Ipswich Town undirbýr sig af kappi fyrir keppni í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Liðið hefur byggt upp nýtt æfingasvæði þar sem boðið er upp á alls kyns nýjungar. Meðal annars mælir liðið þvag leikmanna. Auk þess er notast við austurrískar þurrkunaraðferðir úr Ölpunum. Ipswich, eða traktorastrákarnir eins og liðið er kallað, eyddi 4,9 milljörðum íslenskra króna (30 milljónum punda) í að gera…
Vigdís Edda Garðarsdóttir og Snædís María Jörundsdóttir skoruðu mörk Stjörnunnar í 2-0 sigri liðsins á toppliði Breiðabliks. Mörkin komu á 79. og 82. mínútu leiksins. Stjarnan er þar með komið í 3. sæti og hefur þar 26 stig en Breiðablik trónir áfram á toppnum með 36 stig. Með tapi Breiðabliks í kvöld er þó ljóst að FH getur með sigri á Víkingi annað kvöld jafnað Blika að stigum og toppbaráttan…
Fyrri leikur Víkings og Borac í Sambandsdeildarumspilinu var spilaður í Fossvoginum í kvöld og gestirnir frá Banja Luka reyndust sterkari frá byrjun. Þeir komust í 2-0 á skömmum tíma eftir að Luka Juricic og Milos Jojic skoruðu á 21. og 23. mínútu og þannig stóð í hálfleik. Gylfi Þór Sigurðsson minnkaði muninn fyrir Víking í 2-1 með marki úr vítaspyrnu en Luka Juricic kom Boruc aftur tveimur…
Stjarnan óskaði eftir því að Jón Þór Hauksson myndi láta af störfum sem þjálfari liðsins í Bestu deild karla í fótbolta. Áður hafði Jökull Elísabetarson hætt þjálfun liðsins. Jón Þór hefur stýrt liðinu frá 13. júní og stýrði því liðinu í 68 daga. Alls stýrði hann Stjörnunni í 13 leikjum, bæði í Bestu deildinni og í undankeppni Sambandsdeildarinnar. Síðasti leikur hans með liðið var 3-1 tap gegn…
KA tilkynnti nú síðdegis á vefsíðu sinni að Eiður Smári Guðjohnsen væri kominn inn í þjálfarateymi félagsins. Illa hefur gengið hjá KA-mönnum í Bestu deild karla í fótbolta í sumar og liðið er í næstneðsta sæti með 16 stig eftir 19 umferðir. Í tilkynningu KA-manna segir að Eiður muni vinna með Hallgrími Jónassyni þjálfara KA og Atli Sveinn Þórarinsson sem hefur verið aðstoðarþjálfari stigi til…
Valur og KA mættust í 19. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Liðin skildu jöfn, 4-4, í æsispennandi leik. KA-menn voru sterkari aðilinn framan af og Jakob Snær Árnason kom þeim yfir á fimmtu mínútu. Hallgrímur Mar Steingrímsson tvöfaldaði forystuna á 16. mínútu áður en Hólmar Örn Eyjólfsson minnkaði muninn á 21. mínútu. Jakob Snær skoraði annað mark sitt á 39. mínútu og sá til þess að gestirnir…
Hammarby í Svíþjóð hefur klófest íslensku landsliðskonuna Ídu Marín Hermannsdóttur, markahæstu konu Bestu deildarinnar í fótbolta. Ída Marín hefur farið á kostum hjá FH í sumar og vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína. Hún var undir smásjá nokkurra liða erlendis, en hefur nú samið við sænsku bikarmeistarana í liði Hammarby og gerir fjögurra ára samning sem gildir til ársins 2030.…
Fyrrum landsliðsmaðurinn í fótbolta Jón Daði Böðvarsson hefur lagt skóna á hilluna. Hann tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum sínum rétt í þessu. Jón Daði er 34 ára og lék síðast með Selfyssingum en rifti þar nýverið samningi. Jón Daði lék 64 landsleiki og skoraði fjögur mörk fyrir Ísland. Hann lék í framlínu Íslands á þeim einu tveimur stórmótum sem Ísland hefur komist á, á EM 2016 og HM 2018. Hann…
Víkingur styrkti stöðu sína á toppi Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld með 4-2 sigri á FH í Kaplakrika og bundu Íslandsmeistararnir um leið enda á níu leikja taplausa hrinu Hafnfirðinga. FH hafði ekki tapað í Bestu deildinni frá 29. maí og hafði leikið níu deildarleiki í röð án taps, unnið þrjá þeirra og gert sex jafntefli. Víkingar stöðvuðu þá hrinu í Kaplakrika og nýttu um leið tækifærið til…
Enska knattspyrnutímabilið hófst formlega í dag með leiknum um Samfélagsskjöldinn í Cardiff í Wales. Í þessum táknræna upphafsleik enska leiktímabilsins mætast Englandsmeistarar og bikarmeistarar síðasta tímabils, að þessu sinni Arsenal og Manchester City. Enska úrvalsdeildin hefst með leik Arsenal og Coventry næstkomandi föstudag og Englandsmeistararnir byrjuðu vel í dag. Aðeins 23 sekúndur voru…