RSS Amplifier

Blog

Skessuhorn

Fréttir af Vesturlandi

skessuhorn.isSource feed ↗20 posts

Overdue Last read · last published · next check
Last read 7 hours ago, longer than this feed's 1 hour schedule.

Latest posts

Akranes er bær tækifæranna

Rætt við Sturlaug Haraldsson nýjan bæjarstjóra Sturlaugur Haraldsson tók við nýju starfi sl. miðvikudag sem bæjarstjóri Akraneskaupstaðar og segist mæta fullur tilhlökkunar til leiks. Eftir áralanga reynslu úr atvinnulífinu, einkum sjávarútvegi, er hann kominn aftur á heimaslóðir og ætlar að leggja ríka áherslu á atvinnuuppbyggingu og að nýta þau fjölmörgu tækifæri sem hann telur felast…

Forval hönnunar fyrir nýjar höfuðstöðvar Faxaflóahafna

Faxaflóahafnir hafa nú á evrópska efnahgssvæðinu auglýst forval um þátttöku í lokuðu útboði á hönnun nýs Hafnarhúss við Viðeyjarsund í Sundahöfn. Þar er fyrirhugað að reisa nýjar höfuðstöðvar félagsins og sameina meginstarfsemi þess á einum stað. Ráðgert er að nýtt Hafnarhús verði um 3.000 fermetrar og hýsi skrifstofu- og þjónustustarfsemi Faxaflóahafna ásamt sérhæfðri vinnu- og…

Frábær þátttaka í sumarlestri Bókasafns Akraness

Það var sannkölluð lestrarveisla á Bókasafni Akraness í sumar en alls lásu þátttakendur í sumarlestri safnsins 1.475 bækur og rúmlega 85 þúsund blaðsíður. Sumarlestrinum lauk með hinu árlega Húllum-hæi á safninu fyrr í vikunni þar sem trúðurinn Wally mætti í heimsókn og glatt var á hjalla. Sumarlesturinn stóð frá 1. júní til 17. ágúst og…

Um 70 manns á opnum fundi SJÁ á Akranesi

Haldinn var fundur samtakanna SJÁ í Tónbergi á Akranesi síðdegis í gær. Fundurinn var liður í fundaröð samtakanna víðs vegar um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Berglind Guðmundsdóttir hjá SJÁ setti fundinn, en á fundinum fluttu erindi þau Heimir Fannar Gunnlaugsson, Halldór Emil Unnarsson, Hjálmar Vilhjálmsson, Jens Baldursson og Ingunn Ríkharðsdóttir. Aðsókn var góð…

Fararskjótar af ýmsu tagi

Það er býsna ólíkt hvernig fólk ferðast um landið okkar. Getur verið allt frá því að fara á puttanum, hjólandi, í rútum, einkabílum, húsbílum og svo framvegis. Fjölskyldan á þessari mynd valdi að ferðast um landið á reiðhjólum. Annað hjólin er sérútbúið til að hafa barnið framan við stýrið og það stígur einnig pedala ásamt…

Fagna 60 ára vígsluafmæli kirkjunnar

Sunnudaginn 6. september næstkomandi verður þess minnst með hátíðlegum hætti að 60 ár eru liðin frá vígslu Grundarfjarðarkirkju. Hátíðarmessa hefst í kirkjunni kl. 14 og að henni lokinni verður boðið upp á hátíðarkaffi í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Kvenfélagið Gleym mér ei sér um kaffiveitingarnar og eru allir hjartanlega velkomnir til að taka þátt í afmælisfagnaðinum.

Tjaran þarf hita og ákveðið handbragð í Görðum

Það hefur verið nóg að gera í viðhaldi á Byggðasafninu í Görðum á Akranesi í sumar. Þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði var Guðmundur Sigurðsson smiður þar við störf, léttklæddur í sumarblíðunni og önnum kafinn við að tjarga Neðri-Sýrupart, eitt húsanna á safnsvæðinu. Neðri-Sýrupartur er elsta varðveitta timburhús á Akranesi, byggt árið 1875 og stóð…

Hyggjast auka öryggi við gatnamót

Vegagerðin hyggst ráðast í breytingar á umferðarskipulagi við gatnamót Akrafjallsvegar og Hringvegar í Hvalfjarðarsveit með það að markmiði að auka umferðaröryggi. Ákveðið hefur verið að lækka leyfilegan hámarkshraða á Akrafjallsvegi þegar komið er að gatnamótunum. Jafnframt verður núverandi biðskyldu breytt í stöðvunarskyldu og þurfa ökumenn því að stöðva ökutæki sín áður en ekið er inn…

Endurnýjaðar rennibrautir teknar í notkun í Borgarnesi

Það var líf og fjör við sundlaugina í Borgarnesi síðdegis í dag þegar fram fór vígsla á endurnýjuðum rennibrautum í Skallagrímslitunum. Gömlu brautirnar voru hátt í 30 ára gamlar og voru því teknar niður fyrr á árinu. Allt trefjaplast var endurnýjað í brautunum en stoðir lagfærðar og endurnýttar. Fulltrúar ungu kynslóðarinnar drógu spil um röð…

Mikill fjöldi skráninga í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Yfir 15 þúsund keppendur eru nú skráðir í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 22. ágúst og styttist í að uppselt verði í heilt og hálft maraþon. „Við hvetjum hlaupara sem vilja ná sér í miða í lengri hlaupin að hlaupa til því nú eru aðeins örfáir miðar eftir í heilt og hálft maraþon. Svo…

Glatt á hjalla í stórafmæli Landsbankans og TM í dag

Landsbankinn fagnar um þessar mundir 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli. Af því tilefni buðu fyrirtækin landsmönnum að fagna með sér í útibúum Landsbankans um allt land í dag, fimmtudaginn 20. ágúst. Þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði þá var sjálfur útibússtjórinn að bera fram afmæliskökuna með brosi á bör. Það var greinilega…

Halla Sif ein af kvenhetjum FAO

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis á Suðurlandi, hefur verið valin í hóp fyrstu hundrað kvenhetja Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í landbúnaði og byggðaþróun. Tilnefningar með nöfnum 600 kvenna frá 131 landi bárust til FAO. Halla Sif var tilnefnd af atvinnuvegaráðuneytinu en öllum aðildarríkjum FAO bauðst að tilnefna. Í bréfi…

Fullfermi í fyrsta túr sem skipstjóri

Harðbakur EA 3, togari Samherja, landaði í gærkvöldi í Grundarfirði fullfermi sem fer til vinnslu í landvinnslum félagsins á Akureyri og Dalvík. Skipstjóri var Grundfirðingurinn Lýður Valgeir Jóhannesson og var þetta hans fyrsta veiðiferð sem skipstjóri. Lýður útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 2010 og hefur flest árin eftir nám starfað hjá Samherja, þar af…

Krefjandi Ljósufjallaganga með hraunbaði og kvöldverði í lokin

Ferðafélag Snæfellsness efnir laugardaginn 29. ágúst til krefjandi göngu á Ljósufjöll þar sem stefnt verður á þrjá tinda ef veður og aðstæður leyfa. Að göngu lokinni bíður þátttakenda kærkomin slökun í hraunbaðinu á Miðhrauni og kvöldverður í Hlöðunni. Hópurinn leggur af stað kl. 9 að morgni og er gert ráð fyrir að gönguferðin sjálf taki…

Klapparfljótið gefur vel

„Það er búið að veiða 41 lax í sumar í Hvolsá og Staðarhólsá,“ segir Úlfar Reynisson sem var að hætta veiðum í góðra vina hópi. „Við veiddum sex laxa, tvo sjóbirtinga og 15 – 20 bleikjur. Það vantar rigningu, báðar árnar eru vatnslitlar. Það er óvenjulítið vatn í Brekkudalsá og þess vegna er óvenjulítið vatn…

Stómi er á engan hátt endir á lífinu

Auður Helgadóttir Möller segir frá reynslu sinni af lífinu með stóma og vill með opinskárri frásögn sinni draga úr fordómum og sýna að hægt er að lifa innihaldsríku og góðu lífi þrátt fyrir stóma „Ég geri allt sem ég gerði áður, nákvæmlega allt. Ég þarf bara að aðlaga mig,“ segir Auður Helgadóttir Möller í Borgarnesi.…

Tvö mörk Naim tryggðu Víkingi sigur í Ólafsvík

Víkingur Ólafsvík vann mikilvægan 2:1 sigur á Þrótti Vogum þegar liðin mættust á Ólafsvíkurvelli í 18. umferð 2. deildar karla í gær. 110 áhorfendur fylgdust með leiknum. Naim Aaras El Hmaidi var maður leiksins í liði heimamanna og skoraði bæði mörk Víkings. Hann kom liði sínu yfir á 30. mínútu og staðan var 1:0 í…

Garðeigendur hvattir til að halda gróðri innan lóðamarka

Gróður hefur tekið vel við sér í sumar – ekki hvað síst fyrir sérlega góða vætutíð – og eru garðeigendur á Akranesi nú hvattir til að huga að trjám og runnum sem vaxið hafa út fyrir lóðamörk og inn á gangstéttir, göngustíga eða götur. Akraneskaupstaður minnir á að mikilvægt sé að halda gróðri í skefjum…

Landsbankinn og TM bjóða til afmælisveislu í dag

Landsbankinn fagnar um þessar mundir 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli. Af því tilefni bjóða fyrirtækin landsmönnum að fagna með sér í útibúum Landsbankans um allt land í dag, fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00. Landsbankinn var stofnaður árið 1886 og hefur því verið hluti af íslensku samfélagi í 140 ár. Þetta eru sömuleiðis…

Nýtt ljóð og lag tileinkað Hvalfjarðarsveit

Í tilefni af 20 ára afmæli Hvalfjarðarsveitar hefur verið samið sérstakt ljóð og lag sveitarfélaginu til heiðurs. Gunnar J. Straumland íbúi í sveitarfélaginu samdi ljóðið en Jósep Gíslason tónsetti það. Verkið var frumflutt við hátíðlega athöfn á afmælistónleikum Hvalfjarðarsveitar í Hallgrímskirkju í Saurbæ um liðna helgi. Þar komu fram um 30 flytjendur sem allir eiga…