# þetta (blogs) — RSS Amplifier

Recent posts from the 3 feeds in the RSS Amplifier directory that cover þetta.

Page: <https://rssamplifier.com/topics/%C3%BEetta/blogs>  
Feed: <https://rssamplifier.com/topics/%C3%BEetta/blogs.md>

---

## [Sannfærandi hjá Arsenal þegar enska úrvalsdeildin fór af stað](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-21-sannfaerandi-hja-arsenal-thegar-enska-urvalsdeildin-for-af-stad-484575/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Nýliðar Coventry voru lítil fyrirstaða fyrir Englandsmeistara Arsenal í fyrsta leik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal vann leikinn 3-0. Kai Havertz opnaði markareikning Arsenal á 15. mínútu og skömmu síðar hafði Bukayo Saka bætt öðru marki við. 2-0 stóð í hálfleik og strax í upphafi seinni hálfleiksins skoraði fyrirliðinn Martin Ødegaard þriðja markið. Það létu Arsenal-menn duga og 3-0…

## [FH tapaði og náði ekki að jafna Blika á toppnum](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-21-fh-tapadi-og-nadi-ekki-ad-jafna-blika-a-toppnum-484574/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þrír leikir voru spilaðir í Bestu deild kvenna í kvöld þegar 17. umferðin kláraðist. Þróttur vann ÍBV 2-1, Valur hafði betur gegn Þór/KA 1-0 og botnlið Víkings vann FH 1-0. FH-ingar eru í harðri toppbaráttu og eftir tap Breiðabliks fyrir Stjörnunni í gær var ljóst að sigur í kvöld myndi koma þeim aftur upp að hlið Blika með jafn mörg stig á toppnum. Það var hins vegar Bergdís Sveinsdóttir sem…

## [Glódís byrjaði tímabilið með marki í sigri](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-21-glodis-byrjadi-timabilid-med-marki-i-sigri-484573/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Glódís Perla Viggósdóttir hóf fjórða tímabilið sitt sem fyrirliði Bayern München þegar þýska úrvalsdeildin fór af stað í dag. Glódís og stöllur hennar eru ríkjandi meistarar og mættu Union Berlin í fyrsta leik tímabilsins. Bayern var ekki í miklum vandræðum í leiknum og Klara Bühl kom þeim yfir með marki beint úr aukaspyrnu á 26. mínútu og staðan var 1-0 í hálfleik. Markahrókurinn Pernille Harder…

## [Alcaraz loksins aftur með en óvissa með Sinner](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-21-alcaraz-loksins-aftur-med-en-ovissa-med-sinner-484543/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Opna bandaríska meistaramótið í tennis, það síðasta á árinu af risamótunum fjórum, hefst 30. ágúst og nú hefur ríkjandi meistarinn Carlos Alcaraz tilkynnt að hann verði með. Það telst til tíðinda þar sem Alcaraz hefur ekki spilað síðan á Opna Barcelona-mótinu í apríl en hann hefur verið að glíma við meiðsli í úlnlið. Hann missti því af Opna franska mótinu í sumar sem og Wimbledon en hann vann Opna…

## [Elsta kona heims á afmæli](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-21-elsta-kona-heims-a-afmaeli-484535/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Elsta kona í heimi á afmæli í dag. Konan heitir Ethel Caterham. Ethel er 117 ára gömul. Ethel er frá Englandi. Ethel fæddist árið 1909. Þegar Ethel var 18 ára fór Ethel til Indlands. Ethel vann þar sem barnfóstra. Ethel bjó líka í Hong Kong með manninum sínum. Þar stofnaði Ethel leikskóla. Mikið hefur gerst í heiminum síðan Ethel fæddist. Til dæmis sökk skipið Titanic. Fyrri heims·styrjöldin…

## [Tónaflóð á Menningarnótt](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-21-tonaflod-a-menningarnott-484524/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Á morgun er Menningarnótt í Reykjavík. Margir hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni. Eftir hlaupið er mikið um að vera í Reykjavík. Stærsti viðburðurinn heitir Tónaflóð. Það eru stórir tónleikar frá Rás 2. Tónleikarnir eru á Arnarhóli. Tónleikarnir byrja klukkan 7 að kvöldi. Hægt er að hlusta á tónleikana á Rás 2. Hægt er að horfa á tónleikana í sjónvarpinu á RÚV. Kvöldið endar með flugelda·sýningu.…

## [Starfsfólk Símans svarar spurningum í dómsal](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-21-starfsfolk-simans-svarar-spurningum-i-domsal-484523/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Réttarhöld í Reykholtsmálinu halda áfram. Starfsfólk frá Símanum svarar líka spurningum. Fólkið sem er ákært fór með manninn í búð Símans. Fólkið vildi setja rafræn skilríki í símann hjá manninum. Rafræn skilríki eru eins og skilríki í síma. Fólkið notaði rafrænu skilríkin. Þess vegna gat fólkið tekið peninga af manninum. Allt fólkið sem er ákært hefur svarað spurningum. Maðurinn sem varð fyrir…

## [Í dag: Úrslitin hefjast á EM karla í fimleikum](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-21-i-dag-urslitin-hefjast-a-em-karla-i-fimleikum-484467/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Þriðji dagur Evrópumótsins í áhaldafimleikum er í dag. Útsendingar frá mótinu hefjast í dag er úrslitahluti hefst. Mótinu lýkur á sunnudaginn. Dagskrá næstu daga Föstudagur - 15:55 til 18:40 - RÚV Úrslit á einstökum áhöldum - hluti 1 Laugardagur - 14:25 til 17:05 - RÚV Úrslit á einstökum áhöldum - hluti 2 Sunnudagur - 11:55 til 15:10 - RÚV Liðakeppni Í dag verður keppt til úrslita á gólfi,…

## [Hreinskilinn Martin: „Margir búnir að vera of góðir við sig í fríinu“](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-21-hreinskilinn-martin-margir-bunir-ad-vera-of-godir-vid-sig-i-friinu-484454/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Finnum í æfingaleik á morgun. Lykilmaðurinn Martin Hermannsson viðurkennir að liðsmenn gætu verið í betra formi. Ísland mætir Finnlandi í æfingaleik ytra klukkan fimm á föstudaginn. Fram undan eru svo mikilvægir leikir gegn Tyrkjum og Serbum í seinni hluta undankeppni heimsmeistaramótsins. Æfingaleikur á þessum tímapunkti er nokkuð óvanalegur en Martin…

## [Traktorastrákarnir endurbyggðu land til að mæla hland](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-21-traktorastrakarnir-endurbyggdu-land-til-ad-maela-hland-484406/)

_2026-08-21 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ipswich Town undirbýr sig af kappi fyrir keppni í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Liðið hefur byggt upp nýtt æfingasvæði þar sem boðið er upp á alls kyns nýjungar. Meðal annars mælir liðið þvag leikmanna. Auk þess er notast við austurrískar þurrkunaraðferðir úr Ölpunum. Ipswich, eða traktorastrákarnir eins og liðið er kallað, eyddi 4,9 milljörðum íslenskra króna (30 milljónum punda) í að gera…

## [Never miss a game (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/PBsR9QM6fOTc)

_2026-08-21 · **Sponsored**_

Follow any team; get an hour and one-minute web and email reminders.

## [Stjarnan setti strik í toppbaráttu Blika](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-20-stjarnan-setti-strik-i-toppbarattu-blika-484482/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Vigdís Edda Garðarsdóttir og Snædís María Jörundsdóttir skoruðu mörk Stjörnunnar í 2-0 sigri liðsins á toppliði Breiðabliks. Mörkin komu á 79. og 82. mínútu leiksins. Stjarnan er þar með komið í 3. sæti og hefur þar 26 stig en Breiðablik trónir áfram á toppnum með 36 stig. Með tapi Breiðabliks í kvöld er þó ljóst að FH getur með sigri á Víkingi annað kvöld jafnað Blika að stigum og toppbaráttan…

## [Víkingur í þröngri stöðu](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-20-vikingur-i-throngri-stodu-484480/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fyrri leikur Víkings og Borac í Sambandsdeildarumspilinu var spilaður í Fossvoginum í kvöld og gestirnir frá Banja Luka reyndust sterkari frá byrjun. Þeir komust í 2-0 á skömmum tíma eftir að Luka Juricic og Milos Jojic skoruðu á 21. og 23. mínútu og þannig stóð í hálfleik. Gylfi Þór Sigurðsson minnkaði muninn fyrir Víking í 2-1 með marki úr vítaspyrnu en Luka Juricic kom Boruc aftur tveimur…

## [Samkeppnin mun harðari eftir að Rússum var veitt brautargengi á ný](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-20-samkeppnin-mun-hardari-eftir-ad-russum-var-veitt-brautargengi-a-ny-484474/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Í dag varð ljóst að frammistaðan hjá Degi Kára Ólafssyni og Ágústi Inga Davíðssyni í forkeppninni á EM í gær hefði tryggt þeim sæti á heimsmeistaramótinu í október. Áður hafði Lilja Katrín Gunnarsdóttir fengið HM sæti í kvennaflokki og Thelma Aðalsteinsdóttir bættist sömuleiðis við í dag. Guðmundur Brynjólfsson fimleikasérfræðingur RÚV segir þetta í takt við væntingar fyrir EM. Árangur Íslands í…

## [Ágúst og Dagur fara á HM](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-20-agust-og-dagur-fara-a-hm-484439/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Ágúst Ingi Davíðsson og Dagur Kári Ólafsson eru fimleikamenn. Ágúst og Dagur keppa fyrir Ísland á Heims·meistaramótinu í fimleikum. Heims·meistaramótið er kallað HM. HM er í Hollandi í október. Ágúst og Dagur stóðu sig vel á Evrópumótinu. Evrópumótið er kallað EM. Þess vegna komust Ágúst og Dagur á HM. Þetta er í fyrsta sinn sem Ágúst kemst svona á HM. Dagur komst líka á HM í fyrra. Þá var Dagur…

## [Thelma komst inn á HM þrátt fyrir puttabrotið](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-20-thelma-komst-inn-a-hm-thratt-fyrir-puttabrotid-484450/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Thelma Aðalsteinsdóttir fékk þátttökurétt á heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum. Thelma keppti fingurbrotin á Evrópumeistaramótinu nýverið en kemst þrátt fyrir það á HM. Árangur Thelmu á heimsbikarmóti er ástæðan fyrir þátttökurétti hennar á HM. Þar keppti Thelma til úrslita í golfi á mótinu í Egyptalandi og var nálægt verðlaunasæti. Ísland hefur aldrei áður fengið keppanda á HM út frá árangri á…

## [Dusta rykið af Tsunoda sem kemur beint af ströndinni](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-20-dusta-rykid-af-tsunoda-sem-kemur-beint-af-strondinni-484440/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Red Bull hafa kallað inn japanska ökuþórinn Yuki Tsunoda vegna meiðsla Isack Hadjar. Fram undan er heimakeppni Max Verstappen, hollenska keppnin í Zandvoort. Tsunoda var á ströndinni í Grikklandi þegar hann fékk kallið en segist himinlifandi að fá tækifæri til að keyra aftur fyrir Red Bull. „Ég vil samt ekki að þið takið því þannig að ég hafi bara verið liggjandi á ströndinni allan tímann. Ég var…

## [Jón Þór látinn fara - sá annar í sumar í Garðabæ](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-20-jon-thor-latinn-fara-sa-annar-i-sumar-i-gardabae-484428/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Stjarnan óskaði eftir því að Jón Þór Hauksson myndi láta af störfum sem þjálfari liðsins í Bestu deild karla í fótbolta. Áður hafði Jökull Elísabetarson hætt þjálfun liðsins. Jón Þór hefur stýrt liðinu frá 13. júní og stýrði því liðinu í 68 daga. Alls stýrði hann Stjörnunni í 13 leikjum, bæði í Bestu deildinni og í undankeppni Sambandsdeildarinnar. Síðasti leikur hans með liðið var 3-1 tap gegn…

## [Góður árangur á EM](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-20-godur-arangur-a-em-484426/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Evrópu·mótið í frjálsum íþróttum var nýlega. Mótið var í borginni Birmingham. 8 keppendur frá Íslandi fóru á mótið. Íslandi gekk mjög vel. Þetta er besti árangur Íslands í 28 ár. Guðmundur Karlsson er framkvæmda·stjóri Frjáls·íþrótta·sambands Íslands. Guðmundur er mjög ánægður. Guðmundur segir: Við erum á réttri leið. Nokkrir keppendur frá Íslandi náðu góðum árangri: Einn var í 7. sæti. Einn var í…

## [Harry og Meghan flytja](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-20-harry-og-meghan-flytja-484417/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Harry prins og Meghan flytja frá Bandaríkjunum. Harry og Meghan flytja aftur til Bretlands í þessum mánuði. Harry og Meghan ætla samt ekki að vinna fyrir konungs·fjölskylduna. Harry og Meghan ætla að búa nálægt borginni London. Húsið er ekki eign konungs·fjölskyldunnar. Harry og Meghan eiga 2 börn. Börnin heita Archie og Lillibet. Archie er 7 ára. Lillibet er 5 ára. Börnin byrja í skóla í…

## [Maður keyrði á ljósastaur](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-20-madur-keyrdi-a-ljosastaur-484415/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Maður keyrði bíl í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Maðurinn keyrði á ljósastaur. Lögreglan heldur að maðurinn hafi brotið umferðar·reglur. Þess vegna varð slysið. Lögreglan rannsakar málið. Enginn meiddist í slysinu. Bíllinn og ljósastaurinn skemmdust. Lögreglan rannsakar líka árás á fólk. Árásin var í Hafnarfirði, Garðabæ eða Álftanesi. Slökkviliðið slökkti eld á gámasvæði í Hafnarfirði. Það var…

## [Stream Torrents & IPTV Instantly (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/Nw105srzj5Wi)

_2026-08-20 · **Sponsored**_

Search magnet links and stream movies, music, books, and live TV in-browser

## [Norður-Kórea skaut 10 flaugum](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-20-nordur-korea-skaut-10-flaugum-484413/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Norður-Kórea skaut 10 skotflaugum í morgun. Skotflaugarnar fara ekki langt. Herinn í Suður-Kóreu sagði frá þessu. Donald Trump er forseti Bandaríkjanna. Donald Trump ákvað að breyta heræfingum. Bandaríkin og Suður-Kórea æfa minna saman. Donald Trump vill hitta Kim Jong-un. Kim Jong-un er leiðtogi Norður-Kóreu. Fundurinn verður seinna á þessu ári. Donald Trump vill verða vinur Kim Jong-un aftur.…

## [Verstappen bindur enda á sögusagnir og framlengir](https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-08-20-verstappen-bindur-enda-a-sogusagnir-og-framlengir-484410/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Hollenski ökuþórinn Max Verstappen hefur bundið enda á sögusagnir um framtíð sína og framlengt við Red Bull. Nýi samningurinn gildir til 2030 en mikið hafði verið rætt og ritað um hvort að hann myndi ganga til liðs við Mercedes eða McLaren. Þá var einnig sá möguleiki fyrir hendi að Verstappen myndi hreinlega hætta í Formúlu 1. Ætlar sér aftur á toppinn Verstappen er 28 ára gamall og vann fjóra…

## [ASÍ er ósátt með hærri vexti](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-20-asi-er-osatt-med-haerri-vexti-484405/)

_2026-08-20 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Henný Hinz er aðstoðar·framkvæmdastjóri ASÍ. ASÍ eru samtök fyrir venjulegt vinnandi fólk. Henný er ósátt við að vextir hafi verið hækkaðir. Þetta er í þriðja sinn sem vextir hækka á þessu ári. Henný segir að þetta séu mikil vonbrigði. Henný segir: Hærri vextir eru slæmir fyrir fólk með litlar tekjur. Þetta er erfitt fyrir: Fólk sem skuldar peninga. Fólk sem leigir húsnæði. Fjölskyldur sem þurfa…

## [Trump vill hitta Kim](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-19-trump-vill-hitta-kim-484352/)

_2026-08-19 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Donald Trump er Bandaríkja·forseti. Trump vill hitta Kim Jong Un. Kim Jong Un er leiðtogi Norður-Kóreu. Trump vill hitta Kim í haust. Trump vill gera samkomulag við Kim. Samkomulagið er um kjarnavopn. Trump vill að Norður-Kórea hætti að búa til kjarnavopn. Þetta yrði fjórði fundur þeirra. Bandaríkin og Suður-Kórea eru með heræfingu saman. Trump sagði að heræfingin ætti að vera minni. Þess vegna…

## [Hættulegt gas við Múlakvísl](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-19-haettulegt-gas-vid-mulakvisl-484325/)

_2026-08-19 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Það er lítið jökulhlaup í ánni Múlakvísl. Jökulhlaup er þegar mikið vatn kemur undan jökli. Með vatninu kemur hættulegt gas. Þess vegna er hættulegt að vera nálægt ánni. Það er líka hættulegt að vera nálægt þar sem áin byrjar. Áin byrjar við Kötlujökul. Gasið heitir brennisteins·vetni. Það er lítill vindur á svæðinu. Þess vegna getur gasið safnast fyrir. Þá er það ennþá hættulegra. Hvað áttu að…

## [Stýrivextir hækka](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-19-styrivextir-haekka-484322/)

_2026-08-19 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Peninga·stefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti. Stýrivextir eru vextir Seðlabankans. Stýrivextir hafa áhrif á vexti á lánum hjá fólki. Vextirnir eru núna 8%. Þetta er í þriðja skipti sem vextir hækka á þessu ári. Seðlabankinn spáir meiri verðbólgu. Verðbólga þýðir að allt verður dýrara. Seðlabankinn heldur að verðbólga minnki á næsta ári. Af hverju er verðbólga? Peninga·stefnunefndin segir að…

## [Ekki matur fyrir gesti á Vitatorgi um helgar](https://www.ruv.is/audskilid/2026-08-18-ekki-matur-fyrir-gesti-a-vitatorgi-um-helgar-484242/)

_2026-08-18 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Vitatorg er félags·miðstöð. Nýjar reglur eru um mat á Vitatorgi um helgar. Fólk sem býr á Vitatorgi getur borðað þar um helgar. Aðrir gestir geta ekki borðað þar um helgar. Sumt fólk er ósátt við þetta. Fólkið segir: Það er gott að hitta annað fólk á Vitatorgi. Þá er fólk ekki eins einmana. Af hverju er þessu breytt? Berglind Magnúsdóttir vinnur hjá Reykjavíkur·borg. Berglind segir: Eldhúsið á…

## [Vilja varpa ljósi á áhrif heilbrigðisþjónustu á líf fólks](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-12-vilja-varpa-ljosi-a-ahrif-heilbrigdisthjonustu-a-lif-folks-483517/)

_2026-08-12 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Nýtt samstarf Sjúkratrygginga Íslands og danska fyrirtækisins Frameshift hefur það að markmiði að nýta íslensk gögn og bera þau saman við danska heilbrigðisgagnagrunna. Samstarfið á að styrkja greiningargetu, styðja við ákvarðanatöku og auka yfirsýn yfir kostnað og árangur í heilbrigðiskerfinu. Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga, segir að í heilbrigðisþjónustu sé fjöldi gagna sem nýta…

## [Verulega flókið að sinna matvælaeftirliti á netinu](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-10-verulega-flokid-ad-sinna-matvaelaeftirliti-a-netinu-483365/)

_2026-08-10 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Sífellt erfiðara er að sinna eftirliti með merkingum matvæla og algengt er að vörur í netverslunum séu ekki rétt merktar, segir Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Í síðustu viku var fjallað um fæðubótarefnið Pre-Workout. Ábendingar hafa borist um að unglingar hafi leitað til læknis vegna koffíneitrunar…

## [Unglingar með koffíneitrun eftir neyslu á vinsælu fæðubótarefni](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-07-unglingar-med-koffineitrun-eftir-neyslu-a-vinsaelu-faedubotarefni-483181/)

_2026-08-07 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fæðubótarefnið Pre-Workout er til sölu í matvöruverslunum og heilsubúðum undir ýmsum vörumerkjum. Það er markaðssett sem heilsueflandi, það auki úthald á æfingum og bæti endurheimt. Efnið getur innihaldið allt að 330 milligrömm af koffíni í einum skammti. Fréttastofu hafa borist ábendingar um unglinga sem hafa neytt Pre-Workouts og þurft í kjölfarið að leita til læknis vegna koffíneitrunar.…

## [Web Coding With AI, Live (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/XOozyEyD1Emd)

_2026-08-07 · **Sponsored**_

Collaborative screen sharing with simultaneous remote control, open source.

## [Áætla að opna nýja bráðamatsdeild með tuttugu rýmum í september](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-04-aaetla-ad-opna-nyja-bradamatsdeild-med-tuttugu-rymum-i-september-482974/)

_2026-08-04 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Áætlað er að opna tuttugu rými á nýrri deild á Landspítala í september. Deildin er hluti af bráðaþjónustu spítalans og er henni ætlað að létta á bráðamóttökunni. „Bráðamatsdeildin er deild sem sér um að taka við sjúklingum frá bráðamóttöku sem þurfa frekara mat og uppvinnslu, frekari meðferð. Þetta er sem sagt deild innan lyflækninga og henni er ætlað að taka við fólki sem ekki kemst beint heim…

## [Getur verið lífshættulegt að nota peptíða án samráðs við lækni](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-07-29-getur-verid-lifshaettulegt-ad-nota-peptida-an-samrads-vid-laekni-482519/)

_2026-07-29 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Prófessor í ónæmisfræði segir notkun peptíða án þess að ráðfæra sig við lækni geta verið lífshættulega. Enn er verið að kortleggja möguleg skaðleg áhrif slíkrar notkunar. Sýnishorn af ólöglegum peptíðum sem tollgæslan lagði hald á og sendi til greiningar erlendis innihéldu mikil óhreinindi. Ómögulegt var að staðfesta hvort hluti sýnishornanna innihéldi virku lyfjaefnin sem þau voru sögð innihalda.…

## [Ætla að taka upp norsku umbúðirnar](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-07-28-aetla-ad-taka-upp-norsku-umbudirnar-482485/)

_2026-07-28 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Skylt verður að nota einsleitar umbúðir á tóbaksvörum, samkvæmt drögum að frumvarpi sem heilbrigðisráðherra hefur lagt fram. Þá eru ákvæði í drögunum um hámarksmagn nikótíns. Slíkar umbúðir hafa verið skylda í Noregi frá 2018 og hafa allar tóbaksumbúðir síðan þá verið brúnar. Rannsóknir sýna að áhrifin af breytingunni voru lítil sem engin. Takmarka á sölu nikótínvara sem innihalda bragðefni og…

## [Skúli Tómas snýr aftur til starfa](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-07-26-skuli-tomas-snyr-aftur-til-starfa-482340/)

_2026-07-26 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir snýr aftur til starfa á Landspítalanum á næstunni, samkvæmt upplýsingum frá spítalanum. Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn vegna andláts konu sem lést í umönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2019. Málinu var vísað frá í Héraðsdómi Reykjaness í vikunni á þeim grundvelli að honum hefði þegar verið refsað með…

## [Hljóðmengun eykur líkur á parkinson](https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-07-26-hljodmengun-eykur-likur-a-parkinson-482164/)

_2026-07-26 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Fólk sem býr við viðvarandi hljóðmengun frá umferð er líklegra til að þróa með sér parkinsonsjúkdóm. Þetta eru niðurstöður danskrar rannsóknar, þeirrar stærstu sinnar tegundar. Parkinson hefur áhrif á taugafrumur sem stjórna hreyfingum og er næstalgengasti taugahrörnunarsjúkdómur í heimi. Eldri rannsóknir hafa bent til mögulegra tengsla milli parkinsons og hljóðmengunar. Danska rannsóknin náði…

## [Lágt hlutfall hjúkrunarfræðinga á Hraunbúðum dapurlegt en „kemur ekki á óvart“](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-07-24-lagt-hlutfall-hjukrunarfraedinga-a-hraunbudum-dapurlegt-en-kemur-ekki-a-ovart-482165/)

_2026-07-24 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir mjög alvarlegt að hlutfall hjúkrunarfræðinga á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum sé langt undir viðmiðum til að tryggja öryggi. Embætti landlæknis gerði alvarlegar athugasemdir við aðbúnað á heimilinu í skýrslu sem unnin var eftir tilkynningu um alvarlegt atvik fyrr á árinu. Þar voru meðal annars…

## [Fátt fagfólk, gamalt húsnæði og samskiptavandi á hjúkrunarheimili í Eyjum](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-07-23-fatt-fagfolk-gamalt-husnaedi-og-samskiptavandi-a-hjukrunarheimili-i-eyjum-482110/)

_2026-07-23 · Fréttastofa RÚV · RÚV-RSS_

Embætti landlæknis gerir miklar athugasemdir við aðbúnað á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Landlæknir skilaði nýverið skýrslu um úttekt á Hraunbúðum eftir tilkynningu um alvarlegt atvik á stofnuninni. Grunur var um að andlát konu á tíræðisaldri hefði borið að með saknæmum hætti en rannsókn málsins hefur verið felld niður. Eyjafréttir greindu fyrst frá . Í skýrslunni eru…

