RSS Amplifier

News source

RÚV-RSS

Nýjustu fréttir RÚV

ruv.isSource feed ↗10 articles

Overdue Last read · last published · next check
Last read 4 hours ago, longer than this feed's 1 hour schedule.

Latest articles

Flugumferðarstjórar á Gardemoen og Flesland leggja niður störf

Samtök flugumferðarstjóra í Noregi eru komin í verkfall eftir að ekki náðist samkomulag hjá ríkissáttasemjara. Samtökin höfðu fyrir fram tilkynnt að tólf flugumferðarstjórar á Gardemoen og Flesland legðu niður störf í dag ef ekki tækist að semja. Ríkissáttasemjarinn Mats Wilhelm Ruland segir niðurstöðuna mikil vonbrigði þótt lítið hafa miðað í samkomulagsátt enda deilan flókin og einhver sú…

Þrír sagðir hafa meiðst í snörpum jarðskjálfta í Andesfjöllum

Þrír meiddust lítillega þegar jarðskjálfti af stærðinni 6,7 reið yfir miðhluta Perú í gær að sögn yfirvalda. Konur á göng í Andesfjöllum.EPA / Paula Bayarte Þau segja jafnframt að um það bil tuttugu byggingar hafi laskast, þar af sex skólar. Skjálftinn átti upptök sín á næstum hundrað kílómetra dýpi undir Andesfjöllum sem Jarðskjálftastofnun Perú segir ástæðu þess hve lítið tjónið varð. Fólk hafi…

Kyrkislangan Jodie Foster hefur náð fullum bata eftir óvenjulega krabbameinsmeðferð

Lyfjameðferðinni var beitt eftir að krabbamein í kjálkabeini slöngunnar tók sig upp að nýju eftir aðgerð. Slangan er 23 ára, býr í Chester-dýragarðinum á norðvestanverðu Englandi, er fjórir og hálfur metri á lengd, nefnd eftir leikkonunni Jodie Foster og hefur að sögn náð fullum bata. Sífellt færist í aukana að dýr fái meðferð sem áður var aðeins ætluð mönnum og rafskautsmeðferðinni hefur áður…

Önnur óformlega atkvæðagreiðsla öryggisráðsins um nýjan framkvæmdastjóra hefst í dag

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman í dag til annarrar óformlegrar atkvæðagreiðslu um stuðning við stækkandi hóp þeirra frambjóðenda sem sækjast eftir því að leiða samtökin. Fimm konur og þrír karlar keppast um að taka við stjórnartaumum Sameinuðu þjóðanna þegar síðara fimm ára kjörtímabili Antonios Guterres lýkur um áramót. Arftakans bíður ærið verkefni þar sem samtökin standa frammi fyrir…

Kona ákærð fyrir að skipuleggja sprengjutilræði gegn stjórnarbyggingum í New York

Jessica Bowie er 35 ára bandarísk kona sem hefur verið ákærð fyrir brot á hryðjuverkalögum eftir að hún tjáði uppljóstrara alríkislögreglunnar að hún ætlaði sér að gera sprengjutilræði gegn aðsetri löggjafarþings og ríkisstjórnar New York-ríkis. Það er í borginni Albany, skammt frá landamærunum að Kanada. Samkvæmt dómsskjölum er Bowie ákærð fyrir tilraun til að veita tilteknum, erlendum…

Íranar segja boðaðar aðgerðir Bandaríkjanna efnahagslegt hryðjuverk

Íranska utanríkisráðuneytið segir þær hörðu aðgerðir vera efnahagslegt hryðjuverk og glæp gegn mannkyni sem Donald Trump Bandaríkjaforseti og fjármálaráðherrann Scott Bessent tilkynntu í vikunni. Þeir sögðu Íran og öll ríki sem eiga í viðskiptum við landið eða liðsinni því á nokkurn hátt mega búast við refsiaðgerðum sem eigi ekki sinn líka. Sá síðarnefndi sagði í samtali við CNBC í gær að…

Imran Khan fluttur úr fangelsi á sjúkrahús

Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan, hefur verið fluttur úr fangelsi á Shifa-einkasjúkrahúsið í höfuðborginni Islamabad að kröfu hæstaréttar landsins. Þar mun meðal annarra einkalæknir Khans annast hann. Ríkisstjórnin hafði reynt að koma í veg fyrir að hann yrði fluttur þangað. Hundruð lögreglumanna, margir vopnaðir kylfum, umkringdu sjúkrahúsið og öllum leiðum þangað var lokað. Khan…

„Litla ömmubarnið hennar dó“

Fjöldi íbúðarhúsa og barnaspítali var á meðal skotmarka Rússlandshers í loftárásum í nótt. Árásirnar vörðu klukkustundum saman og að minnsta kosti fimmtán voru drepnir. Árásirnar í nótt hæfðu meðal annars íbúðablokk í Solmianskyi-hverfi. Ungt barn lést eftir að hafa orðið undir rústum blokkarinnar. Var heima þegar árásirnar hófust Óskar Hallgrímsson, blaðamaður og ljósmyndari, er búsettur í Kyiv…

Stofnandi Evergrande í lífstíðarfangelsi

Stofnandi kínverska fasteignarisans Evergrande var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hui Ka Yan játaði sig sekan um fjárdrátt og mútugreiðslur - en fyrirtækið hafði tekið við fyrirframgreiðslum frá fasteignakaupendum sem voru svo nýttar við uppbyggingu annarra og óskyldra verkefna. Þetta varð til þess að við gjaldþrot fyrirtækisins voru hundruð fasteigna ókláraðar í landinu. Árið 2021 fór…

Forseti Íslands ávarpaði eistneska þingið

Það var þétt dagskrá hjá forsetahjónunum í dag á öðrum degi opinberrar heimsóknar í Eistlandi. Halla Tómasdóttir forseti ávarpaði meðal annars eistneska þingið. Bæði forseti landsins og forsætisráðherra minntust á þátt Íslands í sjálfstæðisbaráttu Eista. Það var á þessum degi, 20. ágúst, árið 1991, sem Eistland lýsti yfir sjálfstæði á ný eftir fall Sovétríkjanna. Í ræðu sinni fyrr í dag þakkaði…

RÚV-RSS · RSS Amplifier