# þetta (news sources) — RSS Amplifier

Recent posts from the 2 feeds in the RSS Amplifier directory that cover þetta.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/%C3%BEetta/news>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/%C3%BEetta/news.md>

---

## [Leysa þyrfti vaxta- og verðbólguvandann áður en hægt væri að taka upp evru](https://utvarpsaga.is/leysa-thyrfti-vaxta-og-verdbolguvandann-adur-en-haegt-vaeri-ad-taka-upp-evru/)

_2026-08-25 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ragnar Árnason, hagfræðing og prófessor emeritus í síðdegisútvarpinu í dag,um evruna og þau áhrif sem upptaka hennar gæti haft á íslenskt efnahagslíf. Ragnar sagði Ísland þurfa að ná niður verðbólgu og vöxtum og uppfylla önnur Maastricht-skilyrði áður en evruupptaka gæti komið til greina. Stór hluti þess efnahagsvanda sem evrunni væri ætlað \[…\]

## [Nanna: Ekki verið að kjósa um vexti, verðbólgu eða húsnæðisverð](https://utvarpsaga.is/nanna-ekki-verid-ad-kjosa-um-vexti-verdbolgu-eda-husnaedisverd/)

_2026-08-25 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, þingmann Miðflokksins í síðdegisútvarpinu í dag, um hvað felist í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Evrópusambandið. Nanna lagði áherslu á að ekki væri verið að kjósa um vexti, verðbólgu, húsnæðisverð eða matvælaverð heldur hvort halda ætti aðildarferlinu áfram. Þessi efnahagsmál væru ekki samningsefni í aðildarviðræðum þótt þau hefðu verið…

## [Vegna ginningarfíflunar áróðurs &#8220;já til að sjá&#8221; Þá þykir BHG skylt fram að færa haldbærari röksemdir&#8230;.](https://utvarpsaga.is/vegna-ginningarfiflunar-arodurs-ja-til-ad-sja-tha-thykir-bhg-skylt-fram-ad-faera-haldbaerari-roksemdir/)

_2026-08-25 · Bjarna Hannessyni frá Undirfelli · Útvarp Saga_

Bjarni Hannesson ritar og mynda inn síðurraðar. Sjá nánar með því að smella hér.

## [Getur ekki svarað hvort Ísland fái undanþágu frá innflytjendapakka ESB](https://utvarpsaga.is/getur-ekki-svarad-hvort-island-fai-undanthagu-fra-innflytjendapakka-esb/)

_2026-08-25 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra í síðdegisútvarpinu um hvaða skyldur gætu fylgt innflytjenda- og hælisreglum Evrópusambandsins ef Ísland gengi í sambandið. Arnþrúður spurði hvort Ísland gæti hafnað þeim hluta regluverksins sem gæti falið í sér móttöku fólks frá öðrum ríkjum eða samið um undanþágu. Þorbjörg gat ekki svarað því og sagði…

## [Bjartmar: Var skipað að syngja lögin sjálfur](https://utvarpsaga.is/bjartmar-var-skipad-ad-syngja-login-sjalfur/)

_2026-08-25 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Rúnar Þór ræddi við Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmann í þættinum Slappaðu af um upphaf söngferils hans sem varð með nokkuð óvæntum hætti. Bjartmar kom af vertíð árið 1983 með um 20–30 lög sem hann hafði samið á einu ári og voru þau tekin upp sem demó. Eftir að Rúnar Júlíusson og Þórir Baldursson höfðu hlustað á \[…\]

## [Vill að unga kynslóðin fái sjálf að móta framtíð Íslands](https://utvarpsaga.is/vill-ad-unga-kynslodin-fai-sjalf-ad-mota-framtid-islands/)

_2026-08-25 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Steinar Inga Kolbeins, frá Ungum NEI-sinnum í síðdegisútvarpinu um afstöðu ungs fólks til Evrópusambandsins og þá ákvörðun sem þjóðin stendur frammi fyrir. Steinar sagði sína kynslóð eiga að fá sömu tækifæri og kynslóðir foreldra, afa og ömmu til að móta íslenskt samfélag sjálf. Hann viðurkenndi að ESB-aðild og upptaka evru gætu \[…\]

## [Hundruðum skjala um ESB-málið haldið frá Alþingi og almenningi](https://utvarpsaga.is/hundrudum-skjala-um-esb-malid-haldid-fra-althingi-og-almenningi/)

_2026-08-25 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Loga Kjartansson, lögfræðing í síðdegisútvarpinu um kæru til úrskurðarnefndar kosningamála vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið. Logi sagði eina af 6 málsástæðum kærunnar byggja á því að miklu magni skjala og gagna sem tengjast ESB-málinu hafi verið haldið frá Alþingi og almenningi. Hann sagði um hundruð skjala að ræða…

## [Þorbjörg Sigriður: Íslenskir dómstólar áfram með dómsvaldið þótt Ísland gangi í ESB](https://utvarpsaga.is/thorbjorg-sigridur-islenskir-domstolar-afram-med-domsvaldid-thott-island-gangi-i-esb/)

_2026-08-25 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra í síðdegisútvarpinu um áhrif mögulegrar ESB-aðildar á íslenska dómskerfið. Þorbjörg hafnaði því að dómskerfið færi í hendur Evrópusambandsins og sagði héraðsdómstóla, Landsrétt og Hæstarétt starfa áfram. Arnþrúður benti hins vegar á stöðu íslenskra dómstóla gagnvart Evrópudómstólnum sem hefði síðasta orðið. Hún…

## [Bretar afhenda Úkraínu teikningar að Storm Shadow flaugum – Óttast að málið leiði til átaka við Rússa](https://utvarpsaga.is/bretar-afhenda-ukrainu-teikningar-ad-storm-shadow-flaugum-ottast-ad-malid-leidi-til-ataka-vid-russa/)

_2026-08-25 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Bresk stjórnvöld ætla að afhenda Úkraínu hönnunargögn og trúnaðarupplýsingar sem gera landinu kleift að hefja eigin framleiðslu á Storm Shadow langdrægum stýriflaugum. Flaugarnar geta verið notaðar gegn skotmörkum inni í Rússlandi. Michael Clarke, prófessor og varnarmálasérfræðingur Sky News, segir aukinn hernaðarstuðning Breta við Úkraínu færa ríkin nær beinum átökum milli Breta og Rússa. Fjallað…

## [Já, ráðherra! &#8211; Já-ið sem áróðurstækni](https://utvarpsaga.is/ja-radherra-ja-id-sem-arodurstaekni/)

_2026-08-24 · Júlíusi Valssyni · Útvarp Saga_

Júlíus Valsson skrifar: Vorið 1934 gátu Rómarbúar hvorki keypt brauð né látið klippa sig án þess að yfirvöld héldu yfir þeim ræðu. Utan á Palazzo Braschi, höfuðstöðvum fasista, hékk andlitsmynd af Benito Mussolini á stærð við meðalstórt fjölbýlishús. Umhverfis hana blasti við sama orðið margendurtekið: SÌ. Kjósandanum var réttur einn listi, saminn af stórráði fasista. \[…\]

## [Realtime AI Arbitrage Terminal (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/bsRk3EavjIBi)

_2026-08-24 · **Sponsored**_

Realtime auto-trading across exchanges with scored setups, backtesting, and risk controls.

## [Það verður blautt fram eftir degi en léttir til í kvöld](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-thad-verdur-blautt-fram-eftir-degi-en-lettir-til-i-kvold-484639/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Í dag er spáð áframhaldandi skúrum á landinu, einkum þó á Suður- og Vesturlandi. Áttin verður suðvestlæg eða breytileg átt, yfirleitt gola eða stinningsgola. Það léttir víða til og lægir í kvöld, hiti frá 10 stigum norðvestantil upp að 20 stigum á Austurlandi. Áfram blautt á morgun Það kemur lægð upp að landinu í fyrramálið sem fer norður yfir landið á morgun. Það mun því blása úr norðri á…

## [Talsvert um drukkin ungmenni í miðborginni — skemmtistöðum lokað vegna fjölda gesta undir lögaldri](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-talsvert-um-drukkin-ungmenni-i-midborginni-skemmtistodum-lokad-vegna-fjolda-gesta-undir-logaldri-484637/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögreglumenn þurftu að hafa afskipti af talsvert mörgum ungmennum undir áhrifum áfengis í miðborg Reykjavíkur á menningarnótt auk þess sem tveimur skemmtistöðum var lokað vegna þess fjölda gesta innandyra sem reyndist undir lögaldri. Foreldrum og forráðamönnum var gert að sækja börn sín á lögreglustöð. Þrír voru handteknir í miðborginni grunaðir um líkamsárás með eggvopnum og hnúajárni. Þeir höfðu…

## [Þyrlupallurinn í Surtsey verður næstum þrefaldaður að stærð](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-thyrlupallurinn-i-surtsey-verdur-naestum-threfaldadur-ad-staerd-484632/)

_2026-08-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þyrlupallurinn í Surtsey verður stækkaður töluvert eftir að umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyjabæjar samþykkti umsókn Surtseyjarfélagsins þess efnis. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaleyfi. Í frétt vefmiðilsins Tíguls segir að ætlunin sé að stækka pallinn úr 36 fermetrum í hundrað í ljósi þess að sérfræðingar Landhelgisgæslunnar telja…

## [Mikil stemmning á Tónaflóði Rásar 2](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-mikil-stemmning-a-tonaflodi-rasar-2-484628/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Reykjavík iðaði af lífi í allan dag á Menningarnótt og fjölbreyttir listviðburðir voru í hverju horni miðborgarinnar. Borgin fagnar 240 ára afmæli sínu í dag. Dagskrá Menningarnætur lauk með stórbrotinni flugeldasýningu klukkan tíu í kvöld. Fjöldi fólks sótti Tónaflóð á Arnarhóli þar sem fram komu JóiPé og Króli og vinir, Árný Margrét, Spacestation, Daði Freyr og Páll Óskar og Benni Hemm Hemm auk…

## [100 ára tombóla Kvenfélags Grímsness sló í gegn](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-100-ara-tombola-kvenfelags-grimsness-slo-i-gegn-484608/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Það var mikið fjölmenni á sveitahátíðinni Grímsævintýri á Borg í Grímsnesi í dag. Þar voru langar raðir af fólki til að komast inn á markaðinn í félagsheimilinu á Borg en það voru líka raðir við íþróttahúsið hjá þeim sem voru að fara á tombóluna – sem hefur verið haldin árlega frá 1926 af kvenfélaginu, eða í 100 ár. Allur peningurinn sem hefur safnast hefur runnið óskertur til góðra málefna. „Eins…

## [Evrópubúar vilja frekar innlendar vörur en vörur merktar „Made in Europe“](https://utvarpsaga.is/evropubuar-vilja-frekar-innlendar-vorur-en-vorur-merktar-made-in-europe/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Meirihluti kjósenda í flestum ríkjum Evrópusambandsins vill frekar að hið opinbera kaupi vörur sem framleiddar eru í eigin landi en að veita almennt forskot vörum sem framleiddar eru annars staðar innan ESB. Niðurstöðurnar ganga að hluta gegn áformum framkvæmdastjórnar ESB um að styrkja svonefnda „Buy European“ stefnu í opinberum innkaupum. Þetta kemur fram í umfjöllun \[…\]

## [Hlaupagarpar og listamenn settu svip sinn á Menningarnótt](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-hlaupagarpar-og-listamenn-settu-svip-sinn-a-menningarnott-484623/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fjölbreyttir listviðburðir eru um alla borg í tilefni Menningarnætur. Margir reimuðu á sig hlaupaskóna og studdu góðan málstað. Sprækir hlauparar spændu af stað í Reykjavíkurmaraþoninu í morgun. Alls hafa safnast yfir 285 milljónir króna. Reykjavík hefur iðað af lífi í allan dag og fjölbreyttir listviðburðir í hverju horni miðborgarinnar. Yfir sextán þúsund hlauparar tóku þátt í…

## [Fjögur útköll og þar af tvö á hafi úti](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-fjogur-utkoll-og-thar-af-tvo-a-hafi-uti-484625/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Landhelgisgæslan hefur sinnt fjórum útköllum í dag en þar af hafa tvö verið á hafi úti. „Þetta er búið að vera ansi annasamur dagur. Þó að það komi alveg fyrir að Gæslan sinni fjórum útköllum sama daginn þá sem betur fer eru ekki margir svona dagar sem eru svona annasamir,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Meðal útkalla var sjúkraflug seinni partinn í dag í Flatey á…

## [Algjört forræði yfir fiskveiðiauðlindinni verði að tryggja í ESB-samningi](https://utvarpsaga.is/algjort-forraedi-yfir-fiskveidiaudlindinni-verdi-ad-tryggja-i-esb-samningi/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Dag B. Eggertsson, þingmann Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra, í síðdegisútvarpinu um stöðu íslensks sjávarútvegs og aðild að Evrópusambandinu. Dagur sagði algjört forræði Íslands yfir fiskveiðiauðlindinni þurfa að vera tryggt í aðildarsamningi og sagðist ekki hafa fundið dæmi um að ESB hefði tekið auðlindir af aðildarríki. Arnþrúður benti hins vegar á…

## [Bandaríkin: Færslu Comeys mátti skilja sem hótun gegn Trump](https://utvarpsaga.is/bandarikin-faerslu-comeys-matti-skilja-sem-hotun-gegn-trump/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Bandaríska dómsmálaráðuneytið telur að færsla James Comey, fyrrverandi forstjóra FBI, birti með tölunum „86 47“ hafi með hlutlægum hætti mátt skilja sem hótun um að Donald Trump Bandaríkjaforseti yrði drepinn. Ráðuneytið hafnar jafnframt ásökunum Comeys um að ákæran gegn honum sé pólitísk hefnd. Þetta segir í frétt Zerohedge. Comey birti í maí 2025 ljósmynd á \[…\]

## [8.1% APY Plus Free Stock (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/tZbjybQWpktQ)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Claim 8.1% APY and up to $1,030 in SK hynix and Nvidia stock.

## [Segir sýslumann hafa kyrrsett Bandero í kyrrþey](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-segir-syslumann-hafa-kyrrsett-bandero-i-kyrrthey-484617/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögfræðingur félagsins sem á skipið Bandero segir óeðlilegt að kyrrsetningarkrafa Hvals hf. á skipinu hafi náð fram að ganga. Hann á von á að beiðni um endurupptöku á kyrrsetningunni verði tekin til afgreiðslu sem fyrst. Íslensk yfirvöld tóku yfir stjórn skipsins í júlí eftir að áhöfn Bandero sigldi án heimildar inn fyrir tólf mílna lögsögu landsins og ógnaði öryggi skipverja hvalveiðiskipsins…

## [Strætó keyrir frá Sæbraut í öll hverfi borgarinnar eftir flugeldasýninguna](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-straeto-keyrir-fra-saebraut-i-oll-hverfi-borgarinnar-eftir-flugeldasyninguna-484614/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Miðborg Reykjavíkur er lokuð fyrir umferð í dag vegna Menningarnætur. Ferðir Strætó hafa gengið vel það sem af er degi. Vegna götulokana þurfa vagnar að aka hjáleiðir og nú er endastöð flestra strætóleiða í Skúlagötu, fram á kvöld. Markús Vilhjálmsson, hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, segir nýtingu á vögnum hafa verið góða í dag. „Við höfum lítið verið að lenda í því að vagnar hafa…

## [Smitten íhugar að taka upp rafræna auðkenningu notenda](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-smitten-ihugar-ad-taka-upp-rafraena-audkenningu-notenda-484604/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri stefnumótaforritsins Smitten, segir í skoðun að taka upp rafræna auðkenningu hér á landi, líkt og er í Svíþjóð. Sænskir notendur forritsins þurfa að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum til þess að geta stofnað síðu á forritinu. Davíð segir það hvimleitt, en þó ekki vaxandi, vandamál að fólk noti gervigreind til þess að villa á sér heimildir á…

## [Manndráp á Kársnesi talið tengjast skipulagðri glæpastarfsemi](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-manndrap-a-karsnesi-talid-tengjast-skipulagdri-glaepastarfsemi-484611/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Tveir menn höfðu setið í gæsluvarðhaldi hér á landi í tengslum við manndráp á Kársnesi í Kópavogi í tæpar tvær vikur en öðrum þeirra var sleppt í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Sá er erlendur ríkisborgari en gæsluvarðhald yfir hinum manninum, sem er íslenskur, er í gildi fram á mánudag. Ekki liggur fyrir hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir honum. Tveir til viðbótar…

## [Hvetur gesti Tónaflóðs til að klæða sig eftir veðri](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-hvetur-gesti-tonaflods-til-ad-klaeda-sig-eftir-vedri-484613/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Menningarnótt er í dag. Einn af hápunktum dagskrárinnar eru tónleikarnir Tónaflóð Rásar tvö, sem hefjast á Arnarhóli klukkan 19:00. Tónleikarnir eru í beinni útsendingu bæði í sjónvarpi og á Rás 2. Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru Jói P. og Króli, Árný Margrét, Daði Freyr, Benni Hemm Hemm og Páll Óskar. Siggi Gunnars á DJ-græjunum Arnarhóll breytist því í stærsta dansgólf landsins áður…

## [Ólafur Ragnar: Lissabon-sáttmálinn er stóra málið sem ekki er rætt](https://utvarpsaga.is/olafur-ragnar-lissabon-sattmalinn-er-stora-malid-sem-ekki-er-raett/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands og einn stofnenda Áfram Ísland, í síðdegisútvarpinu í dag, laugardag, um þær breytingar sem orðið hafa á Evrópusambandinu frá því Ísland sótti um aðild árið 2009. Ólafur Ragnar sagði Lissabon-sáttmálann hafa breytt eðli sambandsins verulega en lítið væri fjallað um þær breytingar í ESB-umræðunni hér \[…\]

## [Betur fór en á horfðist þegar jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-betur-for-en-a-horfdist-thegar-jeppa-var-ekid-framan-a-voruflutningabil-484612/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl á Vesturlandi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að báðir bílar höfnuðu utan vegar og flutningabíllinn á hliðinni. Áreksturinn varð á Vestfjarðarvegi við Grafarland í Dölunum. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, segir annan ökumanninn hafa verið fluttan af vettvangi með sjúkrabíl. Hann hafi þó aðeins verið með minni háttar áverka.…

## [Eltihrellar nota millifærslur til að áreita fólk](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-eltihrellar-nota-millifaerslur-til-ad-areita-folk-484609/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Indó sparisjóði hafa borist ábendingar um að eltihrellar misnoti millifærslur til að áreita fólk með því að millifæra óverulegar fjárhæðir á bankareikninga þess og hafa jafnvel skilaboð með sem skýringu. Viðskiptavinir bankans geta nú lokað á að sjá skýringar frá tilteknum aðilum vegna þessa. „Því miður höfum við orðið vör við að viðskiptavinir okkar hafa haft samband og látið okkur vita af því að…

## [Bandaríkin ætla að hafa viðveru á Íslandi til frambúðar](https://utvarpsaga.is/bandarikin-aetla-ad-hafa-vidveru-a-islandi-til-frambudar/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson hagfræðing í síðdegisútvarpinu um stöðu Íslands í varnarmálum og ummæli Alexus G. Grynkewich hershöfðingja, yfirhershöfðingja Atlantshafsbandalagsins í Evrópu og yfirmanns herafla Bandaríkjanna í Evrópu. Guðmundur sagði skilaboðin skýr um að Bandaríkin hygðust áfram tryggja varnir Íslands og taldi þau styrkja þá stöðu að Ísland héldi…

## [Paul Watson krefst endurupptöku á kyrrsetningu Bandero](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-paul-watson-krefst-endurupptoku-a-kyrrsetningu-bandero-484607/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Paul Watson krefst endurupptöku vegna kyrrsetningar á skipinu Bandero af hálfu Hvals hf. og að hún verði felld niður. Hann telur augljóst að lögum um kyrrsetningu hafi ekki verið fylgt, að því er fram kemur í endurupptökubeiðni. Bandero er skip Paul Watson samtakanna, sem Watson stofnaði. Hann stofnaði einnig félagið Atlantic Marine Industries LLC. Samtökin sigldu til Íslands í þeim tilgangi að…

## [Install Manifest V3 Extension (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/CGLybAVG9Nq2)

_2026-08-22 · **Sponsored**_

Get this Manifest V3 extension from the official TronBrowser Store listing.

## [Brotist inn í apótek og lyfjum stolið](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-brotist-inn-i-apotek-og-lyfjum-stolid-484601/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Brotist var inn í Efstaleitisapótek í Reykjavík í nótt og lyfjum stolið. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu safnar upplýsingum til að komast að því hver var að verki, meðal annars upptökum úr öryggismyndavélum í nágrenninu. „Það var farið inn í nótt og einhverjum lyfjum stolið,“ segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Málið sé í rannsókn. Þetta er…

## [Björgunarsveitir komu göngumanni til bjargar á Fimmvörðuhálsi í gærkvöldi](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-bjorgunarsveitir-komu-gongumanni-til-bjargar-a-fimmvorduhalsi-i-gaerkvoldi-484603/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Björgunarsveitir víða af Suðurlandi, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, voru kallaðar út á hæsta forgangi vegna skyndilegra veikinda göngumanns á Fimmvörðuhálsi í gærkvöld. Þoka og lítið skyggni gerðu aðgerðir erfiðar en nota þurfti línur til að flytja manninn niður bratta brekku og í bíl björgunarsveitar. Um 60 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðinni sem lauk um klukkan tíu í gærkvöld. Staddur…

## [Jón Pétur: „Ef við töpum tungunni þá hættum við að vera þjóð“](https://utvarpsaga.is/jon-petur-ef-vid-topum-tungunni-tha-haettum-vid-ad-vera-thjod/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Pétur Zimsen, þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóra í síðdegisútvarpinu um mikilvægi íslenskunnar fyrir menningu og þjóðarvitund. Jón Pétur sagði sameiginlegt tungumál, menningu og reynslu vera meðal þess sem skapaði þjóðina og varaði við því að ef Íslendingar töpuðu tungunni væri hætta á að þeir hættu að vera þjóð. Skólarnir gegndu \[…\]

## [Varnarsamningurinn við Bandaríkin ásamt NATO aðild er skásti kosturinn fyrir Ísland](https://utvarpsaga.is/varnarsamningurinn-vid-bandarikin-asamt-nato-adild-er-skasti-kosturinn-fyrir-island/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri í Síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu um stöðu Íslands í varnar- og öryggismálum. Hilmar sagði legu Íslands á Norður-Atlantshafi gera það að verkum að þjóðaröryggishagsmunir Íslands og Bandaríkjanna færu saman. Hann taldi núverandi fyrirkomulag með NATO-aðild og tvíhliða varnarsamningi við Bandaríkin skásta kostinn…

## [Brottvísun á ekki að stytta refsingu fyrir alvarlega glæpi](https://utvarpsaga.is/brottvisun-a-ekki-ad-stytta-refsingu-fyrir-alvarlega-glaepi/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, í síðdegisútvarpinu um afplánun erlendra ríkisborgara og brottvísun þeirra úr landi. Guðrún sagði óeðlilegt að einstaklingur, sem dæmdur hefði verið fyrir alvarlegan glæp, gæti afplánað aðeins hluta dómsins áður en honum væri vísað úr landi. Hún taldi að eðli brotsins yrði að hafa…

## [Hvað er verið að gera á bak við ESB tjöldin](https://utvarpsaga.is/hvad-er-verid-ad-gera-a-bak-vid-esb-tjoldin/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Undirbúningur er þegar hafinn innan Evrópusambandsins vegna mögulegrar endurupptöku aðildarviðræðna við Ísland verði niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst sú að halda eigi viðræðunum áfram. Ráð Evrópusambandsins hefur formlega lýst sig reiðubúið til að hefja ferlið á ný. Jafnframt liggur fyrir hvernig búast má við að farið verði yfir þá 11 samningskafla sem var lokað til bráðabirgða \[…\]

## [Guðmundur: Segi nei því ég vil ekki tapa fullveldinu fyrir skammtímagróða](https://utvarpsaga.is/gudmundur-segi-nei-thvi-eg-vil-ekki-tapa-fullveldinu-fyrir-skammtimagroda/)

_2026-08-22 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims, í síðdegisútvarpinu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Guðmundur ætlar að segja nei og sagði fullveldi Íslands vega þar þyngst. Íslenska lýðveldið væri aðeins rúmlega 80 ára gamalt og hann væri ekki tilbúinn að fórna fullveldinu fyrir skammtímaávinning eða peninga. Hlusta má á…

## [Samtal við nágranna upphaf þess að skólinn fékk veglega gjöf](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-22-samtal-vid-nagranna-upphaf-thess-ad-skolinn-fekk-veglega-gjof-484568/)

_2026-08-22 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Gagnaversfyrirtækið Verne Global og tæknifyrirtækið Ofar gáfu Hvassaleitisskóla á Ásbrú veglega gjöf í dag: Þrívíddarprentara, tölvur, sýndarveruleikagleraugu og fleira sem nýtist í nýsköpunar- og tæknismiðju skólans. Unnar Stefán Sigurðsson skólastjóri Hvassaleitisskóla segir forsöguna vera þá að hann hafi átt samtal við nágranna sinn. „Þetta kemur til af því að við búum í litlu samfélagi,…

## [„Engin takmörk fyrir því hvað gerandi gerir“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-engin-takmork-fyrir-thvi-hvad-gerandi-gerir-484577/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fær að meðaltali eitt eltihrellamál á borð til sín á fimm daga fresti. Flest málin tengjast heimilisofbeldi og oft fyrrverandi eða núverandi mökum. Jenný Kristín Valberg teymisstýra hjá Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, segir helstu birtingarmyndir brota af þessu tagi vera endurtekin óvelkomin samskipti. Hún segir áreitið oft stigmagnast þegar þolandi…

## [Dagur: Samningaviðræður hefjast strax ef svarið verður já](https://utvarpsaga.is/dagur-samningavidraedur-hefjast-strax-ef-svarid-verdur-ja/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Dag B. Eggertsson, þingmann Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra, í síðdegisútvarpinu í dag, um þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Dagur sagði að ef niðurstaðan yrði já myndu samningaviðræður við ESB hefjast strax enda væri aðildarumsókn Íslands um fulla aðild að Evrópusambandinu frá 2009 enn í gildi. Hann sagði þjóðina…

## [Farrar hætti hjá WHO sama dag og Morens játaði að hafa leynt gögnum um COVID-19](https://utvarpsaga.is/farrar-haetti-hja-who-sama-dag-og-morens-jatadi-ad-hafa-leynt-gognum-um-covid-19/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Jeremy Farrar, fyrrverandi aðalvísindamaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO, hættir hjá stofnuninni en tilkynnt var um brotthvarf hans sama dag og David Morens, fyrrverandi ráðgjafi Anthony Fauci, játaði sök vegna þess að hafa leynt opinberum gögnum og eyðilagt gögn sem tengdust uppruna COVID-19. Farrar hefur verið áberandi talsmaður þeirrar kenningar að COVID-19 eigi uppruna sinn í…

## [Leggur áherslu á að laga hnökra á fjarskiptakerfum](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-leggur-aherslu-a-ad-laga-hnokra-a-fjarskiptakerfum-484564/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ísland var eitt af fyrstu löndum heims til að slökkva á fjarskiptakerfum sem kallast 2G og 3G. Við taka kerfin 4G og 5G sem eiga að vera með sömu og/eða betri útbreiðslu. En þetta hefur ekki gengið snuðrulaust fyrir sig. Sagðar hafa verið fréttir af verra fjarskiptasambandi, sérstaklega á landsbyggðinni, og komið hafa upp tilvik þar sem fólk í neyð nær ekki sambandi við neyðarlínuna. Eyjólfur…

## [Verður vísitölutenging lífeyris að fátækragildru með upptöku evru?](https://utvarpsaga.is/verdur-visitolutenging-lifeyris-ad-fataekragildru-med-upptoku-evru/)

_2026-08-21 · Júlíusi Valssyni · Útvarp Saga_

Júlíus Valsson skrifar: Þegar gólfið verður að þaki Alþingi samþykkti hinn 19. mars síðastliðinn frumvarp Flokks fólksins þ.e. lög sem lífeyrisþegar höfðu beðið eftir í áratugi þ.e. að greiðslur almannatrygginga skulu framvegis fylgja launavísitölu Hagstofu Íslands og aldrei hækka minna en verðlag. Breytingin kemur til framkvæmda 1. janúar 2027.Forsagan er flestum kunn. Eldra ákvæðið kvað \[…\]

## [Einn eltihrellir á fimm daga fresti](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-einn-eltihrellir-a-fimm-daga-fresti-484563/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Lögregla hefur enn ekki nýtt heimild til að setja rafræn ökklabönd á eltihrella. Stundum vita þolendur ekki hver gerandinn er – og dæmi eru um að einn og hinn sami hrelli fjölda fólks. „Við erum að fá svona 60-80 mál á ári,“ segir Marta Kristín Hreiðarsdóttir, deildarsérfræðingur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi mála segir ekki alla söguna – því í einu máli geta falist mörg brot. „Ef…

## [Jákvætt að matvöruverð sé ekki að keyra upp verðbólgu](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-jakvaett-ad-matvoruverd-se-ekki-ad-keyra-upp-verdbolgu-484567/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Það er jákvætt að matvöruverð sé ekki að keyra upp verðbólgu, segir verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ. Hægt hefur á hækkunum á matarverði síðustu mánuði og sumir birgjar hafa lækkað verð í sumar. „Það sem við erum að sjá síðustu mánuði er að það er að hægja á hækkunum sem okkur þykir mjög jákvætt,“ segir Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ. Í gegnum tíðina hafi það…

## [Guðmundur í Brim: Seðlabankinn bremsar á meðan ríkisstjórn stígur á bensíngjöfina](https://utvarpsaga.is/gudmundur-i-brim-sedlabankinn-bremsar-a-medan-rikisstjorn-stigur-a-bensingjofina/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims, í síðdegisútvarpinu í dag, á Útvarpi Sögu um nýjustu stýrivaxtahækkun Seðlabankans og áhrif hennar á íslenskt atvinnulíf. Guðmundur sagði hækkun stýrivaxta í 8% kolranga ákvörðun og vaxtatækið eitt og sér ekki virka á Íslandi þegar ríkissjóður héldi áfram að auka útgjöld. Háir vextir héldu jafnframt gengi krónunnar \[…\]

## [Bandarískir þingmenn ræddu áhættuþætti gervigreindar við páfa](https://utvarpsaga.is/bandariskir-thingmenn-raeddu-ahaettuthaetti-gervigreindar-vid-pafa/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Þverpólitísk sendinefnd 8 þingmanna úr fulltrúadeild Bandaríkjaþings heimsótti Vatíkanið og ræddi við háttsetta embættismenn kaþólsku kirkjunnar um þróun gervigreindar. Þingmennirnir hittu einnig Leó XIV páfa stuttlega en hann hefur lagt sífellt meiri áherslu á siðferðileg, samfélagsleg og efnahagsleg áhrif tækninnar. Greint er frá þessu á vef Politico. Mannleg reisn og jafnrétti í forgrunni Ro…

## [Borgfirðingum eystra áfram ráðlagt að sjóða neysluvatn yfir helgina](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-borgfirdingum-eystra-afram-radlagt-ad-sjoda-neysluvatn-yfir-helgina-484565/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Íbúum á Borgarfirði eystra er ráðlagt að sjóða neysluvatn áfram yfir helgina vegna E. coli-bakteríumengunar. Í tilkynningu frá HEF veitum í dag segir að ekki hafi tekist að setja upp gegnumlýsingartæki til að sótthreinsa vatnið og tengingu við vatnstank fyrir helgina. Sú vinna haldi áfram á mánudag og stefnt sé að því að tækið komist þá í gagnið. Truflanir verði á afhendingu á vatni samhliða…

## [Framkvæmdum við nýjan meðferðarkjarna Landspítala lýkur að mestu 2029](https://utvarpsaga.is/framkvaemdum-vid-nyjan-medferdarkjarna-landspitala-lykur-ad-mestu-2029/)

_2026-08-21 · Ritstjórn Útvarps Sögu · Útvarp Saga_

Byggingaframkvæmdum við nýjan meðferðarkjarna Landspítala við Hringbraut er ætlað að ljúka að mestu í árslok 2029. Uppbygging Landspítala stendur yfir til ársins 2031 og nær einnig til framkvæmda við Grensás, Sjúkrahúsið á Akureyri og bráðamóttökuna í Fossvogi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu. Stjórn Nýs Landspítala ohf. og stýrihópur um framkvæmdir við Landspítala og \[…\]

## [„Vonbrigði að fá þessa hækkun á okkur“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-vonbrigdi-ad-fa-thessa-haekkun-a-okkur-484554/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Forsætisráðherra segir hækkun stýrivaxta vonbrigði. Hækkanir opinberra gjalda sem ríkisstjórnin hafi staðið fyrir séu ekki hærri en þær sem áður hafa orðið og áhrif þeirra á verðbólguna ekki meiri en gengur og gerist. Verðbólga hefur verið yfir 5% það sem af er ári og mældist 5,3% í júlí. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er talið að hún aukist enn frekar á næstu mánuðum en hjaðni tiltölulega…

