# ekki (news sources) — RSS Amplifier

Recent posts from the 5 feeds in the RSS Amplifier directory that cover ekki.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/ekki/news>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/ekki/news.md>

---

## [Stefán Teitur með tvennu í þægi­legum bikarsigri](https://www.visir.is/g/20262924666d/stefan-teitur-med-tvennu-i-thaegilegum-bikarsigri)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Stefán Teitur Þórðarson skoraði tvö mörk fyrir Hannover 96 í þægilegum 1-9 sigri gegn SV Hemelingen í fyrstu umferð þýska bikarsins.

## [Norris náði ráspólnum aftur](https://www.visir.is/g/20262924661d/norris-nadi-raspolnum-aftur)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Ríkjandi meistarinn Lando Norris hjá McLaren er ekki tilbúinn að játa sig sigraðan í baráttunni um heimsmeistaratitilinn og tryggði sér fremstu stöðu í Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í Hollandi á morgun.

## [Segir aug­ljóst að lögum hafi ekki verið fram­fylgt við kyrrsetninguna](https://www.visir.is/g/20262924637d/segir-augljost-ad-logum-hafi-ekki-verid-framfylgt-vid-kyrrsetninguna)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Paul Watson krefst endurupptöku á beiðni Hvals hf. um kyrrsetningu skipsins Banderos á grundvelli laga um kyrrsetningu en augljóst sé að þeim hafi ekki verið framfylgt. Félagið sem á Bandero hafi ekki verið gert vart við kyrrsetningarbeiðni Hvals hf. og því ekki gefist tækifæri til mótmæla kröfu Hvals áður en kyrrsetningu lauk.

## [Tveir lögreglumenn meðal látinna eftir árekstur í Bretlandi](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-tveir-logreglumenn-medal-latinna-eftir-arekstur-i-bretlandi-484605/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sjö létu lífið í hörðum árekstri á hraðbraut nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt. Tveir lögreglumenn eru meðal látinna. Áreksturinn varð þegar lögreglubíll var að eltast við fólksbíl sem grunur leikur á að hafi ekið á öfugum vegarhelmingi. Fjórtán sjúkrabílar voru sendir á vettvang og hraðbrautinni var lokað. Allir farþegar beggja bíla voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Samfélagið í áfalli…

## [Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni](https://www.visir.is/g/20262924652d/diana-vard-meistari-meistaranna-eftir-vitakeppni)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe er meistari meistaranna í þýska handboltanum. 22-22 jafntefli varð niðurstaða meistaraleiksins en 26-24 sigur vannst eftir vítakeppni gegn Borussia Dortmund.

## [Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjár­magnar](https://www.visir.is/g/20262924648d/infantino-bedinn-um-ad-maeta-ekki-a-barnamot-sem-fifa-fjarmagnar)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Gianni Infantino, umdeildur forseti FIFA, var beðinn um að mæta ekki á fótboltamót ungmenna sem fer fram í Lýðveldi Dóminíkana um helgina. Óttast var að viðvera hans myndi draga neikvæða athygli að mótinu.

## [„Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“](https://www.visir.is/g/20262924643d/-their-litu-ut-fyrir-ad-vera-ekki-i-formi-)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Alan Shearer segir lið Manchester United hafa litið út fyrir að vera ekki í leikformi í 2-0 tapi gegn Hull City í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

## [Segja Morgun­blaðið leggja þeim orð í munn](https://www.visir.is/g/20262924624d/segja-morgunbladid-leggja-theim-ord-i-munn)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Þrír prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík segja frétt Morgunblaðsins um að þeir telji engar undanþágur í boði við aðild vera ranga. Einn prófessoranna segir blaðið leggja sér orð í munn.

## [Björguðu veikum göngumanni í kíló­metrahæð á Fimm­vörðu­hálsi](https://www.visir.is/g/20262924632d/bjorgudu-veikum-gongumanni-i-kilometrahaed-a-fimmvorduhalsi)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Björgunarsveitir björguðu í gær veikum einstaklingi sem hafði verið í ferð með gönguhópi á leið yfir Fimmvörðuháls. Aðstæður voru erfiðar, í mikilli þoku, í brattri brekku, í ríflega kílómetershæð.

## [Heildar­kostnaður aðildar­við­ræðna gæti sam­svarað 300–700 kr. á mann á mánuði](https://www.visir.is/g/20262924627d/heildarkostnadur-adildarvidraedna-gaeti-samsvarad-300-700-kr.-a-mann-a-manudi)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Nokkuð hefur verið rætt um kostnað vegna mögulegra aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Markmið þessarar greinar er ekki að færa rök með eða á móti aðild, heldur að setja kostnaðinn við að fara í aðildarviðræður við ESB í samhengi við þann fjölda landsmanna sem kostnaðurinn dreifist á.

## [Crypto Payments, No Custody (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/5OYI3q9IoqBT)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Send crypto to merchant wallets via API with real-time updates and automatic fees.

## [Stöðug­leiki í vaxtaþróun langra ríkis­bréfa merki um „seiglu“ ís­lenska markaðarins](https://www.visir.is/g/20262924620d/stodugleiki-i-vaxtathroun-langra-rikisbrefa-merki-um-seiglu-islenska-markadarins)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Á meðan ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa hefur rokið upp beggja vegna Atlantshafsins að undanförnu hafa langtímavextir hér á landi haldist tiltölulega stöðugir þrátt fyrir mikla endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Seðlabankastjóri segir þróunina benda til góðs innra jafnvægis, en hækkun langra vaxta erlendis geti endurspeglað efasemdir um bæði peningastefnu og sjálfbærni ríkisfjármála hjá…

## [Erfingjar og erfðar­mál](https://www.visir.is/g/20262924616d/erfingjar-og-erfdarmal)

_2026-08-22 · Allar fréttir_

Gamall maður, hann Doddi frændi selur íbúðina sína árið 2022, þá 86 ára því hann er á leið á elliheimili. Frændi hans hann Robbi hjálpar honum með söluna og kaupandinn er Jáni athafnamaður, sem kaupir íbúðina á 5 milljónir þegar markaðsverð er um 20-25 milljónir.

## [Fundu leynilegt vopnabúr úti í þýskum skógi](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-fundu-leynilegt-vopnabur-uti-i-thyskum-skogi-484531/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þýskir leyniþjónustumenn fundu vopnabúr í skógi á mörkum Berlínar og Brandenborgar fyrir nærri ári en héldu því leyndu, gerðu vopnin óvirk og komu fyrir staðsetningarbúnaði til að rekja hvert þau bærust. Vopnin voru flest skotvopn. Svæðið var vaktað í von að unnt yrði að bera kennsl á þá sem kæmu að sækja vopnin. Enginn virðist hafa gert það og telja rannsakendur líklegt að þeir sem stóðu að baki…

## [Fjórtán leitað eftir að bátur sökk undan strönd Túnis](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-fjortan-leitad-eftir-ad-batur-sokk-undan-strond-tunis-484596/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Viðbragðsaðilar í Túnis leita fjórtán manna sem voru um borð í bát sem sökk undan ströndum landsins. Samkvæmt yfirvöldum í Túnis var báturinn á leið til Ítalíu með fimmtán manns um borð. Einum hefði verið bjargað úr sjónum. Erlendir miðlar hafa greint frá að minnsta kosti fjórum dauðsföllum en yfirvöld hafa ekki staðfest það. Fjöldi manna leggur í ferðalag yfir Miðjarðarhafið á ári hverju til að…

## [Hilmir byrjaði Barcelona með sigri!](https://skak.is/2026/08/22/hilmir-byrjadi-barcelona-med-sigri/)

_2026-08-22 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Íslandsmeistarinn í skák, alþjóðlegi meistarinn, Hilmir Freyr Heimisson (2338) hóf í gær þátttöku á alþjóðlegu móti í Barselóna á Spáni. Alls taka 359 skákmenn þátt frá 50 löndum og þar af 16 stórmeistarar. Hilmir er nr. 55 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 21.-30. ágúst. Tefldar eru 10 umferðir á jafnmörgum dögum. Gamli skólinn. Heimasíða \[…\]

## [Guðrún Fanney byrjaði með sterku jafntefli í Maia í Portúgal](https://skak.is/2026/08/22/gudrun-fanney-byrjadi-med-sterku-jafntefli-i-maia-i-portugal/)

_2026-08-22 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

WFM Guðrún Fanney Briem (1816) hóf í gær þátttöku á alþjóðlegu móti í Maia í Portúgal. Hún tekur þar þátt í efsta flokki. Í fyrstu umferð sem fram fór í gær gerði hún jafntefli við franska skákkonu sem er mun stigahærri en Guðrún. Alls taka 139 skákmenn frá 32 löndum í flokki (1800+) Guðrúnar og \[…\]

## [Aleksandr með þriðju sigurskákina í röð](https://skak.is/2026/08/22/aleksandr-med-thridju-sigurskakina-i-rod/)

_2026-08-22 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352) situr að tafli þessa dagana á Kapadokya Open í Tyrklandi. Eftir skrykkjóta byrjun er Sasha kominn í stuð og vann sína þriðju skák í röð í sjöundu umferð í gær. Aleksandr hefur 4½ vinning og er í 10.-21. sæti. Í áttundu og næstsíðustu umferð sem fram fer í dag \[…\]

## [Fjórtán sjúkrabílar á vettvang banaslyss á breskri hraðbraut](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-fjortan-sjukrabilar-a-vettvang-banaslyss-a-breskri-hradbraut-484591/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögreglubíll og tveir fólksbílar lentu í hörðum árekstri nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt. Breska lögreglan segir marga látna og að unnið sé að því að bera kennsl á fórnarlömbin. Fjórtán sjúkrabílar voru sendir á vettvang. Viðbragðsaðilar eru enn að störfum og hraðbrautin er lokuð. Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins kemur fram að rannsókn slyssins beinist meðal annars að því að…

## [TikTok greiðir sekt fyrir að safna upplýsingum um börn](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-tiktok-greidir-sekt-fyrir-ad-safna-upplysingum-um-born-484589/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fjöldi dómsmála standa yfir gegn samfélagsmiðlafyrirtækjum, þar á meðal TikTokEPA / Bandaríska dómsmálaráðuneytið segist hafa komist að samkomulagi við samfélagsmiðlarisann TikTok og móðurfélagið ByteDance um að það greiði 400 milljónir dala í bætur fyrir að hafa brotið gegn einkalífi og friðhelgi barna með því að safna gögnum um þau. Dómsmálaráðuneytið höfðaði mál gegn TikTok fyrir tveimur árum…

## [Suðurkóreskt gámaskip leggur upp í siglingu um Norður-Íshaf til Evrópu](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-sudurkoreskt-gamaskip-leggur-upp-i-siglingu-um-nordur-ishaf-til-evropu-484587/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Gámaskipið PanStar Acro siglir af stað frá Busan í Suður-Kóreu klukkan ellefu árdegis að íslenskum tíma nema eitthvað ófyrirsjáanlegt komi í veg fyrir það. Skipið heldur í norðurátt og síðan vestur til Felixstowe á Bretlandi, Rotterdam í Hollandi og Gdansk í Póllandi áður en það snýr aftur heim. Áætlað er að siglingin taki 45 daga að mati sérfræðinga sjávarútvegsráðuneytis Suður-Kóreu. Stríðið í…

## [Refer a Friend, Earn Rewards (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/u6rIfOCQtG6e)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Earn rewards when a friend signs up for the Graphite Business Card

## [Carolyn Rodrigues-Birkett efst á blaði sem arftaki Antonios Guterres](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-carolyn-rodrigues-birkett-efst-a-bladi-sem-arftaki-antonios-guterres-484586/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Carolyn Rodrigues-Birkett, fyrrverandi utanríkisráðherra Gvæjana, er efst á blaði sem arftaki Antonios Guterres sem aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Hún hefur verið fastafulltrúi heimalandsins hjá Sameinuðu þjóðunum síðan 2020. Reuters hefur niðurstöðuna eftir þremur heimildarmönnum sem tóku þátt í óformlegri atkvæðagreiðslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gær. Átta sækjast eftir…

## [Besoz og Musk sagðir hagnast mest á fjárveitingu til uppbyggingu geimferðaiðnaðarins](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-besoz-og-musk-sagdir-hagnast-mest-a-fjarveitingu-til-uppbyggingu-geimferdaidnadarins-484583/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Minnisblað sem Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði í gær hvetur ríkisvaldið til samstarfs við einkageirann um byggingu fjölda eldflaugaskotpalla og gerir einkareknum geimferðafyrirtækjum kleift að skjóta mun fleiri eldflaugum á loft en verið hefur. John Leif Jørgensen, prófessor í geimvísindum við danska tækniháskólann DTU, segir í samtali við DR það einkum koma auðkýfingunum Elon Musk og…

## [Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada rann út í sandinn](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-tollasamkomulag-bandarikjanna-og-kanada-rann-ut-i-sandinn-484584/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ekkert verður af tollasamkomulagi milli Bandaríkjanna og Kanada að loknum nokkurra daga samningaviðræðum. Forsætisráðherrann Mark Carney sagði ekki hafa tekist að tryggja hagsmuni Kanada nægilega vel, skömmu áður en sá þriggja daga frestur rann sitt skeið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf. Umsvifalaust tók gildi 50 prósenta tollur á fjölda kanadískra vara sem fluttar eru til Bandaríkjanna,…

## [Leiðtogar Bandalags hinna viljugu hittast í Kyiv á mánudag](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-leidtogar-bandalags-hinna-viljugu-hittast-i-kyiv-a-manudag-484582/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fulltrúar þeirra ríkja sem veitt hafa Úkraínu stuðning, Bandalags hinna viljugu ríkja, hittast í Kyiv á mánudag til að ítreka liðsinni sitt. 24. ágúst er þjóðhátíðardagur Úkraínu og í ár er aldarfjórðungur frá því landið lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum. Volodymyr Zelensky forseti hvetur leiðtogana til að auka enn þrýsting á Rússa enda sé friður útilokaður nema þeir verði látnir standa…

## [Bygging veislusalarins heimiluð áfram tímabundið](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-bygging-veislusalarins-heimilud-afram-timabundid-484581/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna veitti í gær tímabundna heimild til áframhaldandi framkvæmda við gríðarstóran veislusal á lóð Hvíta hússins. Halda má framkvæmdum áfram meðan fjallað verður um málið á lægri dómsstigum. Niðurstaðan er því áfangasigur fyrir Donald Trump forseta eftir að áfrýjunardómstóll úrskurðaði fyrr í mánuðinum að ekki mætti halda framkvæmdum ofanjarðar áfram nema með samþykki…

## [Úkraínuforseti fordæmir mannskæða árás Rússa á verslanamiðstöð](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-ukrainuforseti-fordaemir-mannskaeda-aras-russa-a-verslanamidstod-484580/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Volodymyr Zelensky forseti fordæmir harðlega drónaárás Rússlandshers á verslanamiðstöð í heimabæ hans, Kryvyi Rig, í gær þar sem sextán týndu lífi. Á annað hundrað særðust, þar af fjöldi barna. Hann segir árásina lýsa illmennsku Rússa enda hafi þeir vísvitandi gert árás á hversdagslega verslanamiðstöð þar sem fjöldi fólks var staddur. Rússar hafa hert mjög á árásum á úkraínskar borgir síðustu…

## [Karl Gústaf konungur sendir samúðarkveðjur eftir skólaárásina í Fagersta](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-karl-gustaf-konungur-sendir-samudarkvedjur-eftir-skolaarasina-i-fagersta-484579/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Karl Gústaf Svíakonungur segist afar sorgmæddur og brugðið yfir því að eitt skiptið enn hafi árás verið gerð í skóla. Einn er látinn og þrír særðir eftir sverðaárás í framhaldsskóla í Fagersta í Svíþjóð í gær. Tveir þeirra sem særðust eru alvarlega meiddir. Í yfirlýsingu á vefsíðu konungsfjölskyldunnar sendir Karl nemendum, foreldrum þeirra, starfsfólki skólans og öllum íbúum Fagersta dýpstu…

## [Meghan snýr aftur á skjáinn](https://www.visir.is/g/20262924464d/meghan-snyr-aftur-a-skjainn)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Meghan, hertogaynjan af Sussex, stendur nú í viðræðum um hlutverk í Netflix-þáttunum The Gentlemen. Leikkonan fyrrverandi hætti leiklistinni eftir að hún giftist Harry Bretaprinsi, hertoganum af Sussex, árið 2018.

## [Palestínskar fjölskyldur í ellefu daga herkví](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-21-palestinskar-fjolskyldur-i-ellefu-daga-herkvi-484578/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ísraelskt landtökufólk hefur haldið palestínskum fjölskyldum í þorpi á Vesturbakkanum í herkví í ellefu daga. Ísraelsher hefur lýst því yfir að svæðið sé lokað hernumið svæði og segist vera að halda uppi lögum og reglu. Ísraelsher fjarlægði landtökumennina eftir þrýsting frá Bandaríkjunum en íbúar í húsunum sem eru í herkví segja þá samt nærri. Samkvæmt tölum frá Sameinuðu þjóðunum hafa ísraelskir…

## [TikTok gert að greiða Banda­ríkjunum sögu­lega upp­hæð](https://www.visir.is/g/20262924517d/tiktok-gert-ad-greida-bandarikjunum-sogulega-upphaed)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Samfélagsmiðillinn TikTok hefur samþykkt að greiða Bandaríkjunum fjögur hundruð milljónir Bandaríkjadala, eða um 49 milljarða íslenskra króna, til að ljúka málsókn en miðillinn var sakaður um að brjóta á friðhelgi barna með upplýsingaöflun. Sáttin er ein sú stærsta sem hefur verið gerð vegna slíks máls.

## [Browse ThreatCrush Modules (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/lh0zbzNLtkaG)

_2026-08-21 · **Sponsored**_

Install community-built security modules to extend real-time threat intelligence and monitoring

## [Sinner missir af Opna banda­ríska](https://www.visir.is/g/20262924497d/sinner-missir-af-opna-bandariska)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Heimsmeistarinn Jannik Sinner verður ekki með á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis sem hefst á sunnudaginn eftir að hann dró sig úr keppni vegna meiðsla.

## [United nær sam­komu­lagi við Brighton um Baleba](https://www.visir.is/g/20262924511d/united-naer-samkomulagi-vid-brighton-um-baleba)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Manchester United hefur náð samkomulagi við Brighton um kaup á miðjumanninum Carlos Baleba. United greiðir 65 milljónir punda fyrir leikmanninn en upphæðin getur hækkað um fimm milljónir til viðbótar í bónusgreiðslum.

## [„Kær­komið að fá eitt svona mark“](https://www.visir.is/g/20262924513d/-kaerkomid-ad-fa-eitt-svona-mark-)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, segir tilfinningarnar frábærar eftir að hafa sótt 1-0 sigur á Þór/KA fyrir norðan en eina mark leiksins kom á lokamínútu venjulegs leiktíma.

## [Aftur­elding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk](https://www.visir.is/g/20262924481d/afturelding-valtadi-yfir-aegi-og-skoradi-sjo-mork)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Afturelding vann stórsigur á Ægi, 7-0, þegar liðin mættust í 20. umferð Lengjudeildar karla í kvöld.

## [Einn látinn og tveir drengir al­var­lega særðir í Fagersta](https://www.visir.is/g/20262924501d/einn-latinn-og-tveir-drengir-alvarlega-saerdir-i-fagersta)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Einn er látinn og tveir drengir alvarlega slasaðir eftir að maður réðst inn í framhaldsskóla vopnaður sverði í Fagersta í Svíþjóð. Árásarmaðurinn grunaði hefur verið handtekinn og er sagður fyrrum nemandi skólans.

## [Karó­lína Lea skoraði fyrir Inter](https://www.visir.is/g/20262924504d/karolina-lea-skoradi-fyrir-inter)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði fyrir Inter þegar liðið vann Parma, 1-0, í ítalska deildarbikarnum í kvöld.

## [Blaut og vindasöm Menningar­nótt í vændum](https://www.visir.is/g/20262924489d/blaut-og-vindasom-menningarnott-i-vaendum)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp.

## [„Ég skora náttúru­lega ekki oft þannig að þetta er eigin­lega krafta­verk“](https://www.visir.is/g/20262924493d/-eg-skora-natturulega-ekki-oft-thannig-ad-thetta-er-eiginlega-kraftaverk-)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Valur kom sér upp úr fallsæti Bestu deildar kvenna með 1-0 sigri á Þór/KA á VÍS vellinum á Akureyri í kvöld.

## [Einn drepinn í sverðaárásinni í Svíþjóð](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-21-einn-drepinn-i-sverdaarasinni-i-svithjod-484569/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Einn er látinn eftir að hafa verið stunginn með sverði í Fagersta í Svíþjóð í dag. Greint var frá þessu á blaðamannafundi fyrir skömmu. Árásin var framin við framhaldsskóla í Fagersta. Þrír særðust í árásinni, þar af tveir drengir alvarlega. Árásarmaðurinn var síðan handtekinn. Aftenbladed segir lögreglu hafa skotið mann vopnaðan sverði í fótinn. Lögreglan vill ekkert gefa upp um hver…

## [Belgískur bílasali óvænt orðinn prins](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-21-belgiskur-bilasali-ovaent-ordinn-prins-484562/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Nýr prins hefur verið tekinn inn í belgísku konungsfjölskylduna, sá er 26 ára fyrrverandi bílasali. Yngri bróðir Belgíukonungs hefur formlega viðurkennt hann sem son sinn og erfingja. Clément Vandenkerckhove var 16 ára þegar móðir hans, þekkt söng- og leikkona í Belgíu, sagði honum að raunverulegur faðir hans væri Laurent prins. Fjórum árum síðar hafði hann safnað kjarki og hringdi í prinsinn. Svo…

## [Tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-21-tveir-drengir-alvarlega-saerdir-i-fagersta-484558/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Tveir drengir eru alvarlega særðir í bænum Fagersta í Svíþjóð þar sem sverðaárás var framin í framhaldsskóla. Nemendur nemendur lýsa í viðtali við SVT því hvernig árásarmaðurinn birtist snögglega og stakk vin þeirra í handlegginn. „Við fórum út og sjáum að það var blóð um allan handlegginn og hann segir: „Hringið í lögregluna.“ Svo var hringt í lögregluna og við hlupum á brot því við vorum hrædd,“…

## [Fundu rúss­neskt vopna­búr í skógi fyrir utan Ber­lín](https://www.visir.is/g/20262924385d/fundu-russneskt-vopnabur-i-skogi-fyrir-utan-berlin)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Skotvopn sem höfðu verið grafin í jörðu fundust í skógi nærri Berlín sem rússnesk yfirvöld telja að tengist rússnesku leyniþjónustunni. Þýsk yfirvöld reyna að nú að fá einstakling framseldan frá Rúmeníu vegna fundarins.

## [Auka fjár­út­lát til varnar­mála um tæpan fimmtung](https://www.visir.is/g/20262924355d/auka-fjarutlat-til-varnarmala-um-taepan-fimmtung)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Ríkisstjórn Taívan lagði í gær fram fjárlagafrumvarp sem felur í sér gífurlega aukningu í útlátum til varnarmála. Aukningin samsvarar átján prósentum á milli ára og verði frumvarpið samþykkt mun eyríkið verja 3,1 prósenti af landsframleiðslu til varnarmála. Til stendur að hækka hlutfallið enn frekar vegna hernaðarógnana frá Kína.

## [Spörum milljarða](https://www.visir.is/g/20262924349d/sporum-milljarda)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Það hefur ekki farið framhjá neinum að framundan er kosning um hvort hefja eigi viðræður við ESB um aðild að sambandinu. Flest venjulegt fólk er nú þegar orðið þreytt á þessu karpi, sem er skiljanlegt.

## [Kylfingarnir „kjöt á hlað­borði“ í Kanada](https://www.visir.is/g/20262924333d/kylfingarnir-kjot-a-hladbordi-i-kanada)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Moskítóflugur herja á bestu kvenkylfinga heims í Edmonton í Kanada, á CPKCmótinu á LPGA-mótaröðinni í golfi.

## [Minningarmót um Friðrik Ólafsson fer fram 24.-29. nóvember](https://skak.is/2026/08/21/minningarmot-um-fridrik-olafsson-fer-fram-24-29-november/)

_2026-08-21 · Gunnar Björnsson · Skak.is_

Skáksamband Íslands og Taflfélag Reykjavíkur halda Minningarmót Friðriks Ólafssonar sem 24.–29. nóvember nk. Mótið er tileinkað minningu fyrsta íslenska stórmeistarans, sem lést 4. apríl 2025, níræður að aldri. Mótið fer fram í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur. Friðrik Ólafsson (26. janúar 1935 – 4. apríl 2025) var ekki aðeins fyrsti Íslendingurinn til að hljóta stórmeistaratitilinn árið 1958 heldur…

## [Nýi Land­spítalinn verði til­búinn í árs­lok 2029](https://www.visir.is/g/20262924353d/nyi-landspitalinn-verdi-tilbuinn-i-arslok-2029)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Stefnt er að verklokum við framkvæmd nýs Landspítala í árslok 2029. Á sama tími hefs yfirfærslutími svo hægt sé að hefja starfsemi spítalans á ný.

## [Etur kappi við Obama og Reynolds](https://www.visir.is/g/20262924336d/etur-kappi-vid-obama-og-reynolds)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók eftir Andra Snæ Magnason, hefur verið tilnefnd til tveggja verðlauna á Jackson Wild-verðlaunahátíðinni sem hefur verið lýst sem Óskarsverðlaunum náttúrulífsmynda. Andri Snær er tilnefndur í flokki þula og etur þar kappi við Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Hollywood-stjörnuna Ryan Reynolds.

## [Leik­menn beggja liða fá bönn eftir úr­slita­leik HM](https://www.visir.is/g/20262924359d/leikmenn-beggja-lida-fa-bonn-eftir-urslitaleik-hm)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Leandro Paredes fær tíu leikja bann fyrir slagsmálin eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Leikmenn úr báðum liðum fengu leikbönn.

## [Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið](https://www.visir.is/g/20262924296d/drottningavidtal-thegar-ein-rodd-faer-svidid)

_2026-08-21 · Allar fréttir_

Stundum hlusta ég á viðtöl um umdeild mál í samfélaginu og velti fyrir mér hvert hlutverk spyrilsins eiginlega sé. Viðmælandi fær orðið og segir sína sögu. Það er gott og gilt. Vandinn byrjar þegar frásögn eins einstaklings fær að standa nær óáreitt, jafnvel lengi, án þess að spurt sé um það sem kann að vanta í myndina.

