RSS Amplifier

Blog

RÚV-RSS

Nýjustu fréttir RÚV

ruv.isSource feed ↗10 posts

Live Last read · last published · next check

Latest posts

Vísnapopp, vélbyssudiskó og víkingamálmur

Sísý Ey – Up Close Íslenska dans- og hús-hljómsveitin Sísý Ey sem er skipuð systrunum Elínu, Elísabetu og Siggu Eyþórsdætrum, ásamt tónlistarmanninum Friðfinni Oculus tilkynnir um endurkomu sína með nýju lagi. Lagið heitir Up Close og kom út 14. ágúst og er það fyrsta frá genginu í 10 ár. Undiraldan fimmtudaginn 20. ágúst Að venju er fjölbreytnin við völd í Undiröldunni. Við fáum allt frá…

Hundrað ár frá fyrstu sinfóníutónleikum á Íslandi

Heimsókn Fílharmóníusveitar Hamborgar til Íslands árið 1926 var einn merkasti viðburður íslenskrar tónlistarsögu. Jón Leifs átti frumkvæði að heimsókninni, en hann starfaði sem tónskáld og hljómsveitarstjóri í Þýskalandi. Kona hans, Annie Leifs, var mjög fær píanóleikari og kom með hljómsveitinni sem einleikari. Heinesen notaði tónleikana sem efni í skáldsögu Fyrir utan þá fáu Íslendinga sem höfðu…

Ye heldur tónleika í Rússlandi

Bandaríski rapparinn Kanye West, sem gengur undir nafninu Ye, ætlar að vera með tvenna tónleika í Sankti Pétursborg í Rússlandi í október. Hann verður þar með stærsta vestræni tónlistarmaðurinn til að troða upp í Rússlandi síðan allsherjarinnrás í Úkraínu hófst fyrir fjórum árum. Tónleikarnir verða 10. og 11. október á Gazprom-leikvanginum sem tekur 70 þúsund manns í sæti. Miðar seldust upp á…

Hljómsveitin Eva fékk alla í diskódans

Sigríður Eir og Vala Höskulds, sem skipa hljómsveitina Evu, fluttu lagið Ást. Það er úr sviðsverki sem þær settu upp í Tjarnarbíói í fyrra. Verkið nefnist Kosmískt skítamix og fjallar á kaldhæðnislegan hátt um hljómsveit sem var einu sinni upprennandi en þarf nú að horfast í augu við raunveruleikann. Páll Óskar kemur óvænt inn í lok lagsins sem er mikill diskósmellur. Gestir þáttarins lærðu lítinn…

Haf þú ekki áhyggjur af því

Bogomil Font er hliðarsjálf Sigtryggs Baldurssonar trommara sem byrjaði sem Smekkleysu-brandari á tíunda áratugnum. Með honum eru þeir Bragi Valdimar Skúlason og Kiddi Hjálmur sem eru Greiningardeildin úr sjónvarpsþáttunum Hljómskálanum. Auk þeirra syngur Emilíana Torrini í laginu Þú stendur alltaf með mér og fjölskipaðar hljómsveitir í lögum plötunnar. Haf þú ekki áhyggjur af því er það fyrsta…

Íslenskri menningu stendur bara ógn af okkar eigin leti

Svavar Knútur lítur á sig sem Norðlending jafnvel þó fjölskyldan hafi búið víða um land, en átta ár á Skálá í Skagafirði skipa sérstakan sess í hjarta hans og nú býr hann á Akureyri þaðan sem hann gerir út um allan heim. Svavar hefur m.a. byggt góð sambönd í Ástralíu og segir samfélag söngvaskálda úti í heimi hafa tekið sér opnum örmum. Hann segir skoðanir sínar umbúðalaust, kallar…

Aðdáendur vottuðu Bonnie Tyler virðingu sína

Þúsundir aðdáenda velsku söngkonunnar Bonnie Tyler komu saman í Mumbles í Suður-Wales í gær til að votta söngkonunni virðingu sína þegar kista hennar var flutt í líkvagni áleiðis til Swansea þar sem hún verður jörðuð á mánudag. Kistan var umvafin velska fánanum og til hliðar var innrömmuð mynd af söngkonunni. Aðdáendurnir klöppuðu þegar eitt þekktasta lag hennar var spilað, Total Eclipse of the…

Merkja gervigreindartónlistarmenn sérstaklega til að aðgreina þá frá mennskum listamönnum

Stærsta tónlistarstreymisveita heims, Spotify, ætlar að búa til sérstakt merki til að aðgreina gervigreindartónlistarmenn frá mennsku tónlistarfólki. Markmiðið er að aðgreina djúpfalsaða listamenn frá raunverulegum flytjendum sem gætu tapað tekjum á streymi sem flyst frá þeim til „gervi“-keppinauta. Spotify tilkynnti breytingarnar í vikunni en þær taka gildi um miðjan september.…

Fimm út og suður á föstudegi

DIIV – The Fountain Það er skemmtileg stemning í The Fountain, nýja lagi New York sveitarinnar DIIV, sem kom út í síðustu viku. Lagið verður á væntanlegri plötu þeirra, ZIRP! sem kemur út í lok október og er unnin með hyper-poppprinsinum A. G. Cook. Sá virðist hafa góð áhrif á þá félaga sem reyna ekki einu sinni að fela ást sína á My Bloody Valentine í nýja laginu. The Avalanches ásamt Portraits…

Gunnar Þórðarson jarðsunginn

Tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðarson var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag. Gunnar, sem lést 29. júlí, 81 árs, var einn afkastamesti og dáðasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Hann var fyrsti popptónlistarmaðurinn til að fá listamannalaun og var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu árið 2002 fyrir framlag til íslenskrar tónlistar. Hann fékk heiðursverðlaun íslensku tónlistarverðlaunanna…