# því (news sources) — RSS Amplifier

Recent posts from the 4 feeds in the RSS Amplifier directory that cover því.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/%C3%BEv%C3%AD/news>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/%C3%BEv%C3%AD/news.md>

---

## [Tekið að grána í fjöllum við Akureyri](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-tekid-ad-grana-i-fjollum-vid-akureyri-485045/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Á Akureyri hefur verið heldur kalt í dag og mikið hefur rignt. Aðeins kaldara er í fjöllunum sem umlykja bæinn og snjóað hefur bæði í Vaðlaheiði og Hlíðarfjalli. Vaðlaheiði er tæplega 600 metra hátt fjall austan Akureyrar en Hlíðarfjall er um 1100 metra hátt vestan við bæinn. Snjórinn er ekki nægilegur til þess að fara á skíði. Mörgum bæjarbúum finnst þetta heldur snemmt, enda hefur ágúst ekki…

## [Uppsagnir í frístund og félagsmiðstöðvum högg fyrir málaflokkinn](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-uppsagnir-i-fristund-og-felagsmidstodvum-hogg-fyrir-malaflokkinn-485048/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Uppsagnir í félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum Reykjavíkur eru gríðarlegt högg fyrir málaflokkinn og ekki hægt að sjá að boðaðar breytingar bæti þjónustu eða faglegt starf. Þetta segir í tilkynningu frá stjórnum Samfés, landssamtökum félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, og Fagfrí, landssamtökum um fagþróun frístundaheimila. Samtökin fordæma það sem þau kalla „aðför borgarstjórnar Reykjavíkurborgar…

## [164 ára afmælishátíð Akureyrarbæjar nær hámarki um helgina](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-164-ara-afmaelishatid-akureyrarbaejar-naer-hamarki-um-helgina-485020/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Akureyrarvaka er um helgina. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá. Tónleikaþyrstir gestir Akureyrarvöku geta farið á tónleika samfleytt frá klukkan fimm á laugardag til miðnættis, víðs vegar um bæinn. Um 100 viðburðir, af öllum stærðum og gerðum, fara fram um helgina. Froðudanspartý verður í Sundlauginni á Akureyri og þeir sem vilja meiri slökun geta skellt sér í lystigarðinn á Rökkurró. Þrjár nýjar…

## [„Þarf að stilla betur saman strengi“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-tharf-ad-stilla-betur-saman-strengi-485023/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að það sé mikilvægt að stilla betur saman strengi í baráttunni við verðbólguna. Aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld þurfi að taka af meiri alvöru utan um vandann. Verðbólgan mælist 5,6% og forsendur kjarasamninga frá 2024 því brostnar. Það eru, að mati SA, mikil vonbrigði að ekki hafi náðst betri árangur síðasta árið. „Við erum…

## [Krefst allt að 10 ára fangelsisdóma í Reykholtsmáli](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-krefst-allt-ad-10-ara-fangelsisdoma-i-reykholtsmali-485022/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ákæruvaldið fer fram á að Andri Már Mortensen Birgisson og Ingunn Rut Sigurðardóttir fái átta til tíu ára fangelsisdóma í Reykholtsmálinu svokallaða. Þetta kom fram í málflutningi ákæruvaldsins fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi í því skyni að…

## [Inga búin að undirrita reglugerð um símanotkun í grunnskólum](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-inga-buin-ad-undirrita-reglugerd-um-simanotkun-i-grunnskolum-485018/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, er búin að undirrita reglugerð um takmarkanir á notkun farsíma og snjalltækja í skólum. Hér eftir mega börn ekki hafa á sér farsíma eða snjalltæki á skólatíma. Í reglugerðinni er lagt bann við því að börn séu með farsíma og snjalltæki á skólatíma sem ekki eru í eigu skóla eða frístundaheimilis. Ef börn koma með eigin síma eða tæki í skólann verða þau að…

## [Hefja beint flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-hefja-beint-flug-milli-keflavikur-og-filadelfiu-485014/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Frá og með 27. maí 2027 hefur flugfélagið American Airlines áætlunarflug milli Keflavíkurflugvallar og bandarísku borgarinnar Fíladelfíu. Flogið verður daglega yfir sumartímann á Airbus A321neo-flugvél sem tekur 196 farþega. Þetta kemur fram í tilkynningu Isavia. „American Airlines snýr þar með aftur til Íslands eftir nokkurra ára fjarveru.“ Frá Fíladelfíu er hægt að ferðast áfram til meira en 100…

## [Fjögur félög fá nær þriðjung kvótans](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-fjogur-felog-fa-naer-thridjung-kvotans-485002-2/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Heildarúthlutun aflamarks fyrir 2026 til 2027 er rúmlega 275 þúsund þorskígildistonn sem skiptast milli 308 skipa í eigu 260 félaga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fiskistofu. Fjögur félög fá nær 30% úthlutað – Samherji, Brim, Ísfélagið og FISK Seafood. Samherji fær 8,68% kvótans, Brim fær 7,76%, Ísfélagið fær 6,59% og FISK-Seafood fær 6,31%. Hæsta úthlutun á skip fær Sólberg ÓF 1 frá…

## [Ákærð fyrir að skila ekki tilkynningu um söfnunina fyrr en eftir á](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-akaerd-fyrir-ad-skila-ekki-tilkynningu-um-sofnunina-fyrr-en-eftir-a-485001/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Hjálparsamtökin Solaris tilkynntu ekki um fjársöfnun fyrir hælisleitendur fyrr en hálfu ári eftir að henni lauk. Þetta kemur fram í ákæru á hendur Semu Erlu Serdaroglu, stofnanda samtakanna, sem fréttastofa hefur undir höndum. Eins og fram hefur komið var Sema ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir vegna landssöfnunar fyrir Palestínu snemma árs 2024. Samkvæmt lagagreininni sem er vísað…

## [„Það var ljóst að það stefndi í þetta“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-thad-var-ljost-ad-thad-stefndi-i-thetta-484988/)

_2026-08-27 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segir hafa verið fyrirséð að verðbólgan yrði á svipuðum slóðum í ágúst og hún hefur verið síðustu mánuði. Verðbólgan er 5,6% og jókst um 0,2% milli mánaða. Forsenduákvæði kjarasamninga kveður á um að segja megi samningum upp ef verðbólga er yfir 4,7% í ágúst. Miðað við það eru forsendur kjarasamninganna brostnar en forsendunefnd þarf að…

## [Watch Chovy Code Live (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/N3JhxTaOmQvU)

_2026-08-27 · **Sponsored**_

Join live coding streams with real-time collaborative screen sharing, open source and free.

## [Gagn­rýna Við­skiptaráð fyrir að sleppa fjórðu út­flutnings­stoðinni](https://www.visir.is/g/20262926668d/gagnryna-vidskiptarad-fyrir-ad-sleppa-fjordu-utflutningsstodinni)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Samtök iðnaðarins krefja Viðskiptaráð um að það leiðrétti skýrslu sem það birti nýlega um íslenska hagkerfið. Ástæðan er sú að Viðskiptaráð nefndi ekki tækni- og hugverkaiðnaðinn sem fjórðu stoðina í útflutningi Íslands.

## [Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld](https://www.visir.is/g/20262926662d/minnst-447-milljonir-i-bodi-fyrir-vikinga-i-kvold)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Víkingur Reykjavík á fyrir höndum krefjandi verkefni gegn Borac Banja Luka á útivelli í Bosníu & Hersegóvínu í kvöld í seinni leik einvígis um laust sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Mikið er undir og háar fjárhæðir sem sigurlið einvígisins tryggir sér.

## [Ó­vissan í al­þjóða­málum - Hvað ef Norð­menn verða á undan?](https://www.visir.is/g/20262926666d/ovissan-i-althjodamalum-hvad-ef-nordmenn-verda-a-undan-)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Heimurinn og alþjóðamálin eru á svo mikilli hreyfingu – að ég kann engin fordæmi fyrir því. Einir nánustu bandamenn sögunnar innan NATO, Bandaríkin og Kanada, eiga nú í hörðum deilum og viðskiptastríði, að frumkvæði Bandaríkjaforseta, eftir að upp úr slitnaði í viðræðum þeirra á milli.

## [Verð­bólga eykst: For­sendur kjara­samninga brostnar](https://www.visir.is/g/20262926490d/verdbolga-eykst-forsendur-kjarasamninga-brostnar)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Verðbólga mælist 5,6 prósent í ágúst og hefur ekki verið meiri í tvö ár. Forsenduákvæði Stöðugleikasamninganna svokölluðu miðar við 4,7 prósenta verðbólgu í ágúst og því opnast heimild til að segja samningum upp þann 1. september.

## [Hollenska húsnæðislánið](https://www.visir.is/g/20262926643d/hollenska-husnaedislanid)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Þessa dagana er reynt að selja kjósendum þá hugmynd að upptaka evru myndi leiða af sér fjárhagslegan ávinning í formi lægri vaxta. Í raun eru vextirnir orðnir helsti sölupunktur þeirra sem vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið.

## [Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mæli­kerfi](https://www.visir.is/g/20262926638d/borgin-tharf-ekki-kjotexi-hun-tharf-maelikerfi)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Hvernig Reykjavík getur sparað milljarða með sem minnstri röskun fyrir íbúa og starfsfólk

## [Beint streymi: Háskóla­menntaðir á húsnæðis­markaði](https://www.visir.is/g/20262926437d/beint-streymi-haskolamenntadir-a-husnaedismarkadi)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Niðurstöður könnunar um stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði verða kynntar á morgun á fundi BHM og félaga háskólamenntaðra í Norræna húsinu. Hér að neðan má fylgjast með fundinum í beinu streymi.

## [Stríð ESB gegn jöfnuði og vel­ferð](https://www.visir.is/g/20262926636d/strid-esb-gegn-jofnudi-og-velferd)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Átta dæmi sem sýna hvernig stofnanir ESB og evrópski seðlabankinn stilla aðildarríkjum upp við vegg til þess að krefjast stórfellds niðurskurðar velferðarmála í skiptum fyrir aðstoð og neyðarlán.

## [Sjáðu Breiða­blik fara á kostum og valta yfir and­stæðing sinn í Evrópu](https://www.visir.is/g/20262926647d/sjadu-breidablik-fara-a-kostum-og-valta-yfir-andstaeding-sinn-i-evropu)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Breiðbliks gjörsamlega völtuðu yfir Csíkszere frá Rúmeníu, 8-1, í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð Evrópubikars kvenna í fótbolta í gær. Sunna Rún Sigurðardóttir skoraði þrennu í leiknum.

## [Staðgöngumóðir eignast „tví­bura“ með sitt­hvora for­eldrana](https://www.visir.is/g/20262926653d/stadgongumodir-eignast-tvibura-med-sitthvora-foreldrana)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Fordæmalaus staða kom upp í Queensland í Ástralíu í fyrra, þegar staðgöngumóðir eignaðist „tvíbura“ sem áttu sitt hvora foreldrana. Konan fæddi dreng, sem var sonur hennar og eiginmanns hennar, og stúlku, sem var líffræðileg dóttir pars hvers barn hún hafði samþykkt að ganga með.

## [Know before it drops (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/4PaAS4bYEx15)

_2026-08-27 · **Sponsored**_

Follow a show, artist, genre or rocket and get notified before release

## [Komið gott](https://www.visir.is/g/20262926598d/komid-gott)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Ekki er öll vitleysan eins og alls ekki á þessum óreiðutímum þar sem tækniframfarir sem við höfum hlakkað til að myndu einfalda líf okkar flækjast bara fyrir og hvergi finnst þessi æðri máttur, hann Jens, sem Fóstbræður létu okkur vita að væri hægt að hringja í til að útkljá erfið mál og ná góðri lendingu.

## [Komið gott](https://www.visir.is/g/20262926598d/komid-gott)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Ekki er öll vitleysan eins og alls ekki á þessum óreiðutímum þar sem tækniframfarir sem við höfum hlakkað til að myndu einfalda líf okkar flækjast bara fyrir og hvergi finnst þessi æðri máttur, hann Jens, sem Fóstbræður létu okkur vita að væri hægt að hringja í til að útkljá erfið mál og ná góðri lendingu.

## [Ó­vænt hætt sem þjálfari af per­sónu­legum á­stæðum](https://www.visir.is/g/20262926565d/ovaent-haett-sem-thjalfari-af-personulegum-astaedum)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Eva Hrund Harðardóttir hefur óskað eftir því að stíga til hliðar sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi.

## [Sjálf­stæð þjóð tekur sér sæti við borðið](https://www.visir.is/g/20262926591d/sjalfstaed-thjod-tekur-ser-saeti-vid-bordid)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Við Íslendingar erum stolt af sjálfstæði okkar. Og það eigum við sannarlega að vera. Sjálfstæðið er grunnurinn að því að við ráðum okkar eigin málum, mótum okkar eigin framtíð og veljum sjálf hvernig við eigum í samstarfi við aðrar þjóðir.

## [Heilsu Haraldar hrakar enn](https://www.visir.is/g/20262926648d/heilsu-haraldar-hrakar-enn)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Heilsu Haraldar Noregskonungs hrakar enn og er heilsufarsástand hans sagt „mjög alvarlegt“.

## [Ræður Evrópu­sam­bandið hvort dánarað­stoð verði leyfð á Ís­landi?](https://www.visir.is/g/20262926197d/raedur-evropusambandid-hvort-danaradstod-verdi-leyfd-a-islandi-)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Umræða um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu vekur spurningar um hvaða áhrif aðild gæti haft á íslensk lög og samfélag. Ein þeirra er hvort Evrópusambandið hafi sameiginlega stefnu um dánaraðstoð og hvort aðild hefði áhrif á möguleika Íslands til að setja eigin löggjöf um hana.

## [Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endur­komunni](https://www.visir.is/g/20262926627d/olafur-fekk-rautt-spjald-eftir-sjo-sekundur-i-endurkomunni)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Endurkoma Ólafs Guðmundssonar, fyrrverandi landsliðsmanns Íslands í handbolta, inn á völlinn entist ekki lengi í gær því Íslendingurinn fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur inn á vellinum.

## [Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað](https://www.visir.is/g/20262926628d/ad-minnsta-kosti-165-eru-latnir-og-yfir-1.500-saknad)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Yfir 1.500 er saknað eftir að jökulhrun olli skyndiflóði á landamærum Nepal og Tíbet. Svæðið er vinsælt meðal göngufólks og pílagríma og meirihluti þeirra sem saknað er eru ferðamenn.

## [4.677 nýir veg­far­endur á leið í skólann](https://www.visir.is/g/20262926543d/4.677-nyir-vegfarendur-a-leid-i-skolann)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Skólabyrjun er stórt skref í lífi barna og fjölskyldna þeirra. Í haust hefja 4.677 börn grunnskólagöngu, 241 fleiri en í fyrra. Börnin eru að stíga sín fyrstu skref í því að ferðast sjálfstætt til og frá skóla; gangandi, hjólandi eða með öðrum hætti.

## [Evran lækkar ekki vextina](https://www.visir.is/g/20262925669d/evran-laekkar-ekki-vextina)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Tilgangur þessara tveggja greina er að leggja fram gögnin sem þarf til að meta eitt tiltekið loforð, að vextir lækki með evru. Í fyrri grein færði ég rök fyrir því að íslenska verðbólgan sem setur stýrivexti sé heimatilbúin og að evran breyti engu um hana. Hér tek ég fyrir sjálft loforðið um lægri vexti.

## [Crypto Payments, No Custody (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/8L1DlQzr6ch8)

_2026-08-27 · **Sponsored**_

Send crypto to merchant wallets via API with real-time updates and automatic fees.

## [Rigning og skúrir víða um land](https://www.visir.is/g/20262926630d/rigning-og-skurir-vida-um-land)

_2026-08-27 · Allar fréttir_

Lítið lægðadrag liggur nú yfir landinu sem veldur rigningu eða súld um norðan- og austanvert landið í dag. Það verður skýjað með köflum og stöku skúrir verða sunnan- og vestanlands.

## [Bíll óökufær eftir umferðaróhapp](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-26-bill-ookufaer-eftir-umferdarohapp-484877/)

_2026-08-26 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Bíll er óökufær eftir umferðaróhapp í umdæmi lögreglustöðvar 1, sem þjónar Miðborginni, Seltjarnarnesi, Austurbæ og Vesturbæ, í gær eða nótt. Engin slys urðu á fólki að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði nokkur afskipti af ökumönnum í gærkvöld og nótt sem stöðvaðir voru fyrir ýmis brot. Einn ökumaður reyndist aka undir áhrifum áfengis…

## [Aðildarviðræður gætu tekið upp undir tvö ár](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-26-adildarvidraedur-gaetu-tekid-upp-undir-tvo-ar-484870/)

_2026-08-26 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ef Íslendingar segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag þá er það mat stjórnvalda að aðildarviðræður gætu hafist fyrir árslok og hægt væri að ljúka þeim á einu og hálfu ári til tveimur. Ef niðurstaðan er nei hefjast aðildarviðræður ekki á ný. Hvort sem niðurstaðan verður já eða nei heldur EES-samningurinn áfram að gilda um stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu ásamt ýmsum öðrum samningum…

## [Búast má við töfum á umferð vegna malbikunarframkvæmda](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-26-buast-ma-vid-tofum-a-umferd-vegna-malbikunarframkvaemda-484867/)

_2026-08-26 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Til stendur að malbika framhjáhlaup og tengingar við Hringveg, Vesturlandsveg, framhjá Baulu og Borgarfjarðarbraut milli klukkan 9 og 16 í dag, miðvikudag, ef veður leyfir. Í tilkynningu frá Colas segir að umferð verði handstýrt á kafla þegar þess þarf og hægt verður á umferðarhraða. Þá eru einnig ráðgerðar malbikunarframkvæmdir á Reykjanesbraut og Miklubraut næstu kvöld og nætur ef veður leyfir.…

## [Heiða Björg segir tillögurnar hafa skaðleg áhrif á þjónustu við íbúa borgarinnar](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-25-heida-bjorg-segir-tillogurnar-hafa-skadleg-ahrif-a-thjonustu-vid-ibua-borgarinnar-484859/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fulltrúar Samfylkingar í borgarráði lögðu fram bókun á aukafundi borgarráðs í morgun, þar sem umfangsmiklar breytingartillögur í rekstri borgarinnar voru samþykktar. Samfylkingin lagði fram 47 spurningar um hvernig breytingarnar yrðu í framkvæmd og hvernig árangur og áhrif yrðu metin. Gagnrýnistónninn er skýr og spurningarnar líka. Heiða Björg Hilmisdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og nú…

## [Þurfa að fræsa upp kílómetra langt klæðingarlag við Kaldármela](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-25-thurfa-ad-fraesa-upp-kilometra-langt-klaedingarlag-vid-kaldarmela-484865/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fræsa þarf upp nýlega lagt klæðingarlag á um eins kílómetra löngum kafla Snæfellsvegar við Kaldármela og leggja að nýju eftir að það skemmdist. Bæjarstjóri Snæfellsbæjar fundaði með stjórnendum Vegagerðarinnar og segir þá hafa lofað meiri vandvirkni. Umferð og laust steinefni skemmdu yfirborð vegarins Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að fimmtudaginn 20. ágúst hafi neðra lag klæðingar verið…

## [Nei-hliðin: Kúabóndi telur undanþágur mögulegar en aðild óþarfa](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-25-nei-hlidin-kuabondi-telur-undanthagur-mogulegar-en-adild-otharfa-484864/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Herdís Magna Gunnarsdóttir, kúabóndi á Egilsstöðum, telur mögulegt að hægt væri að fá undanþágu fyrir íslenskan landbúnað ef til aðildarviðræðna við Evrópusambandið kæmi, til að mynda fyrir bann við innflutningi á lifandi dýrum. Þrátt fyrir það telur hún landbúnaði á Íslandi best borgið utan Evrópusambandsins. „Það kerfi er hannað að meginlandslandbúnaði þar sem aðstæður eru allt aðrar en á…

## [Kallar eftir samfélagsátaki til að minnka drykkju unglinga – „Við höfum sofnað á verðinum“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-25-kallar-eftir-samfelagsataki-til-ad-minnka-drykkju-unglinga-vid-hofum-sofnad-a-verdinum-484858/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Félagsmiðstöðvar eru lokaðar þegar ungmenni þurfa mest á þeim að halda, segir móðir barns í unglingadeild. Formaður foreldrafélags um unglingadrykkju og forvarnir hefur áhyggjur af því að drykkja hafi færst í aukana að undanförnu. Eftir menningarnótt talaði lögregla um að hafa haft afskipti af á fjórða tug ungmenna , þar sem áfengi var hellt niður og haft samband við foreldra. Í kjölfarið töluðu…

## [Fokdýrar framkvæmdir framundan](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-25-fokdyrar-framkvaemdir-framundan-484838/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Mikið kapp er lagt á að Akureyrarkirkja skarti sínum allra besta búningi árið 2040 þegar hún verður 100 ára. Mikið viðhald er á döfinni sem gæti reynst kostnaðarsamt. „Það þarf nú meðal annars að skipta um gólfið hérna í kirkjunni. Það þarf að laga glugga, það þarf að gera við orgelið og það þarf að laga loftræstinguna í kirkjunni,“ segir Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur á Akureyri. Hún segir…

## [„Við erum að sjá á eftir mjög hæfu starfsfólki“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-25-vid-erum-ad-sja-a-eftir-mjog-haefu-starfsfolki-484855/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Reykjavíkurborg hefur samþykkt breytingar sem leiða til uppsagna 86 starfsmanna. Af þeim fá 32 boð um ný eða breytt störf en 54 fá ekki áframhaldandi starf. Þetta eru ekki fyrstu hagræðingaraðgerðirnar frá því ný borgarstjórn tók við völdum í lok maí. Og í raun ættu hagræðingaraðgerðir þeirra flokka sem mynda meirihluta í borgarstjórn, Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar, ekki að…

## [Rafmagnslaust á hluta Suðurnesja](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-25-rafmagnslaust-a-hluta-sudurnesja-484862/)

_2026-08-25 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Rafmagnslaust er á hluta Suðurnesja eftir að þrjár háspennulínur Landsnets leystu út um klukkan fjögur síðdegis. Í tilkynningu Landsnets segir að útslátturinn hafi valdið því að Svartsengisvirkjun sé úti. Einnig sé rafmagnslaust í Grindavík og Bláa lóninu. Unnið er að greiningu bilunarinnar en ekki liggur fyrir hversu lengi rafmagnsleysið varir. Línurnar sem leystu út eru Svartsengislínur 1 og 2…

## [Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd](https://www.visir.is/g/20262924963d/vaxtaakvordunin-hafi-ekki-verid-raedd)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Þorgerður Katrín Guðmundsdóttir fundaði með Ásgeiri Jónssyni skömmu fyrir vaxtahækkunarákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans í síðustu viku. Aðstoðarmaður Þorgerðar segir vaxtaákvörðunina ekki hafa verið rædda á fundi þeirra.

## [Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City](https://www.visir.is/g/20262924957d/lidsfelagi-hakonar-a-leidinni-til-city)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Manchester City hefur náð samkomulagi við Lille um kaup á fransk-marokkóska miðjumanninum Ayyoub Bouaddi. Hann kemur til félagsins fyrir um 95 milljónir evra og er ætlað að leysa Spánverjann Rodri af hólmi.

## [Gagn­rýnir við­bragð lög­reglu eftir á­hlaup ung­menna](https://www.visir.is/g/20262924956d/gagnrynir-vidbragd-logreglu-eftir-ahlaup-ungmenna)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Forsvarsmenn veitinga- og skemmtistaðarins Priksins við Bankastræti í Reykjavík gagnrýna vinnubrögð lögreglu þegar staðnum var lokað í gær vegna áhlaups ungmenna. Viðbragð lögreglu hafi verið brot gegn meðalhófsreglu. Veitingastaðnum Gömlu Reykjavík við Austurvöll var einnig lokað.

## [ÍA - FH | Heldur sigur­ganga Skagamanna á­fram eða nær FH vopnum á ný?](https://www.visir.is/g/20262924292d/ia-fh-heldur-sigurganga-skagamanna-afram-eda-naer-fh-vopnum-a-ny-)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

ÍA tekur á móti FH í 20. umferð Bestu deildar karla.

## [Kefla­vík - ÍBV | Heima­menn vilja halda sér í efri hlutanum](https://www.visir.is/g/20262924306d/keflavik-ibv-heimamenn-vilja-halda-ser-i-efri-hlutanum)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Keflavík tekur á móti ÍBV í 20. umferð Bestu deildar karla.

## [KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan?](https://www.visir.is/g/20262924312d/ka-kr-hvad-gerir-eidur-smari-i-nyju-starfi-fyrir-nordan-)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

KA er með nýjan þjálfara við stjórnvölinn í leik liðsins gegn KR í 20. umferð Bestu deildar karla.

## [Stjarnan - Þór | Nýir menn við stjórn­völinn hjá Stjörnunni](https://www.visir.is/g/20262924298d/stjarnan-thor-nyir-menn-vid-stjornvolinn-hja-stjornunni)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Stjarnan mætir með nýtt þjálfarateymi þegar liðið tekur á móti Þór i 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta.

## [Ísak skoraði og klúðraði víti í ís­lenskum nýliðaslag](https://www.visir.is/g/20262924954d/isak-skoradi-og-kludradi-viti-i-islenskum-nylidaslag)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Ísak Snær Þorvaldsson skoraði mark Lyngby en klúðraði líka vítaspyrnu í 2-1 tapi á útivelli gegn Horsens í nýliðaslag Íslendingaliðanna í 5. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar.

## [Ráð­herra byrjar með hlaðvarp](https://www.visir.is/g/20262924948d/radherra-byrjar-med-hladvarp)

_2026-08-23 · Allar fréttir_

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, er byrjaður með hlaðvarp. Hlaðvarpið heitir Sjónarhorn. Annar þingmaður flokksins er einnig með hlaðvarp og flokkurinn sjálfur rekur hlaðvarp þar sem iðulega er rætt við þingmenn flokksins.

