Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2026-27 fer fram dagana 8.–11. október 2026. Mótsupplýsingar: Fyrsta umferð í úrvalsdeild hefst fimmtudaginn 8. október kl. 19:00 í Taflfélagi Reykjavíkur (Faxafen 12). Aðrar umferðir (og allar umferðir annarra deilda) fara fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð (Hamrahlíð 10). Umferð / Deild Dagur Dagsetning Tími Staður 1. umferð – Úrvalsdeild Fimmtudagur 8. […]
Kristján Örn Elíasson stjórnar vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið. Í gær settist stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson við skákborð Kristjáns Arnar í Skipholtinu. Í kynningu um þáttinn segir: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og varaborgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík var gestur þáttarins. Í upphafi þáttar var hringt í stórmeistarann Helga…
Borgarskákmótið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur fer fram fimmtudaginn 20. ágúst, og hefst kl. 15:30. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem…
Íslandsmótið í atskák verður að þessu sinni haldið sunnudaginn 23. ágúst kl. 13:00 í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12. Heildarverðlaun eru 125.000 kr. Mótið er opið öllum og keppt verður um titil Íslandsmeistara í atskák auk sérstakra verðlauna fyrir konur og ungmenni. Efsta konan verður Íslandsmeistari kvenna í atskák. Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum […]
Hraðskákmót hjá TR í kvöld! Tefldar eru 10 skákir og tímamörkin eru 3 mínútur á skákina að viðbættum 2 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá […]
Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352) situr að tafli þessa dagana á Kapadokya Open í Tyrklandi. Sasha hefur ekki byrjað vel og hefur 1 vinning eftir 3 umferðir. Í móti Sasha, sem fram fer 17.-23. ágúst tefla 84 keppendur og þar af fjórir stórmeistarar. Sasha er nr. 16 í stigaröð keppenda. Heimasíða mótsins Chess-Results Beinar […]
Lenka Ptácníková (2063), stórmeistari kvenna, situr að tafli 16.-23. ágúst í Olomouc í Tékklandi. Teflir þar í 10 manna lokuðuðum flokki og er langstigalægst keppenda. Lenka hefur ekki byrjað vel og hefur ½ vinning eftir fjórar umferðir. Teflir auðvitað í hverri umferð við andstæðinga sem eru mun stigahærri en hún. Meðalstigin í flokki Lenku er […]
Undanrásir Íslandsmótsins í netskák fara fram, þriðjudaginn 25. ágúst á Chess.com og hefjast kl. 19.30. Til að hafa keppnisrétt þurfa viðkomandi að hafa rétt á því að tefla fyrir Íslands hönd og vera meðlimir í TeamIceland á Chess.com. Tefldar verða 11 umferðir með umhugsunartímanum 3+2. Fjórir efstu + efsta konan fá keppnisrétt í úrslitum. Mótsstig Chess.com gildir séu […]
Skákþingi Norðlendinga sem vera átti í apríl, en var þá frestað verður haldið, 18.- 20. sept. í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð og hefst með hraðskákmóti föstudaginn 18. kl. 20.00. Tímamörk verða 3+2 og umferðafjöldi getur ráðist af þátttöku, en miðað við 11 umf (hámark 14) Á laugardag og sunnudag verður síðan telfd atskák og gert […]
Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig […]