi í nýrri könnun Maskínu. Flokkurinn bætir mestu við sig milli mánaða en samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna stendur nánast í stað.

## [Síminn orðinn Ásar hf](https://www.visir.is/g/20262923932d/siminn-ordinn-asar-hf)

_2026-08-20 · Allar fréttir_

Hluthafafundur Símans hf. samþykkti í dag að breyta nafni samstæðunnar í Ásar hf. Félagið hefur staðið í stórræðum síðasta árið en í desember síðastliðnum var tilkynnt um kaup þess á bæði Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands. Það var svo í júlí síðastliðnum sem kaup Ása á Greiðslumiðlun Íslands gengu í gegn.

## [Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga fer fram 8.-11. október í MH](https://skak.is/2026/08/20/fyrri-hluti-islandsmots-skakfelaga-fer-fram-8-11-oktober-i-mh/)

_2026-08-20 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2026-27 fer fram dagana 8.–11. október 2026. Mótsupplýsingar: Fyrsta umferð í úrvalsdeild hefst fimmtudaginn 8. október kl. 19:00 í Taflfélagi Reykjavíkur (Faxafen 12). Aðrar umferðir (og allar umferðir annarra deilda) fara fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð (Hamrahlíð 10). Umferð / Deild Dagur Dagsetning Tími Staður 1. umferð – Úrvalsdeild Fimmtudagur 8. \[…\]

## [Helgi Áss ræðir sjötuga goðsögn, Vigni og skákminni við skákborð Kristjáns Arnar](https://skak.is/2026/08/20/helgi-ass-raedir-sjotuga-godsogn-vigni-og-skakminni-vid-skakbord-kristjans-arnar/)

_2026-08-20 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Kristján Örn Elíasson stjórnar vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið. Í gær settist stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson við skákborð Kristjáns Arnar í Skipholtinu. Í kynningu um þáttinn segir: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og varaborgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík var gestur þáttarins. Í upphafi þáttar var hringt í stórmeistarann Helga…

## [Borgarskákmótið hefst kl. 15:30 &#8211; enn opið fyrir skráningu!](https://skak.is/2026/08/20/borgarskakmotid-fer-fram-fimmtudaginn-20-agust/)

_2026-08-20 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Borgarskákmótið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur fer fram fimmtudaginn 20. ágúst, og hefst kl. 15:30. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem…

## [Íslandsmótið í atskák fer fram á sunnudaginn](https://skak.is/2026/08/20/islandsmotid-i-atskak-fer-fram-sunnudaginn-23-agust/)

_2026-08-20 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Íslandsmótið í atskák verður að þessu sinni haldið sunnudaginn 23. ágúst kl. 13:00 í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12. Heildarverðlaun eru 125.000 kr. Mótið er opið öllum og keppt verður um titil Íslandsmeistara í atskák auk sérstakra verðlauna fyrir konur og ungmenni. Efsta konan verður Íslandsmeistari kvenna í atskák. Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum \[…\]

## [Fimmtudagsmót hjá TR í kvöld](https://skak.is/2026/08/20/fimmtudagsmot-hja-tr-i-kvold-102/)

_2026-08-20 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Hraðskákmót hjá TR í kvöld! Tefldar eru 10 skákir og tímamörkin eru 3 mínútur á skákina að viðbættum 2 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá \[…\]

## [Aleksandr að tafli í Tyrklandi](https://skak.is/2026/08/19/aleksandr-ad-tafli-i-tyrklandi/)

_2026-08-19 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352) situr að tafli þessa dagana á Kapadokya Open í Tyrklandi. Sasha hefur ekki byrjað vel og hefur 1 vinning eftir 3 umferðir. Í móti Sasha, sem fram fer 17.-23. ágúst tefla 84 keppendur og þar af fjórir stórmeistarar. Sasha er nr. 16 í stigaröð keppenda. Heimasíða mótsins Chess-Results Beinar \[…\]

## [Lenka að tafli í Olomouc](https://skak.is/2026/08/19/lenka-ad-tafli-i-olomouc/)

_2026-08-19 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Lenka Ptácníková (2063), stórmeistari kvenna, situr að tafli 16.-23. ágúst í Olomouc í Tékklandi. Teflir þar í 10 manna lokuðuðum flokki og er langstigalægst keppenda. Lenka hefur ekki byrjað vel og hefur ½ vinning eftir fjórar umferðir. Teflir auðvitað í hverri umferð við andstæðinga sem eru mun stigahærri en hún. Meðalstigin í flokki Lenku er \[…\]

## [Íslandsmótið í netskák &#8211; undanrásir fara fram 25. ágúst](https://skak.is/2026/08/18/islandsmotid-i-netskak-undanrasir-fara-fram-25-agust/)

_2026-08-18 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Undanrásir Íslandsmótsins í netskák fara fram, þriðjudaginn 25. ágúst á Chess.com og hefjast kl. 19.30. Til að hafa keppnisrétt þurfa viðkomandi að hafa rétt á því að tefla fyrir Íslands hönd og vera meðlimir í TeamIceland á Chess.com. Tefldar verða 11 umferðir með umhugsunartímanum 3+2. Fjórir efstu + efsta konan fá keppnisrétt í úrslitum. Mótsstig Chess.com gildir séu \[…\]

## [Skákþing Norðlendinga fer fram 18.-20. september](https://skak.is/2026/08/18/skakthing-nordlendinga-fer-fram-18-20-september/)

_2026-08-18 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Skákþingi Norðlendinga sem vera átti í apríl, en var þá frestað verður haldið, 18.- 20. sept. í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð og hefst með hraðskákmóti föstudaginn 18. kl. 20.00. Tímamörk verða 3+2 og umferðafjöldi getur ráðist af þátttöku, en miðað við 11 umf (hámark 14) Á laugardag og sunnudag verður síðan telfd atskák og gert \[…\]

## [Þriðjudagsmót hjá TR í kvöld](https://skak.is/2026/08/18/thridjudagsmot-hja-tr-i-kvold-167/)

_2026-08-18 · Taflfélag Reykjavíkur · Skak.is_

Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig \[…\]

