RSS Amplifier

Blog

RÚV-RSS

Nýjustu fréttir RÚV

ruv.isSource feed ↗13 posts

Overdue Last read · last published · next check
Last read 6 hours ago, longer than this feed's 2 hours schedule.

Latest posts

Elsta kona heims á afmæli

Elsta kona í heimi á afmæli í dag. Konan heitir Ethel Caterham. Ethel er 117 ára gömul. Ethel er frá Englandi. Ethel fæddist árið 1909. Þegar Ethel var 18 ára fór Ethel til Indlands. Ethel vann þar sem barnfóstra. Ethel bjó líka í Hong Kong með manninum sínum. Þar stofnaði Ethel leikskóla. Mikið hefur gerst í heiminum síðan Ethel fæddist. Til dæmis sökk skipið Titanic. Fyrri heims·styrjöldin…

Tónaflóð á Menningarnótt

Á morgun er Menningarnótt í Reykjavík. Margir hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni. Eftir hlaupið er mikið um að vera í Reykjavík. Stærsti viðburðurinn heitir Tónaflóð. Það eru stórir tónleikar frá Rás 2. Tónleikarnir eru á Arnarhóli. Tónleikarnir byrja klukkan 7 að kvöldi. Hægt er að hlusta á tónleikana á Rás 2. Hægt er að horfa á tónleikana í sjónvarpinu á RÚV. Kvöldið endar með flugelda·sýningu.…

Starfsfólk Símans svarar spurningum í dómsal

Réttarhöld í Reykholtsmálinu halda áfram. Starfsfólk frá Símanum svarar líka spurningum. Fólkið sem er ákært fór með manninn í búð Símans. Fólkið vildi setja rafræn skilríki í símann hjá manninum. Rafræn skilríki eru eins og skilríki í síma. Fólkið notaði rafrænu skilríkin. Þess vegna gat fólkið tekið peninga af manninum. Allt fólkið sem er ákært hefur svarað spurningum. Maðurinn sem varð fyrir…

Ágúst og Dagur fara á HM

Ágúst Ingi Davíðsson og Dagur Kári Ólafsson eru fimleikamenn. Ágúst og Dagur keppa fyrir Ísland á Heims·meistaramótinu í fimleikum. Heims·meistaramótið er kallað HM. HM er í Hollandi í október. Ágúst og Dagur stóðu sig vel á Evrópumótinu. Evrópumótið er kallað EM. Þess vegna komust Ágúst og Dagur á HM. Þetta er í fyrsta sinn sem Ágúst kemst svona á HM. Dagur komst líka á HM í fyrra. Þá var Dagur…

Góður árangur á EM

Evrópu·mótið í frjálsum íþróttum var nýlega. Mótið var í borginni Birmingham. 8 keppendur frá Íslandi fóru á mótið. Íslandi gekk mjög vel. Þetta er besti árangur Íslands í 28 ár. Guðmundur Karlsson er framkvæmda·stjóri Frjáls·íþrótta·sambands Íslands. Guðmundur er mjög ánægður. Guðmundur segir: Við erum á réttri leið. Nokkrir keppendur frá Íslandi náðu góðum árangri: Einn var í 7. sæti. Einn var í…

Harry og Meghan flytja

Harry prins og Meghan flytja frá Bandaríkjunum. Harry og Meghan flytja aftur til Bretlands í þessum mánuði. Harry og Meghan ætla samt ekki að vinna fyrir konungs·fjölskylduna. Harry og Meghan ætla að búa nálægt borginni London. Húsið er ekki eign konungs·fjölskyldunnar. Harry og Meghan eiga 2 börn. Börnin heita Archie og Lillibet. Archie er 7 ára. Lillibet er 5 ára. Börnin byrja í skóla í…

Maður keyrði á ljósastaur

Maður keyrði bíl í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Maðurinn keyrði á ljósastaur. Lögreglan heldur að maðurinn hafi brotið umferðar·reglur. Þess vegna varð slysið. Lögreglan rannsakar málið. Enginn meiddist í slysinu. Bíllinn og ljósastaurinn skemmdust. Lögreglan rannsakar líka árás á fólk. Árásin var í Hafnarfirði, Garðabæ eða Álftanesi. Slökkviliðið slökkti eld á gámasvæði í Hafnarfirði. Það var…

Norður-Kórea skaut 10 flaugum

Norður-Kórea skaut 10 skotflaugum í morgun. Skotflaugarnar fara ekki langt. Herinn í Suður-Kóreu sagði frá þessu. Donald Trump er forseti Bandaríkjanna. Donald Trump ákvað að breyta heræfingum. Bandaríkin og Suður-Kórea æfa minna saman. Donald Trump vill hitta Kim Jong-un. Kim Jong-un er leiðtogi Norður-Kóreu. Fundurinn verður seinna á þessu ári. Donald Trump vill verða vinur Kim Jong-un aftur.…

ASÍ er ósátt með hærri vexti

Henný Hinz er aðstoðar·framkvæmdastjóri ASÍ. ASÍ eru samtök fyrir venjulegt vinnandi fólk. Henný er ósátt við að vextir hafi verið hækkaðir. Þetta er í þriðja sinn sem vextir hækka á þessu ári. Henný segir að þetta séu mikil vonbrigði. Henný segir: Hærri vextir eru slæmir fyrir fólk með litlar tekjur. Þetta er erfitt fyrir: Fólk sem skuldar peninga. Fólk sem leigir húsnæði. Fjölskyldur sem þurfa…

Trump vill hitta Kim

Donald Trump er Bandaríkja·forseti. Trump vill hitta Kim Jong Un. Kim Jong Un er leiðtogi Norður-Kóreu. Trump vill hitta Kim í haust. Trump vill gera samkomulag við Kim. Samkomulagið er um kjarnavopn. Trump vill að Norður-Kórea hætti að búa til kjarnavopn. Þetta yrði fjórði fundur þeirra. Bandaríkin og Suður-Kórea eru með heræfingu saman. Trump sagði að heræfingin ætti að vera minni. Þess vegna…

Hættulegt gas við Múlakvísl

Það er lítið jökulhlaup í ánni Múlakvísl. Jökulhlaup er þegar mikið vatn kemur undan jökli. Með vatninu kemur hættulegt gas. Þess vegna er hættulegt að vera nálægt ánni. Það er líka hættulegt að vera nálægt þar sem áin byrjar. Áin byrjar við Kötlujökul. Gasið heitir brennisteins·vetni. Það er lítill vindur á svæðinu. Þess vegna getur gasið safnast fyrir. Þá er það ennþá hættulegra. Hvað áttu að…

Stýrivextir hækka

Peninga·stefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti. Stýrivextir eru vextir Seðlabankans. Stýrivextir hafa áhrif á vexti á lánum hjá fólki. Vextirnir eru núna 8%. Þetta er í þriðja skipti sem vextir hækka á þessu ári. Seðlabankinn spáir meiri verðbólgu. Verðbólga þýðir að allt verður dýrara. Seðlabankinn heldur að verðbólga minnki á næsta ári. Af hverju er verðbólga? Peninga·stefnunefndin segir að…

Ekki matur fyrir gesti á Vitatorgi um helgar

Vitatorg er félags·miðstöð. Nýjar reglur eru um mat á Vitatorgi um helgar. Fólk sem býr á Vitatorgi getur borðað þar um helgar. Aðrir gestir geta ekki borðað þar um helgar. Sumt fólk er ósátt við þetta. Fólkið segir: Það er gott að hitta annað fólk á Vitatorgi. Þá er fólk ekki eins einmana. Af hverju er þessu breytt? Berglind Magnúsdóttir vinnur hjá Reykjavíkur·borg. Berglind segir: Eldhúsið á…