# bandaríkjanna (blogs) — RSS Amplifier

Recent posts from the 2 feeds in the RSS Amplifier directory that cover bandaríkjanna.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/bandar%C3%ADkjanna/blogs>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/bandar%C3%ADkjanna/blogs.md>

---

## [Bosníu-slátrarinn látinn](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-27-bosniu-slatrarinn-latinn-485026/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ratko Mladic er látinn. Hann var einn af leiðtogum Bosníu-Serba í borgarastríðinu í Júgóslavíu 1992 til 1995. Mladic fékk viðurnefnið Bosníu-slátrarinn vegna framgöngu sinnar í stríðinu. Hann var dæmdur 2017 fyrir þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni vegna framgöngu sinnar í borgarastríðinu. Þar ber einna hæst fjöldamorðin í Srebrenica. Þar myrtu menn undir hans stjórn 8.000…

## [Flóttamönnum bjargað úr biluðum báti í Atlantshafi](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-27-flottamonnum-bjargad-ur-biludum-bati-i-atlantshafi-484999/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Yfir 160 flóttamönnum, þar af sautján börnum, var bjargað í Atlantshafi úti fyrir strönd Márítaníu í Vestur-Afríku. AFP hefur eftir landhelgisgæslu landsins að fólkið hafi verið uppgefið eftir átta daga á sjó á ótryggu sjófari sem hafi verið með bilaða vél. Fólkið lagði á haf út frá Banjul, höfuðborg Gambíu, og var förinni heitið til Kanaríeyja, sem tilheyra Spáni. Hundruðum manna hefur verið…

## [„Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-27-astrikur-heimilisfadir-breytist-i-ofbeldismann-484976/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Á föstudag verður fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands. Yfirskrift fundarins er Nýjar ógnir, nýjar áherslur: Smáríki og breytt öryggisumhverfi Evrópu. Baldur og Vilborg verða í pallborði og ræða þessi mál þar. Þau voru sammála um að Íslendingar komist ekki hjá því að auka útgjöld til varnarmála. Ræða gjörbreytt öryggisumhverfi Í fundarboði segir að…

## [Yfir 1.300 saknað í Nepal og Tíbet](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-27-yfir-1300-saknad-i-nepal-og-tibet-484970/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Að minnsta kosti 180 eru látnir eftir hamfaraflóðið í Nepal í gær og yfir 1.300 er saknað, flestir þeirra ferðamenn. Svæðið er vinsælt meðal göngu- og útivistarfólks og pílagríma. Flestir þeirra sem er saknað eru erlendir ferðamenn frá 28 löndum og er fólksins leitað beggja megin landamæranna milli Nepals og Tíbet. Engar beiðnir um aðstoð höfðu borist borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins frá…

## [Ný tilkynning: Líðan Haraldar konungs óbreytt](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-27-ny-tilkynning-lidan-haraldar-konungs-obreytt-484969/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

## [Brasilísk stjórnvöld krefjast milljarða króna í skaðabætur frá Discord](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-27-brasilisk-stjornvold-krefjast-milljarda-krona-i-skadabaetur-fra-discord-484953/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Brasilísk stjórnvöld hafa höfðað mál gegn samskiptaforritinu Discord og krefjast þess að fyrirtækið grípi til öflugri aðgerða til að vernda börn og ungmenni á miðlinum. Farið er fram á 500 milljónir brasilískra ríala, eða um 11,75 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur vegna þess sem stjórnvöld kalla „sameiginlegt siðferðislegt tjón“. Samkvæmt frétt Reuters var málið höfðað fyrir alríkisdómstól…

## [Grunaður um að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á leikskóla](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-27-grunadur-um-ad-hafa-skipulagt-hrydjuverkaaras-a-leikskola-484956/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

16 ára drengur var handtekinn af norsku lögreglunni í Vesterfold, suður af Osló, grunaður um að vera að undirbúa hryðjuverk á leikskóla í Osló. Norska ríkisútvarpið hefur eftir saksóknara lögreglunnar í suðaustur-lögregluumdæmi, Lise Dalhaug, að lögreglu hafi borist nafnlaus ábending frá einstaklingi erlendis sem lét vita af hótunum drengsins á ýmsum samfélagsmiðlum. Drengurinn var handtekinn í…

## [Tólf fórust í skógareldum í Alsír](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-27-tolf-forust-i-skogareldum-i-alsir-484955/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Skógareldar eru algengir í Bejaia-héraði í norður Alsír vegna þurrka og loftslagsbreytinga.EPA / STR Tólf fórust og 54 eru slasaðir, þar af sex alvarlega, eftir mikla skógarelda í norðausturhluta Alsír í gær. France 24 greinir frá því að rúmlega 150 skógareldar hafi logað í landinu, þar af 36 í Bejaia-héraði. Fjöldi fólks þurfti að yfirgefa heimili sín vegna eldanna. Að minnsta kosti sex fórust í…

## [Saka yfirvöld um sein viðbrögð eftir dauða 14 nýfæddra barna](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-27-saka-yfirvold-um-sein-vidbrogd-eftir-dauda-14-nyfaeddra-barna-484954/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fjórtán nýfædd börn létust í eldsvoða á fæðingardeild í Islamabad, höfuðborg Pakistans, í nótt. Aðeins einu barni tókst að bjarga. Yfirvöld segja slökkviliðið hafa komið á vettvang innan fimm til tíu mínútna en það er dregið í efa af vitnum. Þau segja meðal annars að neyðarútgöngum hafi verið ábótavant og að öryggisverðir hafi hindrað fólk í að komast út. Foreldrar barnanna segja björgunarlið og…

## [Frost, hiti, þurrkur og reykur breyta víni ársins](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-26-frost-hiti-thurrkur-og-reykur-breyta-vini-arsins-484938/)

_2026-08-26 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Haustverk franskra vínbænda eru að tína vínber. Þannig hefur það verið lengi, en ekki í ár. Vínberjatínsla hófst óvenju snemma víða í Frakklandi í sumar. Sums staðar í Languedoc var byrjað um miðjan júlí og í Champagne var 12. ágúst opinbert upphaf uppskerutíðarinnar, venjulega er það í september. Le Monde segir þetta endurspegla önnur héruð og berjategundir, allt sé á undan áætlun. Mildari vetur…

## [Meet Claude, an AI assistant (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/6BdA7jYpFngC)

_2026-08-26 · **Sponsored**_

Chat with Claude at claude.ai — a conversational AI assistant.

## [Selma Björns um Dolly Parton: „Hún var algjörlega sönn í öllu“](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-26-selma-bjorns-um-dolly-parton-hun-var-algjorlega-sonn-i-ollu-484950/)

_2026-08-26 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

„Ég meira að segja felldi nokkur tár. Mér leið svona eins og ég hefði verið að missa kæra frænku, sem er kannski skrýtið af því að ég hef aldrei hitt hana en hún er búin að fylgja mér frá því að ég var sjö ára,“ sagði Selma Björnsdóttir tónlistarmaður þegar hún var spurð hvernig henni hafði orðið við þegar hún heyrði að Dolly Parton hefði látist í gær. Selma segist hafa byrjað að hluta á kassettu…

## [Meta greiðir jafnvirði 2.000 milljarða króna vegna málaferla](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-26-meta-greidir-jafnvirdi-2000-milljarda-krona-vegna-malaferla-484928/)

_2026-08-26 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Samfélagsmiðlarisinn Meta hefur fallist á að greiða því sem nemur 2.000 milljörðum íslenskra króna til bandarískra ríkja sem höfðuðu mál gegn fyrirtækinu . Sátt náðist í dag. 29 ríki höfðuðu málið og sökuðu Meta um að gera börn vísvitandi háð samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram. „Raunverulegar breytingar“ Meta hefur jafnframt samþykkt að ráðast í umfangsmiklar breytingar með það að markmiði að…

## [Lést eftir baráttu við krabbamein](https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-08-26-lest-eftir-barattu-vid-krabbamein-484880/)

_2026-08-26 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Tónlistar- og leikkonan Dolly Parton glímdi við krabbamein áður en hún lést. Hún var lögð inn á Vanderbilt-Ingram heilbrigðisstofnunina í heimabæ sínum, Nashville, á föstudag. Þar lést hún umkringd ástvinum sínum. Greint var frá andláti Parton í gær. Talsmaður hennar sagði síðar í yfirlýsingu til fjölmiðla að hún hefði verið greind með krabbamein fyrir nokkru og fengið meðferð við því. Ekki kom…

## [Arnar Eggert: „Risi er fallinn“](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-25-arnar-eggert-risi-er-fallinn-484866/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

„Ekki það að maður hafi ekki átt von á þessu, hún var orðin 80. En ég fékk bara vá ókei, risi er fallinn.“ Þetta voru fyrstu viðbrögð Arnars Eggerts Thoroddsens tónlistarfræðings við fregnunum af andláti Dolly Parton fyrr í dag. Hún var ein ástsælasta kántrítónlistarkona heims. „Hún nær að búa til og knýja fram einstaka stöðu í heimi popps og rokks og kántrís sem eru heimar sem eru mjög karllægir…

## [Almenningur býr sig undir enn erfiðara efnahagsástand](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-25-almenningur-byr-sig-undir-enn-erfidara-efnahagsastand-484863/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Langar raðir mynduðust við bensínstöðvar í höfuðborg Írans í dag vegna efnahagsaðgerða sem Bandaríkjamenn boðuðu í gær. Íbúar búa sig undir enn meira félagslegt og efnahagslegt álag. Íranar framleiða minna eldsneyti en þörf er fyrir og samkvæmt yfirvöldum er daglegur halli upp á að minnsta kosti 14 milljónir lítra á dag. Íranar hafa búið við viðskiptaþvinganir áratugum saman, verðbólga er himinhá…

## [Dolly Parton látin](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-25-dolly-parton-latin-484856/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Bandaríska söngkonan og kántrígoðsögnin Dolly Parton er látin. Hún var áttræð. Systursonur hennar greindi frá andlátinu á Instagram-síðu Parton . Parton lést heimili sínu í Nashville, Tennessee. Bandaríski fjölmiðlarnir New York Time s og TMZ greina frá. Ferill Parton spannar yfir sextíu ár, hún var ein ástsælasta kántrítónlistarkona heims og naut gríðarlegra vinsælda um allan heim, langt út fyrir…

## [Kanada svarar tollum Trumps](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-25-kanada-svarar-tollum-trumps-484848/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Francois-Philippe Champagne, fjármálaráðherra Kanada, kynnti viðbrögð við nýjustu tollum Bandaríkjastjórnar í dag. Þeim verður svarað með 15-50 prósenta tollum á bandarískar vörur og styrkir veittir til kanadískra fyrirtækja sem verða fyrir barðinu á bandarískum tollum. Um helgina slitnaði upp úr viðræðum Bandaríkjanna og Kanada um tollasamning. Eftir það tók gildi 50 prósenta tollur á ýmsa…

## [Norðmenn senda kveðjur til Haraldar konungs](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-25-nordmenn-senda-kvedjur-til-haraldar-konungs-484834/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Hákon krónprins og Mette-Marit krónprinsessa heimsóttu Harald Noregskonung á ríkissjúkrahúsið í Ósló í dag. Hann var lagður inn á sjúkrahús 17. ágúst vegna blóðleysis. Á sunnudag sagði norska hirðin heilsu hans hafi hrakað. Hann hefur verið á sýklalyfjum við bakteríusýkingu í blóði. Í gær kom fram að ástand hans væri stöðugt og að hann svaraði meðferð vel. Hugur Norðmanna er hjá Haraldi…

## [Kínverjar telja viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna ólöglegar](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-25-kinverjar-telja-vidskiptathvinganir-bandarikjanna-ologlegar-484820/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Íranar segjast reiðbúnir að svara efnahagsaðgerðum sem Bandaríkjamenn boðuðu í gær. Kínverjar segja viðskiptaþvinganir gegn ríkjum með tengsl við Íran ólöglegar og að þeir ætli að gera allt til að verja sína hagsmuni. Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, boðaði umfangsmiklar efnahagsaðgerðir gegn Íran í gær og hótaði um leið refsiaðgerðum gegn fyrirtækjum og ríkjum með efnahagsleg tengsl…

## [Lockerbie-réttarhöldum frestað vegna nýrra sönnunargagna](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-25-lockerbie-rettarholdum-frestad-vegna-nyrra-sonnunargagna-484807/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Réttarhöldum í Bandaríkjunum yfir Abu Agila Mohammad Kheir Al-Marimi hefur verið frestað aðeins nokkrum dögum áður en þau áttu að hefjast. Þetta er í þriðja sinn sem það gerist en hann er sakaður um að hafa sett saman sprengju sem grandaði þotu bandaríska flugfélagsins Pan Am yfir bænum Lockerbie í Skotlandi árið 1988. Réttarhöldunum hefur verið frestað fram í janúar því föstudaginn 21. ágúst komu…

## [Find it on Amazon (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/cO7goEM7KVBs)

_2026-08-25 · **Sponsored**_

Open the Amazon product listing to see details and availability

## [Fær að mæta með sólgleraugun í þingið](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-25-faer-ad-maeta-med-solgleraugun-i-thingid-484805/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Svo virðist sem Balendra Shah, forsætisráðherra Nepals, hafi haft betur í baráttu við þingið um hvort hann mætti vera með sólgleraugu þegar hann kemur fyrir þing landsins á morgun. Sólgleraugun eru eitt helstu einkenna Balendra Shah sem varð forsætisráðherra Nepals fyrr á þessu ári. Shah hefur skartað þeim jafnt innandyra sem utan. Dol Prasad Aryal, forseti þingsins, setti sig upp á móti því fyrr…

## [Sænski herinn vill eignast landareign Rússa nærri stórri flotastöð](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-25-saenski-herinn-vill-eignast-landareign-russa-naerri-storri-flotastod-484800/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sænski herinn vill taka landareign suður af Stokkhólmi í Svíþjóð eignarnámi til að auka öryggi Muskö-flotastöðvarinnar. Herinn segir að landsvæðið sé einstaklega vel til þess fallið að verja flotastöðina fyrir drónaárásum. Nú er það í eigu rússnesks ríkisborgara sem talinn er geta ógnað öryggi Svía. Sú deild sænska hersins sem fer með uppbyggingu varnarinnviða fór þess í dag á leit við stjórnvöld…

## [Washington Post gert að endurráða dálkahöfund sem viðhafði hörð ummæli um Charlie Kirk](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-25-washington-post-gert-ad-endurrada-dalkahofund-sem-vidhafdi-hord-ummaeli-um-charlie-kirk-484789/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Bandaríska stórblaðinu Washington Post hefur verið gert að endurráða dálkahöfundinn Karen Attiah sem sagt var upp störfum vegna ummæla hennar um Charlie Kirk að honum myrtum. Karen Attiah skrifaði færslur á samfélagsmiðla þar sem hún kvaðst ekki sorgmædd vegna andláts Kirks og deildi eldri ummælum hans um að svartar konur þyrftu á áætlunum um fjölbreytileika að halda því þær væru ekki nógu vel…

## [Ríki máttu ekki vefengja ákvörðun forsetans um hver mætti senda póstatkvæði](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-25-riki-mattu-ekki-vefengja-akvordun-forsetans-um-hver-maetti-senda-postatkvaedi-484782/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur rutt úr vegi lagalegri hindrun sem stóð í vegi fyrir tilraunum forsetans til að takmarka hverjir megi í kosningum senda atkvæði sitt með pósti. Nokkrir bandarískir miðlar kalla niðurstöðuna áfangasigur fyrir Donald Trump sem í apríl undirritaði forsetatilskipun um hertar reglur fyrir póstkosningar. Það telur hann geta komið í veg fyrir kosningasvindl og að fólk sem…

## [Stuðningur við stríðið í Íran og forsetann sjálfan fer minnkandi](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-25-studningur-vid-stridid-i-iran-og-forsetann-sjalfan-fer-minnkandi-484778/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Bandarísk stjórnvöld boðuðu í gær harkalegar aðgerðir gegn efnahag Írana sem sögðu þær aðeins marka ósigur Bandaríkjanna. Stuðningur Bandaríkjamanna við stríðið í Mið-Austurlöndum og hernaðaraðgerðir gegn Íran fer sífellt þverrandi. Um það bil 31 prósent Bandaríkjamanna styðja hernaðaraðgerðir gegn Íran samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem Ipsos gerði fyrir Reuters. Stuðningurinn nam 37…

## [Ber hún ábyrgð á dauða barna sinna eða brást bandarískt heilbrigðiskerfi?](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-24-ber-hun-abyrgd-a-dauda-barna-sinna-eda-brast-bandariskt-heilbrigdiskerfi-484746/)

_2026-08-24 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lindsay Clancy er ljósmóðir frá Duxbury í Massachusetts. Hún og eiginmaður hennar, Patrick Clancy, eignuðust þrjú börn: Coru, 5 ára, Dawson, 3 ára, og Callan, 8 mánaða. Lindsay er ákærð fyrir að ráða börnunum bana á heimili þeirra. Réttarhöld yfir henni hófust í júlí. Málið hefur vakið mikla athygli um allan heim og milljónir hafa fylgst með réttarhöldunum í beinni útsendingu. Málið vekur ekki…

## [Sprengdu bát sem þeir sögðu flytja fíkniefni](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-24-sprengdu-bat-sem-their-sogdu-flytja-fikniefni-484704/)

_2026-08-24 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Yfirstjórn Bandaríkjahers í Mið- og Suður-Ameríku greindi frá því í morgun að herinn hefði skotið á og eyðilagt bát sem talinn er hafa verið notaður til að smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna. Tveir voru um borð og voru báðir drepnir. Bandaríkjaher hefur ítrekað ráðist á báta sem grunur leikur á að séu notaðir við fíkniefnasmygl. Yfir 200 hafa verið drepnir í slíkum árásum frá því í september í…

## [Verð á hráolíu lækkaði í aðdraganda tilkynningar um efnahagsaðgerðir gegn Íran](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-24-verd-a-hraoliu-laekkadi-i-addraganda-tilkynningar-um-efnahagsadgerdir-gegn-iran-484688/)

_2026-08-24 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Hráolíuverð lækkaði um 2,3 prósent í morgun meðan fjárfestar búa sig undir tíðindi af eðli harkalegra refsiaðgerða Bandaríkjastjórnar gegn Írönum , sem ætlað er að einangra þá fjárhagslega. Tunnan af Brent Norðursjávarolíu stóð í 92 bandaríkjadölum í morgun. Donald Trump Bandaríkjaforseti kallar aðgerðirnar efnahagslegan stríðsrekstur . Lækkun varð einnig á hlutabréfamörkuðum í Asíu við opnun…

## [Björgunarsveitir leita að skipverjum flutningaskips sem sökk við Indland](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-bjorgunarsveitir-leita-ad-skipverjum-flutningaskips-sem-sokk-vid-indland-484638/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þyrla indversku strandgæslunnar við æfingar.EPA / IDREES MOHAMMED Björgunarsveitir leita 22 skipverja flutningaskips sem sökk undan austurströnd Indlands. Ocean Winner siglir undir fána Panama og var á leið til Singapúr frá hafnarborginni Paradip á austurströnd Indlands samkvæmt upplýsingum MarineTraffic, sem sýnir staðsetningu skipa á rauntíma. Eftir að neyðarkall barst frá skipinu hófu indverski…

## [Faðir skildi sjö ára son sinn eftir meðan hann sjálfur hélt áfram að klífa hlíðar Fuji](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-fadir-skildi-sjo-ara-son-sinn-eftir-medan-hann-sjalfur-helt-afram-ad-klifa-hlidar-fuji-484636/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Faðir um fimmtugt hefur verið áminntur af lögreglu fyrir að skilja sjö ára son sinn eftir í átta klukkustundir á bekk í hlíðum Fuji, hæsta fjalls Japans. Drengurinn hafði aðeins gosdrykk og snarl til að seðja sárasta hungrið. BBC fjallar um málið. Starfsfólk fjallakofa gekk fram á drenginn þar sem hann sat þreyttur, blautur og hrakinn á áningarstað í um tveggja kílómetra hæð í fjallinu og…

## [Know before it drops (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/XsRQDPkJRHi6)

_2026-08-23 · **Sponsored**_

Follow a show, artist, genre or rocket and get notified before release

## [Um 40 slösuðust lítillega í öflugum jarðskjálfta nærri Tókýó](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-um-40-slosudust-litillega-i-oflugum-jardskjalfta-naerri-tokyo-484634/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Um fjörutíu slösuðust lítillega þegar jarðskjálfti af stærðinni 5,8 reið yfir Ibarak-hérað austanvert í Japan klukkan fimm síðdegis að staðartíma. Áhrifa skjálftans varð mjög vart í höfuðborginni Tókýó þar sem truflanir urðu á lestarsamgöngum. Jarðskjálftastofnun Japans sagði skjálftann eiga upptök á 68 kílómetra dýpi og enga hættu á flóðbylgjum. Hún varar við sterkum eftirskjálftum næstu daga.…

## [Engin flugumferð um Gardemoen fram eftir degi — ferðum SAS til og frá Osló aflýst](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-engin-flugumferd-um-gardemoen-fram-eftir-degi-ferdum-sas-til-og-fra-oslo-aflyst-484635/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Komu þotu SAS frá Osló til Keflavíkur klukkan 9:50 og brottför klukkan 10:40 hefur verið aflýst, að vþví er fram kemur á vef Isavia. Engin flugumferð verður til og frá Gardermoen-flugvelli við Osló næstu klukkustundir hið minnsta. Það er vegna vinnustöðvunar norskra flugumferðarstjóra. Þeir lögðu niður störf klukkan hálfsjö að staðartíma eða hálffimm að íslenskum tíma. VG vitnar í tilkynningu frá…

## [Ákærður ríkisstjóri hætti við að hætta við að hætta](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-akaerdur-rikisstjori-haetti-vid-ad-haetta-vid-ad-haetta-484633/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ruben Rocha Moya, ríkisstjóri Sinaloa-ríkis í Mexíkó, hefur tilkynnt að hann ætli að láta af störfum tímabundið að nýju degi eftir að hann sneri óvænt til starfa á ný. Hann réttlæti endurhvarfið í langri færslu á X og kvaðst enga glæpi hafa framið. Moya var ásamt níu öðrum embættismönnum ákærður í apríl og eftirlýstur í Bandaríkjunum fyrir fíkniefnamakk með Sinaloa-glæpahringnum. Bandaríska…

## [Viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kanada harðnar](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-vidskiptastrid-bandarikjanna-og-kanada-hardnar-484626/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kanada komst á alvarlegra stig í gær þegar slitnaði upp úr viðræðum um tollasamning. Hvorir segja hina hafa komið með skilmála á síðustu stundu sem ekki var hægt að samþykkja. Þetta varð til þess að nýir tollar Bandaríkjanna á kanadískar vörur, sem áttu að taka gildi á miðvikudaginn en var frestað um þrjá daga, tóku gildi í dag. Þá bættist 50 prósenta tollur við…

## [Tvöfaldur heimsmeistari í hnefaleikum skotinn til bana](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-tvofaldur-heimsmeistari-i-hnefaleikum-skotinn-til-bana-484631/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Zolani Tete, tvöfaldur heimsmeistari í hnefaleikum, var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Suður-Afríku á föstudag. Tete var að sögn lögreglu á leið heim til sín í bænum Mdantsane þegar tveir menn klæddir lambhúshettum stukku út úr bíl og hófu skothríð. Tæplega þrítug kona í fylgd með Tete særðist í árásinni og var flutt á sjúkrahús. Lögregla segir ástæður morðsins harla óljósar og að…

## [Frakkar útvega varnarflaugar sem grandað geta langdrægum flugskeytum](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-23-frakkar-utvega-varnarflaugar-sem-grandad-geta-langdraegum-flugskeytum-484630/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Frönsk stjórnvöld heita því að útvega Úkraínumönnum nýjar varnarflaugar til að skjóta niður flugskeyti í kjölfar þess að Rússar hafa aukið árásarþunga sinn á landið undanfarna mánuði. Langdrægum eldflaugum hefur nánast rignt yfir höfuðborgina Kyiv. Það hefur orðið til þess að mannfall meðal almennra borgara í Úkraínu er orðið meira en það var á fyrstu mánuðum innrásarinnar að mati Sameinuðu…

## [Íranar segja alla samherja Bandaríkjanna sjálfkrafa óvini](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-iranar-segja-alla-samherja-bandarikjanna-sjalfkrafa-ovini-484629/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Yfirmaður öryggisráðs Írans segir að öll ríki sem styðji eða taki þátt í efnahagsstríði Bandaríkjanna verði álitin óvinir íslamska lýðveldisins. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað refsiaðgerðir gegn Írönum sem engan eigi sinni líka og jafnframt hverju því landi sem á í viðskiptum við þá eða liðsinnir á nokkurn hátt. Bandaríkin hafa brýnt önnur ríki til að liðsinna við einangrun Írana, þar…

## [Sautján ára stúlka lést í sverðaárásinni í Svíþjóð](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-sautjan-ara-stulka-lest-i-sverdaarasinni-i-svithjod-484615/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sú sem lést í sverðaárás í framhaldsskólanum Brinnell í Fagersta í gærkvöldi var 17 ára gömul stúlka. Sænska lögreglan staðfesti það í morgun. Lögregla var kölluð að skólanum skömmu eftir klukkan tvö að staðartíma. Þá hafði árásarmaðurinn sært fjölda fólks með sverði. Lögregla skaut hann í fótinn áður en hann var handtekinn. Árásarmaðurinn, sem er 18 ára, verður líklega ákærður fyrir morð og…

## [Tveir lögreglumenn meðal látinna eftir árekstur í Bretlandi](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-tveir-logreglumenn-medal-latinna-eftir-arekstur-i-bretlandi-484605/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sjö létu lífið í hörðum árekstri á hraðbraut nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt. Tveir lögreglumenn eru meðal látinna. Áreksturinn varð þegar lögreglubíll var að eltast við fólksbíl sem grunur leikur á að hafi ekið á öfugum vegarhelmingi. Fjórtán sjúkrabílar voru sendir á vettvang og hraðbrautinni var lokað. Allir farþegar beggja bíla voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Samfélagið í áfalli…

## [Fundu leynilegt vopnabúr úti í þýskum skógi](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-fundu-leynilegt-vopnabur-uti-i-thyskum-skogi-484531/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þýskir leyniþjónustumenn fundu vopnabúr í skógi á mörkum Berlínar og Brandenborgar fyrir nærri ári en héldu því leyndu, gerðu vopnin óvirk og komu fyrir staðsetningarbúnaði til að rekja hvert þau bærust. Vopnin voru flest skotvopn. Svæðið var vaktað í von að unnt yrði að bera kennsl á þá sem kæmu að sækja vopnin. Enginn virðist hafa gert það og telja rannsakendur líklegt að þeir sem stóðu að baki…

## [Fjórtán leitað eftir að bátur sökk undan strönd Túnis](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-fjortan-leitad-eftir-ad-batur-sokk-undan-strond-tunis-484596/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Viðbragðsaðilar í Túnis leita fjórtán manna sem voru um borð í bát sem sökk undan ströndum landsins. Samkvæmt yfirvöldum í Túnis var báturinn á leið til Ítalíu með fimmtán manns um borð. Einum hefði verið bjargað úr sjónum. Erlendir miðlar hafa greint frá að minnsta kosti fjórum dauðsföllum en yfirvöld hafa ekki staðfest það. Fjöldi manna leggur í ferðalag yfir Miðjarðarhafið á ári hverju til að…

## [Fjórtán sjúkrabílar á vettvang banaslyss á breskri hraðbraut](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-fjortan-sjukrabilar-a-vettvang-banaslyss-a-breskri-hradbraut-484591/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögreglubíll og tveir fólksbílar lentu í hörðum árekstri nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt. Breska lögreglan segir marga látna og að unnið sé að því að bera kennsl á fórnarlömbin. Fjórtán sjúkrabílar voru sendir á vettvang. Viðbragðsaðilar eru enn að störfum og hraðbrautin er lokuð. Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins kemur fram að rannsókn slyssins beinist meðal annars að því að…

## [TikTok greiðir sekt fyrir að safna upplýsingum um börn](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-tiktok-greidir-sekt-fyrir-ad-safna-upplysingum-um-born-484589/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fjöldi dómsmála standa yfir gegn samfélagsmiðlafyrirtækjum, þar á meðal TikTokEPA / Bandaríska dómsmálaráðuneytið segist hafa komist að samkomulagi við samfélagsmiðlarisann TikTok og móðurfélagið ByteDance um að það greiði 400 milljónir dala í bætur fyrir að hafa brotið gegn einkalífi og friðhelgi barna með því að safna gögnum um þau. Dómsmálaráðuneytið höfðaði mál gegn TikTok fyrir tveimur árum…

## [Suðurkóreskt gámaskip leggur upp í siglingu um Norður-Íshaf til Evrópu](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-sudurkoreskt-gamaskip-leggur-upp-i-siglingu-um-nordur-ishaf-til-evropu-484587/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Gámaskipið PanStar Acro siglir af stað frá Busan í Suður-Kóreu klukkan ellefu árdegis að íslenskum tíma nema eitthvað ófyrirsjáanlegt komi í veg fyrir það. Skipið heldur í norðurátt og síðan vestur til Felixstowe á Bretlandi, Rotterdam í Hollandi og Gdansk í Póllandi áður en það snýr aftur heim. Áætlað er að siglingin taki 45 daga að mati sérfræðinga sjávarútvegsráðuneytis Suður-Kóreu. Stríðið í…

## [Carolyn Rodrigues-Birkett efst á blaði sem arftaki Antonios Guterres](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-carolyn-rodrigues-birkett-efst-a-bladi-sem-arftaki-antonios-guterres-484586/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Carolyn Rodrigues-Birkett, fyrrverandi utanríkisráðherra Gvæjana, er efst á blaði sem arftaki Antonios Guterres sem aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Hún hefur verið fastafulltrúi heimalandsins hjá Sameinuðu þjóðunum síðan 2020. Reuters hefur niðurstöðuna eftir þremur heimildarmönnum sem tóku þátt í óformlegri atkvæðagreiðslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gær. Átta sækjast eftir…

## [Besoz og Musk sagðir hagnast mest á fjárveitingu til uppbyggingu geimferðaiðnaðarins](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-besoz-og-musk-sagdir-hagnast-mest-a-fjarveitingu-til-uppbyggingu-geimferdaidnadarins-484583/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Minnisblað sem Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði í gær hvetur ríkisvaldið til samstarfs við einkageirann um byggingu fjölda eldflaugaskotpalla og gerir einkareknum geimferðafyrirtækjum kleift að skjóta mun fleiri eldflaugum á loft en verið hefur. John Leif Jørgensen, prófessor í geimvísindum við danska tækniháskólann DTU, segir í samtali við DR það einkum koma auðkýfingunum Elon Musk og…

## [Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada rann út í sandinn](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-tollasamkomulag-bandarikjanna-og-kanada-rann-ut-i-sandinn-484584/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ekkert verður af tollasamkomulagi milli Bandaríkjanna og Kanada að loknum nokkurra daga samningaviðræðum. Forsætisráðherrann Mark Carney sagði ekki hafa tekist að tryggja hagsmuni Kanada nægilega vel, skömmu áður en sá þriggja daga frestur rann sitt skeið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf. Umsvifalaust tók gildi 50 prósenta tollur á fjölda kanadískra vara sem fluttar eru til Bandaríkjanna,…

## [Leiðtogar Bandalags hinna viljugu hittast í Kyiv á mánudag](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-leidtogar-bandalags-hinna-viljugu-hittast-i-kyiv-a-manudag-484582/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fulltrúar þeirra ríkja sem veitt hafa Úkraínu stuðning, Bandalags hinna viljugu ríkja, hittast í Kyiv á mánudag til að ítreka liðsinni sitt. 24. ágúst er þjóðhátíðardagur Úkraínu og í ár er aldarfjórðungur frá því landið lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum. Volodymyr Zelensky forseti hvetur leiðtogana til að auka enn þrýsting á Rússa enda sé friður útilokaður nema þeir verði látnir standa…

## [Bygging veislusalarins heimiluð áfram tímabundið](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-bygging-veislusalarins-heimilud-afram-timabundid-484581/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna veitti í gær tímabundna heimild til áframhaldandi framkvæmda við gríðarstóran veislusal á lóð Hvíta hússins. Halda má framkvæmdum áfram meðan fjallað verður um málið á lægri dómsstigum. Niðurstaðan er því áfangasigur fyrir Donald Trump forseta eftir að áfrýjunardómstóll úrskurðaði fyrr í mánuðinum að ekki mætti halda framkvæmdum ofanjarðar áfram nema með samþykki…

## [Úkraínuforseti fordæmir mannskæða árás Rússa á verslanamiðstöð](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-22-ukrainuforseti-fordaemir-mannskaeda-aras-russa-a-verslanamidstod-484580/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Volodymyr Zelensky forseti fordæmir harðlega drónaárás Rússlandshers á verslanamiðstöð í heimabæ hans, Kryvyi Rig, í gær þar sem sextán týndu lífi. Á annað hundrað særðust, þar af fjöldi barna. Hann segir árásina lýsa illmennsku Rússa enda hafi þeir vísvitandi gert árás á hversdagslega verslanamiðstöð þar sem fjöldi fólks var staddur. Rússar hafa hert mjög á árásum á úkraínskar borgir síðustu…

