# eru (audio feeds) — RSS Amplifier

Recent posts from the 12 feeds in the RSS Amplifier directory that cover eru.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/eru/audio>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/eru/audio.md>

---

## [Enski boltinn - Miklar breytingar hjá Newcastle](http://utvarp.fotbolti.net/radio/newcastle_1_.mp3)

_2026-08-19 · Fotbolti.net_

Upphitunin heldur áfram fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst á föstudaginn. Núna fáum við að vita meira um stöðuna hjá Newcastle en þar hefur mikið gengið á í sumar. Jón Júlíus Karlsson og Ellert Ingi Hafsteinsson, stuðningsmenn Newcastle, komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og spjölluðu um sitt félag. Þess má geta að Newcastle klúbburinn á Íslandi er með aðalfund sinn 23. ágúst næstkomandi. Hægt…

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/newcastle_1_.mp3)

## [Um stýrivaxtahækkun Seðlabankans](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5378921D0.mp3)

_2026-08-19 · Spegillinn_

Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í morgun hækkun stýrivaxta úr 7.75 prósentum í átta prósent. Það er ekki hægt að segja að þetta hafi komið á óvart, miðað við þróun verðbólgu og fleiri þátta, en engu að síður voru uppi ákveðnar væntingar um að vextirnir héldust óbreyttir. Verðbólgan er það sem talað er mest um í tilkynningu Peningastefnunefndar bankans í dag. Hún hefur verið yfir 5% það…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5378921D0.mp3)

## [Margrét Hallgrímsdóttir í Viðey og Hist Highness](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5472817D0.mp3)

_2026-08-19 · Víðsjá_

Í ár eru 800 ár síðan klaustrið í Viðey hóf starfsemi sína árið 1226, en klaustrið var stofnað af höfðingjum þjóðveldisaldar, Snorra Sturlusyni og Þorvaldi Gissurarsyni. Margrét Hallgrímsdóttir, fornleifafræðingur og fyrrum þjóðminjavörður, fór fyrir fyrstu fornleifarannsókninni á minjum miðaldaklausturs í Viðey á árunum 1987-1995 og vinnur nú að bók um niðurstöður rannsóknanna, sem eru um margt…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5472817D0.mp3)

## [Uppbótartíminn - Breiðablik rústaði toppslagnum](http://utvarp.fotbolti.net/radio/uppbot18agust.mp3)

_2026-08-18 · Fotbolti.net_

Það var aldrei spurning í toppslagnum í Bestu deild kvenna þar sem Breiðablik fór í Kaplakrika og vann þar þægilegan sigur. FH var sigurstranglegra liðið fyrir leikinn en Blikarnir gerðu ótrúlega vel og eru núna með þriggja stiga forystu á toppnum. Rætt var ítarlega um þennan stórleik í Uppbótartímanum í dag. Guðmundur Aðalsteinn settist niður í Coke stúdíóinu með Arnari Páli Garðarssyni og…

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/uppbot18agust.mp3)

## [Enski boltinn - Það á að vera gaman að horfa á Liverpool](http://utvarp.fotbolti.net/radio/enskiliverpool_1_.mp3)

_2026-08-18 · Fotbolti.net_

Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst næstkomandi föstudag. Liverpool tók þá ákvörðun eftir síðasta tímabil að reka Arne Slot og ráða Andoni Iraola og núna hefst áhugaverður kafli hjá félaginu. Það á að vera skemmtilegt að horfa á Liverpool en það var ekki raunin að mestu leyti undir stjórn Slot. Stuðningsmenn vonast til að það verði breyting á því undir stjórn Iraola.…

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/enskiliverpool_1_.mp3)

## [Milljarðauppbygging varnarinnviða á Íslandi og þúsundir stefna Facebook og Instagram.](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5492848D0.mp3)

_2026-08-18 · Spegillinn_

Tugir milljarða fara í uppbyggingu margskonarinnviða á Íslandi þessi misserin. Íslenskir ráðamenn og yfirhershöfðingi NATO segja mikilvægi Íslands aukast vegna stöðu heimsmála og fjárfestinga þörf. Við skoðum hvaða verkefni eru hafi eða að hefjast. Þúsundir mála hafa verið höfðuð í Bandaríkjunum á hendur Meta, móðurfyrirtæki Feisbúkk og Instagram vegna þess að börn og unglingar séu lokkuð að…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5492848D0.mp3)

## [Jarðvegur Önnu Rúnar, Mamma mjöll og draugapennar](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5472816D0.mp3)

_2026-08-18 · Víðsjá_

Á einkasýningu Önnu Rúnar Tryggvadóttur, Jarðvegi, taka á móti gestum fagurlega mótaðar vatnslitamyndir, órætt, líkamlegt landslag sem rennur til og ofan í jarðveginn. Að baki býr leynifélag kvenlegra gilda og viska sem byggir á tilfinningu, alúð og reynslu frekar en á hlutlausri, fjarlægri athugun. Síðustu ár hefur Anna Rún gjarnan unnið með náttúruleg fyrirbæri og ferli og beint með því sjónum…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5472816D0.mp3)

## Ja ella nei til ES?

_2026-08-18 · Breddin_

Ja ella nei til ES, tað er evnið á Breddanum í dag, tí 29. august verður fólkaatkvøða í Íslandi, har fólkið skal gera av um Ísland skal taka samráðingar við ES uppaftur, um ES-limaskap. Íslendingar eru ikki samdir og summar av grundgevingunum fyri og í móti líkjast teimum føroysku. Hvat er tað sum hendir í Íslandi í løtuni, hvørjar eru grundgevingarnar fyri og ímóti íslendskum limaskapi í ES og…

[Listen](https://vod.kringvarp.fo:8081/podcast/audio/2026/1827528.high.m4a)

## [Harkið - VÖK sýningin](http://utvarp.fotbolti.net/radio/posta.mp3)

_2026-08-18 · Fotbolti.net_

Harkið fór yfir stærstu atvikin í sautjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3. deild: 07:30 Uppgjör 2. deild: 42:58 Spá: 01:27:52 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/posta.mp3)

## [38 umferðir - Síðasti upphitunarþátturinn áður en fantasy fer af stað á föstudag](http://utvarp.fotbolti.net/radio/38umferd-ep.3.mp3)

_2026-08-18 · Fotbolti.net_

Þriðji þátturinn af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á samfélagsskildinum, helstu leikmönnum sem þeir eru að íhuga fyrir umferð 1 og fóru yfir liðin sín eins og þau líta út í dag, þó vissulega muni margt breytast…

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/38umferd-ep.3.mp3)

## [Marketplace for AI-Powered Professionals (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/90OF4fgQckVs)

_2026-08-18 · **Sponsored**_

Find professionals who use ChatGPT, Copilot, and Claude to deliver work faster.

## [Innkastið - Rokk og ról í Vesturbæ](http://utvarp.fotbolti.net/radio/17_08_2026_innkastheild.mp3)

_2026-08-17 · Fotbolti.net_

Innkastið eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Maggi Hödd, Magnús Haukur Harðarson. Sex marka jafntefli á fullum Meistaravöllum, Víkingar stöðvuðu göngu FH, Fram vann Stjörnuna, KA og Valur gerðu átta marka jafntefli, ÍA vann í Eyjum og Þór tapaði fyrir vængbrotnu Keflavíkurliði.

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/17_08_2026_innkastheild.mp3)

## [Aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður og gróðureildar geisa í Evrópu](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5443244D0.mp3)

_2026-08-17 · Spegillinn_

Svo mjótt er á munum milli þeirra sem ætla að segja já og nei við því að Ísland hefji á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið að ekki er hægt að segja til um hvernig fer 29. ágúst . Í síðasta þjóðarpúlsi Gallups sagðist rétt rúmur helmingur, fimmtíu og eitt og hálft prósent, myndu segja já en fjörutíu og átta og hálf prósent nei. Þessi munur er ekki marktækur. Um sjö prósent sögðust ekki hafa…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5443244D0.mp3)

## [Ásta Dóra, María Qing og Henry Threadgill](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5472466D0.mp3)

_2026-08-17 · Víðsjá_

Fyrsti þáttur haustsins er tileinkaður tónlist úr mjög ólíkum áttum. Þær Ásta Dóra Finnsdóttir og María Qing Sigríðardóttir eru meðal stærstu vonarstjarna okkar á sviði klassískrar tónlistar. Ásta Dóra stundar nám í Curtis, einum virtasta tónlistarháskóla heims, og María er eftirsóttur sellisti í Þýskalandi, þar sem hún er búsett. Þrátt fyrir að vera rétt um tvítugt hafa þær báðar leikið einleik…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5472466D0.mp3)

## [Útvarpsþátturinn - Gluggadómar, fyrirliðinn í Krikanum og enski að byrja](http://utvarp.fotbolti.net/radio/15_8_utvarpsnet.mp3)

_2026-08-15 · Fotbolti.net_

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Skoðað er hvaða félög gerðu bestu hlutina í sumarglugganum, hitað upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni, rætt um Evrópuleiki Víkings og Vals og Lengjudeildin skoðuð. Í seinni hluta þáttarins er Ísak Óli Ólafsson fyrirliði FH á línunni og Daníel Geir Moritz ræðir um enska boltann sem er að rúlla af…

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/15_8_utvarpsnet.mp3)

## [Sumar-Heimskviður - Barneignir og uppeldi](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5487846D0.mp3)

_2026-08-15 · Heimskviður_

Í Sumarheimsviðunum í dag ætlum við að huga að barneignum og barnauppeldi. Byrjum á byrjuninni, það þarf að eignast börnin áður en byrjað er að ala þau upp. En afhverju er fæðingartíðni stöðugt að lækka í heiminum og hvaða efnahagslegu og pólitísku afleiðingar hefur það á komandi árum? Jarðarbúum er vissulega enn að fjölga en nýjasta spá Sameinuðu þjóðanna gerir ráð fyrir að mannfjöldinn á…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5487846D0.mp3)

## [Óhagstæður viðskiptajöfnuður, erfitt að bóka tíma hjá heilsugæslunni og gervigreindin bókar í ræktina](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5378918D0.mp3)

_2026-08-14 · Spegillinn_

Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 441,9 milljarða króna sem er 63 milljörðum króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr. Ævar Örn Jósepsson veltir því fyrir sér með Katrínu Ólafsdóttur, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík hvað það þýðir. Mörgum hefur reynst erfitt að bóka tíma hjá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu því fólki sem…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5378918D0.mp3)

## [Enski boltinn - Næsta skref hjá Aston Villa eftir Evróputitilinn](http://utvarp.fotbolti.net/radio/enskiastonvilla.mp3)

_2026-08-14 · Fotbolti.net_

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Þeir Jón Haukur Baldvinsson og Bjarni Gaukur Sigurðsson komu í Coke stúdíóið til að ræða um sitt uppáhalds félag, Aston Villa. Aston Villa vann Evrópudeildina á síðustu leiktíð og fer núna…

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/enskiastonvilla.mp3)

## [Verðbólgan og vinnumarkaðurinn, drónar og fjölþáttaógnir.](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5378917D0.mp3)

_2026-08-13 · Spegillinn_

Það er hvorki fyrsti kostur launþega né atvinnurekenda að segja upp samningum í september en launþegar geta ekki einir setið uppi með kostnað af verðbólgunni, segir ASÍ. SA telur aftur á móti að kaupmátturinn hafi skilað sér. Óljóst er hvort samningum verður sagt upp í haust. Drónar voru eitt sinn skemmtilegt leikfang en hugvitsamir hermenn breyttu þeim og nú eru drónar notaðir í stríði og…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5378917D0.mp3)

## [Sólmyrkvinn](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5378916D0.mp3)

_2026-08-12 · Spegillinn_

Spegill miðvikudagsins 12. ágúst var helgaður almyrkva á sólu. Rætt var stuttlega við Runólf Þórhallsson sviðsstjóra Almannavarna hjá ríkislögreglustjóra um viðbúnað vegna sólmyrkvans og þess fjölda gesta og viðburða sem honum tengjast. Síðan var komið að myrkvanum sjálfum og rætt við Gunnlaug Björnsson stjarneðlisfræðing og prófessor við Háskóla Íslands, en hann fór fyrir hópi þeirra sem reiknuðu…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5378916D0.mp3)

## [Enski boltinn - Chelsea fór úr mesta lúðanum í mesta töffarann](http://utvarp.fotbolti.net/radio/enskichelsea.mp3)

_2026-08-12 · Fotbolti.net_

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Í dag er komið að því að heyra frá stuðningsmönnum Chelsea, þeim Stefáni Marteini og Haraldi Erni. Þeir mættu í Coke stúdíóið og fóru yfir stöðu mála. Xabi Alonso er tekinn við stjórnartaumunum…

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/enskichelsea.mp3)

## [Ship software peacefully (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/F4DKyaQiLyr8)

_2026-08-12 · **Sponsored**_

Connect your repo and deploy instantly — Railway handles config, scaling, and monitoring.

## [38 umferðir - Yfirferð yfir öll 20 liðin í deildinni og skoðum liðsuppstillingar með og án Haaland](http://utvarp.fotbolti.net/radio/38-umferdir-ep2.mp3)

_2026-08-12 · Fotbolti.net_

Annar þátturinn af 38 umferðum er kominn út en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á öllum 20 liðunum í deildinni og fóru yfir tvær mismunandi uppstillingar hvor sem þeir sjá fyrir sér að stilla upp í fyrstu umferð, eitt lið með Haaland og eitt lið…

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/38-umferdir-ep2.mp3)

## [Harkið - Slagsmál í Mosó](http://utvarp.fotbolti.net/radio/LOKA_01.mp3)

_2026-08-12 · Fotbolti.net_

Harkið fór yfir stærstu atvikin í sextándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. uppgjör 3.deild: 11:17 uppgjör 2.deild: 44:06 Spá:01:28:28 Gatorade bikarinn: 01:33:52 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/LOKA_01.mp3)

## [Evrópusambandið og stjórnarskráin, varnir Færeyja og úlfur veldur usla á Jótlandi](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5379265D0.mp3)

_2026-08-11 · Spegillinn_

Ef innganga í Evrópusambandið yrði samþykkt verður að breyta ákvæðum i stjórnarskrá og leyfa framsal valds til þess; en það er flókið verkefni og alls ekki einhlítt hvernig að þvi yrði staðið segir Davíð Þór Björgvinsson lögfræðingur. Danir vilja auka viðveru hers í Færeyjum – áforma æfingar, eftirlitsflug orrustuþotna og heimsóknir herskipa. Heini í Skorini, dósent í alþjóðastjórnmálum við…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5379265D0.mp3)

## [Innkastið - KR getur orðið Íslandsmeistari](http://utvarp.fotbolti.net/radio/810frssahkdhi.mp3)

_2026-08-10 · Fotbolti.net_

Innkastið eftir 18. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestasérfræðingur er Gunnar Jarl Jónsson. KR vann stórskemmtilegan stórleik gegn Fram, Víkingar slökuðu á og töpuðu niður forystu, Akureyrarliðin sitja í fallsætum, Stjörnumenn unnu tíu Keflvíkinga og Valur vann Breiðablik.

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/810frssahkdhi.mp3)

## [Uppbótartíminn - Gleði í neðri hlutanum](http://utvarp.fotbolti.net/radio/PODCAST_001_01.mp3)

_2026-08-10 · Fotbolti.net_

Magnús Haukur og Arnar Páll settust niður í hljóðver og fóru yfir 15. umferð Bestu deildar kvenna, spáðu í spilin fyrir komandi umferð og ræddu Evrópuævintýri Blika. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/PODCAST_001_01.mp3)

## [Hvert og hve margir verða á ferðinni á degi sólmyrkvans og flóttinn til Ceuta](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5492842D0.mp3)

_2026-08-10 · Spegillinn_

Miðvikudagurinn verður prófsteinninn á hvernig undirbúningur fyrir almyrkva á sólu hefur tekist til. Það var reynt að horfa til reynslu annarra af álíka viðburðum, segir Dagbjartur Brynjarsson sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu en sólmyrkvinn er einstakur atburður og ekki raunhæft að miða innviðauppbyggingu við einn dag. Stóri óvissuþátturinn á þessum degi sé kannski hvernig…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5492842D0.mp3)

## [Enski boltinn - Getur Man Utd barist um titilinn í ár?](http://utvarp.fotbolti.net/radio/enskimanutd.mp3)

_2026-08-10 · Fotbolti.net_

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Í dag er komið að heyra hvað stuðningsmenn Manchester United hafa að segja. Grétar Óskarsson og Orri Freyr Rúnarsson mættu í Coke stúdíóið. Michael Carrick er að fara inn í sitt fyrsta heila…

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/enskimanutd.mp3)

## [Útvarpsþátturinn - Stefán Páls og Siggi Raggi](http://utvarp.fotbolti.net/radio/88_88_radiopnet.mp3)

_2026-08-08 · Fotbolti.net_

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í beinni á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltavikuna og það sem er framundan. Sérstakur gestur er Stefán Pálsson. Hitað er upp fyrir komandi leiki í Bestu deildinni, þá sérstaklega stórleik Fram og KR sem verður á mánudag. Einnig er rætt um Luton og St. Pauli. Í seinni hluta þáttarins er Sigurður Ragnar Eyjólfsson á línunni frá Færeyjum en hann hefur…

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/88_88_radiopnet.mp3)

## [Sumar-Heimskviður - Færeyjar](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5487795D0.mp3)

_2026-08-08 · Heimskviður_

Sumarþættir Heimskviða halda ótrauðir áfram og í dag ætlum við að heimsækja nágranna okkar í Færeyjum og huga bæði að jarðgöngum og handbolta. Það eru fáir jafn duglegir að gera jarðgöng og Færeyingar - í það minnsta miðað við höfðatölu. 23 tvíbreið jarðgöng eru þar núna - ríflega tvöfalt fleiri en á Íslandi. Nú eru Færeyingar með háleitar áætlanir um næstlengstu neðansjávargöng í heimi, sem yrði…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5487795D0.mp3)

## [Sólmyrkvinn og veðrið](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5506429D0.mp3)

_2026-08-07 · Spegillinn_

Tugir þúsunda bíða spenntir eftir sjónarspilinu mikla, sólmyrkvanum, næstkomandi miðvikudag. Upplifunin mun óhjákvæmilega markast mjög af veðrinu, heiðskír himinn er óskastaðan en dumbungur öllu verri, að ekki sé minnst á svargráa og regnbólgna kólgubakka. En það er ekki bara veðrið sem hefur áhrif á upplifun fólks á almyrkvanum - hann hefur líka áhrif á veðrið. En hvernig? Spegillinn bar það…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5506429D0.mp3)

## [Chovy's Blog: Agentic Coding (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/38f2lq9S5kDB)

_2026-08-07 · **Sponsored**_

Personal posts on agentic coding, moshcode CLI, and security findings.

## [Sólmyrkvinn og veðrið](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5506404D0.mp3)

_2026-08-07 · Spegillinn_

Tugir þúsunda bíða spenntir eftir sjónarspilinu mikla, sólmyrkvanum, næstkomandi miðvikudag. Upplifunin mun óhjákvæmilega markast mjög af veðrinu, heiðskír himinn er óskastaðan en dumbungur öllu verri, að ekki sé minnst á svargráa og regnbólgna kólgubakka. En það er ekki bara veðrið sem hefur áhrif á upplifun fólks á almyrkvanum - hann hefur líka áhrif á veðrið. En hvernig? Spegillinn bar það…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5506404D0.mp3)

## [Enski boltinn - Lífið eftir Guardiola](http://utvarp.fotbolti.net/radio/enskimancity.mp3)

_2026-08-07 · Fotbolti.net_

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Við byrjum á Manchester City sem endaði í öðru sæti á síðasta tímabili en City hefur gengið í gegnum miklar breytingar í vetur. Pep Guardiola umbreytti félaginu öllu en hann er núna horfinn á…

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/enskimancity.mp3)

## [Barnalandsliðin vinna ekkert án Heimis og mánuður í mót](https://soundcloud.com/user-611371936/barnalandsli-in-vinna-ekkert)

_2026-08-06 · Handkastið_

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már kíktu í stúdíó Handkastsins og fór yfir fréttir vikunnar. Handboltapassinn er kominn yfir á Livey. 18 ára landsliðs okkar datt út í dag gegn Þýskalandi á HM. Heimir Ríkharðsson er eini þjálfarinn sem hefur klárað þann stóra. Mánuður í mót og mörg lið þurfa ennþá að styrkja sínar herbúðir fyrir veturinn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti…

[Listen](https://feeds.soundcloud.com/stream/2377015172-user-611371936-barnalandsli-in-vinna-ekkert.mp3)

## [Íslenskir bændur og ESB](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5506378D0.mp3)

_2026-08-06 · Spegillinn_

Íslenskur landbúnaður stendur á krossgötum, segir í skýrslu Bændasamtakanna um mögulega aðild að Evrópusambandinu. Bændur hafa boðað aukabúnaðarþing 14. ágúst og þar á að ræða og álykta um þessi mál. Í skýrslunni sem kynnt var í morgun er á um 130 síðum og í átta köflum farið yfir hvort í ESB-aðild fælist fyrst og fremst tæknileg breyting eða kerfisbreyting fyrir íslenskan landbúnað og sjónum…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5506378D0.mp3)

## [38 umferðir: Nýtt hlaðvarp Fótbolta.net um draumaliðsleik enska boltans](http://utvarp.fotbolti.net/radio/klippt.mp3)

_2026-08-06 · Fotbolti.net_

38 umferðir er nýtt hlaðvarp fotbolta.net um Fantasy Premier League, draumaliðsleik enska boltans. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Fyrsti þáttur tímabilsins fór í loftið í dag. Fantasy Premier League nýtur gríðarlegra vinsælda á Íslandi þar sem yfir 25 þúsund Íslendingar spila leikinn. Albert og Sindri munu vera með þátt eftir allar 38 umferðir tímabilsins, greina frá því…

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/klippt.mp3)

## [Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri](http://utvarp.fotbolti.net/radio/85_nkorea_innk.mp3)

_2026-08-05 · Fotbolti.net_

Innkastið eftir 17. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn fara yfir leikina og alla helstu fréttamolana þar í kring. Deildin er að spilast á mjög áhugaverðan hátt. Eru KA og ÍBV á leiðinni niður? Það er nóg að gerast á skrifstofu Íslandsmeistara Víkings.

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/85_nkorea_innk.mp3)

## [Skyldur Íslands í loftslagsmálum](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5506402D0.mp3)

_2026-08-05 · Spegillinn_

Í ráðgefandi áliti Alþjóðadómstólsins í Haag á skyldum ríkja vegna loftslagsbreytinga frá því í fyrra kemur skýrt fram að þar sem loftslagsmál hafi áhrif á öllum sviðum mannlegrar tilveru, alstaðar í heiminum beri öllum heimsins ríkjum skylda til þess að vernda loftslagið af fremsta megni. Bjarni Már Magnússon, doktor í lögfræði og sérfræðingur í þjóðarétti, rýndi í álitið fyrir Loftslagsráð. Hann…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5506402D0.mp3)

## [Sumar-Heimskviður - Dýrin stór og smá](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5487894D0.mp3)

_2026-08-01 · Heimskviður_

Þá eru það dýrin stór og smá sem verða í aðalhlutverki hjá okkur í dag. Við fjölluðum um pöndupólitík fyrr á árinu, en það má eiginlega segja að pöndur séu krúttlegustu diplómatarnir. Talið er að pöndur í heiminum séu nú um 2.700. Þar af lifa nærri 2.000 villtar í Kína. Kínverjar hafa í áratugi stundað pöndupólitík, ef ríki vilji fá til sín pöndur þurfi þau að vera í góðum samskiptum við yfirvöld…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5487894D0.mp3)

## [Útvarpsþátturinn - Slagsmál og Schram með skikkju](http://utvarp.fotbolti.net/radio/31_7_2026_utvarpversl.mp3)

_2026-07-31 · Fotbolti.net_

Verslunarmannahelgin 2026. Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er áfram í sumarútgáfu, frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta. Besta deildin, Evrópuleikirnir, Lengjudeildin og í lokin er farið yfir í erlenda fótboltann. Það var slegist í Keflavík, Valur komst áfram í Evrópu og Þróttur vann toppslag Lengjudeildarinnar.

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/31_7_2026_utvarpversl.mp3)

## [Harkið - Great escape?](http://utvarp.fotbolti.net/radio/Eiki.mp3)

_2026-07-30 · Fotbolti.net_

Harkið fór yfir stærstu atvikin í fimmtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. uppgjör 3.deild: 9:20 uppgjör 2.deild: 33:30 spá: 01:02 Gatorade bikarinn: 01:08 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/Eiki.mp3)

## [Uppbótartíminn - Stór félög í bullandi vandræðum](http://utvarp.fotbolti.net/radio/uppbot29juli.mp3)

_2026-07-29 · Fotbolti.net_

Þrettán umferðir eru búnar í Bestu deild kvenna og það er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört komu sér fyrir í hljóðveri og fóru yfir umferðina. Það eru stór félög í vandræðum í deildinni, það er svakalegur pakki að myndast í neðri hlutanum og á toppnum eru tvö lið jöfn. Hvað gerist áður en glugginn lokar. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/uppbot29juli.mp3)

## [Innkastið - Stefnir í trylltan dans í neðri hlutanum](http://utvarp.fotbolti.net/radio/27_7_innkastz.mp3)

_2026-07-27 · Fotbolti.net_

Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Páll eftir 16. umferð Bestu deildarinnar. Er komin einhver hræðsla í liðin? Akureyrarslagurinn olli vonbrigðum, Stjörnumenn hörmulegir gegn Skagamönnum og Aron Einar átti stutt innlit.

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/27_7_innkastz.mp3)

## [Harkið - Þrennu VÖK](https://utvarp.fotbolti.net/radio/harkupdated.mp3)

_2026-07-27 · Fotbolti.net_

Harkið fór yfir stærstu atvikin í fjórtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 06:00 Uppgjör 2.deild: 36:55 Spá: 01:10 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

[Listen](https://utvarp.fotbolti.net/radio/harkupdated.mp3)

## [Sumar-Heimskviður - Sjónvarp](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5487893D0.mp3)

_2026-07-25 · Heimskviður_

Við ætlum að huga að sjónvarpinu í dag, þegar við höldum áfram að rifja upp brot frá liðnum Heimskviðuvetri. Við byrjum á einum vinsælustu og kannski óvæntustu þáttum ársins, Heated Rivalry. Þessi fremur ódýra framleiðsla á sjónvarpsþáttunum sex borgaði sig svo um munar. Aðalleikararnir tveir eru orðnir stórstjörnur, annar þeirra var gestgjafi í Saturday Night Live síðar í mánuðunum. Þeir voru…

[Listen](https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5487893D0.mp3)

## [Útvarpsþátturinn - Bikartöfrar, Evrópustig og Akureyrarslagur](http://utvarp.fotbolti.net/radio/24_7_2026_utvarpsumm.mp3)

_2026-07-24 · Fotbolti.net_

Þátturinn er aftur frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir allt það helsta. Hver er bestur í Bestu?, bikargleði Mosfellinga, öflug Evrópuvika, spennandi Akureyrarslagur framundan og er 64 liða HM kannski málið eftir allt saman?

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/24_7_2026_utvarpsumm.mp3)

## [Harkið - Draugavíti í Mosfellsbæ](http://utvarp.fotbolti.net/radio/PODBJARNI.mp3)

_2026-07-22 · Fotbolti.net_

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/PODBJARNI.mp3)

## [Uppbótartíminn - FH óstöðvandi og til skammar fyrir Val](http://utvarp.fotbolti.net/radio/uppbot21juni.mp3)

_2026-07-21 · Fotbolti.net_

Uppbótartíminn snýr aftur eftir stutt sumarfrí. Rætt er um umferðina sem var að klárast í Bestu deildinni en ótrúleg úrslit áttu sér stað á Hlíðarenda og í Kaplakrika í kvöld. Valur og Víkingur eru í fallsæti og það er væntanlega mikið fundað hjá þessum félögum þessa dagana. Á hinum enda töflunnar eru FH og Breiðablik í góðum gír, og þá sérstaklega FH-ingar sem eru óstöðvandi fyrir framan markið…

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/uppbot21juni.mp3)

## [Kaffispjallið: Uppköst, húðflúr á hálsi og Casillas eða Neuer?](http://utvarp.fotbolti.net/radio/file.mp3)

_2026-07-21 · Fotbolti.net_

Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, mætti í annan þátt Kaffispjallsins. Farið var yfir hvað leiddi hann aftur í búrið á öðru ári í 2. flokki, skiptin frá Njarðvík til Keflavíkur og hvað virkilega gerðist þegar hann gisti hjá Stefáni Jóni Friðrikssyni.

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/file.mp3)

## [Innkastið - Breytingar í vændum á Akranesi?](http://utvarp.fotbolti.net/radio/20_07_innkz_gm.mp3)

_2026-07-20 · Fotbolti.net_

Innkastið eftir 15. umferð Bestu deildarinnar. Valur Gunnars stýrir ferðinni þessa vikuna og með honum eru Sæbjörn Steinke og Jói Skúli. Þórsarar voru fyrstir til að vinna Víkinga í deildinni, Evrópukeppnin er að trufla liðin, KA hélt ekki út manni fleiri og Skaginn í frjálsu falli.

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/20_07_innkz_gm.mp3)

## [HM hringborðið - Leiðinlegasti úrslitaleikur sögunnar?](http://utvarp.fotbolti.net/radio/lasthringbord.mp3)

_2026-07-20 · Fotbolti.net_

Síðasta HM hringborð mótsins. Spánverjar heimsmeistarar og Englendingar hirtu bronsið. Magnús Haukur Harðarson og Kári Snorrason fóru yfir úrslitaleikinn, bronsleikinn og veittu viðurkenningar.

[Listen](http://utvarp.fotbolti.net/radio/lasthringbord.mp3)

