RSS Amplifier

News source

RÚV-RSS

Nýjustu fréttir RÚV

ruv.isSource feed ↗10 articles

Overdue Last read · last published · next check
Last read 4 hours ago, longer than this feed's 1 hour schedule.

Latest articles

Hreinskilinn Martin: „Margir búnir að vera of góðir við sig í fríinu“

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Finnum í æfingaleik á morgun. Lykilmaðurinn Martin Hermannsson viðurkennir að liðsmenn gætu verið í betra formi. Ísland mætir Finnlandi í æfingaleik ytra klukkan fimm á föstudaginn. Fram undan eru svo mikilvægir leikir gegn Tyrkjum og Serbum í seinni hluta undankeppni heimsmeistaramótsins. Æfingaleikur á þessum tímapunkti er nokkuð óvanalegur en Martin…

Heldur hvasst og vætusamt veður framundan en hlýtt og þurrt eystra

Í dag fikrar lægðardrag sig nær vesturhluta landsins með smávægilegri vætu til að byrja með. Búast má við suðvestanstrekkingi norðvestantil. Annars gola, stinningsgola, kaldi eða stinningskaldi og dálítil væta. Spáð er bjartviðri að mestu austanlands með allt að 19 stiga hita. Skynsamlegt gæti verið fyrir íbúa vestantil á landinu að að taka fram föt og yfirhafnir sem þola vel vætu enda hvessir…

Traktorastrákarnir endurbyggðu land til að mæla hland

Ipswich Town undirbýr sig af kappi fyrir keppni í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Liðið hefur byggt upp nýtt æfingasvæði þar sem boðið er upp á alls kyns nýjungar. Meðal annars mælir liðið þvag leikmanna. Auk þess er notast við austurrískar þurrkunaraðferðir úr Ölpunum. Ipswich, eða traktorastrákarnir eins og liðið er kallað, eyddi 4,9 milljörðum íslenskra króna (30 milljónum punda) í að gera…

Lögreglan rannsakar minni háttar líkamsárás, innbrot, þjófnað og eignaspjöll

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar minni háttar líkamsárás sem gerð var í því umdæmi sem þjónar Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi. Lögreglan rannsakar minni háttar líkamsárás, innbrot og eignaspjöll.RÚV / Vilhjálmur Þór Guðmundsson Einnig er verið að rannsaka innbrot og þjófnað í tveimur fyrirtækjum og eignarspjöll sem framin voru í öðru þeirra. Ferðamaður tilkynnti vasaþjófnað í vesturhluta…

SFS telur að Evrópusambandsaðild geti fært störf úr landi og skert aflaheimildir

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, líta svo á að aðild Íslands að Evrópusambandinu gæti orðið til að skerða aflaheimildir landsins og færa störf úr landi. Samtökin segja jafnframt að aðild geti opnað fyrir erlendar fjárfestingar og eignarhald í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Þannig myndi samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja breytast gagnvart niðurgreiddum sjávarútvegi innan…

Flugumferðarstjórar á Gardemoen og Flesland leggja niður störf

Samtök flugumferðarstjóra í Noregi eru komin í verkfall eftir að ekki náðist samkomulag hjá ríkissáttasemjara. Samtökin höfðu fyrir fram tilkynnt að tólf flugumferðarstjórar á Gardemoen og Flesland legðu niður störf í dag ef ekki tækist að semja. Ríkissáttasemjarinn Mats Wilhelm Ruland segir niðurstöðuna mikil vonbrigði þótt lítið hafa miðað í samkomulagsátt enda deilan flókin og einhver sú…

Þrír sagðir hafa meiðst í snörpum jarðskjálfta í Andesfjöllum

Þrír meiddust lítillega þegar jarðskjálfti af stærðinni 6,7 reið yfir miðhluta Perú í gær að sögn yfirvalda. Konur á göng í Andesfjöllum.EPA / Paula Bayarte Þau segja jafnframt að um það bil tuttugu byggingar hafi laskast, þar af sex skólar. Skjálftinn átti upptök sín á næstum hundrað kílómetra dýpi undir Andesfjöllum sem Jarðskjálftastofnun Perú segir ástæðu þess hve lítið tjónið varð. Fólk hafi…

Kyrkislangan Jodie Foster hefur náð fullum bata eftir óvenjulega krabbameinsmeðferð

Lyfjameðferðinni var beitt eftir að krabbamein í kjálkabeini slöngunnar tók sig upp að nýju eftir aðgerð. Slangan er 23 ára, býr í Chester-dýragarðinum á norðvestanverðu Englandi, er fjórir og hálfur metri á lengd, nefnd eftir leikkonunni Jodie Foster og hefur að sögn náð fullum bata. Sífellt færist í aukana að dýr fái meðferð sem áður var aðeins ætluð mönnum og rafskautsmeðferðinni hefur áður…

Kanna stuðning við hugsanlegan eftirmann Guterres

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman í dag til annarrar óformlegrar atkvæðagreiðslu um stuðning við stækkandi hóp þeirra frambjóðenda sem sækjast eftir því að leiða samtökin. Fimm konur og þrír karlar keppast um að taka við stjórnartaumum Sameinuðu þjóðanna þegar síðara fimm ára kjörtímabili Antonios Guterres lýkur um áramót. Arftakans bíður ærið verkefni þar sem samtökin standa frammi fyrir…

Kona ákærð fyrir að skipuleggja sprengjutilræði gegn stjórnarbyggingum í New York

Jessica Bowie er 35 ára bandarísk kona sem hefur verið ákærð fyrir brot á hryðjuverkalögum eftir að hún tjáði uppljóstrara alríkislögreglunnar að hún ætlaði sér að gera sprengjutilræði gegn aðsetri löggjafarþings og ríkisstjórnar New York-ríkis. Það er í borginni Albany, skammt frá landamærunum að Kanada. Samkvæmt dómsskjölum er Bowie ákærð fyrir tilraun til að veita tilteknum, erlendum…