RSS Amplifier

Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri · Aug 13, 2026

Hvernig leysum við flókin vandamál?

0
Sign in to vote or save

Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri

Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá RHA, stödd á þaki dómkirkjunnar í Palermo.

Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá RHA, stödd á þaki dómkirkjunnar í Palermo.

Þann 6. til 10. júlí síðastliðinn, sótti Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA), námskeiðið Problem Solving & Decision Making, sem haldið var á vegum ShipCon í Palermo á Sikiley.

Námskeiðið er meðal annars ætlað skólastjórnendum, kennurum, og akademísku starfsfólki, sem vill efla færni sína í gagnrýninni hugsun og upplýstri ákvarðanatöku. En aðalmarkmið námskeiðsins voru meðal annars að:

  • skilgreina og greina vandamál
  • framkvæma rótargreiningu (e. root cause analysis)
  • þróa viðmið til að meta mismunandi lausnir
  • velja bestu lausnina og sannreyna árangur hennar
  • undirbúa innleiðingar-, samskipta- og eftirfylgnisáætlanir

Hugsunarhattar voru hápunktur

Námskeiðið var í boði í svokölluðu Erasmus+ mobility og var kennt af Angela Winstanley, félagsráðgjafa með víðtæka reynslu af því að stjórna teymum á flóknum sviðum.

Mikið var um teymisvinnu á námskeiðinu, meðal hápunkta voru að nota sex hugsunarhatta Edward de Bono (e. The Six Thinking Hats) til að greina og leysa vandamál í hópi. En með slíkan hatt á höfði þarf hver einasti einstaklingur að máta sig við mismunandi viðhorf gagnvart vandamálinu, t.d. skapandi hugsun, bjartsýni, og gagnrýna hugsun.

Dvölin á Sikiley var afar lærdómsrík, og naut Sæunn þess að kynnast fólki frá fjölmörgum Evrópulöndum: t.d. Litháen, Lúxemborg, Spáni, og Póllandi. Því gafst einnig tækifæri til að mynda tengsl við sérfræðinga í öðrum löndum sem möguleiki er á að vinna með síðar meir. Mörg höfðu jafnframt áhuga á að heimsækja Háskólann á Akureyri.

Sæunn nýtti sér beina flugið frá Akureyri með Transavia til Amsterdam og flaug svo áfram frá meginlandinu. En ljóst er að aukin erlend umsvif um Akureyrarflugvöll nýtast starfsfólki Háskólans á Akureyri vel.

Á miðvikudeginum var stuttur dagur til að nemendur gætu heimsótt strandbæinn Cefalú, en þess fyrir utan voru þau sem sóttu námskeiðið dugleg að skoða sig um, meðal annars fór hópurinn saman á Ennio Morricone tónleika í óperuhúsinu í Palermo.

Sæunni naut þess að sækja námskeiðið og að vera á þessari mögnuðu eyju þar sem margir, til dæmis Halldór Kiljan Laxness, hafa fundið fyrir miklum innblæstri í sköpun. Sæunn mælir með að starfsmenn háskólans nýti sér tækifærið að sækja námskeið í gegnum Erasmus+ mobility til að sækja sér aukna þekkingu og mynda tengsl við aðra skóla.

Read the original on rha.is

Comments

Nothing yet. Say the first thing.

    Sign in to join the conversation.