Kjörfundur í Sveitarfélaginu Stykkishólmi vegna þjóðaratkvæðagreiðslu verður laugardaginn 29. ágúst 2026 í Grunnskólanum í Stykkishólmi, Borgarbraut 6. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00. Kjörskrá liggur frammi til kjördags í Ráðhúsi Stykkishólms alla virka daga á opnunartíma. Kjósendur geta einnig séð á heimasíðu Þjóðskrár hvar þeir eru á kjörskrá. Kynningarvefur landskjörstjórnar um…
Hér að neðan er áminning frá forvarnarteymi Snæfellsness og lögreglunni á Vesturlandi varðandi ábyrgð foreldra og hættur sem stafa að eftirlitslausum unglingasamkomum á bæjarhátíðum og öðrum hátíðum. Um helgina eru bæði Danskir dagar í Stykkishólmi og Iceland Eclipse á Hellissandi.
Tónlistarskóli Stykkishólms vekur athygli á því að Hólmarinn Friðrik S. Kristinsson er fluttur aftur heim og tekur nú við sem söngkennari tónlistarskólans. Friðrik er lærður söngvari, söngkennari og kórstjóri. Lengst af hefur hann stjórnað og starfað hjá Karlakór Reykjavíkur þar sem hann mun eiga starfslok 1. janúar nk. eftir 38 farsæl ár sem söngstjóri kórsins.
Götulýsing í Stykkishólmi verður slökkt miðvikudaginn 12. ágúst á meðan almyrkvi á sólu stendur yfir. Almyrkvinn verður sýnilegur í Stykkishólmi og stendur yfir í um 1 mínútu og 28 sekúndur frá Hólminum séð. Með því að slökkva á götulýsingunni er leitast við að draga úr birtu í bænum og skapa sem bestar aðstæður fyrir íbúa til að upplifa þennan einstaka náttúruviðburð. Íbúar sem vilja njóta…
Danskir dagar verða haldnir í Stykkishólmi dagana 12.–16. ágúst 2026. Hátíðin er ein elsta bæjarhátíð landsins og hefur verið haldin frá árinu 1994. Eftir afar vel heppnaða hátíð árið 2024 er á ný stefnt að fjölbreyttri og líflegri bæjarhátíð þar sem íbúar og gestir koma saman og njóta þess besta sem Stykkishólmur hefur upp á að bjóða.
Hækusýning hefur verið sett upp á Frúarhól í þriðja sinn. Anna Sigríður Gunnarsdóttir stendur fyrir sýningunni ásamt höfundi, en hækurnar eru eftir Theodóru Gallant Helgason, og eru á ensku.
Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvi á sér stað þegar tunglið gengur beint milli sólar og jarðar og skyggir alveg á sólina í örfáar mínútur. Á þeim tíma verður dimmt og hitastig getur jafnvel lækkað lítillega. Fyrir og eftir almyrkva sést deildarmyrkvi, það er þegar tunglið skyggir á hluta sólar.Almyrkvinn sést frá Vestfjörðum,…
Hljómsveitin SÓT steig á svið á Wacken Metal Battle í Þýskalandi í gær og stóð sig með miklum glæsibrag fyrir hönd Íslands. Hljómsveitina skipa Hólmararnir Ísleifur Jónsson gítarleikari og Ívar Leo Hauksson bassaleikari ásamt norðlendingunum Arnari Smára Sigurðssyni trommuleikara, Aroni Frey Ívarssyni söngvara og Daníel Hrafni Ingvarssyni gítarleikara. SÓT vann sér þátttökurétt í alþjóðlegu…
Í Íslendingasögunum eru lýsingar á bardögum þar sem einstaklingar berjast á bátum á sjó en detta útbyrðis og þurfa að synda til að bjarga lífi sínu, eins og í Ólafs sögu Tryggvasonar, ellegar sökkva. Til að kynnast betur sögunum okkar efna skipuleggjendur viðburðarins til keppni milli sundlauga í hringabrynjusundi til að komast að því hversu erfitt er að synda "milli skipa" í hringabrynju eins og…
Breiðafjarðarferjan Baldur sneri heim í dag, fimmtudaginn 23. júlí, eftir að hafa sinnt siglingum milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja frá því í byrjun júní vegna bilunar í Herjólfi. Frá og með morgundeginum, 24. júlí, hefjast svo reglubundnar ferjusiglingar milli Stykkishólms, Flateyjar og Brjánslækjar á ný. Vegagerðin tilkynnti um ákvörðun innviðaráðherra um að færa Baldur til Vestmannaeyja 2.…