RSS Amplifier

Blog

Safnaráð

safnarad.isSource feed ↗10 posts

Live Last read · last published · next check

Written by

Latest posts

Ársskýrsla safnaráðs 2025

Ársskýrsla safnaráðs 2025 hefur verið birt á vef safnaráðs. Skýrsluna má finna hér.

Sumarlokun safnaráðs frá 1. júlí – 4. ágúst

Skrifstofa safnaráðs verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með miðvikudeginum 1. júlí til 4. ágúst. Ef erindið er brýnt má ná í Þóru Björk Ólafsdóttur framkvæmdastjóra safnaráðs í síma 820-5450. Við minnum ferðalanga á að hægt er að heimsækja söfn hvar sem er á landinu og á heimasíðu okkar má finna kort sem sýnir staðsetningu …

Íslensku safnaverðlaunin afhent 2026

Listasafn Íslands hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2026 Þann 18. maí á Alþjóðlega safnadeginum voru Íslensku safnaverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn. Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) standa saman að verðlaununum, sem eru viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Forseti Íslands Halla Tómasdóttir afhenti…

Vorráðstefna ICOM Nord – Reykjavík 2026

Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi: Sameiginleg saga okkar og framtíð fyrir öll Á tímum sem einkennast af hnattrænni spennu, samfélagslegum breytingum og óvissu í umhverfismálum er æ oftar horft til safna sem vettvangs fyrir opna umræðu og aukinn skilning milli fólks. Vorráðstefna ICOM Nord 2026 leiðir saman safnafólk frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum til að …

Alþjóðlegi safnadagurinn 2026

Alþjóðlegi safnadagurinn 18. maí – yfirskrift dagsins í ár er: Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi Sem vettvangur fræðslu og þekkingar gegna söfn mikilvægu hlutverki í að efla friðsamleg samskipti og gagnkvæma virðingu. Í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum í maí 2026 er ykkur boðið að taka þátt í að varpa ljósi á yfirskrift ársins Söfn …

Aðalúthlutun safnasjóðs 2026

Menningarráðherra hefur úthlutað úr aðalúthlutun safnasjóðs 2026 Úthlutunarboð safnaráðs fór fram í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands við hátíðlega athöfn að viðstöddum góðum gestum fimmtudaginn 16. apríl. Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu ávarpaði gesti og úthlutaði 131 styrk, alls 182.700.000 krónum úr…

Úthlutunarboð safnaráðs í Þjóðminjasafni Íslands

Aðalúthlutun 2026 Úthlutunarboð safnaráðs verður haldið í Myndasal Þjóðminjasafnsins fimmtudaginn 16. apríl kl.16:00. Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti mun úthluta styrkjum úr aðalúthlutun safnasjóðs við hátíðlega athöfn. Úthlutunarboðið er í beinu framhaldi af vorfundi Höfuðsafnanna og safnaráðs í Þjóðminjasafni…

Kallað eftir viðbragðsáætlunum – 27. mars 2026

Viðurkennd söfn þurfa að skila afriti af viðbragðsáætlun til Safnaráðs fyrir föstudaginn 27. mars. Safnaráð hefur staðið fyrir fjarnámskeiðum í gerð viðbragðsáætlana, þar sem öllum viðurkenndum söfnum hefur verið boðin þátttaka í samstarfi við Nathalie Jacqueminet forvörð. Síðasta fjarnámskeiðinu lauk í febrúar sl., en þá eiga öll viðurkennd söfn að hafa fengið tækifæri til að sitja námskeiðið og…

Aðalúthlutun 2026

Menningarráðherra hefur úthlutað úr aðalúthlutun safnasjóðs 2026 Úr aðalúthlutun Safnasjóðs 2026 þann 22. janúar 2026 voru veittar 182.700.000 krónur. Styrkir til eins árs voru 123 talsins að heildarupphæð 154.700.000 kr. til 51 styrkþega. Öndvegisstyrkir 2026-2028 til viðurkenndra safna voru átta og skiptast svo: 28.000.000 kr. fyrir árið 2026, 29.000.000 kr. fyrir árið 2027 og 16.000.000 kr.…

Endurskoðun siðareglna ICOM: fyrirlestur og umræður með Dr. Sally Yerkovich

Íslandsdeild ICOM býður félögum, safnafólki, fræðamönnum og hagsmunaaðilum til sérstaks fundar með Dr. Sally Yerkovich, sem leitt hefur endurskoðun siðareglna ICOM fyrir söfn undanfarin ár. Fundurinn fer fram í húsakynnum safnaráðs fimmtudaginn 5. mars kl. 10:00 til 11:30, Austurstræti 5, 4. hæð. Hólmar Hólm, formaður Íslandsdeildar ICOM, setur fundinn og kynnir fyrirlesara dagsins. Þá flytur Dr.…