RSS Amplifier

Blog

RÚV-RSS

Nýjustu fréttir RÚV

ruv.isSource feed ↗10 posts

Live Last read · last published · next check

Latest posts

Vilja varpa ljósi á áhrif heilbrigðisþjónustu á líf fólks

Nýtt samstarf Sjúkratrygginga Íslands og danska fyrirtækisins Frameshift hefur það að markmiði að nýta íslensk gögn og bera þau saman við danska heilbrigðisgagnagrunna. Samstarfið á að styrkja greiningargetu, styðja við ákvarðanatöku og auka yfirsýn yfir kostnað og árangur í heilbrigðiskerfinu. Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga, segir að í heilbrigðisþjónustu sé fjöldi gagna sem nýta…

Verulega flókið að sinna matvælaeftirliti á netinu

Sífellt erfiðara er að sinna eftirliti með merkingum matvæla og algengt er að vörur í netverslunum séu ekki rétt merktar, segir Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Í síðustu viku var fjallað um fæðubótarefnið Pre-Workout. Ábendingar hafa borist um að unglingar hafi leitað til læknis vegna koffíneitrunar…

Unglingar með koffíneitrun eftir neyslu á vinsælu fæðubótarefni

Fæðubótarefnið Pre-Workout er til sölu í matvöruverslunum og heilsubúðum undir ýmsum vörumerkjum. Það er markaðssett sem heilsueflandi, það auki úthald á æfingum og bæti endurheimt. Efnið getur innihaldið allt að 330 milligrömm af koffíni í einum skammti. Fréttastofu hafa borist ábendingar um unglinga sem hafa neytt Pre-Workouts og þurft í kjölfarið að leita til læknis vegna koffíneitrunar.…

Áætla að opna nýja bráðamatsdeild með tuttugu rýmum í september

Áætlað er að opna tuttugu rými á nýrri deild á Landspítala í september. Deildin er hluti af bráðaþjónustu spítalans og er henni ætlað að létta á bráðamóttökunni. „Bráðamatsdeildin er deild sem sér um að taka við sjúklingum frá bráðamóttöku sem þurfa frekara mat og uppvinnslu, frekari meðferð. Þetta er sem sagt deild innan lyflækninga og henni er ætlað að taka við fólki sem ekki kemst beint heim…

Getur verið lífshættulegt að nota peptíða án samráðs við lækni

Prófessor í ónæmisfræði segir notkun peptíða án þess að ráðfæra sig við lækni geta verið lífshættulega. Enn er verið að kortleggja möguleg skaðleg áhrif slíkrar notkunar. Sýnishorn af ólöglegum peptíðum sem tollgæslan lagði hald á og sendi til greiningar erlendis innihéldu mikil óhreinindi. Ómögulegt var að staðfesta hvort hluti sýnishornanna innihéldi virku lyfjaefnin sem þau voru sögð innihalda.…

Ætla að taka upp norsku umbúðirnar

Skylt verður að nota einsleitar umbúðir á tóbaksvörum, samkvæmt drögum að frumvarpi sem heilbrigðisráðherra hefur lagt fram. Þá eru ákvæði í drögunum um hámarksmagn nikótíns. Slíkar umbúðir hafa verið skylda í Noregi frá 2018 og hafa allar tóbaksumbúðir síðan þá verið brúnar. Rannsóknir sýna að áhrifin af breytingunni voru lítil sem engin. Takmarka á sölu nikótínvara sem innihalda bragðefni og…

Skúli Tómas snýr aftur til starfa

Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir snýr aftur til starfa á Landspítalanum á næstunni, samkvæmt upplýsingum frá spítalanum. Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn vegna andláts konu sem lést í umönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2019. Málinu var vísað frá í Héraðsdómi Reykjaness í vikunni á þeim grundvelli að honum hefði þegar verið refsað með…

Hljóðmengun eykur líkur á parkinson

Fólk sem býr við viðvarandi hljóðmengun frá umferð er líklegra til að þróa með sér parkinsonsjúkdóm. Þetta eru niðurstöður danskrar rannsóknar, þeirrar stærstu sinnar tegundar. Parkinson hefur áhrif á taugafrumur sem stjórna hreyfingum og er næstalgengasti taugahrörnunarsjúkdómur í heimi. Eldri rannsóknir hafa bent til mögulegra tengsla milli parkinsons og hljóðmengunar. Danska rannsóknin náði…

Lágt hlutfall hjúkrunarfræðinga á Hraunbúðum dapurlegt en „kemur ekki á óvart“

Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir mjög alvarlegt að hlutfall hjúkrunarfræðinga á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum sé langt undir viðmiðum til að tryggja öryggi. Embætti landlæknis gerði alvarlegar athugasemdir við aðbúnað á heimilinu í skýrslu sem unnin var eftir tilkynningu um alvarlegt atvik fyrr á árinu. Þar voru meðal annars…

Fátt fagfólk, gamalt húsnæði og samskiptavandi á hjúkrunarheimili í Eyjum

Embætti landlæknis gerir miklar athugasemdir við aðbúnað á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Landlæknir skilaði nýverið skýrslu um úttekt á Hraunbúðum eftir tilkynningu um alvarlegt atvik á stofnuninni. Grunur var um að andlát konu á tíræðisaldri hefði borið að með saknæmum hætti en rannsókn málsins hefur verið felld niður. Eyjafréttir greindu fyrst frá . Í skýrslunni eru…