Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Finnum í æfingaleik á morgun. Lykilmaðurinn Martin Hermannsson viðurkennir að liðsmenn gætu verið í betra formi. Ísland mætir Finnlandi í æfingaleik ytra klukkan fimm á föstudaginn. Fram undan eru svo mikilvægir leikir gegn Tyrkjum og Serbum í seinni hluta undankeppni heimsmeistaramótsins. Æfingaleikur á þessum tímapunkti er nokkuð óvanalegur en Martin…
Ipswich Town undirbýr sig af kappi fyrir keppni í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Liðið hefur byggt upp nýtt æfingasvæði þar sem boðið er upp á alls kyns nýjungar. Meðal annars mælir liðið þvag leikmanna. Auk þess er notast við austurrískar þurrkunaraðferðir úr Ölpunum. Ipswich, eða traktorastrákarnir eins og liðið er kallað, eyddi 4,9 milljörðum íslenskra króna (30 milljónum punda) í að gera…
Vigdís Edda Garðarsdóttir og Snædís María Jörundsdóttir skoruðu mörk Stjörnunnar í 2-0 sigri liðsins á toppliði Breiðabliks. Mörkin komu á 79. og 82. mínútu leiksins. Stjarnan er þar með komið í 3. sæti og hefur þar 26 stig en Breiðablik trónir áfram á toppnum með 36 stig. Með tapi Breiðabliks í kvöld er þó ljóst að FH getur með sigri á Víkingi annað kvöld jafnað Blika að stigum og toppbaráttan…
Fyrri leikur Víkings og Borac í Sambandsdeildarumspilinu var spilaður í Fossvoginum í kvöld og gestirnir frá Banja Luka reyndust sterkari frá byrjun. Þeir komust í 2-0 á skömmum tíma eftir að Luka Juricic og Milos Jojic skoruðu á 21. og 23. mínútu og þannig stóð í hálfleik. Gylfi Þór Sigurðsson minnkaði muninn fyrir Víking í 2-1 með marki úr vítaspyrnu en Luka Juricic kom Boruc aftur tveimur…
Í dag varð ljóst að frammistaðan hjá Degi Kára Ólafssyni og Ágústi Inga Davíðssyni í forkeppninni á EM í gær hefði tryggt þeim sæti á heimsmeistaramótinu í október. Áður hafði Lilja Katrín Gunnarsdóttir fengið HM sæti í kvennaflokki og Thelma Aðalsteinsdóttir bættist sömuleiðis við í dag. Guðmundur Brynjólfsson fimleikasérfræðingur RÚV segir þetta í takt við væntingar fyrir EM. Árangur Íslands í…
Thelma Aðalsteinsdóttir fékk þátttökurétt á heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum. Thelma keppti fingurbrotin á Evrópumeistaramótinu nýverið en kemst þrátt fyrir það á HM. Árangur Thelmu á heimsbikarmóti er ástæðan fyrir þátttökurétti hennar á HM. Þar keppti Thelma til úrslita í golfi á mótinu í Egyptalandi og var nálægt verðlaunasæti. Ísland hefur aldrei áður fengið keppanda á HM út frá árangri á…
Red Bull hafa kallað inn japanska ökuþórinn Yuki Tsunoda vegna meiðsla Isack Hadjar. Fram undan er heimakeppni Max Verstappen, hollenska keppnin í Zandvoort. Tsunoda var á ströndinni í Grikklandi þegar hann fékk kallið en segist himinlifandi að fá tækifæri til að keyra aftur fyrir Red Bull. „Ég vil samt ekki að þið takið því þannig að ég hafi bara verið liggjandi á ströndinni allan tímann. Ég var…
Stjarnan óskaði eftir því að Jón Þór Hauksson myndi láta af störfum sem þjálfari liðsins í Bestu deild karla í fótbolta. Áður hafði Jökull Elísabetarson hætt þjálfun liðsins. Jón Þór hefur stýrt liðinu frá 13. júní og stýrði því liðinu í 68 daga. Alls stýrði hann Stjörnunni í 13 leikjum, bæði í Bestu deildinni og í undankeppni Sambandsdeildarinnar. Síðasti leikur hans með liðið var 3-1 tap gegn…
Ágúst Ingi Davíðsson og Dagur Kári Ólafsson munu keppa fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum. HM fer fram í október í Rotterdam í Hollandi. Þetta varð ljóst eftir gott gengi þeirra Ágústs og Dags á Evrópumótinu í Zagreb í Króatíu sem stendur nú yfir. Ágúst, Dagur og Valgarð Reinhardsson kepptu fyrir Ísland á HM fyrir ári. Dagur varð þá sá fyrsti í sögunni til að komast í…
Hollenski ökuþórinn Max Verstappen hefur bundið enda á sögusagnir um framtíð sína og framlengt við Red Bull. Nýi samningurinn gildir til 2030 en mikið hafði verið rætt og ritað um hvort að hann myndi ganga til liðs við Mercedes eða McLaren. Þá var einnig sá möguleiki fyrir hendi að Verstappen myndi hreinlega hætta í Formúlu 1. Ætlar sér aftur á toppinn Verstappen er 28 ára gamall og vann fjóra…