Sísý Ey – Up Close Íslenska dans- og hús-hljómsveitin Sísý Ey sem er skipuð systrunum Elínu, Elísabetu og Siggu Eyþórsdætrum, ásamt tónlistarmanninum Friðfinni Oculus tilkynnir um endurkomu sína með nýju lagi. Lagið heitir Up Close og kom út 14. ágúst og er það fyrsta frá genginu í 10 ár. Undiraldan fimmtudaginn 20. ágúst Að venju er fjölbreytnin við völd í Undiröldunni. Við fáum allt frá…
Gauti Kristmannsson skrifar: Það hljóta að teljast tíðindi að komin sé út fyrsta bókin frá Venesúela sem þýdd hefur verið á íslensku, bók eftir skáldkonuna Teresu de la Parra sem uppi var á fyrri hluta 20. aldar. Kannski ekki skrýtið þegar hugsað er til þess hve lítil samskipti Íslendinga og Venesúela voru áður fyrr. Ég hitti fyrst manneskju frá Venesúela fyrir 30 árum þegar ég var í námi við…
Heimsókn Fílharmóníusveitar Hamborgar til Íslands árið 1926 var einn merkasti viðburður íslenskrar tónlistarsögu. Jón Leifs átti frumkvæði að heimsókninni, en hann starfaði sem tónskáld og hljómsveitarstjóri í Þýskalandi. Kona hans, Annie Leifs, var mjög fær píanóleikari og kom með hljómsveitinni sem einleikari. Heinesen notaði tónleikana sem efni í skáldsögu Fyrir utan þá fáu Íslendinga sem höfðu…
Jazzhátíð Reykjavíkur fer fram 25.-30. ágúst. Á lokadegi hátíðarinnar sunnudaginn 30. ágúst kl 16 kemur saman fjöldi listamanna í Kirkju óháða safnaðarins við Háteigsveg og syngur og leikur lög eftir Tómas R. Einarsson kontrabassaleikara og tónskáld. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir ræddi við hann um ferilinn í þættinum Segðu mér á Rás 1. Varar sig í umgengni við pólitík Á einhverjum tímapunkti…
Ásta Dóra og María Qing hafa náð langt í klassískri tónlist þrátt fyrir ungan aldur. Ásta Dóra stundar píanónám við Curtis í Bandaríkjunum, einn virtasta tónlistarháskóla heims, og María er eftirsóttur sellisti í Þýskalandi þar sem hún er búsett. Í sumar hafa þær leikið saman kammertónlist í sumartónleikaröð sem lýkur í Hannesarholti í kvöld. Ein skilaboð urðu að tónleikaröð Leiðir Ástu Dóru og…
Auður H. Ingólfsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur hefur alla tíð haft mikinn áhuga á heiminum. Leið hennar í alþjóðamálin hefur því lengi verið greið. „Sem lítil stelpa var ég mikið að skrifa addressuna mína Auður, heimilið, Ísland, Evrópa, sólkerfið. Ég var óþreyjufull að skoða þennan heim. Mér fannst ég vera að springa,“ segir Auður. Hún var gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttir í þættinum…
Bandaríski trommuleikarinn Frank Beard er látinn, 77 ára að aldri. Hann þandi húðirnar fyrir rokksveitina ZZ Top árum saman. Beard hafði lengi glímt við heilsufarsvanda og lést á búgarði sínum í Texas. Hljómsveitin segist í tilkynningu á Facebook hafa misst góðan vin og samstarfsmann og að veröldin hefði misst einhvern hugmyndaríkasta trommara heims, sannan son Texasríkis. ZZ Top hefur aflýst…
Margrét Arnardóttir og Mikkel Odu gengu í hjónaband í Tékklandi í fyrrasumar. Mikkel er tékkneskur en hjónin búa á Íslandi. Margrét er harmonikkuleikari en Mikkel er myndlistarmaður og hreyfimyndahönnuður með mikinn áhuga á fuglum. „Ég er að mála litlar myndir með fuglum og er fuglamanneskja. Ég elska fuglana. Himbrimi er uppáhalds,“ segir Mikkel. Þau sögðu Arnhildi Hálfdánardóttur og Guðrúnu…
„Við þurfum meiri stuðning en fólk gerir sér grein fyrir,“ segir Snæ Humadóttir sem er 17 ára og hefur verið á vettvangi hinsegin félagsmiðstöðva fyrir ungmenni í nokkur ár. Snæ flutti hátíðarræðu Hinsegin daga í ár og sendi í henni ákall til fullorðna fólksins um að berjast fyrir tilverurétti hinsegin ungmenna og leyfa þeim að vera áfram börn. „Það er ekki bara að segja að fólki sé sama, „mér er…
Sigríður Eir og Vala Höskulds, sem skipa hljómsveitina Evu, fluttu lagið Ást. Það er úr sviðsverki sem þær settu upp í Tjarnarbíói í fyrra. Verkið nefnist Kosmískt skítamix og fjallar á kaldhæðnislegan hátt um hljómsveit sem var einu sinni upprennandi en þarf nú að horfast í augu við raunveruleikann. Páll Óskar kemur óvænt inn í lok lagsins sem er mikill diskósmellur. Gestir þáttarins lærðu lítinn…