RSS Amplifier

Blog

Sauðárkrókur

Fréttavefur í Skagafirði síðan 2012

saudarkrokur.isSource feed ↗10 posts

Live Last read · last published · next check

Written by

Latest posts

Breytingar á leikskólastarfi í Skagafirði

Fræðslunefnd og sveitarstjórn Skagafjarðar hafa samþykkt breytingar á reglum um leikskólastarf í Skagafirði sem tók gildi frá 10. ágúst 2026. Breytingarnar koma til vegna vaxandi óánægju á meðal foreldra,forráðamanna og starfsfólks skólans með fyrirkomulag skráningardaga og gjaldskrá. Um er að ræða aðgerðir sem innleiddar voru árið 2024 til þess að bregðast við áskorunum í starfsmannahaldi […]

Miklum endurbótum á leikskólalóðinni við Ársali lokið

Leikskólalóðin við leikskólann Ársali á Sauðarkróki hefur tekið stakkaskiptum í sumar, en nýlega lauk miklum endurbótum á leikskólasvæðinu á eldra stigi. Markmið framkvæmdanna var fyrst og fremst að bæta aðstæður barna til leikja utandyra. Hluti lóðarinnar var jafnaður og sléttaður til að draga úr vatnssöfnun, sem í ákveðnu veðurfari var að valda því að stórir […]

Skráning hafin á Atvinnulífssýningu Skagafjarðar

Atvinnulífssýning Skagafjarðar verður haldin í íþróttahúsinu á Sauðárkróki helgina 19.–20. september 2026. Sem fyrr er sýningunni ætlað að varpa ljósi á þann fjölbreytileika sem er í þjónustu, framleiðslu, mannlífi og menningu í sveitarfélaginu ásamt því að vekja jákvæða athygli á samfélaginu. Sýningin er ætluð fjölbreyttum hópi aðila, þar á meðal þjónustufyrirtækjum, iðnfyrirtækjum,…

Rúmlega 1000 þátttakendur skráðir á Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina

Mikil stemning er fyrir Unglingalandsmóti UMFÍ sem fer fram á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Rúmlega 1.000 þátttakendur á aldrinum 11–18 ára voru skráðir til leiks þegar lokað var fyrir skráningu í greinar á miðnætti á sunnudagskvöld. Þátttakendur eru skráðir í 6.270 greinar, sem merkir að hver og einn þátttakandi tekur þátt í 5 til 6 greinum […]

Grunur um mengun í Sauðá á Sauðárkróki

Sveitarfélaginu Skagafirði hefur borist tilkynning um að efni hafi komist í Sauðá og berist nú niður með ánni. Málið er litið mjög alvarlegum augum og hefur verið tilkynnt til eftirlitsaðila, sem vinna nú að því að kanna umfang og eðli málsins. Á meðan rannsókn stendur yfir eru íbúar Skagafjarðar og aðrir gestir sem eiga leið […]

Neyðarlínan kynnir varanúmerið 599 0112 ef ekki næst í 112

Lokun eldri farsímakerfa um land allt er lokið og 4G og 5G farsímakerfi hafa alfarið tekið við. Ísland er þar með fyrsta land Evrópu til að ljúka þessari tæknibreytingu á landsvísu. Í kjölfar lokunarinnar hefur komið í ljós að sumir farsímar, einkum eldri gerðir og ákveðnir símar sem keyptir hafa verið erlendis, geta átt í […]

Ásgeir selur Hlíðarkaup á Sauðárkróki

Nýir eigendur taka við versluninni Hlíðarkaup á Sauðárkróki föstudaginn 24. júlí. Ásgeir Björgvin Einarsson opnaði verslunina fyrir 35 árum hefur selt versluninna til nýrra eigenda. Í pistli á samfélgsmiðlum þá þakkar hann starfsfólki og viðskiptavinum fyrir samfylgdina í gegnum árin. Hann segir ákvörðunina ekki hafa verið auðvelda. Ekki kemur fram í tilkynningu hver nýr eigandi […]

Álfhildur og Auður ráðnar í leiðtogastöður hjá Skagafirði

Skagafjörður hefur lokið ráðningum í tvær mikilvægar leiðtogastöður á fjölskyldusviði sveitarfélagsins. Álfhildur Leifsdóttir hefur verið ráðin leiðtogi fræðslumála og Auður Inga Ingimarsdóttir hefur verið ráðin leiðtogi málefna fatlaðs fólks og eldra fólks. Álfhildur Leifsdóttir leiðtogi fræðslumála Álfhildur hefur víðtæka reynslu af menntamálum, skólaþróun og opinberri stjórnsýslu. Hún hefur…

Ólafur Þór Ólafsson tekur við starfi sveitarstjóra á Skagatrönd

Ólafur Þór Ólafsson hefur verið valinn úr hópi 16 umsækjenda til að taka við starfi sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagastrandar. Gert er ráð fyrir að sveitarstjórn staðfesti ráðninguna á fundi sínum þann 22. júlí næstkomandi. Ólafur er stjórnmálafræðingur að mennt og með MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hann hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og […]

Fjölgun gesta á milli ára á Héraðsbókasafni Skagfirðinga

Héraðsbókasafn Skagfirðinga hefur greint frá því að fjölgun gesta á fyrri hluta ársins 2026 á Sauðárkróki er tæp 10% miðað við fyrri hluta ársins í fyrra. Þá er fjölgun gesta í öllum mánuðum ársins, en mest þó í maí og júní. Þessi fjölgun gesta endurspeglar aukinn áhuga á þjónustu bókasafnsins og mikilvægt hlutverk þess í […]