Jessica Bowie er 35 ára bandarísk kona sem hefur verið ákærð fyrir brot á hryðjuverkalögum eftir að hún tjáði uppljóstrara alríkislögreglunnar að hún ætlaði sér að gera sprengjutilræði gegn aðsetri löggjafarþings og ríkisstjórnar New York-ríkis. Það er í borginni Albany, skammt frá landamærunum að Kanada. Samkvæmt dómsskjölum er Bowie ákærð fyrir tilraun til að veita tilteknum, erlendum…
Sjónvarpsstöðin ABC kærði fjarskiptastofnun Bandaríkjanna, FCC, í dag fyrir meintar hótanir í garð fyrirtækisins. Í kærunni er stofnuninni gefið að sök að hafa, að undirlagi Donalds Trumps forseta, hótað að afturkalla útsendingarleyfi stöðvarinnar vegna ósættis við efnistök í dagskrá. FCC krafði ABC, sem er í eigu Disney-samsteypunnar, um að endurnýja leyfi sín fyrr en til stóð. Trump hefur…
Ákvörðun Bandaríkjaforseta að draga úr sameiginlegum heræfingum með Suður-Kóreu grefur undan áratuga sambandi ríkjanna tveggja. Bandarískur öldungadeildarþingmaður segir þetta áróðurssigur fyrir Norður-Kóreu. Bandaríkjaher segir Norður-Kóreu hafa prófað langdrægar skotflaugar sem geta ferðast milli heimsálfa og borið kjarnavopn með góðum árangri. Vill fulla stjórn yfir suður-kóreska hernum…
Tvö stærstu uppistöðulón í Bandaríkjunum hafa aldrei verið jafn vatnslítil, eftir mikla þurrkatíð í vesturhluta Bandaríkjanna. Loftslagsbreytingar hafa valdið því að vatn í Colarado-á mælist sögulega lítið. Áin rennur í bæði Powell-vatn og Mead-vatn sem eru tvö stærstu uppistöðulón í Bandaríkjunum og sjá 40 milljónum manna fyrir vatni og rafmagni. Lækki vatnsborð enn frekar gæti það haft áhrif á…
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur aftur hafnað beiðni Donald Trump um endurupptöku í máli rithöfundarins E. Jean Carrol. Trump var árið 2023 dæmdur fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn Carrol og fyrir ærumeiðingar í hennar garð. Þetta er í annað sinn sem Hæstiréttur hafnar beiðni Trumps um endurskoðun málsins. Í júní hafnaði Hæstiréttur Bandaríkjanna beiðni Trumps um endurupptöku en honum var…
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Pete Hegseth varnarmálaráðherra að skera niður í sameiginlegri heræfingu Bandaríkjanna og Suður-Kóreu. Bandaríkjaforseti tilkynnti um þessa ákvörðun í færslu á Truth Social í kvöld. Hann segir að þar sem samband hans og Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu, sé gott sé hann ekki ánægður með að Bandaríkin hafi fyrir löngu fallist á að taka þátt í…
Fimm eru særðir, þar af einn lífhættulega, eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu-ríkis (e. Virginia State University ) í Bandaríkjunum. Lögreglumenn brugðust við tilkynningu um árásina snemma morguns. Á vettvangi fundu lögreglumenn fimm með áverka. Fjórir voru með áverka sem ekki voru taldir lífshættulegir en einn er alvarlega særður. Allir voru fluttir á spítala. Ójóst er hvort árásarmaðurinn…
Luigi Mangione viðurkenndi í dag að hafa skotið Brian Thompson, forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna, til bana í New York árið 2024. Saksóknarar segja að Mangione hafi skipulagt morðið vegna andstöðu sinnar við bandaríska heilbrigðiskerfið og til að koma pólitískum skilaboðum á framfæri. „Ég skaut herra Thompson í Manhattan og hann lést,“ sagði Mangione þegar hann las…
Aðstandendur nokkurra þeirra þúsunda bandarískra hermanna sem eru í flugmóðurskipinu Abraman Lincoln lýsa yfir áhyggjum af andlegri heilsu þeirra og aðstæðum um borð. Um fimm þúsund sjóliðar og landgönguliðar hafa verið þar í tæplega níu mánaða úthaldi sem hefur verið framlengt margoft. Skipið fór frá Kaliforníu í nóvember í fyrra áleiðis til Suður-Kínahafs en áætlun þess var breytt vegna átaka í…
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að tollar verða settir á innflutta dróna og drónaíhluti. 100% innflutningstollar verða settir á ákveðnar tegundir en það veltur á stærð þeirra og hvort þeir séu taldir ógn við þjóðaröryggi. Drónar sem eru 25 kg að þyngd eða meira og útbúnir hitamyndavélum eða eru með tengikví, falla undir þann flokk. Minni drónar sem ekki eru taldir ógna þjóðaröryggi…