# Fréttir og tilkynningar frá Seðlabanka Íslands

Frettatilkynningar

Page: <https://rssamplifier.com/sedlabanki-is>  
Feed: <https://rssamplifier.com/sedlabanki-is.md>

---

## [Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands lýkur máli vegna ólögmætrar miðlunar innherjaupplýsinga með sátt](https://www.sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/fjarmalaeftirlit-sedlabanka-islands-lykur-mali-vegna-ologmaetrar-midlunar-innherjaupplysinga-med-satt)

_2026-08-20_

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur lokið máli sem varðaði brot einstaklings gegn c-lið 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. 10. gr. reglugerðarinnar, sem hefur lagagildi hér á landi samkvæmt lögum nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum. Samkvæmt reglugerðinni er óheimilt að miðla innherjaupplýsingum til annarra nema slíkt fari fram…

## [Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 08/2026](https://www.sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/tilkynning-um-drattarvexti-og-vexti-af-peningakrofum-nr-08-2026)

_2026-08-20_

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 07/2026 dagsettri 16. júlí sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað síðan þá. Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 15,75% fyrir tímabilið 1. – 30. september 2026.

## [Peningamál 2026/3](https://www.sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/peningamal-2026-3)

_2026-08-19_

Ritið \_Peningamál\_ gerir ársfjórðungslega grein fyrir horfum í peningamálum og þar er birt spá um verðbólgu sem gegnir mikilvægu hlutverki við mótun peningastefnunnar.

## [Yfirlýsing peningastefnunefndar 19. ágúst 2026](https://www.sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/yfirlysing-peningastefnunefndar-19-agust-2026)

_2026-08-19_

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8,00%. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum.

## [Vefút­send­ing vegna yfi­r­lýs­ing­ar pen­inga­stefnu­nefnd­ar, miðvikudaginn 19. ágúst 2026](https://www.sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/vefutsending-vegna-yfirlysingar-peningastefnunefndar-midvikudaginn-19-agust-2026)

_2026-08-18_

Yfirlýsing peningastefnunefndar verður birt á vef Seðlabanka Íslands, miðvikudaginn 19. ágúst 2026, kl. 8:30. Peningamál verða birt kl. 8:35 og vefútsending hefst svo klukkan 9:30 þar sem gerð verður grein fyrir yfirlýsingu nefndarinnar og efni Peningamála á fréttamannafundi með fulltrúum fjölmiðla og fjármálafyrirtækja.

## [Fra­m­kvæmda­stjórn ESB ósk­ar á ný eft­ir sjón­armiðum hag­hafa um sa­m­keppn­is­hæfni evrópska banka­ker­f­isins](https://www.sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/framkvaemdastjorn-esb-oskar-a-ny-eftir-sjonarmidum-haghafa-um-samkeppnishaefni-evropska-bankakerfisins)

_2026-08-18_

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) kynnti nýverið aðgerðir sem miða að samþættara, skilvirkara og samkeppnishæfara bankakerfi. Hagaðilar geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri við framkvæmdastjórnina til 17. næsta mánaðar.

## [Könnun á væntingum markaðsaðila](https://www.sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/konnun-a-vaentingum-markadsadila-2026-08-13)

_2026-08-14_

Seðlabanki Íslands kannaði væntingar markaðsaðila dagana 10. til 12. ágúst sl. Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að markaðsaðilar vænti meiri verðbólgu á þessu ári en í síðustu könnun í maí. Þeir gera þó ráð fyrir að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári og miðað við miðgildi svara eru væntingar þeirra til verðbólgu eftir eitt ár óbreyttar milli kannana, eða 3,9%.

## [Árleg skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um Ísland komin út](https://www.sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/reglubundinni-umraedu-um-island-lokid-i-framkvaemdastjorn-althjodagjaldeyrissjodsins-2026-07-27)

_2026-07-30_

Árleg skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um íslenskt efnahagslíf var birt í dag á vef sjóðsins. Reglubundnar úttektir á stöðu og horfum í efnahagslífi aðildarlandanna eru gerðar á grundvelli 4. greinar stofnsáttmála um sjóðinn (e. Article IV Consultation). Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum átti fundi með íslenskum stjórnvöldum og ýmsum hagaðilum í júní sl.

## [Sátt Seðlabanka Íslands og Tryggingar og ráðgjafar ehf.](https://www.sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/satt-sedlabanka-islands-og-tryggingar-og-radgjafar-ehf)

_2026-07-30_

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur lokið máli sem varðaði brot Trygginga og ráðgjafar ehf. á tilteknum ákvæðum laga nr. 62/2019 um dreifingu vátrygginga og laga nr. 30/2004 um vátryggingasamninga.

## [Brisk AI News Briefings (Sponsored)](https://crawlproof.com/a/XHbkzqMbPizk)

_2026-07-30 · **Sponsored**_

Read AI summaries and listen to audio briefings for top stories.

## [Ný rannsóknarritgerð um vaxtaákvarðanir á Íslandi](https://www.sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/ny-rannsoknarritgerd-um-vaxtaakvardanir-a-islandi)

_2026-07-29_

Seðlabanki Íslands hefur gefið út rannsóknarritgerðina „Too Little, Too Late? Testing The Optimality of Monetary Policy in Iceland“ eftir Birtu B. Haraldsdóttur og Bjarna G. Einarsson, hagfræðinga á sviði hagfræði og peningastefnu.

